Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 10
io e MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 I Robert Longo: Hádrif Stefan Wewerka: Biðstóll. samúræjans. Leon Golub: Yfirheyrsla IV. EIWAR GUÐMUNPSSOIM SKRIFAR FRÁ KASSEL; DOCUMEHTÁ Bertrand Lavier: Græn og hvít samsetning. Fyrri grein A fimm ára fresti er haldin viðamikil sýning í Kassel, Þýzkal- andi, á myndlist samtimans, þar sem tilgangurinn er að gefa yfir- lit yfir helztu strauma og stefnur myndlistarinnar. Documenta heit- ir fyrirtækið — því er ætlað að koma fram sem heimild um tíðar- andann — af mörgum talin vera mikilvægasta alþjóðlega sýning samtímalistarinnar og einstöku sinnum líkt við ólympíuleika. Að þessu sinni er á ferðinni Documenta, sú áttunda í röðinni. Hin fýrsta var haldin 1955, þegar Þjóðveijar voru að ná sér upp úr kaldakolum stríðsins ogþýzk list var að færast aftur inn í evrópskt menningarsamhengi eftir niður- lægingu nazistatímans. Hverju sinni er Documenta fenginn sérstakur listrænn stjóm- andi, sem nú var safnstjóri frá Köln: Manfred Schneckenburger. Honum til aðstoðar var alþjóðleg ráðgjafanefnd, til að móta fyrir- komulag sýningarinar og velja þátttakendur; 3—4 ár voru til stefnu og jafnvirði rúmra 150 milljóna ísl. kr. að moða úr. Stend- ur sýningin í 100 daga, frá 12. júní til 20. sept. Reiknað er með að ekki minna en 300 þúsund gestir hvaðanæva að úr heiminum sæki hana. Aðstandendur gerðu í löngu máli grein fyrir þeirri stefnu er þeir mörkuðu sér, og er hér reynt að gera grein fyrir henni í sem allra stytztu máli. Úr orðum Schneckenburgers er því þetta: „D8 fylgir engum fræðilegum eða predikunarkenndum mark- miðum, og hún forðast að grípa til ákveðins eins slagorðs um nú- verandi ástand. Hún gefur ekki heildaryfirlit yfir myndlist samtí- mans. Sýninger aðeins birtist á fimm ára fresti verður að leggja þungamiéijuna áþennan hálfa ára- tug í millitíðinni. Við höfum rætt um, hver þessi þungamiðja gæti verið; nýir stílar virðast aðeins vera endurvakning og ný formerki eru ekki í sjónmáli. Við tókum þó eftir hræringu í listinni, er virtist Kawamata: Verkefni í þágu eyðilagðrar kirkju. Joseph Beuys: Eik númer 7.000 — hún hélt uppi snúru með óútfylltum þýzkum manntalsskýrsl - Zvi Goldstein: Afbrigðilegt módel. jafn sterk fyrir hræringum; tími listfræðilegra merkimiða virðist tilheyra fortíðinni. Tillaga okkar er sú, að gengið sé út frá sögu- ogfélagslegu umfangi listarinn- ar.“ Er nú staulazt í gegnum text- ann með hjálp endursagnar og styttinga. — M. Sch. heldur áfram fyrir hönd nefndar sinnar og seg- ir, að ekki sé þama um neinn nýjan sjónarhól að ræða, en sjón- armið þeirra falli í brennidepli þegar gerður er samanburður við fyrri Documenta-sýningar. Á D6 hefði borið hæst sjálfsskoðun — listin fjallaði um listina. D7 ein- kenndist af „sjálfsævisögulegri látbragðsmálun" — listin fjallaði um listamennina sjálfa. Að þessu Bill Woodrow: Skrín. sinni væri því umfjöllunin: listin um þjóðfélagið Þátttakendur eru sem sagt valdir, ogþykir heiðurinn ekki lítill. Um 150 myndlistarmenn mynda kjamann í núverandi Documenta. Þar af er um þriðj- ungur Þjóðveijar. Af öðrum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.