Morgunblaðið - 08.01.1988, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988
B 13
Bíðin í borainni
BÍÓBORGIN
Á vaktinni ★ ★ ★ 1/2
Pottþétt skemmtun. Besta mynd
Badham til þessa og það glansar
af JDreyfuss í aðalhlutverkinu. -ai.
Sagan furðulega ★ ★ ★ '
Feiknavel lukkuð ævintýramynd af
gamla skólanum. Engar Spiel-
berg-brellur hafðar í frammi og
handrit Goldmans hvort tveggja
fyndið og í anda myndskreyttu
æwintýrabókanna. -sv.
Flodder V2
Ófyndinn hollenskursóðaskapur.
-ai.
Nornirnar í Eastwick ★ ★ ★
Nicholson fær gullið tæfifæri til
að skarta sínum innbyggða fítons-
krafti en Miller lætur augsýnilega
verr að stýra mönnum en maskín-
um. -sv.
HÁSKÓLABÍÓ
Öll sund lokuð ★ ★ ★ V2
Frábærlega vel gerður pólitískur
þriller með Kevin Costner og Gene
Flackman. -ai.
STJÖRNUBÍÓ
Roxanne.
Nýjasta gamanmyndin með Steve
Martin en í henni leikur hann
nútímaútgáfu af hinum langnefj-
aða Cyrano de Bergerac.
Ishtar ★ ★ V2
Ofvaxin furðusmíð þar sem miklum
hæfileikum er sólundað en mun
meiri dollarafúlgu kastað á glæ.
Bregður þó á nokkra spretti sem
minna mann á hvað stóð til. -sv.
La Bambá ★ ★ ★
Heiðarleg, vel gerð leikin og upp-
tekin mynd um þann merkistónlist-
armann Ritchie Valens. Hann vann
það kraftaverk með einungis örf-
áum lögum á örskömmum ferli að
hefja latínskt rokk til vegs og virð-
ingar. -sv.
BÍÓHÖLLIN
Undraferðin ★ ★ ★
Joe Dante (Gremlins) er hér aftur
á ferðinni með lítið síðri skemmti-
mynd sem er allt í senn bráðfyndin,
spennandi og frábærlega vel unnin
tæknilega. -sv.
Stórkariar.
Grínmynd framleidd af Ivan (Gost-
busters) Reitman um tvo stráka
sem vilja komast áfram í lífinu.
Sjúkraliðarnir ) ★ V2
í myndum sem þessari er aðeins
eitt markmið, að skemmta gestin-
um, helst með því að skírskota til
hans frumstæðustu hvata, kreista
hláturinn frekar úr kviðarholinu en
heilabúinu. -sv.
í kapp við tímann ★ ★
John Cusack og Robert Loggia eru
góðir í fjörugri unglingamynd. -ai.
Týndir drengir ★ ★
Gaman-, rokk- unglingahrollvekja
með ágætum leikarahópi og brell-
umeninnihaldiðheldurklént. -ai.
Skothylkið ★ ★ ★ V2
Þó svo að Skothylkið sé ekki sú
stórkostlega upplifun sem maður
átti von á frá hendi meistara
Kubricks er í henni að finna glæsi-
leg myndskeið sem örugglega
verða með því besta sem við sjáum
átjaldinu íár. -sv.
Leynilöggumúsin Basil
★ ★ ★ ★
Einhver alskemmtilegasta og
vandaðasta teiknimynd sem hér
hefur verið sýnd lengi. (Sýnd um
helgar). -ai.
Mjallhvít og dvergarnir sjö
★ ★ ★
Trmamótaverk, klassík, gim-
steinn. (Sýnd um helgar) -ai.
REGNBOGINN
Síðasti keisarinn
★ ★ ★ V2
Epískt stórvirki. Efnið og kvik-
myndagerðin með ólíkindum
margslungin. Síðasti keisarinn er
næsta óaðfinnanleg að allri gerð
og hefur kvikmyndaárið 1988 með
glæsibrag. -sv.
Að tjaldabaki ★ ★
Það er engu líkara en Bretar ráði
ekki við myndir af þeirri stærðar-
gráðu sem hér. Heimsfrægur
þriller Forsyths þynnist útí bragð-
lausa frásögu sem ekkert skilur
eftir sig. Dæmigerð meðal-
mennska á öllum sviðum. -sv.
