Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
B 3
Rás 1:
Bókmennftagagnrýni
■■■■ Ríkisútvarpið hefur kynnt og gagnrýnt nýjar bækur um
1/105 árabil iíkt og aðrir fjölmiðalr. Vettvangur kynninganna
er þátturinn Bókaþing á laugardagskvöldum kl. 20.30
og ritdómar eru fluttir í þættinum Sinnu, á laugardögum kl. 14.05.
Ríkisútvarpið hefur ekki fasta ritdómara á sínum vegum heldur leit-
ar til þeirra bókmenntafræðinga sem taldir eru hæfastir til að fjalla
um einstök verk. í þættinum Sinnu í dag verða þijár nýjar skáldsög-
ur teknar til umflöllunar. Soffía Auður Birgisdóttir talar um bók
Gyrðis Elíassonar „Gangandi íkomi", Þórður Helgason fjallar um
bók Sjón „Stálnótt" og Þórir oskarsson fjallar um bók Vigdíasar
Grímsdóttur „Kaldaljós". Höfundamir lesa kafla úr bókum sínum
og að loknum ritdómum gagnrýnenda verða umræður um bækum-
ar. Ástæðan fyrir því að fyrrgreindar þrjár bækur em teknar fyrir
í sama þættinum er að höfundar þeirra eru allir ung ljóðskáld sem
em að gefa út fyrstu skáldsögur sínar. Það gefur tilefni til um-
ræðna um aðferðir þeirra, stil og viðfangsefni. Umsjónarmaður Sinnu
er Þorgeir Ólafsson.
■■■ Fmmflutt verður í dag leikritið Enginn skaði skeður
1 30 eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur í leikstjóm Þórhalls
-■•vf-■ Sigurðassonar. Leikritið fjallar um konu nokkra sem er
að koma heim til sín úr vinkvennafagnaði_ síðla nætur þegar hún
verður þess vör að henni er veitt eftirför. Áður en hún kemst inn í
húsið verður hún fyrir mddalegri líkamsárás og nauðgunartilraun.
Henni tekst að hrópa á hjálp og árásrmaðurinn er handtekinn. Leikri-
tið lýsir áhrifum þessa atburðar á sálarlíf konunnar og dregin er
upp mynd af meðferð réttvísinnar á málinu. Leikendur em Anna
Kristín Amgrímsdótttir, Hákon Waage, Haildór Bjömsson, Helga
Jónsdóttir, Jón Gunnarsson, Pálmi Gestsson, Róbert Amfínnsson og
Gerður G. Bjarklind. Tæknimenn vom Friðrik Stefánsson og Pálína
Hauksdóttir.
Reynsla
æskileg
■■■■i Þijár bíómyndir verða
O-J 55 sýndar á Stöð 2 í
“ '“ kvöld og er sú fyrsta
bresk og nefnist Reynsla æski-
leg, (Experience Preferred, But
Not Essential). Segir þar frá
ungri stúlku Ánnie, sem hefur
nýlega lokið námi og fer til starfa
á afskekktu hóteli í Wales. Annie
sem er lítt veraldarvön kemst
þar í kynni við fólk af ýmsu tagi.
Hún kynnist Ivan, sem er hommi, Hywel og Paulu sem eiga í ástar-
sambandi fullu af sjálfspyntingum og loks yfírmanninum, eiginkonu
hans og hjákonu. Með aðalhlutverk fara Elizabeth Edrponds, Sue
Wallace, Geraldine Griffíth og Karen Meagher. Leikstjóri er Peter
Duffel. Kvikmyndahandbók Scheuers gefur myndinni ★ ★ V2.
Annie ásamt einum starfs-
félaga sinna á liótelinu.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST (
Söfn
Arbæjarsafn
i vetur verður safnið opið eftir samkomu-
lagi.
Ámagarður
I vetur geta hópar fengið að skoða hand-
ritasýninguna i Árnagaröi ef haft er
samband við safnið með fyrirvara. Þar
má meðal annars sjá Eddukvæði, Flateyj-
arbók og eitt af elstu handritum Njálu.
Ásgrímssafn
Ásgrímssafn við Bergstaðastræti er opið
þri. fim. og sun. frá klukkan 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Um þessar mundir stendur yfir í Ásmund-
arsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar. Þargefurað líta 26 högg-
myndir og 10 vatnslitamyndir og teikning-
ar. Sýningin spannar 30 ára tímabil af
ferli Ásmundar, þann tima sem listamað-
urinn vann að óhlutlægri myndgerð. I
Ásmundarsafni erennfremurtil sýnis
myndband sem fjallar um konuna i list
Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur, myndbönd og
afsteypur af verkum listamannsins. Safn-
ið er opið daglega frá kl. 10 til 16.
Skólafólk og aðrir hópar geta fengið að
skoða safnið eftir umtali.
Listasafn Einars
Jónssonar
I listasafni Einars Jónssonar eru sýnd-
ar gifsmyndir og olíumálverk. Þar fást líka
bæklingar og kort með myndum af verk-
um Einars. Safnið er opið alla laugardaga
og sunnudaga kl. 13.30-16.00. Högg-
myndagaröurinn er opinn daglega frá
11-17. Þarerað finna 25 eirsteypuraf
verkum listamannsins.
Myntsafnið
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns er
í Einholti 4. Þar er kynnt saga íslenskrar
peningaútgáfu. Vöruseðlarog brauð-
peningarfrá siðustu öld eru sýndir þar
svo og orður og heiöurspeningar. Líka
er þarýmis forn mynt, bæði grísk og
rómversk. Safnið er opið á sunnudögum
millikl. !4og 16.
Náttúrugrípasafnið
Náttúrugripasafniö ertil húsa að Hverfis-
götu 116,3. hæð. Þar má sjá uppstopp-
uð dýr til dæmis alla íslenska fugla,
þ.á.m. geirfuglinn, en lika tófur og sæ-
skjaldböku.
Safnið er opið laugardaga, sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
13.30-16.
Póst-og
símaminjasafnið
i gömlu simstöðinni í Hafnarfirði er núna
póst- og símaminjasafn. Þar má sjá fjöl-
breytilega muni úr gömlum póst- og
símstöövum og gömul símtæki úr einka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safnið á öðrum tímum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð í síma 54321
Sjóminjasafnið
f sjóminjasafninu stenduryfirsýning um
árabátaöldina. Hún byggirá bókum
Lúðvíks Kristjánssonar „islenskum sjáv-
arháttum". Sýnd eru kort og myndir úr
bókinni, veiöarfæri, líkön og fleira. Sjó-
minjasafniö er að Vesturgötu 6 í Hafnar-
firði. Það eropið íveturum helgar
klukkan 14-18 ogeftirsamkomulagi.
Síminner 52502.
Þjóðminjasafnið
Laugardaginn 21. nóvemberverðuropn-
uð Ijósmyndasýning í tilefni af útgafu
bókar um Daniel Bruun hjá bókaforlaginu
Emi og Örlygi. Sýningin stendurtil 31.
desember.
Þjóðminjasafnið er opið þriöjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga
frá 13.30-16. Þareru meðal annarssýnd-
ir munir frá fyrstu árum fslandsbyggðar
og islensk alþýðulist frá miðöldum. Einn-
ig er sérstök sjóminjadeild og land-
búnaðardeild, til dæmis er þar uppsett
baðstofa.
Leiklist
Leikfélag Reykjavíkur
Næstkomandi laugardagskvöld, 14.
nóvember, verður 19. sýning Leikfélags
Reykjavíkur á Föðurnum eftir August
Strindberg i Iðnó kl. 20.30.
Þessi sýning er markveröari en aðrar
fyrir þá sök að þennan dag eru liðin rétt
100 ár frá því að Faöirinn var fyrst frum-
sýndur, en þetta sigilda leikrit þessa
mikla sænska skáldjöfurs var frumsýnt í
Kaupmannahöfn 14. nóvember 1887.
Sýning Leikfélags Reykjavikurnú hefur
hlotið mikið lof og hefur öllum aðstand-
endum óspart veriö hrósað fyrir vönduð
vinnubrögðogsterkasýningu: „ . . .sýn-
ingin i heild veitir áhorfandanum þann
blæ af vængjataki mikils skáldskapar aö
hann situr undir henni með vakandi
áhuga og hrifningu eftir þvi sem á liöur.
