Morgunblaðið - 18.02.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.02.1988, Blaðsíða 56
v 56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988 KORFUKNATTLEIKUR Opið bréf til íþróttasíðu Morgunblaðsins: »» Furðuleg dómsniðurstaða íí í LEIK Hauka og Breiðabliks í úrvaldsdeild körfuboltans 12. desember 1987 gerðist sá leið- inlegi atburður að ívar Webster sló Björn Hjörleifsson, leik- mann Breiðabliks, í andlitið með þeim afleiðingum að hann fóll í gólfið með opinn skurð á enni. Þetta gerðist eftir að flautað vartil hálfleiks, er leik- menn voru á leiðtil búnings- ^ klefa. Hér var vitaskuld um að ræða alvarlegt brot sem við síst af öllum viljum afsaka eða vetja og teljum eðlilegt að atvikið var kært. Meðferð málsins og ekki síst sá dómur sem dómstóll KKÍ hefur nú fellt sbr. frétt í Morgunblaðinu 11. febrúar síðastliðinn er hins vegar með svo undarlegum hætti að ekki verður hjá því komist að gera nokkrar athugasemdir. Afsklptl formanns KKÍ Aðstoðarþjálfari Hauka varð vitni að því atviki sem er til umræðu. Daginn eftir leikinn hafði formaður KKI, Bjöm M. Björgvinsson, sam- band við hann og óskaði þess að hann staðfesti með undirskrift að hafa orðið vitni að atburðinum sem hann og gerði. Þetta vakti hins vegar þá þegar undrun okkar, þar sem það tíðkast ekki að formaður KKÍ skipti sér af slíkum málum. Eðlilegast var að Breiðablik léti frá sér heyra. Síðar fékkst þó stað- festing á því, meðal annars í við- tölum við formanninn í dagblöðum, að hann var að undirbúa kæru. Við teljum þörf á að þetta komi fram, því að með þessu móti lagði formað- urinn, sem telja verður eðlilegt að sé hlutlaus í málum milli einstakra félaga eða einstaklinga innan KKI, nær öll gögn upp í hendur annars aðilans, þ.e. Breiðabliks, þegar þeir svo kærðu. Sem betur fer kemur fram í fundar- gerðum stjómar KKÍ að áform formanns um að kæra nutu ekki fulls stuðnings í stjóminni. Þess má svo geta að Björn M. Björgvinsson getur varla talist hlut- laus í máli þessu, þar eð hann er meðlimur í einu þeirra félaga sem eiga í baráttu við Hauka í úrvals- deildinni. Skipan dómstóls KKÍ í dómstól KKÍ eiga sæti sem aðal- menn Gísli Gíslason formaður, Hilmar Hafsteinsson og Kristinn Guðnason. Frá því að málið komst í hendur dómstólsins vekur það athygli að aldrei hefur verið haft samband við einn aðalmannanna, Kristin Guðna- son. Þetta álítum við í meira lagi furðulegt. Svo virðist sem Gísli hafi sjálfur sem formaður ákveðið að Kristinn væri vanhæfur til setu í dómnum, væntanlega vegna fyrr- verandi formennsku hjá körfuknatt- leiksdeild Hauka. Hins vegar sér hann greinilega ekkert athugavert við að kalla inn sem varamann Kolbein Pálsson, sem ekki er síður tengdur KR en Kristinn Haukum og því varla með öllu hlutlaus. Þriðji fulltrúi dómstólsins er svo Hilmar sem er formaður körfu- knattleiksdeildar UMFN. Meirihluti dómstólsins er því skipaður mönn- um tengdum félögum, sem þætti það áhugavert að veikja stöðu Hauka í úrvalsdeildinni. Hér er rétt að fram komi að upphaf- lega var umrætt atvik kært til dóm- stóls UMSK. Þann dómstól skipa menn utan körfuknattleikshreyf- ingarinnar. Þeirra dómur var áminning. Dómurinn Niðurstaða dómstóls KKÍ er að mörgu leyti furðuleg og í ósamræmi við sambærileg tilvik svo og gang málsins fram til dóms. Skal fyrst nefnt að í janúar síðast- liðnum sá alþjóð í sjónvarpi er kröfuknattleiksmaður veitti and- stæðingi hnefahögg. Þessi sami leikmaður notaði hnefann aftur í næsta leik á eftir og var þá fyrst dæmdur í eins leiks bann af aga- nefnd KKÍ. ívar Webster er af dóm- stól KKÍ dæmdur í eins og hálfs mánaðar bann, sem jafngildir því nákvæmlega, að hann fær ekki að spila fleiri leiki í vetur, nema Hauk- ar komist í úrslitakeppnina. Á þessu banntímabili munu Haukar leika a.m.k. 8 leiki. Vaknar þá sú spum- ing, hvort hnefi ívars gefi áttfaldan kraft á við hnefa hins leikmannsins eða hvort nákvæm tímasetning dómsins byggist á því að hindra þátttöku hans 'i jafnri keppni um sæti í úrslitakeppninni. Það verður líka að kom fram að Iögmaður Breiðabliks taldi í sínum málflutningi að ívar ætti a.m.k. að fá jafn strangan dóm og sá sem fékk eins leiks bann. Vekurtortryggni Allur gangur þessa máls vekur tor- tryggni og grunsemdir um að ekki sé að öllu leyti unnið af heilindum. Aðstoðarþjálfari Hauka sem varð vitni að hnefahögginu margum- rædda var aldrei kallaður fyrir dóm- stólinn. Við teljum dóminn vera ótrúlega strangan, ekki síst þegar haft er í huga að ívar hefur ekki áður orðið brotlegur á 9 ára keppnisferli hér á landi. Það er einnig umhugsunarefni, er þrír menn telja sig þess umkomna, vegna brots eins leikmanns, að halda svo á málum að það hafi áhrif á gang mótsins það sem eftir er vetrar. Tímalengd bannsins er lýsandi. Það skiptir litlu máli þó bannið sé lengt upp í sjö mánuði, áhrifín yrðu þau sömu. Þótt Haukar komist í úrslitakeppnina verður erf- itt fyrir mann sem ekki hefur spilað í einn og hálfan mánuð að koma beint inn í úrslitaleiki. Skúli G. Valtýsson, formaður körfuknattleiks- deildar Hauka, Ásgrímur Iugólfsson, gjaldkeri körfuknattleiks- deildar Hauka, Pálmar Sigurðsson, þjálfari m.fl. Hauka, Hálfdan Þórir Markússon, aðstoðarþjálfari m.fl. Hauka. Sími84590 Mundu að hægt er að spá í leikina símleiðis og greiða fyrir með kreditkorti. Þessi þjónusta er veitt alla föstudaga frá kl. 9:00 til 17:00 og laugardaga frá kl. 9:00 til 13:30. Síminn er 688 322. Spáöu í liðin og spilaðu með, nú er til mikils að vinna. í síðustu viku kom enginn seðill fram með tólf réttum. Því margborgar sig að fylgjast með stöðu og styrkleika liðanna einmittnúna. ÍSLENSKAR GETRAUNIR - eini lukkupotturinn þar sem þekking margfaldar vinningslíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.