Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 2

Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 Hjálpum bömum ao takast á viö óttann Allir þekkja hrœðslu af eigin raun. Og börn komast ekki hjá því að kynnast þessari tiifinningu. En hvernig bregðast foreldrar við þegar börnin þeirra eru hrædd við myrkrið, viija ekki sofa ein, fá martröð, þora ekki í skólann eða óttast að styrjöld skelli á? Á að segja börnunum að það sé engin ástæða að óttast og reyna þannig að losa þau við þessa tilfinningu? Eða á að taka hræðslu barna alvarlega? Líka er ástæða til að spyrja hvort nokkur von sé til þess að unnt sé að koma í veg fyrir að börn þjáist stundum af hræðslu. Magnús var fimm ára þegar hann byrjaði að fá martraðir. Hann grét í svefni, honum óx máttur svo með ólíkindum var og þannig mölvaði hann það sem var í kringum hann. Foreldr- unum tókst ekki að sefa hann. Þegar Magnús var orðinn 11 ára hafði hann enn ekki sofið vært heila nótt í einu. Þá dó amma hans. Magnús fór í jarð- arförina. Foreldrar hans telja að þá hafi hann orðið fyrir áfalli. Atferli hans tók að breytast. — í byrjun veittum við því ekki sérstaka athygli, segir móð- irin. Honum var oft illt í höfðinu þegar hann kom heim úr skólan- um og kennarinn sagði að hann væri orðinn svo fálátur. Einn daginn var ég að fylgja honum í skólann og þá varð mér Ijóst að eitthvað alvarlegt var að hon- um. Hann neitaði að fara inn í skólann. Hann grét og lamdi frá sér. Upp frá þessum degi urðu foreldrarnir að fylgja drengnum í skólann dag hvern og sitja við hlið hans í kennslustundum. Það gekk auðvitað ekki til lengdar því að þau urðu að stunda sína vinnu og niðurstaðan varð sú að Magnús hætti í skólanum. Athyglisvert er að krakkarnir í skólanum hafa aldrei gert að- súg að þessum dreng. Hann hefur notið vinsælda meðal fé- laga sinna og honum var t.d. ekki strítt þegar foreldrar hans skiptust á um að vera hjá honum í skólanum. — Skólasálfræðingurinn, kennarinn og sálfræðingur á sjúkrahúsi gerðu allt sem þeir gátu til að hjálpa okkur, segir móðir Magnúsar. Við fórum í einu og öllu að ráðum þeirra. Kennarinn kom daglega til að sækja hann. Við bárum hann út í bílinn en hann sýndi mótþróa og veinaði stanzlaust. Þá var okkur ráðlagt að setja hann út fyrir dyrnar á hverjum morgni til að sjá hvort hann færi þá ekki í skólann af sjálfsdáðum. Það var ömurlegt að horfa upp á hann standa á stéttinni tímun- um saman. Síðar var okkur sagt að við skyldum láta hann vera heima og banna honum að fara í skólann. Hann mátti hins vegar fara út í fótbolta. Tilgangurinn var sá að þreyta hann þannig að hann yrði feginn tð komast í skólann. Hann lét aldrei bilbug á sér finna þótt hann yrði að dúsa inni í herberginu sínu allan daginn. — Svo kom sumarleyfið og þegar það var á enda var allt breytt. Nú vildi Magnús fara í skólann en hann var orðinn að ólátabelg sem kennararnir réðu ekkert við. Að nokkrum tíma liðnum óskaöi hann sjálfur eftir því að fá að skipta um skóla. Ekki leið þó á löngu áður en allt var komið í vitleysu í nýja skólan- um og brátt neitaöi hann að fara þangað þannig að hann var heima um skeið. Einn daginn tók hann fram hjólið sitt og fór í skólann. Það gerði hann síðan í heila viku. Þá var því lokið. Sálfræðingarnir tjáðu foreldrunum að þeir gætu ekki tjónkað við drenginn. Lo- kaúrræðið