Morgunblaðið - 11.01.1987, Page 22

Morgunblaðið - 11.01.1987, Page 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987 Vinningshafarnair ásamt fulltrúum íslenskrar getspár. Sigri fagtiað í Lottói Játvarður við þjálfun hjá Landgönguliði hennar hátignar. Hann er nú eitthvað skrýtinn þessi! Þessi skemmtilega mynd var tekin í dýragarði Lundúna- borgar ekki alls fyrir löngu. Uglan er þekkt fyrir að hafa stór og spak- leg augu, enda uglan gjarnan kölluð viskufuglinn; alls óskyld óminnis- hegranum. Þessar tvær velta hlutunum greinilega fyrir sér.þ Onnur í bók- staflegri merkingu, en hin lokar öðru auga væntanlega til þess að geta hvesst sjónina enn betur. Játvarður prins að guggna? Játvarður prins, yngsta barn Englandsdrottningar, hugleiðir nú að hætta í Hinu konunglega dandgönguliði, eftir að hafa tekið 'þátt í fjögurra mánaða langri þjálfun, sem er ein hin erfiðasta í heimi að sögn kunnugra. Mikil vonbrigði eru með þessa afstöðu prinsins, því ekki þykir sæma að hann gefist upp. M.a. hefur einn hershöfðingi land- gönguliðsins verið í Buckingham- höll undanfarna daga og lagt hart að pilti að vera. Vonast er til þess að ákvörðun verði tekin á næstu dögum, en þá er óráðið hvað hann tekur til bragðs. í fyrra útskrifaðist úr Cambridge-háskóla í fyrra með próf í mannkynssögu. Slúðurdálkahöfundar á Bret- landi hafa að undanförnu haft af því miklar áhyggjur að Játvarður hafi ekki hugað að kvonfangi enn, eða stúlkum almennt. E.t.v. gefst hinum 22 ára piparsveini kostur á því nú. Undanfamar vikur hefur þjóðin verið upptekin og undirlögð af því að fylla út lottóseðla. Var varla að hún hefði tíma til þess að líta upp úr þeim, svo sinna mætti jólunum. Síðastliðinn þriðjudag bauð íslensk getspá vinnings- höfum ijórðu leikviku í aðalstöðvar fyrirtækisins í Laugardal í Reykjavík, en hinn 20. desember reynd- ust það vera sjö manns, sem skiptu með sér röskum fjórum milljónum króna. Sex vinningshafanna komu og var meðfylgjandi mynd tekin er Þórður Þorkels- son, stjómarformaður íslenskrar getspár, og Vilhjálm- ur B. Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri, afhentu hinum heppnu vinningana, en þeir námu 577.992 krónum á nef hvert. Jörandur og Júlíus á fullri ferð kemmtikraftamir Jörundur Guðmundsson og Júlíus Bijánsson hafa nú snúið bökum saman og hafa að undanfömu ver- ið að skemmta fólki. Báðir hafa þeir verið viðloðandi skemmtana- bransann um langt skeið, en í sitt hvoru lagi, svo Morgunblaðið tók þá félaga tali og spurðist fyrir um ástæður þess að þeir koma nú fram saman, hvað væri á döfinni og al- mennt um þennan starfa, að vera skemmtikraftur. Jörundur tók fyrst til máls og sagði að hann væri sá skemmti- kraftur sem næstlengst hefði verið að óslitið. „Ómar er náttúrulega númer eitt, en ég var næstur í röð- inni“. „Já“, grípur Júlíus fram í. „Jörundur kom fyrst fram á ung- mennafélagsmóti fyrir norðan skömmu fyrir stríð. Jóhannes á Borg sýndi glímu og Jörundur hermdi eftir.“ Jörundur fær orðið aftur, sussar á Júlíus og tilkynnir að hann hafi hafíð feril sinn seint á sjöunda áratugnum, en ekki þeim fjórða. Júlíusi finnst greinilega lítið til þess koma og hann bendir á að hann hafi fyrst komið fram um 1960. „Hvar var það, Júlli minn?“ spyr Jörundur. „Það var með Lúðrasveitinni á Akureyri", svarar Júlíus og þeir kýta nokkra stund um hvort lúðrasveitin teljist með eða ekki. En hvað kom til að þið tókuð höndum saman? „Tja, við höfum vitaskuld skemmt saman áður — bæði í út- varpi, í kabarettum og fleiru — en við tveir höfum ekki samið sérstakt „prógramm" saman áður. Annars er svolítið einkennilegt með skemmtikrafta að það gengur ekki alltaf upp að vera tveir saman. Menn geta verið einir, eða margir í hóp, en það er erfiðara að vera tveir. Svona „pör“ hafa ekki verið mörg. Ég man eftir þremur. Baldri og Konna, Halla og Ladda og Kaffí- brúsakörlunum." „Já“, segir Júlíus. „Þetta hefur gengið ótrúlega vel hjá okkur.Það kemur náttúrulega til af því að við þekkjum hvor annan og höfum unnið saman áður. Að vísu voru fyrstu kynni okkar af því að skemmta saman ekki góð. Það var um páska á skíðavikunni á ísafírði 1973, og það var allt snarvitlaust. Áhorfendurnir voru svo stjörnufull- ir, að í stað þess að klappa þá henti þeir öllu lauslegu í okkur — skíða- stöfum, ísmolum, glösum og klinki. Það hefði hent ömmu gömlu og heimiliskettinum ef þau hefðu verið höndina. Samt hló það að skemmti- atriðunum, þannig að ekki vorum við ófyndnir." „Ég man hins vegar eftir mjög snyrtilegum mótmælum á hesta- Morgunblaðið/Einar Falur „Okkar reynsia er sú að von- laust sé að rífa upp stemmning- una við jarðarfarir .. mannamóti í Miðgarði. Þetta var um kvöldið og 800 hestamenn voru komnir hálfa leið ofan í glas og sumir alla leið. Fólk var almennt í góðu skapi, en það var einn maður út í sal, sem var með linnulaus framíköll og stæla. Fyrst í stað reyndi ég að leiða manninn hjá mér, en þegar ljóst varð að hann ætlaði sér ekki að hætta, skaut ég aðeins á hann, en þá strunsaði hann upp á svið, tók hljóðnemann og fór burt með hann og eftir stóð ég eins og aumingi." En núna er þetta allt annað og fólk yfírleitt sem hugur manns. En það hjálpar náttúrulega líka að við þekkjum markaðinn út og inn og vitum hvað hann vill.“ Sem er? „Það er fagleyndarmál, en aðal- atriðið er að koma víða við. Fólk vill ekki horfa á heilu leikþættina, miklu frekar að hafa mörg styttri atriði, sem eru hnitmiðuð og ekki með einn dauðan punkt. En við nennum ekki að vera með ein- hverja klámbrandarasúpu. Brand- aradagskrá þarf að geta náð til allra. Það kemur líka oftar fyrir en ekki, að maður kannast við ein- hvem í hópnum og þá leyfir maður sér nú að bauna á hann. En með svona fjölbreytt „prógramm“ get- um við skemmt hvar sem er. Alvörusvipur færist yfír Júlíus og hann hnyklar brúnimar. „Ja... við tökum ekki að okkur jarðarfar- ir. Það er okkar reynsla að vonlaust sé að rífa upp stemmninguna þar.“ „Svo kann ég náttúrulega ýmsar sögur um Jörund

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.