Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR IX. DESEMBER 1987
B 5
Tónlistarkrossgátan
■■I Jón Gröndal leggur 94. tónlistarkrossgátuna fyrir hlustend-
"I K 00 ur- Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins Rás 2, Efstaleiti
1D 1, 150 Reykjavík. Merkt: Tónlistarkrossgátan.
Rás 1:
Aðventa
■■■■ Andrés Bjömsson hefur í kvöld lestur Aðventu eftir Gunn-
91 30 ar Gunnarsson. „Aðventa" kom út á dönsku árið 1937 og
" A var brátt þýdd á mörg tungumál. Á íslandi kom „Að-
venta" út árið 1939 í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar, en á efri
árum færði Gunnar söguna sjálfur í íslenskan búning, og er sú þýð-
ing lesin hér. „Aðvetna" byggir á raunverulegum atvikum, árlegri
eftirleit Benedikts Jónssonar á aðventunni ásamt hundi sínum og
forystusauð. Þetta efni setur Gunnar í skáldlegt samhengi, í búning
einskonar helgisögu' og er „Aðventa" almennt talin ein listrænasta
saga skáldsins, segir í kynningu. Sagan er fimm lestrar.
HVAÐ
ER AÐ0 GERAST \
sýningunni eru um 80 myndir unnar með
ýmsum aöferðum.
Þeir sem eiga myndir á sýningunni eru:
Maria Hordyj, Mariana Manner, Minako
Masui, Krystyna Pietrowska, K.G. Nils-
son, Ursula Schútz, Gerald Steffe, Nils
G. Stenqvist, Martisa Vasques, Ulla
Wennberg og Eva Zettervall. Sendiherra
Svíþjóðar, Per Olof Forshell: flytur ávarp
og opnar sýninguna.
Sýningin verður opin daglega kl. 14-19
og stendurtil 15. desember.
Gallerí Borg
í Galleríi Borg, Austurstræti, lýkurá
sunnudaginn 13. desember sýningu tólf
leirlistamanna. Þá tekur við sala hinna
ýmsu listamanna bæði í Galleri Borg,
Pósthússtræti og Austurstsræti. Galleri
Borg verður opið á sama tíma og verslan-
ir í desember.
Gallerí Gangskör
Gangskörungar opnuðu jólasýningu í
Gallerí Gangskör, Amtmannsstíg 1 28.
nóvember. Sýningin er opin alla virka
dagafrákl. 12.00—18.00 ogum helgar
frákl. 14.00-18.00.
Gallerí Grjót
Nú stendur yfir samsýning á verkum allra
meðlima Galleri Grjóts. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12 til 18.
Gallerí 15
Yfirlitssýning á verkum Ágústs Ákansson
stenduryfir í Galleríi 15, Skólavörðustig
15. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.
00—18.00. Sýningunni líkur 13. desem-
ber.
Gallerí Langbrók
Textilgalleriið Langbrók, Bókhlöðustíg 2,
er með jólaupphengingu á vefnaði, tau-
þrykki, myndverki, módelfatnaði og fleiri
listmunum. Leirmunireru á sama stað í
Galleri Hallgerði. Opið er þriöjudaga til
föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl.
11-14.
^vort d fnntu
Gallerí Svart á hvrt
Jólasýning á verkum nokkurra myndlista-
manna stenduryfir i Gallerii Svart á hvítu
við Óöinstorg.
Flestir þeir myndlistarmenn sem eiga •
verk á sýningunni hafa tekiö þátt í sýning-
um í galleríinu á þessu ári og má þar
nefna SigurðGuðmundsson. Huldu Há-
kon, Helga Þorgils Friðjónsson, Jón Axel
og Georg Guðna.
Einnig verða á sýningunn verk eftir Karl
Kvaran, HalldórÁsgeirsson, Erlu Þórar-
insdóttur, Ólaf Lárusson og Pieter
Holstein.
Sýningin stendur fram til jóla og er opin
alla daga nema mánudaga frá kl. 14.
00-18.00.
Gullni haninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
myndir Sólveigar Eggerz til sýnis. Mynd-
irnar eru landslag og fantasíur frá Siglu-
firði, unnar með vatnslitum og olíulitum.
Þær eruallartilsölu.
Myndlistasýning hjá
Krístjáni Siggeirssyni
Guðmundur W. Vilhjálmsson sýnir mál-
verk hjá Kristjáni Siggeirssyni hf.,
húsgagnadeild, Laugavegi 13. Þetta er
fjórða einkasýning Guðmundar. Á sýn-
ingunni eru um 30 myndir, aðallega
vatnslitamyndir, flestargerða á þessu
og síðasta ári. Sýningin er opin á opnun-
artima ver6lunarinnar.
Tónlist
Mozart í Kristskirkju
Tónleikar á vegum Tónlistarfélags Krists-
SJÁ NÆSTU OPNU.
Stöð2;
Útlegð
Fyrri hlutar
9 Q 00 ítölsku myndar-
~ innar Útlegð,
(Un’Isola) er sýndur á Stöð
2 í kvöld. Myndin byggir á
ævi eins helsta kommúnis-
taleiðtoga Ítalíu, Giorgio
Amendola. Hún gerist á
dögum Mussolinis og fas-
istastjómar hans og segir
frá Giorgio, ungum hug-
sjónarmanni, sem misst
hefur föður sinn í hendur
fasista. Eftir að þeir myrða
föður hans á grimmilegan
hátt gerist hann virkur
kommúnisti. Það verður til
þess að hann er sendur í
útlegð á eyna Ponza,
skömmu fyrir upphaf síðari
heimsstytjaldarinnar. Unnusta Giorgios er ekki tilbúin að bíða í tutt-
ugu ár og sækir fast að fá leyfí til að giftast honum í útlegðinni.
Með aðalhlutverk fara Massimo Ghini, Christiane Jean, Stephane
Audran og Marina Vlady. Leikstjóri er Carlo Lizzani.
Atríði úr ítölsku myndinni Útlegð.
Stöð2;
Nærmyndir
■■■H Þáttur Jóns Óttars Ragnarssonar, Nærmyndir er á dag-
O-j 55 skrá jStöðvar 2 á sunnudagskvöldum. Að þessu sinni ræðir
Jón Óttar við Jón Gunnar Ámason, myndhöggvara. Risas-
tótar flugur Jóns Gunnars, hjörtu, hnífar, vírar, speglar og hvískrandi
málmþynnur hafa vakið athygli og verið umdeild.
Þorsteinn Pálsson verður síðan í Nærmynd 20. desember, en á jóla-
dag verður myndlistamaðurinn Erró tekinn tali. Jón Óttar ræddi við
Erró í Paris þar sem listamaðurinn hefur búið og starfað í mörg ár.
Á nýársdag verður Magnús Magnússon í Nærmynd, en hann hefur
starfað í Bretlandi í áratugi við dagskrárgerð fyrir sjónvarp og út-
varp, ritstörf og þýðingar.
Bíóin í borainni
BÍÓBORGIN
Flodder 1/2
Ófyndinn hollenskur sóðaskapur.
— ai.
Gullstrætið ★ ★ V2
Gullstrætið hefði þótt meiri matur
fyrir röskum áratug, fyrir tíma
Rocky. Stendur þó bærilega á eig-
in fótum, fyrst og fremst fyrir
sterkan en áreynslulausan leik
Brandauers. — sv.
Laganeminn ★ ★
Réttardrama, blanda unglingaleiks
og morðsögu. Mynd í algjöru með-
allagi. — ai.
Nornirnar í Eastwick
★ ★ ★
Nicholson fær gullið tæfifæri til
að skarta sínum innbyggða fítons-
krafti en Miller lætur augsýnilega
verr að stýra mönnum en maskín-
um. — sv.
HÁSKÓLABÍÓ
Hinir vammlausu ★ ★ ★ ★
Gangstermynd níunda áratugarins
með úrvalsliði leikara og kvik-
myndagerðarmanna. Reynið aö
missa ekki af þessari. — ai.
