Morgunblaðið - 08.01.1988, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 19»8
B 11
VETTIIMGAHÚS
matseðil a la carte, auk þess sem mat-
reiðslumenn sérhaefa sig í sjávarréttum.
Matreiðslumeistari hússins er Jóhann
Bragason og yfirþjónn Ingólfur Einars-
son. Meðalverð á fiskrétti er 820 kr. og
á kjötrétti 1200 kr. Borðapantanireru i
síma 17759.
RESTAURANT
öSlESI
LÆKJARGÖTU 2, II HAB
Virðulegur veitingastaður.
ÓPERA
Lækjargata 6
Veitingahúsið Ópera er opið alla daga
frákl. 11.30 til kl. 14.30 og frá kl. 18.00
til 23.30, en þá er hætt að taka pantan-
ir. Matreiðslumeistari hússins er Magnús
Ingi Magnússon og yfirþjónar þeir Elias
Guðmundsson og Svanberg Hreinsson.
Meðalverð á fiskrétti er 750 kr. og á kjöt-
rétti 1000 kr. Borðapantanireru ísima
29499.
»hótel
OÐINSVE
BRAUÐB/ER.„,
HÓTEL ÓÐINSVÉ
Óðinstorg
Veitingasalurinn á Hótel Óðinsvé er op-
inn daglega frá kl. 11.30 til kl. 23.00.
Fiskréttahlaðborð er alltaf í hádeginu á
föstudögum. Matreiðslumeistarar eru
þeir Gisli Thoroddsen og Stefán Sigurðs-
son og yfirþjónn Kjartan Ólafsson.
Meðalverð á fiskrétti er 630 kr. og á kjöt-
rétti 1000 kr. Borðapantanir eru í sima
25090.
SKÍÐASKÁLINN
Hveradalir
f Skíðaskálanum i Hveradölum er í vetur
opið eingöngu á föstudagskvöldum frá
kl. 18.00 til kl. 23.30 og á laugardögum
og sunnudögum frá kl. 13.00 til kl. 14.30
og svo frá 18.00 til kl. 23.00. Smáréttir
eru i boði á milli matmálstíma. Kvöldverð-
arhlaðborð er á sunnudagskvöldum og
Jón Muller leikur öll kvöld fyrir gesti.
Matreiðslumeistari hússins er Sveinn
Valtýsson og veitingastjóri Karl Jóhann
Johansen. Borðapantanireru ísíma
99-4414
^Vid Sjáuansiðuna
VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
Tryggvagata 4-6
Veitingahúsið Við sjávarsíðuna er opið á
virkum dögum frá kl. 11.30 til kl. 14.30
og frá 18.00 til kl. 23.30, en á laugardög-
um og sunnudögum er eingöngu opið
að kvöldi. Á matseðlinum er lögð sérstök
áhersla á fiskrétti. Matreiðslumeistarar
hússins eru Garðar Halldórsson og Egill
Kristjánsson og yfirþjónn er Grétar Erl-
ingsson. Meöalverð á fiskrétti er kr. 800
og á kjötrétti 1100. Boröapantanir eru í
síma 15520.
RESTAURANT
TORFAN
Amtmannsstfg 1
Veitingahúsið Torfan er opiö daglega frá
kl. 11.00 til kl. 23.30 og eru kaffiveiting-
ará milli matmálstíma. Matreiðslumeist-
arar eru Óli Harðarson og Friðrik
Sigurðsson og yfirþjónar Ólafur Theo-
dórsson, Skúli Jóhannesson og Hrafn
Pálsson.. Meöalverö á fiskrétti er 690
kr. og á kjötrétti 1100 kr. Borðapantanir
eru ísíma 13303.
VIÐTJÖRNINA
Kirkjuhvoll
Á veitingahúsinu við Tjörnina sérhæfa
menn sig í fisk- og grænmetisréttum.
