Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.09.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 B 15 Fréttamenn og yfirmenn Ríkisútvarpsins, ásamt Magnúsi Guð- mundssyni, fréttaritara Ritzau á íslandi, fylgjast með þegar Margrét E. Jónsdóttir, fréttamaður skoðar yfirlit yfir norrænu fréttimar. Ríkisútvarpið: Norræn frétta- mennska aukin Fjórar norrænar fréttastofur tölvunets og aukinnar tölvutækni, hófu 28. ágúst sl. að senda frétt- að möguleikar opnuðust á að fá ir til fréttastofu Ríkisútvarpsins hingað efni þessara aðiia á viðráð- og Sjónvarpsins, en fréttastofum- anlegu verði. Fréttastofumar ar eru NTB í Noregi, TT í Svíþjíð, munu senda hingað fyrst og FNB í Finnlandi og Ritzau í Dan- fremst efni tengt innlendum við- mörku. burðum í viðkomandi landi, en i Frá árinu 1978 hafa ekki verið öðru lagi fá fréttastofur Ríkisút- neinar reglulegar fréttasendingar varpsins og Sjónvarpsins einnig frá norrænum fréttastofum til ís- efni frá fréttariturum sem búsett- lands, en þá hættu Norðmenn ir em víða um heim og í þriðja starfrækslu fréttasendis sem ís- lagi efni sem fréttamenn þessara lendingar höfðu notið góðs af. fréttastofa afla á ferðum sínum Eftir að þessar fréttasendingar erlendis. féllu niður hófu forráðamenn Tölvutækni er notuð við sendin Ríkisútvarpsins viðræður við full- garnar og berast skeytin með trúa norrænu fréttastofanna, en miklum hraða á milli landa. það var ekki fyrr en með tilkomu HVAÐ ER AÐ GERAST? Söfn Arbæjarsafn í Árbæjarsafni er sýning á sögu vega- gerðar í Reykjavík og sögu slökkviliðsins. Til sýnis eru bæði gamall gufuvaltari, lest og gamlir slökkviliðsbílar. i safninu eru gamli bærinn Árbær og kirkjan. Einn- ig má sjá uppgröft frá Viðey og miðbæ Reykjavíkurog líkön af Reykjavík. Safniö eropið um helgarfrá 12.20- 18.00. Veitingar eru í Dillonshúsi. Ámagarður í dag er síðasti sýningardagur á handrit- um í Árnagarði. Þar má meðal annars sjá Eddukvæði, Flateyjarbók og eitt af elstu handritum Njálu. Opið er frá klukk- an 14—16. í vetur geta hópar fengið að skoða sýninguna ef þeir láta vita með fyrirvara. Ásgrímssafn Sumarsýning Ásgrímssafns stendur nú yfir. Sýnd eru olíumálverk, vatnslitamynd- ir og teikningar. Þetta er úrval af verkum Ásgrims, mest landslagsmyndir. Ágrims- safn ervið Bergstaðastræíi og þarer opið þri. fim. og sun. frá klukkan 13.30- 16.00. Ásmundarsafn Um þessar mundir stendur yfir í Ásmund- arsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar. Þargefuraö líta 26 högg- myndir og 10 vatnslitamyndir og teikning- ar. Sýningin spannar 30 ára tímabil af ferli Ásmundar, þann tíma sem listamaö- urinn vann að óhlutlægri myndgerð. f Ásmundarsafni er ennfremur til sýnis myndband sem fjallar um konuna i list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu bækur, kort, litskyggnur, myndbönd or afsteypur af verkum listamannsins. Safn- ið er opið daglega frá kl. 10 til 16 í sumar. Skólafólk og aörir hópar geta fengið að skoða safnið eftir umtali. Kjarvalsstaðir Laugardaginn 5. septemberkl. 14.00 opnaði á Kjarvalsstöðum sýning á oliu- málverkum Helga Þorgils Friðjónssonar. Sýningunni lýkur 20. september. Listasafn ASÍ Listasafn ASÍ og verkamannafélagið Dagsbrún standa að samsýningu fjög- urra fristundalistamanna i Dagsbrún, sem haldin er i salarkynnum Listasafns ASÍ. Sýningin er opin virka daga kl. 16—20 en um helgar kl. 14—22. Sýning- unni lýkur 13. september nk. Listasafn Einars Jónssonar í listasafni Einars Jónssonareru sýndar gifsmyndirog olíumálverk. Þarfást lika bæklingar og kort með myndum af verk- um Einars. Safnið er opiö alla daga nema mánudagafrá 13.30—16. Höggmynda- garðurinneropinndaglegafrá 11—17. Þar er að finna 25 eirsteypur af verkum listamannsins. Þjóðminjasafnið Þjóðminjasafnið er við Hringbraut. Þar eru meðal annars sýndir munir frá fyrstu árum íslandsbyggðarog islensk alþýðu- list frá miööldum. Einnig er sérstök sjóminjadeild og landbúnaöardeild til dæmis er þar uppsett baðstofa. Einnig er i safninu sýningin „Hvað er á seyöi?" þar sem rakin er saga eldhúss og elda- mennsku frá landnámi til okkar daga. Safnið er opið alla daga frá 13.30—16. Náttúrugripasafnið Náttúrugripasafnið er til húsa að Hverfis- götu 116,3. hæð. Þar má sjá uppstopp- uð dýr til dæmis alla íslenska fugla, þ.