Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 11

Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987 B 11 Tæknihornið Er evrópsk tónlistar- rás borin von? Tónlistarrásin MTV sem hvað vinsælust hefur orðið í Bandaríkjunum, hefur haldið innreið sína í Evrópu. í stór- blöðunum á meginlandinu og á Bretlandseyjum hefur þessi nýja sjónvarpsrás hlotið meiri umfjöllun en nokkur önnur af öllum þeim arágrúna nýrra sjónvarps- og gervihnattarása sem hafa verið að hellast yfir álfuna síðustu misseri. Og iðu- lega hefur sú umfjöllun verið óvægnari en dæmi eru til áður. Spumingin sem allir velta fyrir sér um þessar mundir er hvort MTV í Evrópu geti vænst sömu viðtaka og hún hefur notið í Bandaríkjunum. Gervihnattasjón- varp er annars eðlis en hamborg- arar eða gallabuxur, segja menn og benda á að aðstæður í Evrópu séu talsvert öðru vísi heldur en í Bandaríkjunum. MTV er líkt og í Bandaríkjunum fyrst og fremst ætluð kapalstöðvum, sem eiga síðan að dreifa tónlistarefninu áfram til hins almenna neytenda. Kapalheimurinn í Evrópu telur hins vegar ekki nema í hæsta lagi um 12 milljónir heimila. Sú tala fer að vísu hækkandi þótt hæg- fara sé. Sky Channel er útbreidd- asta sjónvarpsrásinn á þessum sam-evrópska markaði, og er dreift til 3/4 þeirra heimila í Evr- ópu sem hafa einhvers konar kapaltengingu. Engu að síður er hún enn rekin með bullandi tapi. Aður hefur verið gerð tilraun til að halda úti tónlistarrás á þessum markaði, þar sem var Music Box sem átti afar misjöfnu gengi að fagna og var loks yfirtekin af Super Channel. Það er sjónvarps- rás í eigu allra óháðu sjónvarps- stöðvanna bresku — nema einnar — auk Virgin samsteypunnar og er orðin helsti keppinautur Sky Channel, þrátt fyrir ómælda byij- unarörðugleika. En að öllu þessu athuguðu er varla að undra þótt menn hafi efasemdir um viðgang MTV í Evrópu. Bölsýnismennimir eru ekki síst úr röðum þeirra sjónvarpsmanna sem sjálfir hafa reynslu af því að halda úti tónlistarrás í álfunni. Þannig segir Jochen Krone, dag- skrárstjóri þýsku KMP tónlistar- rásarinnar, að ekki sé markaður fyrir sjónvarpsrás í Evrópu sem fyrst og fremst byggi dagskrá sína á tónlistarmyndböndum. Þess vegna hefur KMP tónlistarrásin verið að breikka dagskrárframboð sitt að undanförnu og bætt inn í dagskrána fréttainnskotum auk stuttra þátta um kvikmyndir, tölv- ur, heilsurækt og íþróttir. „Tónlistarmyndbönd geta skil- að árangri sem uppistöðuefni sjónvarpsrásar og gegna mikil- væguhlutverki meðan verið er að byggja upp áhorfendahópinn," segir Krone. „En að því búnu er nauðsynlegt að breikka dagskrá- efnið, ef ætlunin er að ná í einhverjar auglýsingatekjur. Tón- listarmyndböndin eru einfaldlega ekki lengur sú nýlunda sem þau voru í eina tíð.“ Ef til vill er þama komið að kjama málsins. MTV hóf útsend- ingar árið 1981 og innan fimm ára hafði það náð til um 30 millj- ón kapalvæddra heimila um gervöll Bandaríkin. Horfi menn í blindni á þessa bandaríksu for- skrift, líta menn jafnframt fram hjá þeirri sögulegu stöðu sem tón- listarmyndböndin hafa í dagskrá þessarar stöðvar. Staðreyndin er nefnilega sú að þegar MTV var hleypt af stokkunum, þá var hún eina sjónvarpsrásin sinnar teg- undar sem eingöngu sýndi tónlist- armyndbönd. Hún mddi brautina og byggir því á traustum gmnni. Reyndar má segja að MTV hafi verið megin hvati þeirrar grósku sem síðar hljóp í iðnaðinn í kring- um tónlistarmyndböndin og brátt var svo komið að einstök lög, sem þóttu