Opiöerfrákl. 12.00 til kl. 14.30ogfrá
kl. 18.00 til 23.00. Matreiöslumeistari
hússins er Rúnar Marvinsson og veit-
ingastjórar þær Sigríður Auðunsdóttir og
Jóna Hilmarsdóttir. Meðalverð á fiskrétt-
um er kr. 900. Borðapantanir eru í síma
18666
ÞRfRFRAKKAR
Baldursgata 14
Veitingahúsið Þrír Frakkar er opið alla
daga. Á mánudögum og þriðjudögum frá
kl. 18.00 til kl. 24.00, en aðra daga til
kl. 01.00. Kvöldverðurerframreiddurtil
kl. 23.30 og eru smáréttir (boði þar á
eftir. Matreiöslumeistari er Matthías Jó-
hannsson og yfirþjónn er Magnús
Magnússon. Meðalverð á fiskrétti er 800
kr. og á kjötrétti 1100 kr. Boröapantanir
eru i síma 23939.
VEITINQAHÚS MED
MATREIÐSLUÁ ERLENDA VÍSU
BANKOK
Sfðumúli 3-5
Thailenskur matur er í boði á veitingahús-
inu Bankok, en þar er opið alla virka
daga frá kl. 12.00 til kl. 14.00 og frá kl.
18.00 til kl. 21.00. Áföstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum er opið til kl.
22.00. Matreiöslumaöurer Manus Saifa
og veitingastjóri Manit Saifa. Siminn er
35708.
ELSOMBRERO
Laugavegur73
Sérréttir frá Spáni og Chile eru i boði á
El Sombrero. Þar er opið alla daga frá
kl. 11.30 til kl. 23.30. Einungis pizzur
eru á boðstólum eftir kl. 23.00. Mat-
reiðslumeistari er Rúnar Guðmundsson.
Siminner 23433.
HORNIÐ
Haf narstræti 16
ítalskur matur, ásamt pizzum og öðrum
smáréttum er í boði á Horninu. Þar er
maturframreiddurfrá kl. 11.30 til kl.
23.30, þóeinungis pizzur eftir kl. 22.00.
Veitingastjóri er Jakob Magnússon og
siminn 13340.
KRÁKAN
Laugavegur 22
Mexikanskir réttir eru framreiddir á Krá-
kunnig, en sérstök áhersla er lögð á
fylltar tortillur, auk þess sem dagseðlar
eru i boði. Eldhúsið er opið frá kl. 11.00
- 22.00 alla daga nema sunnudaga, en
þá eropiðfrákl. 18.00-22.00. Mat-
reiöslumeistari hússins er Sigfríð Þóris-
dóttir. Síminn er 13628.
MANDARfNINN
Tryggvagata 26
Austurlenskur matur er á matseðli Mand-
arínsins, en þar er opið alla daga frá kl.
11.30 -14.30 og frá 17.30 - 22.30 á
virkum dögum, en til kl. 23.30 á föstu-
dags- og laugardagskvöldum. Mat-
reiöslumeistari hússins er Ning de Jesus
og síminn 23950.
KINAHOFIÐ
Nýbýlavegur 20
Kinverskur matur er að sjálfsögðu í boði
í Kinahofinu. Opið er frá kl. 11.00 til til
kl. 22.00 alla virka daga, en á laugardög-
umogsunnudögumfrákl. 17.00 til kl.
23.00. Matreiðslumeistarareru Feng Du
og Ngoc Lam og síminn, 45022.
SJANGHÆ
Laugarvegur 28
Kínverskur matur er í boði á Sjanghæ,
en þar er opið á virkjum dögum frá kl.
11.00 til 22.00, en á föstudags- og laug-
ardagskvöldum lokar éldhúsið kl. 23.00.
Matreiðslumeistari hússins er Gilbert Yok
Peck Khoo. Síminn er 16513, en hægt
er að kaupa mat til að fara með út af
staðnum.
SÆLKERINN
Austurstrætl 22
ítalskur matur er framreiddur i Sælkeran-
um og er opið þar alla virka daga og
sömuleiðis um hélgarfrá kl. 11.30 -
23.30. Matreiðslumeistari hússins er sá
sami og ræður ríkjum í Kvosinni,
Francoais Fons. Síminn er 11633, en
hægt er að kaupa pizzur og fara með út
af staðnum.
