Morgunblaðið - 12.06.1987, Side 12
o ►-
I
f
12 B MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
L I
U
Rætt við íslensk
hjón sem nýlega opnuðu ferðaskrifstofu í París
Frá Torfa H. Tulinius, París
Comptoir d’lslande heitir ferðaskrifstofa sem
var opnuð fyrir nokkru í París. Á bakvið standa
fjórir einstaklingar, tveirfransmenn og hjónin
Sigríður Arnarsdóttir og Filippus Pétursson, en
hann þekkja flestir undir nafninu Philippe Patay,
nafnið sem hann bar áður en hann fékk íslensk-
an ríkisborgararétt fyrir nokkrum árum. Philippe
er af frönskum uppruna og tók m.a. þátt í því
að stofna veitingahúsið Þrír Frakkar á Baldurs-
götu fyrir nokkru en nú hefur hann selt sinn hlut
í því til að snúa sér af fullum krafti að ferðamál-
unum. „Það á ekki við mig að reka veitingahús,"
sagði Philippe þegarfréttaritari Morgunblaðsins
hitti hann í París á dögunum. Hins vegar er
hann síður en svo ókunnugurferðamálunum,
því heima á íslandi á hann ferðaskrifstofuna ís-
lenskar fjallaferðir, sem hann hefur rekið nú um
nokkurra ára skeið.
Philippe, Sigrtður og Marc Maillet fyrir utan ferðaskrifstofuna.
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
Stutt þáttaröð
Að matreiða svo milljónum
likar.
I’ll Take Manhattan ☆ ☆ 'h
Leikstjórn og tónlist: Lee
Holdridge. Kvikmyndataka:
Steven Porter. Aðalleikendur:
Valórie Bertinelli, Jack Scalia,
Perry King, Barry Bostwick,
Jane Kaczmarek, Dennis Weav-
er. Bandarísk, Pandora 1987. 4
spólur.
um aðilar sem svo sannarlega
kunna að malla oní hungraðar
milljónir sjónvarpsglápara um
allan heim. Þessi innantóma
sápuópera með öllum sínum
plastikverum er gott dæmi um
vellukkaðan skemmtiiðnað.
Þetta er hér allt saman til stað-
ar, sín ögnin af hverju; ást,
spenna, afbiýði, hatur, raunir,
svo allir fá örugglega eitthvað
fyrir sig.
Drama
Heilabú á hrakhólum.
Who is Julía? ☆ Va
Leikstjóri: Walter Grauman.
Framleiðendur: Phillip Barry,
Andrew J. Fenady, Grauman.
Handrit: James S. Sadwith.
Aðalhlutverk: Mare Winning-
ham, Jameson Parker, Jeffrey
DeMunn, Mason Adams.
Bandarísk sjónvarpsmynd.
CBS/FOX 1987. Hi-Fi. 92 mfn.
Við lifum á tímum síaukinna
líffæraflutninga og sjálfsagt er
þess ekki langt að bíða að efni
þessarar sjónvarpsmyndar
hætti að vera sígilt vísindaskáld-
söguefni og verði að veruleika.
En vissulega virðist manni
Judith Krantz hefur skipað sór
í fremstu röð nútíma afþreying-
arrithöfunda með ritverkum á
borð við Scruples, Mistral's
Daughter og Princess Daisy.
Hefur blekið tæpast verið þorn-
að í penna frúarinnar þegar
reyfararnir hafa verið komnir í
vinnslu sem sjónvarspefni. I’ll
Take Manhattan er þar engin
undantekning.
Að þessu sinni er sögusviðið
fjölmiðlaheimurinn. Blaðakóng-
urinn Zachary Amberville fellur
skyndilega frá þegar einkadóttir
hans (Valérie Bertinelli) er stödd
í Frakklandi. Hún færtilkynningu
frá föðurbróður sínum (Perry
King) þar að lútandi að hann sé
tekinn við veldinu og ætli að
reka það eftir sínu höfði í framtí-
ðinni. Bertinelli fær með naum-
indum haldið því blaði sem hún
ritstýrði og gerir það að auki að
einu vinsælasta tímariti heims.