STJÖRNUBfÓ
La Bamba ★ ★ ★
Heiðarleg, vel gerð, leikin og tekin
mynd um þann merkistónlistar-
mann Ritchie Valens. Hann vann
það kraftaverk með einungis ör-
fáum lögum á örskömmum ferli
að hefja latínskt rokk til vegs og
virðingar. — sv.
„84 Charing Cross Road“
★ ★ 1/2
Hugijúf mynd um samband forn-
bókasala og bandarísks rithöfund-
ar sem aldrei hittust en skrifuðust
á í fjölda ára. — sv.
BÍÓHÖLLIN
Stórkarlar
Grínmynd framleidd af Ivan
(Ghostbusters) Reitman um tvo
stráka sem vilja komast áfram í
lífinu.
Sjúkraliðarnir ★ ★ '/2
í myndum sem þessum er aðeins
eitt markmið, að skemmta gestin-
um, helst með því að skírskota til
hans frumstæðustu hvata, kreista
hláturinn frekar úr kviðarholinu en
heilabúinu. — sv.
í kapp við tímann ★ ★
John Cusack og Robert Loggia eru
góðir í fjörugri unglingamynd.
— ai.
Týndir drengir ★ ★
Rokkunglingahrollvekja í léttum
dúr með ágætum leikarahópi og
brellum en innihaldið heldur klént.
— ai.
Skothylkið ★ ★ ★1/2
Þó svo að Skothylkið sé ekki sú
stórkostlega upplifun sem maður
átti von á frá hendi meistara
Kubricks er i henni að finna glæsi-
leg myndskeið sem örugglega
verða með því besta sem við sjáum
á tjaldinu í ár. — sv.
Leynilöggumúsin Basil
★ ★ ★ ★
Einhver alskemmtilegasta og van-
daðasta teiknimynd sem hér hefur
verið sýnd lengi. (Sýnd um helgar.)
— ai.
Mjallhvít og dvergamir sjö
★ ★ ★ ★
Fyrsta teiknimyndin í fullri lengd;
tímamótaverk, klassík, gimsteinn.
(Sýnd um helgar.) — ai.
Blátt flauel ★ ★ ★
Það er rétt sem stendur í auglýs-
ingunni. Blátt flauel er mynd sem
allir unnendur kvikmynda verða að
sjá. — sv.
REGNBOGINN
í djörfum dansi ★ ★ ★
Hressileg og drífandi mynd, keyrð
áfram af líflegri tónlist sjöunda
áratugarins en þó enn frekar af
dansi sem ætti jafnvel að kveikja
líf með dauðyflum! — sv.
Réttur hins sterka ★
Enn eiri Víetnamhetjan-ber-á-
bófunum-myndin, gerð af litlu viti
en með miklum látum. — ai.
Riddari götunnar ★ ★ ★ 1/2
í Detroit framtíðarinnar eru menn
skotnir og skotnir aðeins meira og
svo skotnir í tætlur í þessari fyrstu
Hollywood-mynd Hollendingsins
Pauls Verhoeven. RoboCop er vél-
menni með göfuga sál og tekst á
við óþokkana en þrátt fyri skefja-
lausa grimmd og ofbeldi gleymist
aldrei hinn mannlegi þáttur. — ai.
Á öldum Ijósvakans ★ ★ ★
Lítil mynd frá Woody Allen en
frámunalega hugguleg og fjallar á
rómantískan hátt um útvarpið á
stríðsárunum í Ameríku. — ai.
Löggan í Beverly Hills II
★ ★ 1/2
Murphy er í slíkum súperstjörnu-
klassa að það hlæja allir þó að
hann sé að endurtaka brandarann.
— sv.
LAUGARÁSBÍÓ
Villidýrið ★ ★
Hasarmynd um nútíma-Tarsan í
stórborginni. — sv.
Furðusögur ★ ★ 1/2
Þrjár léttar, aðeins öðruvísi sögur,
misjafnar að gæðum en léttmeltar
og þægilegar sem afþreying.—■ sv.
Fjör á framabraut ★ ★ 1/2
Gamanmynd um strák sem kemur
sér áfram í viðskiptaheiminum
með Michael J. Fox í aðalhlutverki.