Eiginkonan góðhjartaða ★ ★
Vel leikinn en illa byggður ástarþrí-
hyrningur úr áströlsku sveitinni
1939. -ai.
í djörfum dansi ★ ★ ★
Hressileg og drífandi mynd, keyrð
áfram af líflegri tónlist sjöunda
áratugarins en þó enn frekar af
dansi sem ætti jafnvel að kveikja
líf með dauðyflum! -sv.
Hinir vammlausu ★ ★ ★ ★
Gangstermynd níunda áratugar-
ins með úrvalsliði leikara og
kvikmyndagerðarmanna. Reynið
að missa ekki af þessari. -ai.
Sirkus.
Regnboginn heldur áfram þeim
ágæta sið að sýna a.m.k. eina
Chaplinmynd yfir jólahátíðina.
LAUGARÁSBÍÓ
„Jaws-hefndin.
Hákarlinn er kominn aftur og eltist
nú við þá sem eftir eru af Brodyfjöl-
skyldunni frá Amity.
Stórfótur ★ ★ V2
Nú er það ekki lengur Snjómaður-
inn hræðilegi heldur huggulegi
eftir að Spielberg festi klærnar í
hann. -ai.
Draumalandið ★ ★ ★
Leikstjórinn Dan Bluth er uppalinn
og útskrifaður frá Disney enda ber
myndin þess glögg merki. Einkar
vönduð teiknimyndagerð en efnis-
lega þunn. Það vekur engan
höfuðverk hjá yngstu kynslóðinni
sem naut sín hressilega á sýning-
unni. -sv.
(Æ'cfa,!tÆK'
ÖBB'TUGWOr B
QeiSLASP'HíýÉ'-AB
'JÓSMnBANDSTÆK'
FRAMHALDSÞÆTTIR
... Hvar/Hvenær
Sjónvarpið:
Fyrirmyndarfaðlr .....laugardagur ..
Áframabraut ...........sunnudagur ..
Ágrsannl grein ........sunnudagur ..
Paradís skotið á frest .sunnudagur ..
Georgeog Mildred .......mánudagur ...
Súrtogsætt ...........þriðjudagur ...
Arfur Guldenburgs ....þriðjudagur
Gömlu brýnln
Listmunasallnn ....
Austurbæingar .....
Matlock ...........
Staupasteinn ......
Mannaveiðar ......
Stöð 2:
Ættarveldlð ......
Sældarlff ........
Spenser ..........
Gelmálfurinn ......
Hooperman ......
Lagakrókar ........
Þeir vammlausu ....
Fjölskyldubönd ..
Vogun vlnnur ......
Dallas ...........
Hunter ..........
Kaldir krakkar ...
Af bæ í borg .....
Undlrhelmar Mlaml
Shaka Zulu ......
Bjargvætturinn ..
Valdastjórlnn ....
Hasarlelkur .....
.miðvikudagur
.miðvikudagur
.fimmtudagur
.fimmtudagur
.föstudagur ...
..föstudagur ...
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
...kl.
kl.
.laugardagur .
.laugardagur .
.laugardagur .
.sunnudagur .
.sunnudagur .
.sunnudagur .
.sunnudagur .
.mánudagur ..
.mánudagur ..
.mánudagur ..
.þriðjudagur ..
•miövikudagur
..miðvikudagur
.miðvikudagur
.miðvikudagur
.fimmtudagur
.föstudagur ...
.föstudagur ...
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
20.45
19.05
20.45
22.15
19.30
18.25
22.15
19.25
21.30
19.25
21.35
19.00
21.25
16.30
18.45
24.25
15.50
19.55
21.20
23.35
18.50
21.10
22,00
23.45
18.25
18.60
20.30
21.40
20.30
17.55
. 22.50
GENGISBUNDINN
n YnVKITNir* T TD
K P.l l\ IVI l\ll tI IK
Iðnaðarbanldnn býður nú upp á gengisbundinn reikning sem er nýjung
í bankaviðskiptum.
• Hægteraðveljaámillitvennskonar
reikningsgengis SDR (reikningseiningu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins) og ECU (European
CurrencyUnit).
• Vextir umfram gengistryggingu eru nú 5,25%
af innistæðum bundnum í SDR og 6,25% af
ECU.
• Heimilt er að taka út af reikningnum á 6
mánaða fresti.
Nánari upplýsingar fást í öllum afgreiðslustöðum Iðnaðarbankans.
©iðnaöaibankinn
-MÍltiM/í h/Mkl