Morgunblaðið - 18.02.1988, Side 60
PykkwbœjM
Þar vex sem vel er sáð!
FERSKLEIKI
Í^PIP^ÞEGAR
MESTÁ REYNIR
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988
VERÐ I LAUSASOLU 55 KR.
Lækka
vextir um
—helgina?
Talið er líklegt, að vextir lækki
um næstu helgi.
Búizt er við, að lánskjaravísitalan
hækki í þessum mánuði um 0,6%,
eða svo, og er það minnsta hækkun
lánskjaravísitölu í nær tvö ár.
Af þessum sökum er það nú í
athugun hjá viðskiptabönkum og
sparisjóðum að lækka vexti. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
má jafnvel búast við því, að sú
vaxtalækkun taki gildi hinn 21.
febrúar nk.
Fá ekki að
sitja af sér
dóminn
TÍU ísfirðingar, sem dæmdir
voru fyrir brot á útvarpslögum
* með rekstri ísafjarðarútvarpsins
i verkfalli opinberra starfs-
manna árið 1984, hafa óskað eft-
ir að sitja af sér dóminn en þvi
hefur verið hafnað. Mennirnir
voru dæmdir í Hæstarétti til að
greiða fjársekt en til vara i átta
daga varðhald. Jón Sigurðsson
dómsmálaráðherra segir það
áratuga reglu ráðuneytisins, að
þegar dæmt er til fésektar, þá
skuli menn greiða þær, ef þeir
eigi fyrir þeim en geti ekki valið
um að sitja þær af sér.
Pétur Kr. Hafstein sýslumaður
ísaQarðarsýslu, sagði að þegar
dæmt væri í fésekt og til vara í
varðhald, væri annaðhvort þegar
rtekið §ámám eða beitt varðhaldi
ef með þyrfti. „En hitt er einnig
oft gert að láta menn afplána strax
og það hefur verið langalgengasta
fullnustuaðgerðin hér í mínu um-
dæmi að láta menn afþlána varar-
efsingu eftir þvf sem dómurinn seg-
ir til um ef sektin greiðist ekki.
Þann hátt hugðist ég hafa á í þessu
máli sem öðrum, þegar ráðuneytið
gerði mér orð um hvemig dóminum
skyldi fullnægt," sagði Pétur.
Morgunblaðið/Þorkell
Kötturinn sleginn úr tunnunni á Lækjartorgi
Sjá frásagnir á bls. 25 og Akureyrarsíðunni bls. 34
Fleiri fiskiskip eru nú
gerð út á aflamark
Sjávarútvegsráðuneytinu hafa
nú borizt ákvarðanir útgerða
flestra fiskiskipanna um útgerð-
arhætti. Endanleg niðurstaða
liggur ekki fyrir, en talsverð til-
færsla er frá sóknarmarki yfir í
aflamark. Á síðasta ári voru 74
togarar gerðir út á sóknarmark,
en nú um 50.
Bjöm Jónsson hjá veiðaeftirlitinu
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að ákvarðanir útgerðanna væru í
flestum tilfellum komnar. Einstaka
menn hefðu beðið um frest vegna
sérstakra aðstæðna svo sem end-
umýjunar eða viðgerða á skipunum.
Þá væri frestur þeirra, sem rétt
ættu á úthafsrækjuveiði í einhveij-
um mæli, enn ekki útrunninn. End-
anlega ætti eftir að ganga frá niður-
stöðum og tölvukeyra þær til að
glögglega mætti sjá niðurstöðuna
Boð Sovétmanna:
Forseti og forsætisráðherra
einhuga um málsmeðferð
FRÚ Vigdfs Finnbogadóttir, forseti íslands, og Þorsteinn Pálsson,
forsætisráðherra, eru sammála um meðferð ríkisstjómarinnar á
boði sovésku ríkisstjóraarinnar til forseta um opinbera heimsókn.
