Morgunblaðið - 08.01.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.01.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988 B 7 HVAÐ ER AÐO GERAST ( verk eftirýmsa listamenn. Grafík, vatnsiit- ir, olía og handgert blásið gler. Opið frá kl. 10.00-18.00 og 10.00-12.00 laug- ardaga. Gallerí Nes Myndlistaklúbbur Seltjarnarness sýnir i Gallerí Nesi, Nýja bae við Eiðistorg. Sýn- ing eropinfrá kl. 13.00—18.00. Gallerí SVART Á HVÍTU Gallerí Svart á hvitu Sýning á vatnslitamyndum eftir Guðmund Thoroddsen opnar í Galleríi Svart á hvítu við Óöinstorg föstudaginn 8. janúar kl. 20.00. Guðmundur er faeddur í Reykjavík árið 1952. Hann stundaði nám við Mynd- listarskólann í Reykjavík 1974-76 og í París 1976-78. Frá 1981 til 1985 var hann við nám í Ríkislistaakademíuna í Amsterdam. Guðmundur er nú búsettur í París þar sem hann starfar sem mynd- listarmaður. Guðmundur hefurtekið þátt í nokkrum samsýningum og haldið 6 einkasýningar. Gullni haninn Áveitingahúsinu Gullna hananum eru myndir Sólveigar Eggerz til sýnis. Mynd- irnareru landslag og fantasíurfrá Siglu- firði, unnar með vatnslitum og olíulitum. Ferstikla Unnur Svavars er með Hátiðarsýningu í Söluskálanum Ferstiklu í Hvalfirði. Unnur sýnir 37 pastel- og olíumálverk. Þetta er fimmtánda einkasýning hennar. Sýningin stendur fram í janúar og er opin daglega frákl. 8.00-23.30. Myndlistasýning hjá Kristjáni Siggeirssyni Guðmundur W. Vilhjálmsson sýnir mál- verk hjá Kristjáni Siggeirssyni hf., húsgagnadeild, Laugavegi 13. Þettaer fjórða einkasýning Guömundar. Á sýn- ingunni eru um 30 myndir, aðallega vatnslitamyndir, flestargerða á þessu og siðasta ári. Sýningin er opin á opnun- artíma verslunarinnar. Nýlistasafnið Gerhard Amman, opnar sýningu í Nýlista- safninu við Vatnsstig 8. janúar. Sýningin er opin virka daga frá kl. 16;00—20.00 og frá kl. 14.00—20.00 um helgar. Sýn- ingin stendur til 24. janúar. Norræna húsið Þrjár danskar textíllistakonur, Annette Graae, Anette 0rom og Merete Zacho sýna textílverk í sýningarsölum Norræna hússin. Listakonurnarvinna meöýmis efni, hör, sísal, silki, ull og bómuH. Mynd- efnið er sótt til náttúrunnar og í heim drauma og fantasíu. Listakonurnarsýndu fyrst saman í Nikolaj kirkjunni i Kaup- mannahöfn í haust og fóru siðan með sýninguna til Norðurlandahússins í Fær- eyjum. Annette Graae kom með sýning- una hingaö til lands og setti hana upp. Sýningin veröur opin daglega frá kl. 14. 00-19.00 til 25. janúar. Tnlist Norræna húsið Svanhildur Sveinbjörnsdóttir, mezzo- sópran, heldursína fyrstu opinberu einsöngstónleika laugardaginn 9t janúar kl. 16.00 í Norræna húsinu. Undirleikari er Ólafur Vignir Albertsson, píanóleikari. Á söngskrá eru íslensk og erlendi Ijóð og aríur, þar á meðál Ijóðaflokkurinn „Vier ernste GesÁnge" eftir Johannes Brahms. Svanhildur lauk 8. stigs prófi frá Söngskólanum i Reykjavík árið 1984 og var síöan í eitt ár við söngnám í Vínar- borg. Ferðalög Upplýsingamiðstöð Upplýsingamiðstöð ferðamála er með aðsetursitt að Ingólfsstræti 5. Þareru veittar allar almennar upplýsingar um ferðaþjónustu á Islandi. Mánudaga til föstudaga er opið frá klukkan 10.00-16, 00, laugardaga kl. 10-14. Lokaö á sunnudögum. Síminn er 623045. Útivera Ferðafélag Islands