Morgunblaðið - 08.01.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988
B 15
Hollywoodstjömumar
Vivien Leigh
Cary Grant
Gömlu
Guðaðá
skjáinn
Einn mesti kosturinn við sjón-
varpið, og myndböndin líka eftir
að þau komu á markaðinn, er
að það býður uppá myndir með
gömlu Hollywoodstjörnunum
sem eru löngu horfnar úr bíóhús-
unum. Það er aðeins á skjánum
sem við rekumst á ódauðlega
leikara eins og Cary Grant,
Grace Kelly og Clark Gable,
Humphrey Bogart, Vivien Leigh
og John Wayne og svo mætti
endalaust telja.
Sögurnar um gömlu Hollywo-
odstjömumar eru óteljandi og
bækumar um þær einnig. Árlega
kemur út fjöldinn allur af sögum
um fólkið frá Hollywood því víst
er að forvitni fólks um stjörnurn-
ar sínar verður seint svalað.
Nýlega voru teknir saman nokkr-
ir fróðleiksmolar í tímaritinu
American Film úr bókum um sex
stórstjörnur og kemur þar margt
fróðlegt í ljós. Stjörnurnar em
Bette Davis, Cary Grant, Clark
Gable, Vivian Leigh, Marlon
Brando og Grace Kelly og em
tekin fyrir atriði eins og samband
þeirra við föður sinn, eftirlætis
leikstjóri þeirra, mest hataði
mótleikari, sjálfsgagnrýni og þar
fram eftir götunum.
Þannig var uppáhalds leik-
stjóri Bette Davis William Wyler
sem leikstýrði henni m.a. í
„Jezebel". Áf öllum sínum mót-
leikurum á löngum ferli hefur
Fay Dunaway farið mest í taug-
arnar á henni og um sjálfa sig
segir hún: „Mitt fjórða mis-
heppnaða hjónaband sannfærði
mig um að ég var gersamlega
misheppnuð sem eiginkona." Um
Hollywood segir hún: „Allt þetta
tal um „gullöld" Hollywood er
næstum hlægilegt. Hollywood
hefur ekki breyst í því sem máli
skiptir. Hversu mikið sem við
rómum þau, einkenndust gullár-
in af þrældómi eins og í dag og
baráttan stendur ennþá á milli
listamannanna og peningamann-
anna.“
Uppáhaldsleikstjóri Carys
Grant var Howard Hawks
(„Bringing Up Baby“, „His Girl
FViday"). Grant var aldrei illa
við mótleikara sína, hann hafði
meira að segja gaman af að leika
með Marilyn Monroe. Um sjálfan
sig segir hann á einum stað:
■ „Núna skil ég af hvetju eiginkon-
ur mínar.skildu við mig. Ég var
hryllilegur, óþolandi.“
Grace Kelly þótti vænst um
Alfred Hitchcock („Rear
Window", „Dial M for Murder")
af þeim leikstjórum sem hún
vann með. Það var ekki nóg með
að henni gengi vel að vinna með
mótleikurum sínum, hún átti í
ástarsambandi við marga þeirra
eða var skotin í þeim t.d. Gary
Grace Kelly
Clark Gable
Bette Davis
Cooper, Clark Gable, Bing
Crosby og Ray Milland. Sam-
bandið á milli Kelly og föður
hennar, Jack, var ekki svo gott.
Svo virtist sem hún gæti ekki
með nokkru móti gert hann
ánægðan: Meira að segja eftir
að Grace hreppti Óskarsverð-
launin sagði hann blaðamönnum:
„Eg hélt alltaf að systir hennar,
Peggy, slægi í gegn. Peggy gerði
alltaf allt betur en Grace.“
Samband Clark Gable við föð-
ur sinn var líka erfitt. Faðir hans
bar enga virðingu fyrir syni
sínum. „Leikarar eru mannleys-
ur,“ sagði hann. Uppáhaldsleik-
stjóri Gable var Victor Fleming
(„Red Dust“, Gone With the
Wind“). Gable hataði mest Greer
Garson af öllum mótleikurum
sínum en hún lék á móti honum
í „Adventure". Ömurlegasta
myndin sem hann lék í að eigin
sögn var „Parnell" og ekki var
hann hrifinn af Hollywood: „Ég
kveið fyrir að koma hingað og
hér er eins og ég bjóst við —
ömurlegt." Þegar eiginkona
hans, Carole Lombard, sagði
einu sinni: „Hann er lélegur í
rúminu,“ svaraði Gable rósamur:
„Ég býst við að þurfa að æfa
mig mikið.“
Uppáhaldsleikstjóri Vivien
Leigh var George Cukor (rekinn
sem leikstjóri „Gone With the
Wind“). Robert Taylor var sá
mótleikari sem hún hataði mest
en þau léku saman í „Waterloo
Bridge". Leigh vildi að Laurence
Olivier fengi hlutverkið. „A Yank
at Oxford" var í minnsta uppá-
haldi hjá henni vegna þess að
mótleikarinn var Robert Taylor
og hún vildi að Olivier fengi hlut-
verkið. Hún hataði Hollywood
fyrir að vera „menningarlega
eyðimörk með engar leiklistar-
hefðir“.
Marlon Brando hataði Montg-
omery Clift mest af öllum sínum
mótleikurum en þeir voru saman
í „The Young Lions“. Brando
sagði við hann: „Ég hef alltaf
hatað þig vegna þess að mig
langar að vera betri en þú en
þú ert betri en ég — þú ögrar
mér og ég vil að við höldum
áfram að ögra hvor öðrum.“
Uppáhaldsleikstjóri Brandos er
Elia Kazan („On the Waterfr-
ont“, „A Streetcar Named
Desire") en myndin sem er í
minnstu uppáhaldi hjá honum
er „On the Waterfront": „Ég sá
„Waterfront" í fyrsta skipti í
sýningarherbergi með Kazan og
mér fannst hún svo hryllileg að
ég labbaði út án þess að segja
orð við hann.“ Hollywood sagði
hánn einu sinni við dálkahöfund
að væri „einn stór peningakassi“.
Utsala
Karlmannaföt, verð frá kr. 2.995,-
Terylenebuxurkr. 1.195,-, 1.595,- og 1.795,-.
Ull/terylene/stretch.
Peysuro.fi. ódýrt.
Andres, Skólavörðustíg22, sími 18250.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR | SKERJAFJÖRÐUR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1-38
Skipholt 40-50
Stigahlíð 37-97
Síðumúli
Ármúli
Óðinsgata
Hamrahlíð
UTHVERFI
Sæviðarsund hærri tölur
Hvassaleiti 27-75
SELTJARNARNES
Látraströnd
Fornaströnd
VESTURBÆR
Nýlendugata
Hjarðarhagi 44-64
Tómasarhagi 9-31
Einarsnes
Bauganes
GRAFARVOGUR
Fannafold 76-145
Fannafold 116-175
K0PAV0GUR
Nýbýlavegur 5-36
Laufabrekka o.fl.
Kársnesbraut 77-139
MIÐBÆR
Grettisgata 37-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Barónsstígur 4-33 o.fl.
Laugavegur 32-80 o.fl.
GARÐABÆR
Bæjargil