Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
Fyrir löngu byrjaði borgin okkar að verða svo stór og fín að
ekki þótti framar við hæfi að gefa húsum nöfn á sama veg og
í sveitinni. Dugði þá ekki lengur að skrifa Birni í einhverju
Brekkukoti, eða bara honum Jóni á Litlafelli, ef maður ætlaði
sér að koma bréfkorni a leiðarenda, heldur þurfti að vita bæði
húsnúmer og götu og síðar póstnúmer viðkomandi hverfis.
Við Bauganes númer 33 stendur fallegt hvítt og
blátt hús sem ber heitið Vogur.
Anton Guðmundsson sem keypti húsið fyrir 8 árum
sagði nafniö hafa fylgt húsinu og hann héldi í gamla
hefð. „Nafnið er skemmtilegt og fylgir húsinu. Það er
ekki amalegt að geta státað af því að vera Anton á
Vogi.“
Þorsteinn Stefánsson og Kristín Jónsdóttir fyrir
framan hús sitt STÓP-I-ÁS við Nesveg
„Það eru orðin meira en tuttugu ár síðan við keypt-
um húsið og þá var nafnið á því. Hvaðan það er komið
vitum við ekki", sagði Þorsteinn en bætti við að þau
kynnu annars mjög vel við nafnið og fyrir því væri reynd-
arvissástæða.
„Við bjuggumm áður við Reyðarfjörð og könnumst
við stað í Vattanesi sem heitir Stóriás. Þar stendur
vitinn núna. Okkur þykir því vænt um nafnið og hvarfl-
ar ekki að okkur annað en halda því, enda hafa flest
húsin við Nesveg, sem eru fyrir utan Vegamót, sitt
sórstaka nafn.“
Jóhanna H. Oliversdóttir, Sævar Jónsson og Dagný
Ásta Magnúsdóttirfyrir framan Birtingarholt.
„Ég veit ekki hvaðan nafnið Birtingarholt er komið",
sagði Jóhanna H. Oliversdóttir sem býr á Framnesvegi
59, öðru nafni Birtingarholti. „Húsið var byggt í kringum
árið 1904 og líklega hefur því verið gefið nafn á sama
tíma. Amma og afi og síöar foreldrar mannsins míns
Magnúsar Steingrímssonar áttu húsið á undan okkur.
Barnabarn tengdamóður minnar gaf henni skiltið sem
er núna á húsinu og eftir að húsið hafði verið málað
í fyrra settum við skiltið upp aftur.
Skipholt stendur við Grandaveginn. Það eru þau
Kjartan Ragnarsson og Guðrún Ásmundsdóttir sem
eiga húsið.
Þegar við bönkuðum uppá og spurðumst fyrir um nafn-
ið sagði Kjartan að húsið hefði verið byggt árið 1906
og menn hefðu róið til fiskjar úr Eiðsvör eða Selsvör
og oft á tíðum búið í þessum byggðakjarna á Bráðræð-
isholtinu sem þá hefði talist fyrir utan bæinn. Líklega
hefði eigandinn verið einn þeirra sem hefði róið til fiskj-
ar þaðan og gefið húsinu nafið Skipholt. „Við viljum
fyrir alla muni halda nafninu, það fylgir húsinu og er
hluti af sögu þess.“
Við Urðarstíg 12 stendur húsið Sólheiði sem að
öllum líkindum var byggt um 1920.
Nafnið virðist hafa fylgt húsinu frá byrjun því eigend-
urnir Margrót Kjartansdóttir og Egill Bergmann sem
keyptu húsið í vor sögðu að skiltið hefði þá verið á
húsinu. Þau kváðust vera að reyna að afla sér upplýs-
inga um uppruna nafnsins en ekki orðið ágengt ennþá.