líkleg til vinsælda, urðu að fást sýnd í formi tónlistarmynd- banda á MTV, ef nokkur von átti að vera til þess að þau slægju í gegn á vinsældarlistunum vestan hafs. Síðan hefur vemleg breyting orðið hér á. Nú þegar MTV er að reyna festa rætur í Evrópu, kemur þessi sjónvarpsrás inn á markað, þar sem fyrir em tvær gervihnattarásir, Sky og Super Channel, sem báðar sýna mikið af tónlistarmyndfcöndum og enn önnur, KMP tónlistarrásin þýska, þjónar þeim mikilvæga markaði að miklu leyti með dagskrá sem byggist á tónlistarmyndböndum. Að auki er á Ítalíu rekin sjón- varpsstöð sem sjónvarpar tónlist- armyndböndum allan sólarhring- inn og í Frakklandi hafa menn farið áþekkar leiðir með TV6. Þar fyrir utan em flestar sjón- varpsstöðvar í álfunni með einn eða fleiri þætti byggða á tónlistar- myndböndum, líkt og við þekkjum hér heima. Svo má ekki gleyma hvemig fór fyrir Músík Boxinu, ensku gervihnattarásinn sem sendi út tónlistarmyndbönd allan sólarhringinn með nákvæmlega sama hætti og MTV gerir í Banda- ríkjunum. Hún má nú muna sinn fífil fegurri og þola það að stöð- ugt er verið að rýra hlut hennar í þeim heildar dagskrárjiakka sem sendur er út í nafni Super Chann- el. „MTV stendur frammi fyrir nákvæmlega sömu erfiðleikunum og Músík Boxið," segir Richard ' Hooper, framkvæmdastjóri Super Channel. „Þeir em í því fólgnir að hið evrópska heimilaumhverfi er ekki nógu stórt til að standa undir þemadagskrám af þessu tagi.“ Mark Booth, framkvæmda- Elton John ræsir MTV í Evrópu með hvelli — sem sumir ætla að verði púðurreykurinn einn. stjóri MTV í Evrópu vísar þessu hins vegar á bug. Hann heldur því fram að erfíðleikár Músík Boxsins hafí falist í slakri stjórnun og lélegri markaðsfærslu. „Það hafa verið gerðar þúsundir til- rauna til að setja á laggimar tónlistarrásir um allan heim. En MTV virkar." Booth bendir á MTV eigi gífur- legt safn af teiknimyndum með tónlistarefni og tónleikaupptökum ásamt annars konar popp-tengdu dagskráefni, þar sem evrópska rásin geti leitað fanga. Þess vegna verði dagskrárkostnaður hennar ekki nema brot af því sem Músík Boxið þurfti að bera. En fleiri efasemdir um framtíð MTV í Evrópu koma fram í tímrit- inu Cable & Satellite Europe sem þessi pistill er aðallega byggður á. Þar er m.a. vikið að eigenda- hlutfóllum í MTV í Evrópu. Bandaríska fyrirtækið Viacom, aðaleigandi MTV í Bandaríkjun- um, á þannig ekki nema 25% í evrópsku tónlistarrásinni. Breska póst- og símamálaþjónustan á önnur 24% en meirihlutinn eða 51% er í eigu breska Qölmiðla- kóngsins Robert Maxwell. Með því að hafa þetta form á eignarað- ildinni er ætlunin að koma í veg fyrir að útsendingar MTV komist í kast við gildandi fjarskipta- og útvarpslög bæði innan Evrópu- bandalagsins og innan einstakra Evrópubandalagslanda. Cable & Satellite bendir hins vegar á að þátttaka Maxwells í þessu fyrir- tæki geti þó reynst tvíbent. Síðasta stórframtaki Maxwells á vettvangi prentmiðla, London Daily News, var hætt eftir aðeins 5 mánaða útgáfutíma, þrátt fyrir að hann hafi verið búinn að heita þvi að veita blaðinu þriggja ára aðlögunartíma til að ná þeirri markaðsfótfestu sem þyrfti til að það stæði undir rekstrinum. Þetta þykir tímaritinu benda til þess að Maxwell sé ekki þeirrar gerðar að nenna að halda úti fyölmiðli sem ekki skilar honum fljótlega ein- hveijum afrakstri. Sú reynsla sem þegar er fengin af kapal- og gervihnattastjóm- varpi í Evrópu sýnir að sá afrakst- ur er einatt lengra undan en bjartsýnismennimir hafa talið. Björn Vignir Sigurpálsson t Þórs Salvarssonar og Guðrúnar Gunn- arsdóttur. Meðal efnis: Listamaðurinn bak við breiöskifu vikunnar — Óskalög yngstu hlustendanna — Matarhornið — Tónlistargetraun. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Umsjón: Gunnar Svanbergsson og Hrafnhildur Hall- dórsdóttir. Fréttir sagðar kl. 15.00 og 16.00. 16.05 Hringiöan. Umsjón: Broddi Broddason og Erla B. Skúladóttir. Fréttir sagðar kl. 17.00 og 18.00. 17.45 Lýst leik ÍA og sænska liösins Kalmar í Evrópukeppni bikarhafa á Akranesi. 19.30 Strokkurinn. Umsjón: Kristján Sig- urjónsson. (Frá Akureyri.) Fréttir sagðar kl. 22.00. 22.07 Háttalag. Umsjón: Gunnar Salv- arsson. Fréttir sagðar á miðnætti. 00.10 Næturvakt útvarpsins. Gunnlaug- ur Sigfússon stendur vaktina til morguns. BYLGJAN 7.00 Stefán Jökulsson og morgunbylgj- an. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 9.00 Valdis Gunnarsdóttir á léttum nótum. Afmæliskveöjur og spjall. Fréttir kl. 10.00 og 11.00. 12.00 Fréttir. 12.10 Páll Þorsteinsson á hádegi. Létt tónlist. Fréttir kl. 13.00. 14.00 Ásgeir Tómasson og síðdegis- poppið. Fréttir kl. 14.00, 15.00 og 16.00. 17.00 Hallgrímur Thorsteinsson i Reykjavík síðdegis. Fréttir kl. 17.00. 18.00 Fréttir. 19.00 Anna Björk Birgisdóttir með tón- list og spjall. Fréttir kl. 19.00 21.00 Sumarkvöld á Bylgjunni með Þor- steini Ásgeirssyni. 24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Um- sjón: Bjarni Ólafur Guðmundsson. Tónlist og upplýsingar um veöur og flugsamgöngur. / FM102.2 STJARNAN 7.00 Þorgeir Ástvaldsson. 8.00 Fréttir. 9.00 Gunnlaugur Helgason. Tónlist o.fl. Fréttir kl. 10.00 og 12.00. 12.00 Rósa Guöbjartsdóttir. Hádegisút- varp. 13.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Tónlistar- þáttur. Fréttir kl. 14.00 og 16.00. 16.00 „Mannlegi þátturinn". Jón Axel Ólafsson. Spjall og tónlist. Fréttir kl. 18.00. 18.00 íslenskirtónar. íslenskdægurlög. 19.00 Stjörnutíminn. Ókynnt rokktónlist. 20.00 Helgi Rúnar Óskarsson kynnir lög af breska vinsældarlistanum. 21.00 Islenskir tónlistarmenn leika sin uppáhaldslög. I kvöld: Friörik Karlsson gitarleikari. 22.00 Árni Magnússon. Tónlistarþáttur. Fréttir kl. 23.00. 00.00 Stjörnuvaktin. ÚTVARP ALFA 8.00 Morgunstund, Guðs orð, bæn. 8.15 Tónlist. 12.00 Hlé. 13.00 Tónlistarþáttur. 19.00 Hlé. 22.00 Prédikun. Flytjandi Louis Kaplan. 22.15 Tónlist. 24.00 Næturdagskrá. Dagskrárlok. HUÓÐBYLGJAN AKUREYRI 8.00 í bótinni. Friðný Björg Sigurðar- dóttir og Benedikt Barðason verða með fréttir af veðri og samgöngum. Auk þess lesa þau sögukorn og fá til sín fólk í stutt spjall. Fréttir kl.08.30. 10.00 Á tvennum tátiljum. Ómar Péturs- son og Þráinn Brjánsson sjá um þáttinn. Þriöjudagsgetraun, uppskrift- ir, óskalög. Fréttir kl. 12.00 og 15.00. 17.00 Gamalt og gott. Pálmi Guð- mundsson spilar lög sem voru vinsæl á árunum 1955-77. Fréttir kl 18.00. 19.00 Dagskrárlok. Þættinum Gamalt og gott framhaldið. Dagskrárlok. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.03—19.00 Umsjónarmenn svæðis- útvarps eru Kristján Sigurjónsson og Margrét Blöndal. Sjónvarpið; A ystu nöf M Nýr breskur spennu- 25 mjmdaflokkur hefur ““ göngu sína í Sjón- varpinu í kvöld. Hann nefnist A ystu nöf (Eidge og Darkness) og fjallar um lögreglumann sem missir dóttur sína. Hann kemst að því að margir af hennar fé- lögum hafa horfið s[iorlaust. Þó ólíklega kunni að hljóma verður það til þess að hann fer að kanna afdrif úrgangs frá Iqamorkuver- um. Leikarar í þáttunum sem eru sex talsins, eru Bob Peck og Jon Don Baker, en leikstjóri þeirra er Martin Cambell, sem gerði þættina eftir sögu Troy Kennedy Martin. Þýðandi er Kristmann Eiðsson. VEITINGAHÚS inn og stendurtil að bæta kínversku kökubakkelsi á matseðilinn. Síminn er 16513 og matreiðslumeistari hússins er Gilbert Yok Peck Khoo. Hægt er að kaupa mat til að fara með út af staðnum. SÆLKERINN Austurstraati 22 (talskur matur er framreiddur i Sælkeran- um og er opið þar alla virka daga og sömuleiðisum helgarfrákl. 11.30—23. 30. Síminn er 11633 og matreiöslumeist- ari hússins sá sami og ræður rikjum í Kvosinni, Francois Fons. Hægt erað kaupa pizzur og fara með út af staönum. KRÁR OQ VEITINOAHÚS MEO LENGRIOPNUNARTÍMA: A. HANSEN Vesturgata 4, Hafnarfjörður Áveitingahúsinu A. Hansen er opið alla daga frá kl. 11.30 -12.30 á virkum dög- um. en til kl. 03.00 á föstudags- og laugardagskvöldum. Eldhúsinu er lokað kl. 22.30. Lifandi tónlist er á staönum um helgar. Borðapantanir eru í síma 651693. Matreiðslumeistari hússins er Steinar Daviðsson. Meðalverð á fiskrétti er kr. 550 og á kjötrétti kr. 850. DUUS-HÚS Fischerssund Á Duus-húsi er opið alla daga nema sunnudaga, frá kl. 11.30 - 14.30 og frá kl. 18.00 - 01.00 á virkum dögum, en til kl. 03.00 á föstudags- og laugardags- kvöldum. Eldhúsinu lokar kl. 21.00 á virkum dögum og kl. 22.00 á föstudags- og laugardagskvöldum, en fram til kl. 23.30 eru framreiddar pizzur öll kvöld. Um helgar er diskótek á neðri hæð húss- ins, en á sunnudagskvöldum er svokall- aður „Heiti pottur" á Duus-húsi, lifandi jasstónlist. Síminn er 14446. FÓGETINN Aðalstræti 10 Á Fógetanum er opiö alla virka daga frá kl. 18.00-01.00 ogá föstudags- og laugardagskvöldum til kl. 03.00 en eld- húsið er opið til kl. 23.00. Síminn er 16323. GAUKURÁSTÖNG Tryggvagata 22 Á Gauki á Stöng er opið alla virka daga frákl. 11.30-14.30 ogfrákl. 18.00- 01.00 og til kl. 03.00 áföstudags-og laugardagskvöldum. Eldhúsið er opiö til kl. 23.00, en eftir það er i boði næturmat- seðill. Lifandi tónlist er oftast á Gauki á Stöng á sunnudögum, mánudögum, þriðjudögum og miövikudögum frá kl. 22.00. Siminn er 11556. HAUKURí HORNI Hagamelur 67 Haukur í Horni er opinn alla virka daga frá kl. 18.00 - 23.30 og á föstudags-og laugardagskvöldum til kl. 01.00. Eldhúsiö er opiö öll kvöld til kl. 22.00, en smárétt- ir eru í boði eftir það. (hádeginu á laugardögum og sunnudögum eropið frá kl. 11.30 -14.30. Lokaö i hádeginu aðra daga. Síminn er 26070. HRAFNINN Skipholt 37 Veitingahúsið Hrafninn er opið alla virka dagafrákl. 18.00-01.00ogáföstu- dags-og laugardagskvöldum til kl. 03.00, en þau kvöld er einnig i gangi diskótek. Eldhúsinu er lokað um kl. 22.00. Síminn er 685670. ÖLKELDAN Laugavegur 22 í ölkeldunni er opið alla virka daga frá kl. 18.00 - 01.00 og á föstudags- og laugardagskvöldum til kl. 03.00. Eld- húsinu er lokað kl. 22.00, en smáréttir í boði þar á eftir. Gestum hússins er boðið upp á að spreyta sig við talfborðið, í pilukasti, Backgammon eða þá að taka í Bridge-sagnaspil. Þá eru enfremur myndlistarsýningar i Ölkeldunni og sýnir Alexanderverk sín þarnú. Síminn er 621034. ÖLVER Glæsibær í Ölveri er opið daglega frá kl. 11.30 - 14.30ogfrákl. 17.30-01.00ávirkum dögum og til kl. 03.00 á föstudags- og laugatdagskvöldum. Eldhúsinu lokar um kl. 22.00. Lifandi tónlist er um helgar. Síminner 685660.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.