Morgunblaðið - 11.01.1987, Síða 5
C 5
Islensk-ítalska
félagið:
Rósarkvöld
ásunnudag
FYRSTA fræðslukvöld ís-
lensk-ítalska félagsins
verður haldið sunnudaginn
11. janúar. Nefnist það
Rósarkvöld.
Um þessar mundir er verið að
sýna kvikmyndina Nafn rósarinn-
ar eftir samnefndri bók ítalska
rithöfundarins og táknmálsfræð-
ingsins Umberto Eco. Félags-
mönnum og þeim er óska eftir að
ganga í félagið gefst kostur á að
sjá myndina næstkomandi sunnu-
dag kl. 17.00. Að lokinni sýningu,
um hálf átta, verður safnast sam-
an í Átthagasal Hótels Sögu og
hlýtt á erindi Thors Vilhjálmsson-
ar rithöfundar og Sverris Tómas-
sonar bókmenntafræðings.
Snæddur verður léttur kvöldverð-
ur sem kostar kr. 850 . Allir
áhugamenn og velunnarar
félagsins eru velkomnir.
Stjóm félagsins skipa: Pétur
Björnsson formaður, Steinar
Ámason varaformaður, Soffía
Gísladóttir ritari, Ema Hjaltalín
gjaldkeri og meðstjómendur era
Sigurður Demetz Fransson, Júlíus
Vífill Ingvarsson og Walter Jóns-
son.
Þeir sem hafa áhuga á að
ganga í félagið og þeir sem vilja
taka þátt i Rósarkvöldinu geta
snúið sér til stjómarmanna.
(Fréttatilkynning)
Danmörk:
Glæpir aldrei
verið fleiri
en 1986
ÁRIÐ 1986 hefur að öllum líkind-
um verið mesta afbrotaár i
danskri sögu. Yfirmaður ríkis-
lögreglunnar, Ivar Boye, telur,
að þá hafi það gerst í fyrsta sinn,
að heildartala afbrota, sem komu
til kasta lögreglunnar, hafi farið
yfir 500.000 mál.
Þessar upplýsingar hefur lögreglu-
stjórinn úr nýrri könnun á afbrota-
málum frá fyrstu þremur ijórðung-
um nýliðins árs.
-I raun og veru fjölgaði öllum
tegundum afbrota á árinu, en það
sem vekur einna mesta athygli, er,
að oflbeldisglæpum fjölgar áfram,
um u.þ.b. sex prósent á liðnu ári,
segir Ivar Boye í viðtali við Politi-
ken.
Hann nefnir einnig, að þjófnuð-
um, auðgunarbrotum, ránum og
skemmdarverkum hafi einnig fjölg-
að á árinu. Og nauðgunarkærum,
sem eru aðeins lítið brot af heildar-
málafjöldanum, fjölgaði um 60 á
árinu 1986.
Fríkirkjan
í Reykjavík:
Baraagnðs-
þjónusta
BARNAGUÐSÞJÓNUSTA verð-
ur í Frikirkjunni i Reykjavik í
dag, sunnudag, kl. 11.00.
Þá verða verðlaun veitt _ fyrir
góða ástundun í vetur. Séra Ólafur
Jóhannsson kemur í heimsókn og
ávarpar börnin. Að öðru leyti verða
sungnir barnasálmar og smábarna-
söngvar, guðspjallið útskýrt í
myndum, afmælisbörn boðin sér-
staklega velkomin og framhalds-
sagan „Dísa frænka" eftir Stefán
Jónsson lesin.
Við píanóið er Pavel Smíd,
fríkirkjuorganisti.
(Fréttatilkynning)
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
^ Sýning - Sýning
Sýnum í þessari viku
allar gerðir símkerfa
Kanda EK-516 Kanda EK-616 Kanda EK-1232 Kanda EK-2064
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
Fyrir miðlungsstór
fyrirtæki.
5 bæjarlínur og
16 símtæki.
Nýjasta kerfið sem
sameinar kosti stóru
símkerfanna og
verð litlu kerfanna.
12 bæjarlínur og
32 símtæki. Eitt
fullkomnasta
símkerfið með
fjölda möguleika.
Fyrir stóru
fyrirtækin. 20 línur
og 64 símtæki.
Fullkomið kerfi
með mikla
möguleika.
Við önnumst uppsetningar,
breytingar og viðgerðarþjónustu.
Komum á staðinn, ráðleggjum og
gerum tilboð.
Eurokredit - Kaupleigusamningar.
VIÐTÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR