Morgunblaðið - 10.09.1987, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
B 13
mmmmmmmm matthew broderick mmmmmmmmm
FERRIS
BUELLER’S
DAYOFF ®
Dásamleg-
ur skróp-
dagur
Gamanmynd
Ferris Bueller’s Day Off ★ -
★ ★
Leikstjóri, framleiðandi og
handritshöfundur: John Hug-
hes
Tónlist: Ira Newburn
Klipping: Paul Hirsch
Aðalleikendur: Matthew Brod-
erick, Mia Sara, Alan Ruck,
Jeffrey Jones, Charlie Shee,
Cindy Pickett
Bandarisk. Paramount 1986.
Háskólabíó 1987. 109 mín. Öll-
um leyfð.
Eftir að hafa snúið á flensu-
skrattann í hartnær tvo tíma eitt
pestarkvöld yfir Ferris Bueller’s
Day Off, var ég ákaflega þakklát-
ur að hafa ekki náð henni í bíó.
Því hún er sem sagt fyrsta flokks
afþreying, hvernig svo sem heilsu-
farið er!
Broderic er hrókur alls fagnað-
ar í skólanum, systur sinni og
skólastjóranum til mikillar skap-
raunar. Bæði blóðöfunda þau
strák vegna vinsældanna svo þeg-
ar hann skrópar næst hugsa þau
sér gott til glóðarinnar...
En Broderic hefur sínar áætlan-
ir fastmótaðar. Platar vinkonu
sína útúr skólanum og rekur besta
vin sinn fram úr bælinu og á
Ferrari pabba hans mála þau
Chicago-borg í þeirra eigin litum
daginn þann. Sem fyrr segir,
hreint bráðskemmtileg mynd og
Broderic fer á kostum í aðalhlut-
verkinu og Alan Ruck gefur
honum lítið eftir í hlutveri vins-
ins. En Jeffreuy Jones stelur
senunni sem hinn grjótfúli, illa
innrætti og seinheppni skólastjóri.
Myndin er vissulega svoldið
brokkgeng, t.d. hefði mátt með
öllu sleppa hálfvandræðalegu
hlutverki Ferrari, sem fellur eng-
an veginn inní létta heildarmynd-
ina. Og „Twist and Shout“-atriðið
minnir ansi mikið á annað betra
úr Back To The Future, þegar
Fox stældi Chuck Berry með mikl-
um tilþrifum. En heildin er góð
og kennarastofuatriðin eru
sprenghlægileg, og fjári sönn, ef
ég man rétt.
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
Hænu-
blundur í
hádeginu
Vestri
From Noon Till ThereA ★
Leikstjóri, handrit: Frank D.
Gilroy, byggt á eigin skáldsögu.
Framleiðendur: M. J.
Frankovich og Williamm Self.
Tónlist: Elmer Bernstein
Aðalleikendur: Charles Bron-
son, Jill Ireland, Douglas
Fowley, Stan Haze.
Bandarísk. UA 1975. WHV/
Tefli 1987. 95 mín. Bönnuð
innan 12 ára.
Gamla steinfésið hefur oftar en
einu sinni og oftar en tvisvar
ætlað sér að fegra velkunna of-
beldismynd sína, en hvorki rekið
né gengið. Hér er hann reyndar
í aðeins hægara tempói en endra-
nær en virkar ekki sannfærandi.
Myndin er gerð 1975, en á þeim
árum hélt Bronsonfjölskyldan ut-
an um hlutina og fniin, Jill
Ireland, var þá gjaman á launa-
skránni líka og var dubbuð upp í
aðalkvenhlutverkið. Það hefur
aldrei verið sagt um Bronson
gamia að hæfíleikamir flæktust
fyrir honum, hann hefur hinsveg-
ar komist ótrúlega langt á eitil-
hörðum karaktemum. En Ireland
hefur hvorugt, enda löngu hætt
að fá blómakvenhlutverkin í
myndum bónda síns. Skrifaði
hinsvegar ágæta bók í fyrra um
harðvítuga baráttu konu — henn-
ar sjálfrar — við ógnvaldinn mikla,
krabbameinið. Þar hafði hún bet-
ur.
From Noon Till Three er gam-
anvestri og vel viðunandi sem
slíkur. Bronson leikur bankaræn-
ingja sem milli verkefna forfærir
siðprúða hefðarfrú (Ireland) milli
matar og kaffí. Þegar karl hverf-
ur svo af sjónarsviðinu og álitinn
dauður gerir Ireland þessa eftir-
miðdaga ódauðlega með því að
birta greinaflokk um ástalíf
þeirra. Græskulaust gaman.
WMBaíMralt
CABLEtHOGUE
Við þjóð-
veginn
Vestri
The Ballad of Cable Hogue
★ ★ ★
Leikstjóri: Sam Peckinpah
Tónlist: Jerry Goldsmith
Handrit: John Crawford og Ed-
mund Penney
Aðalleikendur: Jason Robards,
Stella Stevens, David Warner,
Strother Martin, L.Q. Jones, Slim
Pickens, Peter Whitney
Bandarísk. Warner Bros 1970.
WHV/Tefli 1987. 117 mín.
Bönnuð yngri en 12 ára.
Þegar Peckinpah var ekki önnum
kafínn við að salla niður mannskap-
inn í myndum sínum — gjarnan í
hægri hreyfíngu — og sá vart út
úr augum fyrir tómatsósu, gat hann
verið innilega rómantískur. Merki-
legt nokk. Vott um það bera
myndimar Junior Bonner og svo
The Ballad of Cable Houge.
Myndin hefst á því að Robards
er svikinn af félögum sínum úti í
eyðimörkinni og skilinn þar eftir
vatns- og matarlaus. En karlinn er
tómar sinar og eftir nokkra daga
fínnur hann vatnsból sem á eftir
að reynast honum væn féþúfa þar
sem það er rétt við þjóðveginn og
ekki annan deigan dropa að fá tugi
mílna í báðar áttir. Þama hugnast
karli vel og græðir á báða bóga á
vatns- og greiðasölu. Og nóttunum
eyðir hann í félagsskap fagurrar
gjálífískonu. En þó svo að lífíð leiki
við hann er það löngum efst í huga
hans að heftia sín á skrattakollun-
um sem ætluðu að láta eyðimörkina
drepa hann.
The Ballad of Cable Hogue er
fyrst og fremst kátbrosleg ástar-
saga af gleðikonunni með gullhjart-
að og hins eitilharða framkvæmda-
manns. Og um leið ljóðræn og
fyndin lýsing á því hvemig vestrið
var að tækniþróast í kringum
síðustu aldamót. Gamli póstvagninn
að hverfa fyrir fjórhjóluðum farar-
tækjum, „sem komust áfram af
sjálfu sér“, og einstaklingar eins
og Cable Hogue.
Myndinni er vel leikstýrt af Peck-
inpah og ekki síður vel tekin af
þeim vel þekkta vestra-kvikmynda-
tökustjóra Lucien Ballard (Junior
Bonner, The Wild Bunch, Hour of
the Gun, Trae Grit, o.fl.). Þá er
leikaravalið óaðfínnanlegt. Robards
er Hogue, Stella Stevens hefur aldr-
ei verið betri en hér, og sannar að
syo virðist vera sem framleiðendur
telji ljóshærðar, föngulegar leikkon-
ur ekki til annars fallnar en að leika
heimskingja. Og þeir vestrar sem
státa af þeim ágætismönnum Slim
Pickens, L.Q. Jones og Strother
Martin í aukahlutverkum eru vel
mannaðir!
STJARNAN
7.00 Þorgeir Ástvaldsson. Morgun-
þáttur. Fréttir kl. 8.00.
9.00 Gunnlaugur Helgason. Tónlistar-
þáttur, stjörnufraeði, gamanmál. Fréttir
kl. 10.00, og 12.00.
12.00 Hádegisútvarp. Rósa Guöbjarts-
dóttir.
13.00 Helgi RúnarÓskarsson. Tónlistar-
þáttur. Fréttir kl. 14.00 og 16.00.
16.10 Mannlegi þátturinn. Umsjón Jón
Axel Ólafsson Tónlistarþáttur. Fréttir
kl. 18.00.
18.10 íslenskir tónar.
19.00 Stjörnutíminn á FM 102,2 og
104. Gullaldartónlist.
20.00 Einar Magnús Magnússon. Popp-
þáttur.
22.00 Inger Anna Aikman. Fréttir kl
23.00.
00.00 Stjörnuvaktin.
ÚTVARP ALFA
8.00 Morgunstund. Guðs orð og bæn.
8.15 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur.
19.00 Hlé.
22.00 Prédikun. Flytjandi Louis Kaplan.
22.14 Tónlist.
24.00Dagskrárlok.
Næturdagskrá. Dagskrárlok.
HUÓÐBYLGJAN AKUREYRI
8.00 í þótinni. Friðný Björg Sigurðar-
dóttir og Benedikt Barðason komin
fram í miðja viku. Þau segja frá veðri,
samgöngum og líta I norölensk blöð.
Fréttir kl. 08.30.
10.00 Ómar og Þráinn á tvennum tátilj-
um.Óskalög, getraun og opin lina.
Fréttir kl. 12.00 og kl. 15.00.
