Morgunblaðið - 11.01.1987, Síða 10

Morgunblaðið - 11.01.1987, Síða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987 Stjórnadi mörgum stóruppfærslum á íslenska skjánum vm hátíðarnar Hljómsveitarstjórinn frægi Lorin Maazel hefur verið góður gestur á skjánum á íslenskum heimilum um þessa jólahátíð, þótt ekki stjórni hann í þetta sinn nýjárshljómleikunum frá Vínarborg eins og mörg undanfarin ár. Þar hefur Karajan nú tekið við af honum og stjórnaði hljómleikunum í útsendingunni um heim allan á nýjársdag. Eiga þeir eflaust að venju eftir að koma hingað í janúar. En Lorin Maazel var aðalstjórnandi tónleikanna miklu til styrktar flóttamönnum, Classic Aid, sem sjónvarpað var 25. september I Genf og sendir út hér sunnudaginn 21. desember sl. Þar kom fram mikill fjöldi af heimsþekktu listafólki, svo sem Kiri Te Kanawa, Itzak Perlman, Yehudi Menuhin, Isaac Stern, Vladimir Askhenazy, Luciano Pavarotti og fleiri og kynning Peters Ustinov (á frönskunni) frábær. Síðdegis á nýjársdag flutti svo Scala-óperan hér stóróperuna Aidu eftir Giuseppe Verdi undir hans hljómsveitarsljórn með stórsöngvurum á borð við Luciano Pavarotti, Ghenu Dimitrovu og fleirum, í glæsilegri og íburðarmikilli sýningu sem mikið hefur verið umtöluð í Evrópulöndum. Loks sást Lorin Maazel á sjónvarpsskerminum okkar sunnudagskvöldið 4. janúar í bresku heimildarmyndinni um töku stórmyndarinnar Otello, sem Zeffirelli gerði eftir óperu Guiseppes Verdi og nú er sýnd víða um Evrópu, en í þessari stórupptöku stjórnar Lorin Maazel einmitt hljómsveitinni. Af því tilefni var rætt við hljómsveitarstjórann um Zeffirelli i sunnudagsþættinum. Þessi frægi stjórnandi hefur unnið hug og hjarta Frakka með frægum flutningi á Pelléas í Opera de Paris og sem gestastjórnandi síðan 1977 i Orchestre National. Kvikmyndin Otello var einmitt sýnd í kvikmyndahúsum í Frakklandi á þessu hausti og í tilefni af flutningi Sameinuðu þjóða tónleikanna í september var rætt við Lorin Maazel. Er forvitnilegt að kynnast viðhorfum hans nú, þegar allar þessar stóruppfærslur hafa borist á skerminn hjá okkur um hátíðarnar. En hann er síður en svo farinn að draga af sér. Viðtal við hljómsveitarstjórann LORIN MAAZEL un um þann andlega og siðræna styrk sem ég var að tala um, þ.e. með öfugum formerkjum. Það sýndi einmitt viðurkenningu stjómmála- manna á tónlistinni. Þjóð sem dregst inn í ævintýri á borð við nasismann hlýtur stöku sinnum að fá efasemdir um sjálfa sig, hún þarf á einhverjum siðferðilegum stuðpúðum að halda. Tónlistin hlaut þetta hlutverk í Þýskalandi. Ein- staklingar sem voru algerlega rúnir allri siðrænni hæfni notuðu tónlist- ina í andmannúðlegum tilgangi. Þetta sýnist kannski galið, en þegar ég 12 ára gamall hlustaði í útvarp- inu á pílagrímakórinn í Tannháuser var ég sannfærður um að þetta væri lofsöngur SS-sveitanna. Það var ekki fyrr en ég stjómaði honum sjálfur tuttugu ámm síðar að ég skynjaði þetta sem trúarlega tón- list.“ „Hvernig lítur alheimsborgari eins og þú, sem alls staðar og hvergi á heima, á göngumars mann- kynsins?“ Daginn sem tónleikamir til styrktar flóttamönn- um voru sendir út í flestum stöðvum Evr- ópu 25. september var Lorin Maazel staddur í Berlín. Tón- leikarnir höfðu verið teknir upp 13. september. í kjölfar rokksins leggur sígilda tónlistin nú mannúðarmál- unum lið, og Lorin Maazel reið þar á vaðið með tónsprota sinn. Hann tók að sér stjómina á „Classic Aid“-tónleikum Sameinuðu þjóð- anna, eða það að ná saman og samhæfa fremstu listamenn á sviði óperu og hljómleikaflutnings til aðstoðar við flóttamannahjálp um víða veröld. Sígild músík í kjölfar rokksins „Ég hefi í mörg ár stjómað nýj- árstónleikunum í Vín,“ sagði hann. „Ég varð fyrstur til að flytja hljóm- leika á nýja útileikvanginum í Bercy í París, Requiem eftir Berlioz, og allir sextán þúsund miðamir