Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 1
VIKUNA 11. TIL 17. SEPTEMBER
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
BLAÐ
Nýir þættir þessa vikuna
Það er ekki einn heldur allmargir nýir framhaldsþættir sem sjónvarpsáhorfendur eiga
kost á að sjá þessa vikuna, hvort heldur er í Sjónvarpinu eða á Stöð 2. Fyrst skal
nefna nýjan íslenskan framhaldsmyndaflokk, Heilsubælið í Gervahverfi sem Stöð 2
hefur framleitt og frumsýnir fimmtudaginn 17. september. Þættirnir, sem eru sjö tals-
ins, eru „léttgeggjuð þáttaröð um ástir og örlög í heilbrigðisgeiranum", en höfundar
þeirra eru Gísli Rúnar Jónsson og Laddi, Þórhallur Sigurðsson, sem báðir leika í þeim,
auk annarra þekktra gamanleikara.
Sovéskir framhaldsþættir eru ekki algengir í íslensku sjónvarpi en úr því rætist þessa
vikuna því að á sunnudag hefur göngu sína í Sjónvarpinu framhaldsþáttur sem nefn-
ist Dauðar sálir og er gerður eftir samnefndri skáldsögu Nikolajs Gogol, en ekki „Ijóði"
eins og sagt er í dagskrá sem barst frá Sjónvarpinu og er þá villu því miður að finna
á innsíðum þessa blaðs. Á miðvikudag hefja svo tveir nýir þættir göngu sína þar, en
það eru annars vegar gamanþættirnir Fresno um rúsínubændurna í Bandaríkjunum
og hins vegar þættir sem bera yfirskriftina Systragjöld og fjalla um annan og alvar-
legri hlut, galdrafár. í aðalhlutverki þar er Vanessa Redgrave, en það er leikkonan
Carol Burnett sem er í aðalhlutverki í Fresno. Á þriðjudag frumsýnir Sjónvarpið svo
enn einn framhaldsþáttinn, en hann er breskur spennumyndaflokkur sem heitir Á
ystu nöf.
Stöð 2 byrjar sýningar á nýjum þýskum framhaldsmyndaflokki á mánudag og nefn-
ist hann Heima. Staðurinn er Þýskaland, og tímabilið frá síðustu aldamótum og fram
á okkar daga. Á miðvikudag hefjast, einnig á Stöð 2, fræðsluþættirnir bresku um
Mannslíkamann, en þeir þykja um margt nýstárlegir, sérstaklega hvað varðar kvik-
myndatöku innan líkamans. A la Carte er yfirskrift matreiðsluþátta sem hefjast á Stöð
2 á nýjan leik á þriðjudag og eru nú í umsjón Skúla Hansens, matreiðslumeistara. Og
þó varla sé hægt að tala um framhaldsþætti í þeim skilningi sem flestir leggja í orðið,
ber að geta þess að á fimmtudag gerbreytist fréttaútsending Stöðvar 2 þegar frétta-
og umfjöllunarþátturinn 19.19 hefur göngu sína, með þau Helga Pétursson, Pál Magn-
ússon og Valgerði Matthíasdóttur í fararbroddi.
Af þessu má sjá að það er mikið að gerast í dagskrármálum stöðvanna þessa vik-
una, svo ekki sé minnst á það að tuttugu kvikmyndirverða sýndará næstu sjö dögum.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-14
Útvarspdagskrá bls. 2-14
Bíóin í borginni bls. 3
Guðað á skjáinn bls. 5
Kvikmyndaumfjöllun bls. 13/15
Myndbönd bls.13
Skemmtistaðir bls. 3
Veitingahús bls. 9/11
Tæknihomið bls. 11
Hvað er að gerast bls. 15/16