væri innlögn á geðdeild. — Við fengum tilvísun og hann átti að fara á Ríkissjúkra- húsið í Kaupmannahöfn. Hann hlakkaði til. Hann langaði sann- ariega tii að láta sér batna. En um leið og hann kom auga á hjúkrunarkonuna með glamr- andi lyklakippu í hendinni tryllt- ist hann. Hann veinaði, grót og lamdi frá sér og það var engin leið að eiga við hann, segir móðir hans. Þess vegna fórum við heim með hann aftur. Enn var komið vor og Magnús hélt áfram að reyna að vinna bug á hræðslunni svo hann gæti farið í skólann. — Hann gerði það af því að hann óttaðist að verða að fara aftur í sjúkrahúsið, segja foreldr- arnir. En hvað framtíöin ber í skauti sér vitum við ekki því að við höfum enn ekki komizt að því hvað er að drengnum. Oft spyrjum við okkur sjálf hvaða mistök við höfum gert í uppeld- inu. Það er sama hvað við brjótum heilann um það, við komumst ekki að neinni niður- stöðu. Við höfum gífurlegar áhyggjur af framtíð hans. Við erum að því komin að geast upp. Tvö undanfarin ár hafa far- ið mjög ilia með okkur öll, og þetta bitnar ekki sízt á bræðrum Magnúsar en þeir eru tveir. Öll börn verða hrædd Allir kannast við hræðslu, enda þótt fæstir vilji viðurkenna að þetta sé eins skelfileg tilfinn- ing og sú hræðsla sem Magnús á við aö stríða. Allir foreldrar verða einhvern tíma fyrir því að börnin þeirra verða óttaslegin, fá martröð eða neita að fara í skólann í stað þess að koma til móts við kröfur kennara og fó- laga. Hvernig bregðast foreldrar við? Er hægt að koma í veg fyr- ir að sérstakir atburðir og reynsla búi um sig í huga barn- anna og verði að varanlegum ótta? Hvernig á að hjálpa börn- um þegar þau láta í Ijós hræðslu? Hræðslu á ekki að bæla eða þagga niður með því að hugga barnið. Þetta segja fjölskyldu- ráðgjafarnir Susanne Mellerup og Dorte Eberth í Árósum, en þær hafa sérhæft sig í hræðslu barna og veita ráðgjöf um hana í skólum og dagvistum. Einnig veita þær ráðgjöf fjölskyldum sem hafa þörf fyrir stuðning. Susanne Mellerup er sálfræð- ingur en Dorte Eberth er félags- ráðgjafi. — Því miður er reynslan sú að foreldrar gera sér yfirleitt ekki grein fyrir því að alvara sé á ferðum fyrr en orðsending berst frá skólanum, segja þær. Foreldrar eru iðulega tortryggnir í garð sálfræðinga og ráðgjafa á vegum skólans, enda halda þeir iðulega formlegan fund ásamt foreldrunum í stað þess að ræða við þá í ró og næði. Af þessum orsökum reynist oft erfitt að hjálpa börnum sem þjást af ofsahræðslu. Til þess að það megi takast er nauðsyn- legt að nálgast fjölskylduna á jafnréttisgrundvelli og kynnast henni sem heild inni á heimilinu. Sá sem tekur að sér þetta hlut- verk verður að umgangast fólkið á eðlilegan hátt, tala höstuglega til eins, blíðlega til annars og skynsamlega við þann þriðja. Annars er ómögulegt að rjúfa vítahring sektarkenndarinnar sem barnið og foreldrarnir eru komin í. Þær halda áfram: Sem for- eldri ætti maður ávallt að taka hræðslu barns sem vísbendingu um að eitthvað sé að í fjölskyld- unni sem heild. Til þess að verða fær um að hjálpa barni sem er í hræðslukasti þarf maður að byrja á því að hugsa um sína eigin hræðslu og reyna að vinna bug á henni. Þá fyrst má reyna að rjúfa þaö kerfi skelfingar sem ríkjandi er í fjölskyldunni. Ótti er ekki fyrirbæri sem hægt er að ræða við barnið á hlutlausan hátt. Barnið lærir aðeins