Dagsferð verður farin á Reykjanes sunnu- daginn 10. janúar. Ekið veröur að Svarts- engi og gengiö á Svartsengisfell og þaðan á Sundhnjúk. Gengiö verður til baka um Selháls að Bláa lóninu. Fyrsta myndakvöld ársins verður mið- vikudaginn 13. janúar í Risinu, Hverfis- götu105. Hana nú Vikuleg laugardagsganga Frístunda- hópsins Hana Nú í Kópavogi verður laugardaginn 9. janúar. Lagt verður af staðfrá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Markmið göngunnar er samvera, súrefni hreyfing. Nýlagað molakaffi. ' Útivist Feröafélagið Útivist efnir til árlegrar ný- árs- og kirkjuferðar sunnudaginn 10. janúar. Farið verður austur að Geysi og Gullfossi og fossinn skoðaður. Síðan er haldiö um Brúarhlöð í Hreppa og farið \ að kirkjustaðnum Stóra-Núpi í Gnúpverja- hreppi þar sem sóknarpresturinn séra Flóki Kristinsson tekur á móti hópnum. i kirkjunni er m.a. altarismynd máluð af ÁsgrímiJónssyni, listmálara. Brottförer frá BSÍ, bensínsölu kl. 10.30. Fyrsta myndakvöld ársins verður í Fóst- bræðraheimilinu, fimmtudagskvöldið 14. janúarkl. 20.30. Sýndarveröa myndirfrá Lónsöræfum og nágrenni. Fyrsta helgar- ferðin verður þorrablót í Þjórsárdal 22.-24. janúar. Gist verður i félags- heimilinu Arnesi. Ferðaáætlun Útivistar 1988 erkomin út. Viðeyjarferðir Hafsteinn Sveinsson er með daglegar ferðir út í Viðey og um helgar eru ferðir allan daginn frá kl. eitt. Kirkjan í Viðey er opin og veitingar fást í Viðeyjarnausti. Bátsferðin kostar 200 krónur. Félagslíf MÍR Fyrsta kvikmyndasýning MÍR, Menning- artengsla íslandsog Ráðstjórnarríkjanna á nýbyurjuðu ári verðu í bíósal félagsins, Vatnsstig 10, sunnudginn 10.janúrkl. 16.00. Þann dag fyrir 90 árum fæddist einn af brautryðjendum kvikmyndalistar- innar, Sergei Eisenstein. Af því tilefni verður sýnd ein af frægustu myndum hans, „Óktóber" sem gerð var árið 1927 til að minnast 10 ára afmælis Október- byltingainnar i Rússlandi. Myndin var þögul, en hefur nú verið hljóðsett með tónlist eftir D. Shostakovits. Skýringar eru á dönsku. Sýning á myndspjöldum verður opnuð i salarkynnum Ml’Rsunnudaginn 10. jan- úar þar sem kynntar eru rúmlega 40 sovéskar kvikmyndir sem gerðar hafa verið síðustu sjö áratugina. Sýning er sett upp í tilefni 70 ára afmælis Október- byltingarinnar. Þær kvikmyndir sem sýndar verða næstu sunnudaga ijanúareru „Tundurskeyta- flugsveitin" í leikstjórn Semjons Arano- vits, „Tími óska og löngunar" í leikstjórn Júlí Raizman og „ Einn með ókunnugum, ókunnugurokkará meðal" íleikstjórn Nikita MHthailovs. Allar kvikmyndasýni- garnar hefjast kl. 16.00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Hreyfing Keila í Keilusalnum í Öskjuhlíö eru 18 brautir undir keilu. Á sama stað er hægt að spila billjarð og pinu-golf. Einnig er hægt að spila golf í svokölluðum golfhermi. Sund I Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar- dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund- laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og við Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund- laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við Barónsstíg og við Herjólfsgötu í Hafnar- firði. Opnunartima þeirra má sjá í dagbókinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.