Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987 B 13 IVIYIMDBÖIMD Sæbjörn Valdimarsson Viðsjál húshjálp A Judgement in Stone ★ ★ Leikstjóri: Ousama Rawi. Hand- rit: Elaine Waisglass, byggt á skáldsögu e. Ruth Rendell. Tón- list: Paul Zaza. Klipping: Stan Cole. Kvikmyndataka: David Herrington. Aðalleikendur: Rita Tushingliam, Ross Petty, Tom Kneebone, Shelley Peterson, Jessica Stern, Jackie Burroughs. Kanadisk. 1986., Virgin Video/ Steinar 1987. 93 mín. Mér var nokkur léttir að sjá hana Ritu Tushingham á nýjan leik. Þessi fínlega en löngum dáldið óttaslegna leikkona hvarf nefnilega svo gott sem af sjónarsviðinu upp úr 1970. Eftir góðan orðstír í myndum eins og A Taste of Honey, The Knack, The Trap og Dr. Zhivago. Hér sting- ur hún sem sé sprelllifandi aftur upp kollinum, sem aldrei hefur víst talist par fríður og er nú hún Rita litla með aldrinum orðin ein sú magnaðasta hryllingsleikkona, allar götur síðan Bette Davis skelfdi heimsbyggðina í What Happened To Baby Jane. Hún heldur uppi hefðbundinni hryllingssögu um léttlúnaða vinnukonu, sem brestur undir auknu álagi, og ekki má held- ur gleyma Jackie Burroughs, sem fer með hlutverk vinkonunnar sem er jafnvel enn verri í kollinum. Það er ánægjulegt til þess að vita að Tushingham er aftur komin á ról, frammistaða hennar í A Judgement in Stone sýnir hvað góður leikur getur gert fyrir útjask- að efni. Leið eru láglaunin Half Moon Street ★ ★ Leikstjóri: Bob Swaim. Handrit: Swaim og Edward Behr, byggt á skáldsögunni Doctor Slaught- er, e. Paul Theroux. Tónlist: Richard Harvey. Aðalleikendur: Sigourney Weaver, Michael Caine, Patrick Kavanagh, Nadim Sawalah, Keith Buckley, Angus Mclnnes. Bandarísk. 20th Cent- ury Fox/Skífan 1987. 86 mín. Weaver leikur hámenntaða glæsikonu sem er í illa launaðri vinnu í London. Hún heldur þá út í elstu atvinnugreinina með hag- stæðum árangri. Einn af viðskipta- vinum hennar er stjórnmálamaður (Caine) með sér þekkingu á málefn- um Mið-Austurlanda. Þau tengjast smám saman sterkum böndum. En hún á einnig „vini“ meðal araba, sem eru fljótir að sjá sér leik á borði og nota Weaver sem tálbeitu — án hennar vitundar. Uppbyggingin gengur ágætlega og lengi fram eftir er Half Moon Street nosturslegur, skynsamlega skrifaður þriller. En myndin fer úr böndunum og þegar líða' tekur á gerist söguþráðurinn raunalega veigalítill. Þegar kemur til kasta leikaranna stendur Weaver sig ekki nógu vel í stykkinu, aldrei þessu vant. Hún er ein ósennilegasta gleðikona sem sést hefur á tjaldinu. Sú rulla hentar henni einfaldlega ekki þó stormi af henni glæsileik- inn. Það er ekki nóg að bera brjóstin og lygna augunum, annað má ekki vera botnfreðið. Caine er hins vegar pottþéttur — að vanda. IMAUTALEÐUR Verðið er 68.650 — þetta er ekki prentvilla 5000.- á mánuði 18.650. -útborgun (með Visa eða Euro) á slitflötum húsgagnaAöHin Bergen 6 sæta hornsofi. í púðum er polyester og dacr- onló. Klætt með krómsútuðu anilíngegnum lituðu nauta- leðri á öllum slitflötum og með leðurlíki á grind utanverðu. Stærðir B-210 x L 265. 2ja ára ábyrgð. REYKJAVlK DANMARKII tónvalssíminn liefur 9 númera minni, sjálfvirkt endurval og skjá, sem birtir númer, sem verið er að hringja í. Innbyggður hátalari gerir kleift að hlusta eftir sóni, velja númer og bíða eftir svari áður en heyrnartólinu er lyft af. Hljóðnemi geflir möguleika á handfrjálsri notkun. DAN MARK CLASSIC er venjulegur borðsími með tónvali fyrir þá, sem vilja einfalda og fallega síma. Símar sem pú vilt örugglega eiga DAN MARK símamir em gott dœmi um hvemig samrœma máfallegt útlit og notagildi. PÓSTUR OG SÍMI DAN MARK símana fcerðu í söludeild- úm Pósts og síma íKringlunni, Kirkjustrceti og á póst- og símstöðvum um land allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.