Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987 Sjónvarpið: JÓLADAGSKRÁIN Sjónvarpið býður áhorfendum sínum upp á innlent efni af ýmsu tagi um jól og áramót, heimildarmyndir, bíómyndir og barnaefni. Einnig verða sýndar myndir sem tengjast jólunum, tónlistarþættir og kvikmyndir. Fýrsta jólamyndin verður sýnd í Sjónvarpinu laugardaginn 19. des- ember. Hún heitir „Bemskujól í Wales", (A Child’s Christmas in Wales) og er byggð á samnefndri sögu eftir Dylan Thomas. Flutning- ur á Jólaóratóríu Bachs í Klaustur- kirkjunni í Waldhausen, einni fegurstu barokkirkju í Evrópu, verður á dagskrá sunnudaginn 20. desember. Þá verður einnig sýndur fyrsti hluti sjónvarpsuppfærslu á leikriti Tony Harrison, „The Myst- eries". Leikritið er byggt á Gamla testamentinu og er í þrem hlutum. Jólaþáttur með „Gömlu brýnunum" verður sýndur á Þorláksmessu, en um kvöldið verður tónlistin allsráð- andi. Sýnd verður söngskemmtun sem haldin var í íslensku óperunni með kór Vestur íslendinga, djass- tónleikar Leo Smith og félaga frá í sumar og endursýndur tónlistar- þáttur með hljómsveitinni Brimkló frá 1980. Innlent efni Kvikmynd Andrésar Indriðasonar, „Veiðiferðin" verður sýnd á að- fangadag. Hún gerist á einum sumardegi á Þingvöllum og segir frá fjölskyldu sem þangað kemur til að veiða og njóta veðurblíðunn- ar. Meðal leikenda eru Sigurður Karlsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Yrsa Björt Löve, Kristín Björgvins- dóttir og Guðmundur Klemenzson. „Leyndardómar Vatnajökuls" er kvikmynd um leiðangra kvik- myndatökumanna bæði yfir og undir Vatnajökul sem sýnd verður á jóladag. Höfundar myndarinnar eru Jón Björgvinsson og Gérald Favre. Kvikmyndin „Punktur, punktur, komma, strik", gerð eftir sögu Péturs Gunnarssonar og sam- sett jóladagskrá í umsjón Sigrúnar Stefánsdóttur verða einnig á dag- skrá á á jóladag. Þáttur Sigrúnar nefnist „Ljós í lofti glæðast" og verður m.a. fjallað um þátt ljóssins í jólahátíðinni og þau tímamót sem jólin marka í skammdeginu. „Saga úr stríðinu" nefnist íslensk sjónvarpsmynd sem sýnd verður á annan dag jóla. Hún fjallar um 11 ára dreng á íslandi árið 1944 og áhrif stríðsins á líf hans. Höfundur er Stefán Júlíusson, en leikstjóri Ágúst Guðmundsson. Myndin var áður sýnd í Sjónvarpinu árið 1976. Kvikmyndin „Atómstöðin" gerð eft- ir skáldsögu Halldórs Laxness verður á dagskrá 26. desember, en leikstjóri hennar er Þorsteinn Jóns- son. Sænsk/íslensk kvikmynd um Sölku Völku frá árinu 1954 verður sýnd sunnudaginn 27. desember og þá verður einnig á dagskrá framlag íslands til norræns bamamynda- flokks, „Lóa litla Rauðhetta". Myndin er gerð eftir sögu Iðunnar Steinsdóttur, en leikstjóri ér Þór- hallur Sigurðsson. Linda OKeefe leikur Lóu, fimm ára stelpu sem fínnst leiðinlegt að vera bara Lóa og vera bara fímm ára. Hún vildi heita eitthvað annað og vera eitt- hvað annað . Til dæmis einhver persóna úr ævintýri. í öðrum hlut- verkum eru leikaramir Vilborg Halldórsdóttir, Sigurður Skúlason, Herdís Þorvaldsdóttir og Þórdís Amljótsdóttir, en sögumaður er Edda Heiðrún Backman. Mynda- taka var í höndum Ara Kristinsson- ar og tónlistina samdi Hróðmar Sigurbjömsson. Sjónvarpið hefur nýlega gert mynd- ina „Tilbury“ og verður hún sýnd mánudaginn 28. desember. Leik- stjóri og handritshöfundur er Viðar Víkingsson, en hugmyndin er sótt í samnefnda smásögu eftir Þórarin Eldjám. „Tilbury" gerist árið 1940, þegar breski herinn var sem aðsóps- mestur á fslandi. Hún lýsir tíðar- anda hemámsins á dálítið kyndugan hátt, og í hana er fléttað annarlegu og hrollverkjandi stefí úr íslensku þjóðsögunum. Myndin er ekki talin við hæfi bama. Aðal- leikarar eru Kristján Franklín Magnús, Helga Bemhard og