Morgunblaðið - 28.02.1987, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LA.UGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1987
5
Ljósfari RE 102 er nú í eigu
Húsvíkinga og heitir Galti ÞH
320.
Stöð 2 um land allt
ætti á vordögum. Áformað er að
gera Galta út mestan hluta ársins á
rækjuveiðar, en að hluta til loðnu-
veiða. Hann mun fara til rækjuveiða
nú um helgina, en tilfinnanlegur
skortur hefur verið á rækju til vinnslu
hjá Fiskiðjusamlaginu. Skipstjóri á
Galta verður Aðalgeir Bjamason,
sem áður var skipstjóri á Björgu
Ljósfarí kominn til Húsavíkur
Heitir nú Galti ÞH 320 í eigu Brík hf
Húsavík.
NÝTT fiskiskip, Galti ÞH 320,
bættist í flota Húsvíkinga í gær,
en skipið hét áður Ljósfari RE 102
og var í eigu Júlíusar Stefánsson-
ar, sem rekur Útgerðarfélagið
Barðann. Eigandi skipsins er ný-
stofnað hlutafélag, Brik hf., og
eru aðalhluthafar þess Fiskiðju-
samlag Húsavíkur og Langanes
hf.
Framkvæmdastjóri hins nýja fé-
lags verður Bjami Aðalgeirsson
bæjarstjóri, sem lætur af því emb-
Jónsdóttur. Nafngiftir skips og fé-
lags em vel þekkt ömefni í Kinnar-
fjöllum og nöfn á þekktum fiskimið-
um á Skjálfanda.
Fréttaritari
„ÞAÐ má búast við því að Stöð
2 verði komin í beina sendingu
um land allt eftir níu mánuði,“
sagði Jón Óttar Ragnarsson,
sjónvarpsstjóri, í samtali við
Morgunblaðið.
Jón Óttar sagði að um væri að
ræða litlar svæða-sjónvarpsstöðvar
í helstu bæjum og kauptúnum
landsins, sem sjálfstæðir aðilar
stæðu að. Hinsvegar fengju þessar
svæðastöðvar efni Stöðvar 2 og
jafnframt gætu þær verið með eig-
ið efni, til dæmis staðbundnar
fréttir og aðra dagskrárliði.
Stefnt er að því að koma upp
stöðvum á Selfossi, Hvolsvelli og
Vestmannaeyjum fyrir kosningar
og yrði sjónvarpsefni Stöðvar 2 sent
í gegnum ljósleiðara þangað sem
Póstur og sími hefur nýverið komið
upp. Til hinna staðanna verður not-
ast við svpkallaða örbylgjuhlekki,
sem Jón Óttar sagði að væm til
staðar, en starfsmenn Pósts og síma
þyrftu að vinna að breytingum
vegna sjónvarpssendinganna.
Jón Óttar sagði að 11.500 áskrif-
endur væru nú á höfuðborgarsvæð-
inu sem þýddi að tæplega 20%
sjónvarpsmarkaðarins þar væri með
afruglara eða fimmta hvert heimili.
Fíkniefni
fundust við
húsleit
FÍKNIEFNI fundust við leit í
húsum i Reykjavík á fimmtu-
dagskvöld og í gærdag. Fimm
voru handteknir vegna málsins.
Lögreglan leitaði á þremur stöð-
um í borginni. Við leitina fannst
kókaín, í litlu magni þó, 10-12
grömm af amfetamíni og lítilræði
af hassolíu og hassi. Fimm manns
voru handteknir vegna málsins, en
þeir hafa allir verið látnir lausir.
Glataður
var geymd-
ur eyrir!
Hlíðarholti.
ÞAÐ bar til tíðinda nú fyrir
nokkrum dögum að bóndi
nokkur átti erindi í banka-
stofnun. Rifjaðist þá upp fyrir
honum að hann átti þar inni-
stæðu i gamalli sparisjóðsbók.
Tilurð þeirrar innistæðu voru
þau að vorið 1942 vann hann
að jarðbótastörfum í hálfan
mánuð í forföllum bróður síns.
Hlaut hann að launum fyrir þá
vinnu 25 kr. á dag eða alls 300
kr. Þessa upphæð lagði hann
nú inn í téða lánastofnun til
ávöxtunar. Aldrei hafa verið
lagðir aðrir peningar inn á þenn-
an reikning utan það að vextir
hafa bæst við höfuðstól en eng-
in úttekt farið fram í allan
þennan tíma.
Þar sem allmörg ár voru nú
liðin frá því að sparisjóðsbókinni
var síðast framvísað til inn-
færslu vaxta var nú tækifærið
gripið til þess að vita nú hve
digran sjóð bóndinn ætti þama
inni.
Fulltrúi lánastofnunarinnar
tók við bókinni og hófst nú
handa um að framkalla svör úr
tölvu stofnunarinnar þar um.
Og viti menn. Ekki stóð á
svari. Með fagurlituðum tölu-
stöfum upplýstist að innistæða
bóndans væri nú eftir 45 ára
ávöxtun í bankanum hvorki
meira né minna en 181 króna
og 33 aurar.
Það brá fyrir undrunarsvip á
andliti innistæðueigandans og
það hvarflaði að honum að nokk-
ur vafi gæti leikið á sannleiks-
gildi gamals máltækis að
„græddur væri geymdur eyrir".
Þ.B.
•*
I DUUS HUSI
Pizza alla daga. Heilar eða í sneiðum,
í hádeginu og á kvöldin, til að taka með heim
eða snæða á staðnum.
Italski pizzameistarinn Ándrea Zizzari
matreiðir í viðarkynntum ofni af mikilli snilld.
20% kynningarafsláttur
eftir níu mánuði