að umgangast óttann ef foreldrarn- ir eru færir um að gera það. Ef óttinn er eitthvað sem ekki má minnast á eða takast á við er ekki hægt að læra að spjara sig í lífinu. Allir verða óttaslegnir. Óttinn er hreyfiafl lífsins. Hvítvoðungur finnur til hræðslu, t.d. þegar hann heyrir óvænt hljóð eða þegar honum er illt í maganum. Hvítvoðungurinn tjáir hræðslu sína með því að koma henni á framfæri við foreldrana og barnið er algerlega háð því hvernig foreldrarnir bregðast við þessum skilaboðum. Talið um óttann Magakrampi skaðar ekki ung- barn sem fær þennan kvilla. Hins vegar skaðar það barnið ef foreldrarnir þola ekki grát barnsins heldur bregðast við honum með ótta, reiði eða taugaspennu. Þá tekur barnið sjálfkrafa við öryggisleysi og hræðslu foreldranna. Þegar lítið barn segir: „mamma, ég er hrædd," er það eðlileg og heilbrigð tjáning og því er mikilvægt að móðirin hlusti á það sem barnið er að segja en segi ekki bara: „Þetta er ekkert til að óttast." Svarið ætti fremur að vera á þessa leið: „Komdu og seztu hjá mér, óg sé hvað þú ert hrædd." Barninu þarf að vera Ijóst að það er í lagi að finna til hræðslu og að það geti hæglega afborið hræðsluna. Það er erfiður tími í lífi barns þegar það verður að læra að móðirin verður stundum að fara frá því. Sú reynsla kallar oft á hræðslu. Margir foreldrar hafa þá sögu að segja aö frá þriggja- fjögurra ára aldri geri börn sér skelfilegar hugmyndir og fái martraðir. Þá halda foreldrar oft að nú sé eitthvað að fara úr- skeiðis. Svo er ekki. Martraðir hjáipa börnum til að komast yfir erfiða reynslu sem fullorðnir eru færir um að ræða um. Á þessum aldri þurfa börn að læra að þau reiðast foreldrum sínum og verða afbrýðisöm í garð yngra systkinis, og óskar þess jafnvel að það deyi. Ef börn læra ekki snemma að umgangast tilfinn- ingar sínar á þessu stigi er við því að búast að þau fái mjög heiftarlegar martraðir. Vilji mað- ur hjálpa barni sem er með martröð er ágætt að halda í höndina á því þartil það róast. Mörgum foreldrum stendur líka stuggur af árásarhneigð og ofsa sem fram kemur í leik barna. Þegar leikurinn er í því fólginn að börn þykjast vera að hálshöggva félaga sína fyllast foreldrar óhug og segja sem svo: Það er eitthvað alvariegt að þessu barni. Vert er að hafa það í huga að þetta er ósköp eðiilegur liður í þroska ungra barna. Mörg börn óttast myrkrið. Þau hafa það á tilfinningunni að þau geti ekki fundið móður sína þegar þau vakna og þegar þann- ig stendur á skiptir miklu að sinna barninu og vita hvað það er sem barnið er hrætt við. Eng- inn annar en barnið sjálft er nefnilega færari um að finna bestu lausnina til að vinna bug á hræðslunni. Kannski nægir því að fá bangsann sinn, að fá eitt- hvað aö borða eða að hafa hjá sér dauft Ijós. Það er sama í hverju lausnin er fólgin, hún er því algjörlega óviðkomandi „að láta undan krakkanum". Hvort börn eiga að sofa í sama rúmi og foreldrarnir fer alveg eftir því hvort foreldrarnir fella sig við það. Ef þeir kæra sig ekki um það verða börnin samstundis vör við þá andstöðu og hún getur haft í för með sór öryggis- leysi og hræðslu. Besta ráö sem hægt er að gefa foreldrum er í því fólgið að þeir þurfa að sannfæra börnin um að hægt sé að vera ósam- mála og rífast jafnvel hressilega þannig að allir sem hlut eiga að máli verða leiðir, en að síðan