Slík leikhúsreynsla er ekki of algeng og
þeim mun gleðilegra að fá að njóta henn-
ar á þessum haustdögum," segir einn
gagnrýnenda, GunnarStefánsson i
Tímanum, í umsögn sinni.
Aðeins örfár sýningar eru eftir á þessu
sígilda leikriti sem er i hópi auðskiljanleg-
ustu og aðgengilegustu verka Strind-
bergs.
Aðrarsýningarum helgina: Hremm-
ing, sunnudagskvöld kl. 20.30 i Iðnó (6.
sýning). Dagur vonar, föstudagskvöld kl.
20.00 í Iðnó (66. sýning). Djöflaeyjan,
föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.00
í Leikskemmu LRv/Meistaravelli.
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið sýnirtvo einþáttunga
eftir Harold Pinter, Einskonar Alaska og
Kveðjuskál, í Hlaðvarpanum. Uppselt er
á allar sýningar í nóvember, en bætt
hefur verið við fjórum aukasýningum 2.
7.9. og 10. desember kl. 20.30
Með hlutverk fara Arnar Jónsson, Margr-
ét Ákadóttir, María Sigurðardóttir, Þór
Tulinius og Þröstur Guöbjartsson. Leik-
stjóri er Inga Bjarnason.
Sýningar verða tíu og hin síöasta verður
29. nóvembernk.
Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið „Eru tígris-
dýr i Kongó?" laugardag og sunnudag
kl. 13 og eru þetta 95 og 96 sýning.
Innifalið í miöaverði er léttur hádegisverð-
ur og kaffi. Sýnt er í veitingahúsinu I
Kvosinni. Miðar eru seldir á skrifstofu
Alþýðuleikhússins, Vesturgötu 3,2.
SJÁ NÆSTU OPNU
SKEMIVITISTADIR
Sjónvarpið:
Áhálumís
■■■■ Bíómynd kvöldsins er bandarísk í léttum dúr og heitir Á
91 35 hálum ís, (Slap Shot). Þar leikur Paul Newman þjálfara
“ A íshokkíliðs af lakara taginu. Þjálfarinn ákveður að taka
til sinna ráða við að afla liðinu frægðar og beitir til þess ýmsum
brögðum, sumum fremur vafasömum. Aðrir helstu leikarar eru Micha-
el Ontkean og Lindsay Crouse, en leikstjóri er George Roy Hill.
Kvikmyndahandbók Scheuers gefur myndinni ★ ★ ★.
■■■■ Dægurflugur II, (Rock Pop in Concert) nefnist síðasti
9 Q 25 dagskrárliður kvöldsins. Sýndar verða svipmyndir frá rokk-
tónleikum í MUnchen. Fram koma nokkrir þekktir tónlist-
armenn.
Stöð2:
Svimi
■■■ Fjalakötturinn á Stöð 2 sýnir í dag myndina Svimi, (Vert-
1 /4 15 >g°) eftir leikstjórann Alfred Hitchcock. Þrátt fyrir að
It: mynd þessi hafi ekki hlotið mikla athygli þegar hún var
frumsýnd er hún í dag talin í hópi bestu mynda Hitchcocks. Myndin
byggir upp á flækju sem ekki leysist fyrr en í lokin. Hún er um
Scotty, fyrrverandi einkaspæjara sem fenginn er til að elta eiginkonu
vinar síns. Hann verður áistfanginn af henni því hún minnir hann á
látna ástkonu hans. Þær reynast vera ein og sama og konan og
dauði ástkonunnar aðeins tilbúningur til að hylma yfir morð vinarins
á einkonu sinni. Lausn flækjunnar í loka atriði myndarinnar er af
mörgum talið vera hámark hennar. Scotty er leikin af James Stew-
art, en önnur helstu hlutverk leika Kim Novak, Barbara Bel Geddes,
Tom Hemore og Henry Jones. Myndin fær ★ ★ ★ ★ í kvikmynda-
handbók Scheuers.
