Morgunblaðið - 10.09.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
B 7
Stöð 2:
Olympíuleikar
þroskaheftra
■■ Stöð 2 sýnir í kvöld
00 dagskrá frá opnunar-
“ hátð Ólympíuleika
þroskaheftra 1987, en þeir eru
árlega haldnir í Bandaríkjunum
og taka um 5.000 böm frá 73
löndum þátt í leikunum. Á hátíð-
inni kemur fram fjöldi frægra
leikara og skemmtikrafta og má
m.a. nefna Clint Eastwood, Jane
fonda, John Ritter, Amold Swarz-
seneger, Whitney Houston og
John Denver. Allur ágóði leikanna
rennm til líknarstarfsemi.
■■ Kvikmynd kvöldsins
55 nefnist Ég Natalie og
bandarísk. Hún fjallar
um átján ára gamla stúlku sem
hefur ekki háar hugmyndir um
sjálfa sig, finnst hún ófríð og
klaufaleg. Hún flytur frá fjöl-
skyldunni í listamannahverfí í
New York. Með aðalhlutverk fara
Patty Duke, James Farentino og
A1 Pacino, en leikstjóri er Fred
Coe.
Sjónvarpið:
Dauðar sálir
ar sálir, gerður eftir samnefndu
ljóði Nikolaj Gogol. Sagan segir
frá ungum athafnamanni, Chic-
hikov, sem hyggst auðgast á því
að versla með líf fátækra leigu-
liða, leiguliða sem eru lifandi en
þó dauðir. í þessu skyni ferðast
Chichikov um landið og reynir að
ná samningum við óðalseigendur.
Með aðalhlutverk fara A. Tro-
fimov, A. Kalygin og Yu Boga-
tyryov, en þýðandi þáttanna er
Ámi Bergman.
■■■■ Þáttur um íslenska
OA55 skákmeistara og
"D” skáklíf er á dagskrá
Sjónvarpsins í kvöld og neftiist
hann Manntafl. í þættinum er
fylgst með meisturunum við skák-
rannsóknir, á ferðalögum og í
keppni og reynt að ráða í drauma
þeirra og tilfinningar við skák-
borðið.
■■i^H Þvi næst hefur göngu
91 25 sína nýr sovéskur
myndaflokkur, Dauð-
íþróttaþáttum fjölgað
íþróttaumfjöllun efld í vetur hjá Stöð 2 og Sjónvarpinu
Línur í vetrardagskrám sjón-
varpsstöðvanna em nú óðum að
skýrast, eins og reyndar hefur
þegar komið fram í umfjöllun hér
í blaðinu, bæði hvað varðar fram-
haldsþætti til áramóta og innlenda
dagskrárgerð. Einn hluti inn-
lendrar dagskrárgerðar, sem þó
er ekki að öllu leyti innlendur em
íþróttaþættimir, sem þeir Bjami
Felixsson hjá Sjónvarpinu og
Heimir Karlsson hjá Stöð 2 stýra.
Það ætti að gleðja íþróttaunnend-
ur að báðir umsjónármannanna
kveða eflinu íþróttaþátta og lengri
útsendingartíma á íþróttaefni
vera á vetrardagskránni.
„í stómm dráttum má lýsa
íþróttaumfjölluninni svo, að við
ráðgemm að fjölga íþróttaþáttum
úr fjómm í fímm í vetur,“ segir
Heimir Karlsson. „Fyrirkomulagið
verður þannig að á sunnudögum
verður bandaríska knattspyman á
dagskrá í klukkustundar löngum
þætti frá NFL-deildinni. Á mánu-
dögum og fímmtudögum ætlum
við að gera íslenska handknatt-
leiknum skil í íþróttaþáttum og á
þriðjudögum verður blandaður
þáttur, byggður á erlendum
íþróttaviðburðum. Körfubolti í
bandarísku NBA-deildinni verður
svo í þáttum á laugardögum, en
keppnin hefst um miðjan nóvem-
ber, um svipað leyti og við ljúkum
sýningu golfþáttanna. Þetta er
aukning um einn þátt, en þar að
auki verður talsvert meiri aukning
á íþróttaefni og íþróttafréttum á
Stöð 2, þar sem við verðum með
íþróttafréttir daglega, í tengslum
við fréttatíma."
Hjá Sjónvarpinu er ráðgert að
auka íþróttaumfjöllun, en með
nokkuð öðru sniði en hjá Stöð 2.
„Við komum ekki til með að vera
með afmarkaða íþróttaþætti,
heldur langa og blandaða, eins
og verið hefur," segir Bjami Felix-
son. „Hins vegar verður reynt
eftir mætti að auka beinar útsend-
ingar frá íþróttaviðburðum og
þær koma þá inn í dagskránna á
mismunandi stöðum, en ekki í
föstum þáttum. Það eina sem
verður alltaf á sínum stað er
knattspyman, annars vegar sú
enska og hins vegar sú ítalska,"
segir Bjami, en Sjónvarpið fær
erlent íþróttaefni til sýningar í
gegnum aðild sína að Eurovision.
GARÐABÆR BREIÐH0LT • HAFNARFJÖRÐUR
STÍGDU
SKREFID
TILFULLS!
14 september byrjum við haustnámskeið í jassballett,
moderndansi, steppi og barnadönsum 4-6 ára.
Kennarar verða Hafdís Jónsdóttir
og gestakennari frá NewYork.
LJÓSABEKKIR GUFA ® NUDDP0TTUR
DANSSTÚOÍÓ
DÍSU
DANSNEISTINN
Smiösbúó 9, Garðabæ
rétt við nýju Reykjanesbrautina. Fétagi i F.Í.D.