TAJ MAHALTANDOORI
Aðalstræti 10
Indverska veitingahúsiðTaj Mahal
Tandoori erá efri hæð Fógetansog býð-
ur upp á fjölbreytta indverska rétti
matreidda í sérstökum Tandoori leirofni.
Indverska veitingastofan er opin daglega
frá kl. 18.00. Borðapantanireru i síma
16323.
KRÁR OG VEITINGAHÚS MEO
LENGRIOPNUNARTÍMA:
DUUS-HÚS
Fischerssund
Á Duus-húsi er opið alla daga nema
sunnudaga, frá kl. 11.30 - 14.30 og frá
kl. 18.00 - 01 -.00 á virkum dögum, en
kl. kl. 03.00 á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Matur er framreiddur til kl.
21.00 á virkum dögum og til kl. 22.00 á
föstudags- og laugardagskvöldum, en
fram til kl. 23.30 eru framreiddar pizzur
öll kvöld. Um helgar er diskótek á neðri
hæð hússins, en á sunnudagskvöOldum
er svokallaður „Heitur pottur" á Duus-
húsi, lifandi jasstónlist. síminn er 14446.
FÓGETINN
Aðalstræti 10
Veitingahúsið Fógetinn er opið alla virka
daga frá kl. 18.00—01.00 og til kl. 03.00
á föstudags- og laugardagskvöldum.
Skemmtikraftar koma fram tvö til fimm
kvöld vikunnar. Borðapantanireru í sima
16323. Á efri hæð Fógetans er indverska
veitingastofanTaj Mahal.
Yc.
GAUKUR Á STÖNG
Tryggvagötu 22
Á Gauki á Stöng er opiö alla virka daga
frá kl. 11.30 - 14.30 og frá kl. 18.00 -
01.00 og til kl. 03.00 á föstudags-og
laugardagskvöldum. Eldhúsið er opið til
kl 23.00, en eftir það er í boði næturmat-
seðill. Lifandi tónlist er oftast á Gauki á
Stöng á sunnudgöum, mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum frá kl.
22.00. Siminn er 11556.
HAUKURIHORNI
Hagamelur 67
Haukur i Horni er opinn alla virka daga “
frá kl. 18.00 — 23.20 og á föstudags-
og laugardagskvöldum til kl. 01.00. Eld-
húsið er opið öll kvöld til kl. 22.00, en
smáréttir eru i boði eftir það. í hádeginu
á laugardögum og sunnudögum er opið
frá kl. 11.30 — 14.30. Lokað í hádeginu
aðra daga. Síminn er 26070.
HRAFNINN
Skipholt 37
Veitingahúsið Hrafninn er opið alla virka
daga frákl. 18.00 — 01.00 ogáföstu-
dags- og laugardagskvöldum til kl. 03.00,
en þau kvöld er einnig í gangi diskótek.
Eldhúsinu er lokað um kl. 22.00. Síminn
er 685670.
ÖLKELDAN
Laugavegur22
I Ölkeldunni er opið alla virka daga frá
kl. 18.00 — 01.00 og á föstudags- og
laugardagskvöldum til kl. 03.00. Eld-
húsinu er lokað kl. 22.00, en smáréttir
i boði þar á eftir. Gestum hússins er
boðið upp á að spreyta sig við taflborðiö,
i pilukasti, Backgammon eða þá að taka
í Bridge-sagnaspil. Síminn er 621034.
ÖLVER
Glæsibær
i Ölveri er opið daglega frá kl. 11.30 —
14.30 og frákl 17.30 —01.00 ávirkum
dögum og til kl. 03.00 á föstudags- og
laugardagskvöldum. Eldhúsinu lokarum
kl 22.00. Lifandi tónlist er um helgar.
Ingvarog Gylfi leikafyrirgesti. Siminn
er 685660.
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
f
Langlíf-
ur risi
söguleg ævintýramynd
BEN HUR ★ ★ ★ V2
Leikstjóri William Wyler.
Framleiðandi Sam Zimbalist.
Tónlist Miklos Rozsa.
Handrit Karl Tunberg, byggt á
metsölubók Lew Wallace.
Aðalleikendur Charlton Heston,
Stephen Boyd, Jack Hawkins,
Haya Harareet, Hugh Griffith,
Martha Scott, Sam Jaffe.