UTOPIA
Suðurlandsbraut 26
Skemmtistaöurinn Utopia er til húsa
við Suðurlandsbrautina. Þar er 20 ára
aldurstakmark.
ÁRTÚN
Vagnhöfði 11
í Ártúni leikur hljómsveitin Danssporið,
ásamt þeim Grétari og Örnu Þorsteins
á föstudagskvöldum, þegar gömlu
dansarnir eru og á laugardagskvöldum,
þegar bæöi er um aö ræða gömlu og
nýju dansana. Síminn er 685090.
HOLLYWOOD
Ármúli 5
Leitinni að týndu kynslóðinni er hreint
ekki lokið í Hollywood, þar sem bæöi
hljómsveit af þeirri kynslóð sem og
diskótek týndu kynslóðarinnar er í
gangi á föstudags- og laugardags-
kvöld. Boröapantanir eru í sima
641441.
BROADWAY
Álfabakki 8
Rokksýningin „Allt vitlaust" verður í
Broadway á og laugardagskvöld, auk
þess sem hljómsveitin Sveitin milli
sanda, leikur fyrir gesti. Síminn í Broad-
way er 77500.
GLÆSIBÆR
Álfheimar 74
Hljómsveit hússins leikur í Glæsibæ á
föstudags-og laugardagskvöldum frá
kl. 23.00 til kl. 03.00. Síminn er 686220.
HÓTELSAGA
Hagatorg
Dansleikir eru í Súlnasal Hótels Sögu
á föstudags- og laugardagskvöldum frá
kl. 22.00 til kl. 03.00 og leikur þá hljóm-
sveit Grétars Örvarssonar fyrir dansi,
en að auki er skemmtidagskrá með
danssýningu.
Á Mímisbar er svo leikin létt tónlist
fyrir gesti frá kJ. 22.00 til kl. 03.00.
Síminn er 20221.
LENNON
Austurvöllur
Diskótek er í skemmtistaðnum Lennon
á föstudags- og laugardagskvöldum frá
kl. 20.00 til kl. 03.00 og er þá enginn
aðgangseyrir til kl. 23.00. Aðra daga
er diskótek frá kl. 20.00 til 01.00.
Síminn er 11322.
CASABLANCA
Skúlagata 30
Diskótek er í Casablanca á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00 til
kl. 03.00. Á fimmtudagskvöldum eru
oft rokktónleikar.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholt 20
í Þórscafé er skemmtidagskrá m.a.
með Lúdósextettnum og Stefáni fram
til miðnættis, en þá leikur hljómsveit
Stefáns P. fyrir dansi. Að auki eru
stundum gestahljómsveitir og diskótek
er í gangi á neðri hæöinni frá kl. 22.00
til kl. 03.00. Síminn er 23333.
HÓTEL BORG
Pósthússtræti 10
Rokktónleikar eru iðulega á fimmtu-
dagskvöldum á Borginni og þá frá kl.
21.00. Á föstudags- og laugardags-
kvöldum er diskótek frá kl. 21.00 til kl.
03.00 og á sunnudagskvöldum eru
gömlu dansarnir á sínum stað, frá kl.
21.00 til kl. 01.00. Síminn er 11440.
SKÁLAFELL
Suðurlandsbraut 2
Á skemmtistaðnum Skálafelli á Hótel
Esju er leikin lifandi tónlist öll kvöld
vikunnar, nema á þriðjudagskvöldum.
Hljómsveitir leika um helgar. Skálafell
er opið alla daga vikunnar frá kl. 19.00
til kl.01.00. Síminn er 82200.
EVRÓPA
Bcrgartún 32
Hljómsveit hússins, Saga-Class, leikur
í Évrópu á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Síminn í Evrópu er 35355.
ABRACADABRA
Laugavegur 116
Skemmtistaðurinn Abracadabra er op-
inn daglega frá hádegi til kl. 01.00.
Austurlenskur matur er framreiddur í
veitingasal á jaröhæöinni til kl. 22.30.
( kjallaranum er opið frá kl. 18.00 til
kl. 03.00 um helgar og er diskótek frá
kl. 22.00. Enginn aðgangseyrir er á
fimmtudögum og sunnudögum. Síminn
er 10312.