Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 1
VIKUNA 12. - ■ 18. DESEMBER n
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987 BLAÐ J-Þ
Orson Welles og Joseph Cotten í hlut-
verkum sínum í Þriðja manninum.
Stöd2:
Þriðji
maðurinn
■■■■ Mynd Fjalakattarins á Stöð 2 á
M05 laugardag, er Þriðji maðurinn,
(The Third Men), gerð árið
1949 eftir sögu rithöfundarins Grahams
Greene. Þetta er spennumynd og segir frá
bandarískum rithöfundi sem fer til Vínar
eftir stríð til að hitta vin sinn Harry Lime.
Þegar hann kemur til Vínar virðist sem
Harry hafi látist í slysi. Það kemur síðan
í ljós að svo er ekki heldur er hann orðinn
yfirmaður svartamarkaðsbrasks í borg-
inni. Með helstu hlutverk fara Joseph
Cotten, Trevor Howard, Aida Valli og
Orson Welles, sem leikur Harry Lime.
Leikstjóri er Carol Reed. Kvikmyndahand-
bók Scheuers gefur myndinni
★ ★ ★ ★.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-14
Utvarpsdagskrá bls. 2-14
Skemmtistaðir bls. 3
Hvað er að gerast? bls. 3/5/7
Bamaefni bls. 4
Bíóin í borginni bls. 5
Framhaldsþættir bls. 16
Jelly Roll Morton
Sjónvarpið:
Djasspíanistar
Nafntogaðir djasspíanistar, (Piano Legends) er
OQ 05 bandarísk mynd um helstu píanista djassins og verð-
"O ur hún sýnd í Sjónvarpinu á sunnudagskvöld kl.
23.05. Jelly Roll Morton, Willie „The Lion“ Smith, Earl „Fat-
ha“ Hines, Mary Lou Williams, Thomas „Fats“ Waller, Art
Tatum, Thelonius Monk, Count Basie og Duke Ellington eru
meðal þeirra sem fram koma í myndinni. Kynnir er Chick
Corea.
Veitingahús bls. 7/9
Myndbandaumfjöllun bls. 13/15
Guðað á skjáinn bls. 11