Eins og kunnugt er ákvað ríkisstjórnin að þiggja boðið til forseta
en æskja viðræðna um aðra dagsetningu en Igor N. Krassavin,
sendiherra, taldi ófrávíkjanlega í viðræðum við Steingrím Her-
mannsson, utanrikisráðherra. Lýsti utanríkisráðherra sig andvígan
þessari niðurstöðu ríkisstjóraarinnar og vildi að farið yrði að
kostum Sovétmanna.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Þorstefnn Pálsson, forsætis-
ráðherra, að það væri venja, að
ríkisstjómin tæki afstöðu, þegar
um opinberar heimsóknir þjóð-
höfðingja væri að ræða. Þegar
boðið kom frá Sovétríkjunum í
síðustu viku og það skilyrði var
sett, að forsetinn gæti aðeins hitt
Míkhaíl Gorbatsjov á hlaupárs-
daginn 29. febrúar, var forseti, að
sögn forsætisráðherra, reiðubúinn
að gera það í rnálinu, sem ríkis-
stjómin teldi eðlilegt. „Rétt er að
taka það fram,“ sagði Þorsteinn
Pálsson, „að það hefur ekki verið
ágreiningur milli mín og forseta
íslands um meðferð málsins."
Um þær umræður, sem orðið
hafa um afgreiðslu ríkisstjómar-
innar á málinU, hafði forsætisráð-
herra þetta að segja: „Eg tel það
áfall fyrir ríkisstjómina, að það
skuli spyijast út fyrir fundi henn-
ar, hvemig tekið er á viðkvæmum
málum sem þessum. Vonandi veik-
ir það stjómina þó ekki til lang-
frama. Ríkisstjómin stendur
frammi fyrir alvarlegum vanda
útflutningsatvinnugreinanna. Mér
fínnst þessi atburður veikja ríkis-
stjómina og þess vegna harma ég,
að hann hafi átt sér stað.“
Sjá forystugrein á miðopnu.
og breytingu milii ára, en augljós
hreyfing virtist vera frá sóknar-
marki yfir í aflamark.
Skýringar þess, að aukin sókn
er nú í aflamarkið, eru nokkrar.
Nú fá menn minni viðbót á afla-
mark, velji þeir sóknarmark, mögu-
leiki á aflaaukingu í sóknarmarki
er minni en áður. Sóknarmarksskip-
in verða nú í einum hóp með ákveð-
inn heildarafla til ráðstöfunar og
geta því ekki aukið afla sinn nema
hvert á kostnað annars. Loks mega
aðeins aflamarksskip kaupa kvóta
og líklega virðist mönnum sú leið
til mögulegrar aflaaukningar fysi-
legri en sóknarmarkið.
m-
Flakið fór í brimið
Grindavík.
SLYSAVARNASVEITIN Þor-
björn í Grindvaík tapaði Hrafni
Sveinbjarnarsyni 3 í brimrótið á
strandstað í Hópsnesi við
Grindavík í fyrrinótt svo hann
nýtist ekki til þeirrar fjáröflunar
sem vonir stóðu til.
Vonbrigði slysavamamanna eru
mikil því hér eftir verður nánast
engu bjargað úr flakinu, sem snýr
frá landi og er opið fyrir úthafsöld-
unni. Kr.Ben.
Kassagerðin:
Fiskvinnslan kaupir
minna af umbúðum
Á SÍÐUSTU vikum hefur orðið
verulegur samdráttur á sölu um-
búða fyrir fiskiðnað frá Kassa-
gerðinni hf. Vinna í mörgum
frystihúsum er i lágmarki og hef-
ur ekki byrjað að nýju eftir jól-
afrí vegna rekstrarvanda.
Öm Hjaltalín, einn framkvæmda-
stjóra Kassagerðarinnar, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að sala
umbúða utan um frystan físk, bæði
pappi og öskjur, væru 50 til 60% af
veltu Kassagerðarinnar. Samdráttur
í fiskvinnslunni væri því fljótur að
koma fram í fyrirtækinu. Salan núna
væri nánast sú sama og á sama tíma
á síðasta ári í peningum talið, en
miklu minni f magni talið.
„Gengið er rangt skráð,“ sagði
Öm. „Það gerir útflutninginn erfið-
ari en léttir innflutning. Dollarinn
hefur ekki hækkað í fjögur ár, en
allir vita að laun og annar kostnaður
hefur hækkað mikið á sama tíma.
Þannig gengur dæmið ekki upp.
Frystingin tapar, við seljum minna
til hennar, útflutningur okkar gengur
verr og við eigum í vaxandi sam-
keppni við innflutning á vörum sam-
bærilegum framleiðslu okkar," sagði
Öm Hjaltalín.