sé hægt að mætast á miðri leið og sættast. Börnin verða tilfinn- ingalega bækluð ef foreldrunum verður aldrei sundurorða eða ef þau verða aldrei vitni að rifr- ildi, þar sem foreldrarnir missa stjórn á skapi sínu. Þegar foreldrarnir verða hræddir án þess að verða færir um að tala um það finna börnin til sektarkenndar. Síðan hætta þau sjálf að minnast á þá hræðslu sem þau finna fyrir, vegna þess að þau eru reiðubú- in að leggja á sig hvað sem er til að glata ekki ást foreldranna. Þetta þýðir að sjálfsögðu ekki að foreldrar eigi að sitja og standa að vilja barnanna allan sólarhringinn. Börn hafa ekkert illt af því að verða fyrir vonbrigð- um, en þau verða að vita að hverju þau ganga. Skýr skilaboð Þegar barn verður leitt eða reitt á hvorki að hugga það né skamma. Ef barnið orgar af reiði eða frekju af því að maður vill ekki leika við þau er ástæða til að láta það fá skýr skilaboð: „Ég vil heldur lesa. Eg sé ósköp vel að þau ert reið, en við því er ekkert að gera." Oft lamast foreldrar þegar barn fer að gráta og reyna að þagga niðri í þeim sem allra fyrst, e.t.v. af því að þeir eru sjálfir gagnteknir af ótta og eru hræddir um að barnið verði jafn einmana og yfirgefið. Það á ekki að rökræða við börn sem eru í reiðikasti. Það sem börnin þurfa á að halda undir slíkum kringumstæðum eru skýr skilaboð. Það er slæmt ef börnin finna að þau megna ekki að koma foreldrunum úr jafnvægi. Um leið og foreldrarn- ir verða ráðvilltir og láta í Ijós öryggisleysi þess vegna er allt komið í óefni. Börn gera sér oft upp veik- indi. Þau segjast vera með verk í höfði eða maga, en það sem raunverulega er að er það að þau ringlast í erli og annríki dag- legs lífs. Vísbendingar af þessu tagi má oft skilja sem svo að börnin hafi þörf fyrir að vera meira samvistum við foreldrana í ró og næði. Hversu annríkt sem foreldrar eiga þarf alltaf að gæta þess að tími sé til þess að taka sér hlé frá störfum og öðru umstangi reglulega. Þegar foreldrar ákveða að skilja er mikilvægt að þeir taki á sig sökina. Við slíkar aöstæður eiga börnin rétt á því að úthúða foreldrum sínum og segja til dæmis: „Þú ert helvítis asni.“ Þá er ekki um annað að ræða en viðurkenna vesöld sína og taka undir: „Já, ég er helvítis asni.“ Þegar nýr maki kemur í fjöl- skylduna vita börn yfirleitt ekki sitt rjúkandi ráð heldur bregðast við með offorsi. Þá skiptir miklu máli að foreldri skorist ekki und- an ábyrgð heldur segi eitthvað á þessa leið: „Þetta er einstakl- ingur sem ég ætla mér að búa við hvort sem þér líkar það eða ekki.“ Mikilvægt er að foreldrar barna á kynþroskaaldri láti áhyggjur sínar af velferð barns- ins ekki bitna á því þannig að þessum áhyggjum sé beinlínis varpað yfir á unglinginn. Reynd- ar eru það foreldrarnir sem hafa mesta þörf fyrir hreinskilnisleg- ar umræður við slíkar aðstæður. Og í hvert skipti sem stelpan fer bara að hlæja þegar foreldrarnir ætla að láta hana hafa aura fyr- ir leigubíl þegar hún býst við að koma seint heim ættu foreldr- arnir að gleðjast yfir því að hún telur sig færa um að bjarga sér hjálparlaust. Viðurkennið eigin ótta Til er ótti sem ekki á upphaf sitt innan fjölskyldunnar heldur steðjar aö. Sem dæmi um • ^þetta má nefna sprengjur, styrjaldir, dauðann og geisla- virkni. Rannsóknir gefa til

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.