Karl Ágúst Ulfsson. Þá verður einnig sýnd myndin „Ást og stríð“ gerð af Önnu Bjömsdóttur um samband íslenskra kvenna og erlendra hermanna á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Rætt er við nokkrar íslenskar konur sem urðu ástfangnar af erlendum hermönn- um er dvöldust á íslandi á stríðsár- unum. Kvikmyndum í lit, sem teknar vom á íslandi af Samuel Kadorian, bandarískum herljós- myndara er fléttað inn í myndina. „Ást og stríð" er byggð á rannsókn- um Ingu Dóru Bjömsdóttur mannfræðings. „Biðin langa“, nefnist þáttur byggður á kvikmynd Eðvarðs Sig- urgeirssonar um Geysisslysið á Vatnajökli árið 1950. Sýnd verður mynd tekin frá björgun Doglas- vélarinnar ofan af jöklinum og rætt við þrjá af þeim sem vom um borð í Geysi þegar hún fórst. Umsjónar- maður og stjómandi er Sigrún Stefánsdóttir. Mynd frá tónleikaferð Stuðmanna til Kína, „Stuðmenn í Kína“, verður sýnd á gamlárskvöld og að því lo- knu er „Áramótaskaup" á dagskrá. Umsjónarmaður skaupsins er Sveinn Einarsson. „Huldir heimar", mynd um skynjun og yfirskilvitleg efni með heimspekilegu ívafí, verð- ur sýnd á nýársdag. Umsjónarmað- ur er Ásthildur Kjartansdóttir. Jólamyndir Bamaefni verður á dagskrá í eftir- miðdaginn á aðfangadag og verður þá sýndur jólaþáttur um „Litla prinsinn". Tvær teiknimyndir „Mirthworms" og „The Glo Fri- ends“ em einnig á dagskrá og fjalla þær um undirbúning jólanna. „Gæfuskórnir" er ný þýsk ævin- týramynd eftir sögu H.C. Andersen. Gæfuskómir em gæddir þeim eigin- leikum að hver sá sem setur þá á sig fær allar óskir sínar uppfylltar. Myndin verður sýnd á jóladag. Á annan dag jóla verður sýnd ævin- týramyndin „Three Golden Hairs of the Sun King“ byggð á sam- nefndu ævintýri Grimms bræðra. Brúðuleikritið „The Christmas Toy“ eftir Jim Henson, höfund „Prúðu leikaranna“ verður á dagskrá sunnudaginn 27. desember. Breska sjónvarpsmyndin „Season’s Greet- ings“ verður sýnd 30. desember. Þetta er gamanmynd um fjölskyldu sem kemur saman um jólin, en nið- urstaðan er sundurþykkja og ósamkomulag. Bíómyndin „Woman in Red“ með Gene Hackman verður sýnd eftir miðnætti á gamlárskvöld, en á nýársdag verður sýnd sjón- varpsuppfærsla á Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare. Tónlist Drengjakór Hamborgar syngur verk eftir Hans Leo Hassler, Heinrich Shuts, J.S. Bach og F. Mendelssohn-Bartoldi á aðfanga- dag. Stjómandi er Ekkehard Richter. Upptakan var gerð í Eyrar- bakkakirkju sl. sumar. Tónlist verður einnig á dagskrá á aðfanga- dagskvöld. Jólasöngvar frá íslandi og ýmsum löndum verða fluttir ásamt aftansöng jóla frá Dómkirkj- unni í Reykjavík. Síðan er þáttur um íslensk jólaljóð, „Ég heyrði þau MYNDBÖND Sæbjörn Valdimarsson John Houseman, Douglas Fair- banks, Jr. og Craig Wasson. Bandarísk. 1981. 110 mín. The Little Girl Who Lives Down The Lane ★ ★ ★ Leikstjóri: Nicolas Gessner. Jodie Foster fer á kostum í hlutverki telpu sem hefur mikinn ýmigust á kjallar- anum heima hjá sér. Sheen leikur foður hennar, ódám sem misþyrmdi bömum. Vel heppnaður taugat- rekkjari í alla staði og það er sannkallaður óhugnaður í kjallaran- um! Jodie Foster, Alexis Smith, Martin Sheen, Scott Jacoby Kanadísk, 1983. 100 mín. (Sýnd í sjónvarpi í Bandaríkjunum, en kvik- myndahúsum annars staðar.) The Nesting ★ ★ '/2 Leikstjóri: Armand Weston. Ung- ur rithöfíindur leigir sveitasetur til að yrkja í næði. Það er þó ekki fyrir hendi þar sem allt morar í afturgöngum! Skrykkjótt, á afskap- lega laka kafla en rýkur upp í sannkallaðan djöfulmóð þess á milli. Robin Groves, John Carradine, Gloria Grahame. Bandarísk 1981. 