Bandarisk. MGM 1959. 210 mín.
Þessi sögufræga risamynd fjallar
um átök í Palestínu milli lands-
manna og Rómveija. Gerist á
tímum Krists, er landið var hersetið
og hluti af Rómaveldi. Fremstir í
hvorri fylkingunni æskuvinimir
Messala (Boyd), nýskipaður æðsti
maður setuliðsins, og Ben Hur
(Heston), einn göfugastur gyðinga.
Eftir að Messala hefur tekið við
stjómartaumunum hefst ósam-
komulag milli vinanna sem endar
með að Ben Hur er hnepptur í þræl-
dóm um borð í galeiðu.
Arin líða, Ben Hur tekst að flýja
undan ámm og lokauppgjör hefst
á milli fjandvinanna.
Óneitanlega tilkomumikil skraut-
sýning sem lítið hefur rýmað að
skemmtigildi á þeim aldarfjórðungi
sem liðinn er frá því hún var sýnd
hér í Gamla Bíó, sællar minningar.
Ástæðan er hin rómaða vandvirkni
Wylers og manna hans sem gjör-
nýttu það stórfé sem MGM lagði í
myndina. Þeir peningar komust
ekki aðeins til skila heldur hafa
þeir staðist tímans tönn með ágæt-
um. Það er meira en hægt er að
segja um flestar aðrar sögulegar
stórmyndir í gegnum árin. Hver
man nú t.d. Helenu af Tróju, The
Fall of the Roman Empire, Barra-
bas, Sódómu og Gómorru, svo
aðeins fáar séu.nefndar?
Já, Ben Hur er svo sannarlega
mikið „bíó“ enn í dag, þó svo það
hafí nú gustað meira af henni á
tjaldinu í „denn“, einsog skáldið
segir. Hún er sannarlega upplifun
fyrir auga og eyru, einn af þessum
traustu, sígildu kostum sem alltaf
er hægt að grípa til á leigunni. Hún
er gott sýnishom þeirra sögulegu
stórmynda sem svo vinsælar hafa
verið í gegnum tíðina, allt fram til
þessa. Þeir Heston og Boyd em
mikilúðlegir og mörg átakaatriðin
skráð í kvikmyndasöguna. Þá má
geta þess að Ben Hur er sú mynd
sem hlotið hefur flest Oscarsverð-
laun í gegnum tíðina, ellefu talsins.
Bjarna-
brek
vestri
THE NIGHT OF THE GRIZZLY
★ ★
Leikstjóri Joseph Pevney. Hand-
rit Warren Douglas.
Tónlist Leith Stevens.
Kvikmyndataka Harold Lipstein,
Loyal Griggs.
Aðalleikendur Clint Walker,
Martha Hyer, Keenan Wynn,
Nancy Kulp, Jack Elam, Ron Ely.
Bandarísk. Paramount 1966. CIC
Video/Háskólabíó 1988. 98 mín.
Walker leikur fógeta sem erfír
land í Wyoming. Grípur tækifærið,
flytur vestur og gerist bóndi. En
þar með eru ekki öll vandamál úr
sögunni. Lokið er átökum við ribb-
alda en við taka óblíð fangbrögð
við móður náttúru þar sem mann-
skæður, risavaxinn grábjöm er
fremstur í flokki.
Heldur aðgerðarlítil ijölskyldu-
mynd en alls ekki ónotaleg. Hér er
það hið ægifagra landslag Kletta-
fjallaríkisins Wyoming sem er aðal
myndarinnar. I ljósi nýjustu tækni
hljóta flest átökin við bjöminn að
teljast spaugileg. Slangur af góð-
kunnum aukaleikumm hressir uppá
sakirnar.
Bókhaldsárið 1988
Þú kcmur röð og rcglu á hlutina mcð Bantex vörum:
BRÉFABINDI, TÖLVUBINDI, DISKETTUBOX, PLASTUMSLÖG,
PLASTSTAERÓE, FÁNABLÖÐ O.M.EL.
Vcrð og gæði gerast vart bctri.
BANTEX vörur fást í flcstum bóka- og ritfangaverslunum.