Bertinelli verður það Ijóst að
eitthvað dularfullt er að gerast
í fyrirtækinu og jafnframt er ekki
allt á hreinu með sviplegt fráfall
föðurins. Hún fer að rannsaka
málið á eigin spýtur.
Hér hafa tekið saman hönd-
Undir rykinu
Allt í grænum sjó.
Flash of Green ☆ ☆ V*
Leikstjóri: Victor
Nunez. Handrit:
Nunez, byggt á met-
sölubók eftir John D.
MacDonald. Kvik-
myndataka Gus
Walter. Tónlist: Char-
les Engstrom. Aðal-
leikendur: Ed Harris,
Blair Brown, Richard
Jordan, George Coe.
Bandarísk. American
Palyhous/Spectrafilm
1985. Ca. 120 mín.
Framvegis er ætlun-
in að taka fyrir viku-
lega, undir þessum
haus, eldri mynd sem
af einhverjum ástæð-
um hefur ekki náð til
fjöldans. En er að dómi
undirritaðs athyglis-
verð. Það eru ótrúlega
mörg eintök sem aldrei
ná sér á flug á mynd-
bandaleigunum, þrátt
fyrir að ástæðan sé
ekki að um affeitt efni
sé að ræða. Sú er nátt-
úrlega algengasta
skýringin, en margt
annað kemur til. Sú
næstalgengasta er
einfaldlega óaðlaðandi
kápa, illa út lítandi
söluvara. En útlitið
ræður vali viðskipta-
vinarins í lygilega
mörgum tilfellum,
enda hefur hann oft
ekki við annað að miða.
Að sjálfsögðu er að
finna undantekningará
báða bóga.
Ein þeirra mynda
sem fór framhjá mér
og mörgum öðrum í
vetur er nettur þriller,
A Flash of Green.
Hann lægi sjálfsagt
enn ósnertur undir ryk-
ingu af minni hálfu ef
ég hefði ekki allt í einu
kveikt á að þarna var
myndgerð ágæts saka-
málareyfara eftir sjálf-
an John D. MacDonald
og ég hafði einhvern
tímann lesið mér til
ánægju.
Sögusviðið er
Flórída, sem í fleiri
verkum höfundar. íbú-
ar í Palm City komast
að því að það á að fara
að byggja við hinn
fagra flóa þeirra, sem
þeir hafa barist við að
vernda. Friðunarmenn,
með óbifanlegan
blaðamann í broddi
fylkingar spyrna á
móti. . .
Nunes hefur tekist
allbærilega að filma
spillt andrúmsloftið í
þriller MacDonalds og
nýtur aðstoðar úrvals-
leikaranna Ed Harris
og Richards Jordan.
Fínlega ofin skemmti-
mynd sem líður fyrst
og fremst fyrir Ijóta
kápu.
heilaígræðsla víðs fjarri raun-
veruleikanum í dag.
Eftir slæmt umferðarslys
verður fyrirsætan Mare Winn-
ingham að ganga undir fyrstu
heilaígræðslu sögunnar. Að-
gerðin lofar góðu fyrst í stað en
fljótlega koma stórfelld vanda-
mál í Ijós. Winningham er orðinn
tveir persónuleikar; líkaminn er
hennar en sálin heilagefand-
ans . ..
Efnið er ekki tekið af þeirri
fagmennsku að það geti á nokk-
urn hátt talist athyglisvert
heldur bræddur úr því svona
sómasamlegur læknareyfari.
Enda vanur maður við stjórn þar
sem er hinn langreyndi sjón-
varpsmyndasmiður, Walter
Grauman. Eftir hann liggur urm-
ull hinna margvíslegustu mynda
sem eiga því miður það sameig-
inlegt að standa yfirleitt ekki
uppúr meðalmennskunni.
Sem fyrr segir, ekki ólaglega
gerð né leikin mynd, sem þrátt
fyrir barnaskap og einfaldleika
kann að ná einhverjum vinsæld-
um. Einkum meðal þeirra sem
álíta Áastir læknisins e. Slaugh-
ter eina af perlum heimsbók-
menntanna ...