104 mín. Too Scared to Scream ★ */2 Leikstjóri: Tony Lo Bianco. Enn ein hrollvekjan sem er áhugaverð fyrir það eitt að státa af skemmti- legum leikhópi og þá mun hún vera eina leikstjómarverkefni hins kunna leikara Bianco, (The French Connection, Body Heat). Leynlög- regla í New York í leit að snargeggj- uðum morðingja. Mike Connors, Anne Archer, Leon Isaac Kennedy, Ian McShane, John Heard, Maureen O’Sullivan, Murray Hamilton. Bandarísk, 1985. 100 mín. Madhouse ★ ★V2 Leikstjóri: Jim Clark. Gamli, góði Prince fer hér með hlutverk hroll- vekjuleikara sem er að reyna að ná fyrri frægð í kvikmyndaheimin- um eftir dvöl á geðsjúkrahúsi. Líkin hrannast í kringum hann og heils- unni hrakar . . . Prince og Cushing í essinu sínu og myndin skemmtileg blanda af léttum hryllingi og skopi. Vincent Prince, Peter Cushing, Adrienne Corri. Bresk, 1974. 90 mín. Fright Night ★ ★ ★ Leikstjóri: Tom Holland. Hressi- legasta mynd, hvorttveggja í senn fyndin og ógnvekjandi. Friðurinn er úti í rósömu úthverfí er sjálfur Drakúla sest þar að. Unglingar í nágrenninu leita hjálpar hjá af- dönkuðum hrollvelquleikara í neyð sinni! Með þeim bestu í sínum flokki um langt skeið. Meistari Richard Edlund hannaði gerfí og brellur af kunnri snilld. Chris Sarandon, Roddy McDowell, William Ragns- dale, Stephen Geoffreys. Bandarísk. 1985. 105 mín. Morgunblaðið/Þorkell Iðunn Steinsdóttir höfundur myndarinnar „Lóa litla Rauðhetta" og Linda OKeefe sem leikur aðalhlutverkið. Ljósmynd/ Skafti Gufljónsson Brúðkaup í Kristskirkju. Úr myndinni „Ást og Stríð“. nálgst", í umsjón Helga Skúlason- ar. „Jessye Norman’s Christmas Symphony" er þáttur með banda- rísku söngkonunni Jessy Norman á tónleikum í Ely dómkirkjunni. Með henni koma fram bandarískur drengjakór og Bournemouth sin- fóníuhljómsveitin auk kirkjukóra. Dagskránni á aðfangadagskvöld lýkur með því að Sigríður Ella Magnúsdóttir syngur ásamt kór Öldutúnsskóla, jólalagið „Nóttin var sú ágæt eih“. Drengjakór Hamborgar verðu aftur á dagskrá á jóladag og að þessu sinni syngur kórinn „Missa brevis“ eftir W.A. Mozart. Jólaþáttur með Julie Andrews, „Sound of Christm- as“ verður sýndur 25. desember, en hann var tekinn upp í Salzburg í Vestur-Þýskalandi. Julie syngur yfír tuttugu lög og þar á meðal dúetta með Placido Domingo og John Denver. Svissneski tónlistar- þátturinn „Jólarokk í Montreux" er síðasti dagskrárliðurinn 29. desem- ber. „Stuðpúðinn" er tónlistarþáttur sem sýndur verður á gamlárskvöld að loknum „Annáli 1987“. Sýnt verður úrval íslenskra tónlistar- myndbanda sem gerð voru á árinu. Auk þess verður frumsýnt mynd- band við lag eftir óþekktan höfund í útsetningu Gunnars Þórðarsonar. Lagið heitir „Ég er ltill svartur maður", en flyjandi er Bubbi Mort- hens. Upptaka Sjónvarpsins á fluttningi óperunnar „Aidu“ í ís- lensku óperunni verður sýnd á nýársdag. FRAMHALDSÞÆTTIR Hvar/Hvenær Sjónvarpið: Fyrlrmyndarfaðir kl. 20.45 Áframabraut Á grmnni grein kl. 20.45 Vinur vor, Maupassant George og Mlldred kl. 19.30 Súrt og saett kl. 18.25 Arfur Guldenburgs þriðjudagur kl. 22.15 Gömlu brýnln kl. 19.30 Llstmunasallnn kl.21.30 Þrífœtllngarnir kl. 18.30 Austurbælngamlr fimmtudagur kl. 19.25 Matlock kl. 21.20 Mannaveiðar kl.21.40 Stöð 2: Mánudagur á mlðnættl laugardagur kl. 11.30 Ættarveldið kl. 16.30 Sældarlff kl. 18.45 Spenser kl.21.40 Heimllið kl. 11.40 Gelmálfurlnn Alf kl. 14.35 Sherlock Holmes kl. 20.30 Vísitölutölufjölskyldan sunnudagur kl.22.35 Þoir vammlausu kl.24.00 FJölskyldubönd kl. 20.30 Vogun vlnnur kl.21.05 Óvænt endalok kl. 21.55 Dallas kl. 22.20 Húsið okkar kl. 20.30 Hunter kl. 22.30 Smygl kl. 18.15 Morðgáta kl. 20.30 Lögreglustjórarnlr kl. 21.55 Bjargvætturlnn kl.20.30 Dansdraumar kl. 18.15 HarveyMoon föstudagur kl. 20.30 Hasarlelkur kl 22.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.