Morgunblaðið - 11.12.1987, Page 11

Morgunblaðið - 11.12.1987, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987 B 11 Guðað á skjáinn Magnum hættir en ekki Selleck Ein af fyrstu stjömum Stöðvar 2 þegar hún hóf starfseini sína fyr- ir meira en ári var Tom Selleck í hlutverki einkaspæjarans Magn- um. Selleck er enn að leika einkaspæjarann vestur í Banda- rikjunum en fer bráðum að hætta. Stóri draumurinn hjá honum hef- ur alltaf verið að komast yfir í bíómyndimar. Nokkrar tilraunir hans til þess hafa ekki gefist sér- lega vel. Þær þijár myndir sem hann hefur leikið í hafa verið hverri annarri misheppnaðri; „High Road to China", „Lassiter" og „Runaway". Honum hafa boðist betri hlut- verk og hann hefur misreiknað sig herfilega með þvi að hafna þeim. Þannig hafa honum boðist aðalhlutverkin í myndum eins og „Victor/Victoria“, „Against All Odds“ og „Witness", sem Harri- son Ford tók að sér og hlaut útnefningu til Óskarsverðlauna fyrir. „Vandamálið er ekki Selleck heldur myndimar sem hann hefur leikið f,“ er haft eftir einum gagn- rýnanda vestra. Annar segir að hann verði að drífa sig upp úr þessum miðlungsmyndum þótt hann fái ekki nema aukahlutverk í öðmm og betri. í nýjustu mynd Sellecks skiptir hann aðalhlutverkinu með tveim- ur öðmm, þeim Steve Guttenberg og Ted Danson (Staupasteinn). Myndin heitir „Þrir karlar og eitt bam“ og er amerísk útgáfa frönsku myndarinnar „Þrír karlar og ein karfa", sem hér var sýnd á franskri kvikmyndaviku í Regn- boganum og er frábær kómedía eftir Coline Serreau. Myndin segir frá þremur piparsveinum hvers lif tekur skyndiiega miklum breyt- ingum þegar sex mánaða gamall krakki er settur i umsjá þeirra. Sellec leikur Peter, arkitekt sem reisir skýjaklúfra en gæti ekki sett bleyju á bam þótt hann gamanhlutverk Sellecks og sann- arlega ólíkt þeim hlutverkum sem hann hefur farið með í biómynd- um til þessa. „Mig hefur alltaf langað til að leika í gamanmynd en ég gat aldrei fundið rétta hand- ritið,“ segir Selleck. „Ég sá strax að hér var það komið." Harin var ekki í vandræðum með að skipta úr hasar sjónvarps- þáttanna í gamanleikinn enda er það hið kómíska yfírbragð Magn- ums, sem þykir eiga stóran þátt í velgengni þáttanna í gegnum árin. Ted Danson segir gamanleik Sellecks minna sig á leik Cary Grants. „Og ekki nóg með það heldur er frábært að sjá þennan karlmannlega hjartaknúsara verða að gjalti frammi fyrir sex mánaða gömlum kvenkyns mót- leikara sínum.“ Þættirnir um Magnum hafa nú gengið í átta ár í amerísku sjón- varpi og viða um heim eri nú er komið að lokum þeirra. Þegar sið- asta þætti lýkur á þessu sýningar- timabili geta sjónvarpsáhorfendur kvatt spæjarann á Hawai fyrir fullt og allt. En Selleck er rétt að byija. Hann er orðinn hund- þreyttur á vikulegum sjónvarps- þáttum og ætlar að einbeita sér að kvikmyndaleiknum. Hann hef- ur t.d. þegar gert samning um að_ leika i „Quigley Down Under“ i Astraliu næsta vor. Gagnrýnendur eru sammála um að það muni reynast Selleck auðveldara að vinna sér frama í biómyndum eftir að hann hefur hætt að leika í sjónvarpi fyrir fullt og fast. „Þrir karlar og eitt bam“ er góð byijun. Það má vera að myndin sé upphafíð að farsæl- um biómyndaferli þótt ómögulegt sé að segja hvort Selleck eigi eft- ir að feta í fótspor annarra sjónvarpsstjama eins og Steve McQueen, Burt Reynolds og Clint Eastwoods. -ai. Tom Selleck (I miðið) með Steve Guttenberg og Ted Danson i myndinni „Þrir karlar og eitt barn.“ KENNITALA ÁLAUNAMÐA Á launamiða og öll önnur framtalsgögn vegna launa greiddra á árinu 1987 og sem senda ber til skattstjóra í janúar 1988, skal tilgreina kennitölu, bæði launamanna og launagreiðenda í stað nafnnúmers. Notkun nafnnúmers á þessum gögnum fellur niður. RSK RlKISSKATTSTJÓRI Við bjóðum aðeins fyrsta flokks DEMANTA Demantar eru okkar sérgrein Við bjóðum aðeins fyrsta flokks demanta greypta í hvítagull og rauðagull. Ábyrgðarskírteini fylgir öllum okkar demantsskartgripum. Meðlimir í demantsklúbbi Félags íslenskra Gullsmiða. Greiðsiukortaþjónusta. Laugavegi 72 - Sími 1774? ## Nú senda allirsína eigin Ijósmynd á jóla- korti. Við bjóðum þér tvær gerðir jólakorta fyrir STÓRAR myndir (10x15). Kort mynd og umslag sr \<r Gernm Jófm Pmónu/egri FRAMKÖLLUN omiirMaimia <ur« wiii/iiiiii LÆKJARBÖTU 2 - S. 621350 ÁRMÚLA 30 - S. 687785

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.