á.m. geirfuglinn, en llka tófur og sæ- skjaldböku. Safnið er opið laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13.30-16. Póst-og símaminjasafnið I gömlu símstöðinni í Hafnarfirði er núna póst—og símaminjasafn. Þar má sjá fjöl- breytilega muni úrgömlum póst—og símstöðvum og gömul simtæki úr einka- eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er opið á sunnudögum og þriðjudögum milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða safniö á öðrum tímum en þá þarf að hafa samband við safnvörð í sima 54321 Sjóminjasafnið I sjóminjasafninu stenduryfirsýning um árabátaöldina. Hún byggirá bókum Lúðvíks Kristjánssonar „Islenskum sjáv- arháttum". Sýnd eru kort og myndir úr bókinni, veiðarfæri, líkön og fleira. Sjó- minjasafniðerað Vesturgötu 6 í Hafnar- firöi. Það er opið alla daga nema mánudaga frá klukkan 14—18. Landsbókasafnið Handritadeild Landsbókasafns er í Safna- húsinu við Hverfisgötu. I andyri þess hefur verið sett upp sýning um Gísla Konráðsson í tilefni þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu hans. Sýningin er opin á virkum dögum en henni fer senn að Ijúka. Myntsafnið Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns er i Einholti 4. Þar er kynnt saga islenskrar peningaútgáfu. Vöruseðlar og brauö- peningar frá síðustu öld eru sýndir þar svo og orður og heiðurspeningar. Lika er þar ýmis forn mynt, bæði grísk og rómversk. Safniö er opið á sunnudögum millikl. 14 og 16. Útivera Hana nú Vikuleg laugardagsganga frístundahóps- ins Hana nú, í Kópavogi, hefst við Digranesveg 12, kl. 10.00 á laugardags- morguninn. Haustlitirigörðum. Skemmti- legurfélagsskapur. Nýlagað molakaffi. Allireru velkomnir. Viðeyjarferðir Hafsteinn Sveinsson er með daglegar ferðir út í Viðey og um helgar eru feröir allan daginn frá kl. eitt. Kirkjan í Viðey er opin og veitingar fást i Viöeyjarnausti. Bátsferðin kostar 200 krónur. Grasagarðurinn I grasagarði Reykjavíkur í Laugardal má sjá sýnishorn af íslenskri flóru. Sumum jurtunum hefur verið komið skemmtilega fyrir á tilbúnum klettum með læk og foss. Þarna ereinnig reynd ræktun á erlendum jurtum, trjám og runnum. Garðurinn er opinn virka daga frá 8—22 og um helgar frá 10-22. 8.00. Fréttasími 689910. 9.00 Gunnlaugur Helgason. Tónlist og fleira. Fréttir kl. 10 og 12. 12.00 Hádegisútvarp. Rósa Guðbjarts- dóttir. 13.00 Helgi RúnarÓskarsson. Tónlistar- þáttur. Fréttir kl. 14 og 16. 16.00 „Mannlegi þátturinn." Jón Axel Ólafsson með blöndu af tónlist, spjalli, fréttum og fréttatengdum viðburðum. Fréttir kl. 18. 18.00 islenskir tónar. 19.00 Stjörnutiminn. Ókynnt tónlist. 20.00 Einar Magnús Magnússon. Popp- þáttur. 21.00 Örn Petersen. Umræðuþáttur um málefni liðandi stundar. 22.30 Einar Magnús Magnússon. Popp- þáttur. Fréttir kl. 23.00. 00.00 Stjörnuvaktin. (Ath: Einnig fréttir kl. 2 og 4 eftir mið- nætti.) ÚTVARP ALFA 8.00 Morgunstund. Guðs orð. Bæn. 8.1B Tónlist. 12.00 Hlé. 13.00 Tónlistarþáttur. 19.00 Hlé. 20.00 Bibliulestur í umsjón Gunnars Þorsteinssonar. 21.00 Logos. Umsjónarmaður Þröstur Steinþórsson. 22.00 Prédikun. Louis Kaplan. 22.16 Fagnaðarerindið i tali og tónum. Flytjandi Aril Edvardsen. 22.30 Síðustu tímar. Flytjandi Jimmy Swaggart. 24.00 Næturdagskrá. Dagskrárlok. HUÓÐBYLQJAN AKUREYRI 8.00 í bótinni. Umsjónarmenn Friðný Björg Siguröardóttir og Benedikt Barðason. Lesið úr blöðum, sagt veð- ur og færð, sögukorn, tónlist. Fréttir kl. 08.30. 10.00 Á tvennum tátiljum. Þáttur ( um- sjón Ómars Péturssonar og Þráins Brjánssonar. Getraun. Fréttirkl. 