seldust upp á einni klukkustund. Allt sum- arið hefí ég verið að stjóma tónleik- um undir bemm himni á Spáni og Ítalíu fyrir tugi þúsunda áheyrenda á hverjum stað. Þegar Sameinuðu þjóðimar leituðu álits hjá mér á því hvort sígild tónlist gæti með valdri dagskrá náð til stórs áheyrendahóps svaraði ég því játandi. Gegnum 25 sjónvarpsstöðvar horfðu 25 milljón sjónvarpsáhorfendur þá þegar á þessa sígildu tónleika. Því getum við ekki annað en verið ánægðir með þessa fyrstu tilraun. Ekki síst þar sem allir listamennirnir sem tóku þátt í þessu vom stórhrifnir, alveg í sjöunda himni og ég er þeg- ar farinn að undirbúa Classic Aid númer tvö til ágóða fyrir flóttamenn u „Undanfarin ár hefi ég, eins og allir mínir félagar, stjómað hljóm- leikum fyrir alls konar stofnanir. Mitt markmið er engu síður að sýna fram á að sígild tónlist á sinn óska- stað í hjörtum allra þeirra, sem ekki leggja venjulega leið sína á hljómleika eins og meðal þeirra sem gera það að jafnaði. Ég er lengi búinn að halda þessu fram. Því sígiid tónlist tilheyrir öllum mönn- um, hún á að standa öllum til boða, ekki síst þeim sem minnstan arfínn fá. Þessa fyrstu hljómleika af þessu tagi með sígildri tónlist hófum við í Stóra spilasalnum í Genf og bæt- um inn í kvikmynduðum innskotum úr óperum og af hljómleikum. Það er fyrsta skrefið til að leggja undir sígilda tónlist almenna sjónvarps- notkun. Rokktónlistin hefur þegar náð að sýna það sem vissir þættir náðu í hlustun með tilkomu laser- flutningsins. Það er því engin ástæða til þess að sígild tónlist sitji þama eftir. Það er að segja ef hún er flutt af bestu listamönnum, án nokkurrar eftirgjafar eða óþarfa aðlögunar. Þetta er alvörumál og engin ástæða til að fara alltaf með sjónvarpsáhorfendur eins og ein- hvem rolluhóp." „Tími er til kominn að sígild tón- list fái meiri útbreiðslu. Við brenn- um í skinninu að koma henni á framfæri í allri sinni auðlegð. Eng- inn hefur áhuga á sígildri tónlist sem flutt er eins og skólabókarlær- dómur, jafnvel ekki tónlistarmenn- imir sjálfír. í stað þess verða að koma til ástríður, kraftur, andleg uppljómun og þá skal engan undra að hennar tími sé að renna upp á þessum síðustu og verstu tímum. Sjáið bara hvaða traust okkur er sýnt, okkur er trúað til að ná með list okkar saman verulegum styrkt- arsjóðum. Við hljótum að óska okkur til hamingju með það.“ Fimmta sinfónían í heims- styrjöldinni „Þú manst auðvitað þá tíma er sígild tónlist hafði ekki slíkt bol- magn?“ „Síðari heimsstyijöldin breytti þessu öllu. Þegar við gátum í út- varpi hlustað á 5. sinfóníu Beethov- ens vaknaði vonameysti. Píanóleik- arinn Mira Hess lék í sundursprengdum kirkjum í Lon- don. Allt í einu var tónlistin orðin það sem fólkið gat hallað sér að. Eftir stríð flýttu hmndar höfuborg- ir sér að koma upp hljómleikasölum og óperuhúsum, jafnvel á undan verksmiðjunum. Það varð merki um endumppbyggingu að geta á ný sótt hljómleika." „Varð það samt ekki til að vekja tortryggni í garð tónlistarinnar hvemig Þýskaland Hitlers hafði notfært sér hana?“ „í raun varð það hörmuleg sönn- „Ég er fæddur í París, kominn af bandarískum foreldmm. Faðir minn var þar í leikhús- og söng- námi. Þegar ég var hálfs þriðja árs fluttum við til Bandaríkjanna. Æskuámnum eyddi ég svo í Pitts- burg í Pennsylvaníu. Rúmlega tvítugur fékk ég svo námsstyrk til Ítalíu. Þaðan hélt ég til Frakklands og Spánar og kynntist gömlu Evr- ópu. Sem fullþroska maður hefí ég svo átt heima þar sem ég hefí ver- ið hveiju sinni. Samt sem áður er ég bundinn Bandaríkjunum sterk- um böndum. Víðáttan þar á við mig, þessar víðáttumiklu strendur Kalifomíu þar sem við bræðumir vomm saman, með heiðum himni, fjöllum og auðninni í allri sinni dýrð. Með ámnum hefí ég aftur færst nær því sem upphaflega hreif mig

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.