Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
B 3
SKEMMTISTAÐIR
ABRACADABRA
Laugavegur116
Skemmtistaðurinn Abracadabra erdag-
lega opinnfrá hádegi til kl. 01.00.
Austurlenskur matur er framreiddur á
jarðhæðinni til kl. 22.30, en I kjallaranum
er opiö frá kl. 18.00 og til kl. 03.00 um
helgar. Kl. 22.00 erþardiskótek. Enginn
aðgangseyrir er á fimmtudögum og
sunnudögum.Siminner 10312.
y^sSssí.
Artún
Vagnhöfðl 11
I Ártúni er leikur hljómsveitin Danssporið,
ásamt söngkonunni Kristbjörgu Löve,
gömlu dansana á föstudagskvöldum til
frá 21.00—03.00, en á laugardagskvöld-
um mætir sama hljómsveit og söngkona
til leiks frá kl. 22.00—03.00 og eru þá
bæði nýju og gömlu dansarnir. Síminn
er 685090.
HÓTELBORG
Pósthúastræti 10
Tónleikar eru á Hótel Borg á fimmtudags-
kvöldum, frá kl. 21.00. Áföstudag- og
laugardag er diskótek frá kl. 21.00—
03.00, en gömlu dansarnir á sínum stað
á sunnudagskvöld, frá kl. 23.00—01.00
HÓTELESJA
Suðurlandsbraut 2
Á skemmtistaönum Skálafelli á Hótel
Esju leikur Guðmundur Haukur á orgel
fyrir gesti. Skálafell er opiö fimmtudaga
til sunnudaga frá 19.00—00.30. Aðra
daga er opiö frá kl. 19.00—23.30. Síminn
er 82200.
BROADWAY
Álfabakki 8
Hljómsveit Siggu Beinteins leikur [ Broad-
way á föstudagkvöld, en á laugardags-
kvöld re sýningin Allt vitlaust og tekur
svo hljómsveit Siggu Beinteins við að
henni lokinni. Aldurstakmark í Brodway
erísumar 18 ára. Síminner 77500.
CASABLANCA
Skúlagata 30
Diskótek er i Casablanca á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00—
03.00.
ITR9PA
EVRÓPA
Borgartún 32
Diskótek er á föstudags- og laugardags-
kvöldum frá kl. 22.00-03.00.
GLÆSIBÆR
Álfheimar 74
Hljómsveit hússins leikur í Glæsibæ á
föstudags og laugardagskvöldum frá kl.
23.00-03.00. Síminn er 686220.
HOLLYWOOD
Ármúla 6
Leitin að týndu kynslóðinni heldur áfram
með í Hollywood um helgina. Hljómsveit
leikur fyrir dansi, auk þess sem diskótek
týndu kynslóðarinnarveröurí gangi með
tónlist frá 7. áratugnum, bæði á föstu-
dags-og laugardagskvöld. Borðapantan-
ireru ísíma 641441.
MÍMIS
BAR
HÓTELSAGA
Hagatorg
Dansleikir eru i Súlnasal Hótels Sögu á
föstudags- og laugardagskvöld frá kl.
22.00—03.00 og er það hljómsveit Grét-
ars örvarssonar sem leikur fyrir dansi. Á
Mímisbar er svo leikin létt tónlist fyrir
gesti frá kl. 22.00—03.00. Síminn er
20221.
LENNON
Auaturvöllur
Diskótek er i Lennon á föstudags- og
laugardagskvöldum frá kl. 20.00—03.00
og er þá aögangseyrir enginn til kl. 23.00
Á öðrum dögum er diskótek frá kl. 20.00
-01.00. Síminn er 11322.
SIGTÚN
Suðurlandsbraut 26
Diskótekið er opið í Sigtúni á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00—
03.00, en á laugardagseftirmiödögum
er þar skemmtidagskrá fyrir eldri borgara
frá kl. 14.00, m.a. dans, matur, félags-
vist, skemmtiatriöi. Síminn er 681330.
CAFÉ
. ií \
BRAUTARHOLTI20.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholt 20
Hljómsveit Stefáns P. leikur í sumar á
efri hæðinni á föstudags- og laugardags-
kvöld, auk þess sem gestahljómsveitir
leika stundum um helgar. Á neðri hæð-
inni er svo í gangi diskótek frá kl. 22.00
- 03.00 sömu kvöld. Síminn er 23333.
Sjónvarpið;
Garland og Amos
■■■■ Aðdáendur leikkon-
OA40 unnar og söngkonunn-
ar bandarísku, Judy
Garland fá tækifæri á að beija
stjömunna augum á skjánum í
kvöld, en þá sýnir Sjónvarpið
bresk/bandaríska heimildarmynd,
sem nefnist Judy Garland í leift-
ursýn (Impressions of Judy
Garland). Þess má geta að ein
mynda hennar er einnig á dag-
skrá Sjónvarpsins 19. september
nk.