17.00 Merkileg mál. Friðný Björg Sigurö-
ardóttir og Benedikt Barðason taka á
málefnum líöandi stundar. Viðtals og
umræðuþáttur í betri kantinum. Fréttir
kl. 18.00.
19.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03—19.00 Svæðisútvarp i umsjón
Kristjáns Sigurjónssonar og Margrétar
Blöndal.
LC HEIMI IWirMyNDANNA
Verður sýnd á næstunni í Háskólabíói:
Axel Foley snýr aftur
Foley og félagar hans (Judge Reinhold og John Ashton) gramsa
í ólöglegfri vopnasendingu.
Axel Foley snýr bráðum aftur
því Háskólabíó mun sýna innan
skamms sumarsmellinn Beverly
Hiils Cop II (Löggan í Beverly
Hills II), sem segir frá enn fleiri
ævintýram Axel Foleys, svörtu
löggunnar með stólpakjaftinn,
sem Eiddie Murphy hefur gert að
mesta söluvamingi síðan E.T.
náði heim.
Það er sama fólkið sem stendur
að baki nýju löggumyndarinnar
og gerði hina fyrri nema í þetta
skipti leikstýrir Bretinn Tony
Scott en ekki Martin Brest. Fram-
leiðendumir era sem fyrr þeir Don
Simpson og Jerry Bruckheimer
og auk Murphys leika þeir Judge
Reinhold, John Ashton og Ronny
Cox aftur lögreglumenn og kunn-
ingja Foleys. Nýir leikarar era
m.a. Brigitte Nielsen, sem nýlega
kvaddi Sylvester Stallone fyrir
fullt og allt, og Dean Stockwell,
sem leikið hefur hvert aukahlut-
verkið á fætur öðra eftir að hann
sneri ser aftur að kvikmyndaleik
eftir langt hlé í mynd Wim Wend-
ers, Paris-Texas.
I sinni fyrstu ferð til Kalífomíu
leitaði Foley að morðingjum vinar
síns og gerði meiri hávaða og
læti en hin rólega lögregludeild í
Beverly Hills hafði nokkra sinni
orðið vitni að. í „Cop 11“ er Foley
kominn aftur til Detroit en heldur
sambandi við góðvini sína úr Be-
verly-löggunni, Bogomil (Cox),
Rosewood (Reinhold) og Taggart
(Ashton). Þegar hann fréttir að
félagar hans séu í alvarlegum
málum og að kapteinninn þeirra
hafí verið lífshættulega særður,
snýr Axel Foley aftur til Beverly
Hills, áður en nokkur getur sagt
„Svei þér“, að hjálpa vinum
sínum.
„Foley er persóna sem ég gæti
leikið endalaust," segir Eddie
Murphy og það efast enginn um
það. Allra síst framleiðendumir
Simpson og Brackheimer, sem
gert hafa nokkrar af söluhæstu
myndum veraldarinnar (Flash-
dance, Beverly Hills Cop, Top
Gun). „Ástæðan fyrir þvi að við
gerðum framhaldsmyndina er sú
að fyrsta myndin skemmti svo
mörgu fólki og hafði svo stórkost-
legt skemmtigildi að okkur fannst
við skulda áhorfendum aðra," seg-
ir Brackheimer.
Sem leikstjóri metsölumyndarinn-
ar Top Gun frá síðasta sumri
hafði leikstjórinn Tony Scott getið
sér gott orð í Hollywood og notið
vel samstarfsins við þá Simpson
og Brackheimer. Hann hafði
áhuga á að vinna með Eddie
Murphy og þegar hann frétti að
verið væri að íhuga aðra löggu-
mynd bað hann um að fá að hitta
hann.
„Simpson, Brackheimer og ég
heimsóttum Eddie í risastórt hús
hans í New Jersey," segir Scott
og brosir þegar hann segir frá
Eddie Murphy sem Alex Foley;
kjaftfor og dúndurskemmtileg-
ur.
heimsókninni til hans hátignar.
„Eddie var í ballskák og ég fór
að segja honum frá hugmyndun-
um sem ég hafði um Beverly Hills
Cop II og reyndi að yfirgnæfa
Prince sem var á fóninum. Eddie
spilaði og fylgdist með mér og
eftir nokkra leiki hafði hann sam-
þykkt mig.“
Eddie ræður. Hann er gull-
drengurinn sem fólkið fer að sjá
og ætlar aldrei að fá nóg af. Það
er aldrei að vita hvað löggumynd-
imar úr Beverly Hills eiga eftir
að verða margar en eins og þeir
sem gera framhaldsmyndimar í
Hollywood era vanir að segja: Það
er ástæðulaust að hætta á meðan
vel gengur.