12.00 og 15.00. 17.00 Marinó V. Marinósson fer yfir iþróttaviðburði komandi helgar. Fréttir kl. 18.00. 19.00 Benedikt Baröason og Friðný Björg Sigurðardóttir reifa málin. 22.00 Gestir i stofu. Gestur E. Jónasson fær til sin gott fólk í viötal. Þar er rætt saman í gamni og alvöru. 23:30 Dagskrárlok. SVÆDISÚTVARP AKUREYRI 18.03 Svæðisútvarp í umsjón Margrétar Blön- dal og Kristjáns Sigurjónssonar. dd i i iui rvirMyNDANNA Leitin að Madonnu kvikmyndanna Þegar Vincent Canby, kvik- myndagagnrýnandi The New York Times, fór í bíó um daginn að sjá nýjustu myndina hennar Madonnu, Who’s That Girl, kom það honum talsvert á óvart að ekki nema um 60 manns voru í hinu 1151 sæta bíói sem myndin var sýnd í. Það kom honum á óvart vegna þess að að sjötta ágúst sl., eða daginn áður en Canby fór á myndina, söfnuðust 10.000 manns saman á Times Square og biðu eftir að Madonna mætti á frumsýningu myndarinn- ar. Þetta fékk Canby til að álykta sem svo að vinsældir Madonnu væru í litlum tengslum við bíó- myndir hennar; frægð hennar næði ekki yfir í kvikmyndimar. Önnur skýring á lítilli aðsókn gæti verið sú að hægt er að sjá svo mikið af Madonnu ókeypis á tónlistarmyndböndunum í sjón- varpinu að fólk lætur sér það nægja í stað þess að borga allt upp í sex dollara fyrir að sjá hana í bíó. Allt frá því hún kom fyrst fram á tónlistarsviðið fýrir þremur árum hafa menn verið að blása út ólíkindalega hraðferð Madonnu (Madonna Louise Veronica Cicc- one raunar) á topp metsölulist- anna. Röddin var lítil, tónlistar- gæðin ekkert súper og persónan n.k. rafmögnuð tilbrigði við aðra karaktera, segir Canby. En það var þá og þetta er núna. Hún hefur síðan skapað sinn eigin persónulega stíl að stórum hluta Madonna á tónleikum. með hjálp tónlistarmyndbanda sem Mary Lambert hefur leikstýrt og myndinni Örvæntingarfull leit að Susan eftir Susan Seidelman. Hún er veraldarvön, séð, raunsæ ung kona, sérlega líflegur skemmtikraftur sem ennþá er ákaflega lík Marilyn Monroe en á miklu meira sameiginlegt með hinni áköfu, óskammfeiinu og kómísku Jean Harlow. Canby segir Who’s That Girl betri en dreifíngaraðilar hennar héldu að hún væri þegar þeir lögðu ekki í að hafa sérstakar blaðamannasýningar á henni fyrir frumsýninguna. En honum fínnst myndin ekki gefa Madonnu tæki- færi til að vera hún sjálf fyrr en langt er liðið á myndina. Hún segir frá Manhattan-uppa og lög- fræðingi sem Griffin Dunne (After Hours) leikur. Hann á að ná í Madonnu í fangelsi, en hún hefur verið látin laus eftir að hafa lent í morðmáli, og á einfaldlega Madonna í bíómyndinni. að setja hana uppí rútu til Fíla- delfíu. 45 mínútna skreppitúrinn verður að 24 tíma geggjun sem óþarfi er að tíunda hér. Undir leikstjóm James Foley (leikstýrði Sean Penn í At Close Range) leikur Madonna í fyrri helmingi myndarinnar persónu sem hefur ekkert að gera með þá Madonnu sem aðdáendumir þekkja best. Þar hefur hún óvið- eigandi kjánalegan hreim, „smá- stelpulegt” göngulag, fær skapofsaköst og grettir sig og fettir. Ekkert af þessu hefur neitt að gera með þá Madonnu sem er á tónlistarmyndböndunum og á tónleikum, segir Canby. En í seinni hlutanum, þegar henni er leyft að leika á sinn hátt, brýst loksins Madonna fram og er ynd- isleg. Canby leggur því til að áður en Hollywoodframleiðendumir gera næstu mynd með Madonnu kanni þeir vel bestu tónlistar- Stjarnan í nýjustu myndinni sinni, Who’ That Girl. myndböndin hennar og nefnir sérstaklega bandið með laginu Open Your Heart. Madonna hefur nefnilega aldrei sungið eða dansað í bíómynd. Hollywood hefur verið að gefa Madonnu nýja ímynd áður en upprunalega ímyndin hefur náð að verða til a.m.k. hvað bíómynd- imar snertir. Eða eins og Canby segir: Madonna er sprengja í. Hollywood en hingað til hefur hún aðeins tikkað. Who’s That Girl verður bráð- lega sýnd í Bíóhöllinni eða Bíóborginni. - ai.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.