■I Að loknum þættinum
40 um Garland kemur
Derrik á skjáinn og
leysir eina sakamálagátuna enn,
en að honum loknum hefst kvik-
mynd kvöldsins. Hún er bandarísk
frá árinu 1985 og nefnist Amos,
með Kirk Douglas, Elisabeth
Montgomery og Dorothy McGuire
í aðalhlutverkum.
Amos er fyrrum hornabolta-
stjama, sem fer á elliheimili eftir
lát konu sinnar í slysi, sem gerði
Amos örkumla þannig að hann á
erfítt um gang. Á elliheimilinu
finnur Amos vináttu og dálítla
rómantík, en hann kemst einnig
að raun um að forstöðukonan er
ekki öll þar sem hún er séð og
gmnar hana um að myrða vist-
menn. Erfíðlega gengur þó að
sanna þann grun. Leikstjóri
myndarinnar er Michael Tuchner.
Þýðandi er Birgir Sigurðsson.
Sjónvarpsvísir Stöðvar 2
Dagskrárblað Stöðvar 2, eða
Sjónvarpsvísir eins og menn þar
á bæ hafa kosið að kalla það,
hefur göngu sína í dag. Um er
að ræða veglegt 72 síðna tímarit,
sem fyrst og fremst er sniðið utan
um dagskrá Stöðvar 2, og á eftir
að stækka enn, að sögn ritstjóra
þess, Ásthildar Bemharðsdóttur.
„Sjónvarpsvísirinn er dagskrár-
kynning númer eitt, tvö og þrjú,
þ.e. dagskrá Stöðvar 2 mánuð í
senn og kynning á hápunktum
efnisins þann tíma,“ segir Ásthild-
ur. „Auk þess era i blaðinu
heilmargar greinar sem tengjast
Stöð 2 og dagskránni. Síðan ætl-
um við að vera einnig með greinar
sem era Stöð 2 óviðkomandi,
þannig að sjónvarpsvísirinn verð-
ur einnig eins konar tímarit
almenns eðlis þegar fram í sækir.
í fyrsta tölublaðinu, sem nær
yfír dagskránna frá 14. september
til II. október, er þó alfarið efnis-
umfjöllun tengd Stöð 2. Þar má
nefna ávarp sjónvarpsstóra, Jóns
Óttars Ragnarssonar, grein Páls
Baldvins Baldvinssonar um haust-
dagskránna, grein Bjöms Bjöms-
sonar um innlenda dagskrárgerð,
grein um þýska myndaflokkinn
Heimat og aðra um breska heim-
ildarmyndaflokkinn Mannslíka-
mann. Þá skrifar Sighvatur
Blöndal um áskriftarkerfí Stöðvar
2 og Goði Sveinsson um það
hvemig áskriftarsjónvarp virkar
og ýmislegt annað er að fínna.
Inn á milli er svo léttara efni
og í framtíðinni eins og stjömuspá
og umfjöllun um erlendar sjón-
varpsstjömur sem áhorfendur
Stöðvar 2 kannast við og í framtí-
ðinni ráðgeri ég að vera með
raddir lesenda á síðum sjón-
varpsvísins," segir Ásthildur.
Sjónvarpsvísirinn er prentaður
á plastpappír og kemur út í 35.000
eintökum. Þeim verður dreyft til
áskrifenda Stöðvar 2 ókeypis, auk
þess sem blaðinu verður dreyft í
lausasölu. „Það er auðvitað mikið
mál að gefa út svona blað og
ákveða dagskránna mánuð fram
í tímann. Talsverð breyting frá
því að vera með vikudagskrá allt-
af og þetta þýðir ýmiskonar
breytingar hér innanhúss varð-
andi niðurröðun dagskrár. Með
slíkum breytingum er hægt að
festa svo langa dagskrá fram í
Ásthildur Bernharðsdóttir, rit-
stjóri sjónvarpsvísis Stöðvar 2
með fyrsta tölublaðið, sem
kemur út i dag.
tímann, þannig að fyrsta vikan
sé jafn áræðanlega og sú síðasta
sem blaðið nær yfír og fólk þarf
ekki að óttast breytingar á dag-
skránni," segir Ásthildur Bem-
harðsdóttir, ritstjóri sjónvarpsví-
sis Stöðvar 2.
S3SSBSS
20.800 «'9r'_
16.880«W^_
meö''Ys^
85x50x64W-
14.165 »<9r-
KÆLISKAPAR A
KJARAVERÐI
frá Blomberg
Við fengum sóra send-
ingu á hagstæðu verði.
Við bjóðum þér að
njóta þess með okkur.
Verðið er kjarabót.
Útborgun frá 5000.
Verið velkomin — Bílastæði við dyrnar.
///'
Einar Farestveit &Co.hf.
Borgartún 28, sími 91-622900.