Morgunblaðið - 19.02.1988, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
B 3
Jacqueline Bisset og Chrístopher Reeve fara með hlutverk elsk-
endanna sem ekki fá að njótast.
Stöð 2:
Anna Karenina
ŒHBSH í níubíó Stöðvar 2 í kvöld verður frumsýnd kvikmyndin
00 Anna Karenina sem er endurgerð samnefndrar myndar
David 0. Selznick þar sem Greta Garbo fór með aðal-
hiutverkið. Myndin byggir á bókmenntaverki Leo Tolstoy.
í þessari nýju útgáfu fer Jacqueline Bisset með hlutverk Önnu
Kareninu. Myndin segir harmsögu rússneskrar hefðarkonu sem elskar
glæsilegan liðsforingja en þar sem hún er öðrum manni gefin liggur
það ekki fyrir þeim að fá að njótast. Christopher Reeve fer með
hlutverk elskhuga Önnu Kareninu en Paul Scofíeld leikur eiginmann
hennar. Leikstjóri er Simon Langton.
Kvikmyndahandbók Scheuers gefur myndinni þrjár stjömur en
Halliwell enga.
Stöð 2:
Fröken Júlía
í Fjalakettinum
■■■■■ Fjalakötturinn, kvikmyndaklúbbur Stöðvar 2, sýnir í dag
-| a 15 mynd sem byggir á sögu August Strindbergs, Fröken
14— Júlía. Með aðalhlutverkin í myndinni fara Anita Björk,
Ulf Palme og Marta Dorff. Myndin var gerð í Svíþjóð árið 1951 og
hlaut leikstjórinn, Alf Sjöberg, Gullpálmann í Cannes það ár fyrir
myndina.
íslenskar
hljómsveitir
■■■■ Útvarpsstöðin Rót verður með beina útsendingu í dag frá
Of|30 tónléikum nokkurra íslenskra hljómsveita.
" Meðal hljómsveita sem áheyrendur fá að hlýða á eru
Múzzólíní, Síld, ást og ávextir, Daisy Hill Puppy Farm og fleiri.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST í
Söfn
Arbæjarsafn
í vetur verður safnið opið eftir samkomu-
lagi.
Ámagarður
í vetur geta hópar fengið að skoða hand-
ritasýninguna (Árnagarði ef haft er sam-
band viðsafniðmeðfyrirvara. Þarmá
meðal annars sjá Eddukvæði, Flateyjar-
bók og eitt af elstu handritum Njálu.
Ásgrímssafn
Ásgrimssafn við Bergstaðastræti er opið
þri. fim. og sun. frá klukkan 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Um þessar mundir stendur yfir í Ásmund-
arsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar. Þargefurað líta 26 högg-
myndir og 10 vatnslitamyndir og teikning-
ar. Sýningin spannar 30 ára tímabil af
ferliÁsmundar, þanntíma sem listamað-
urinn vann að óhlutlægri myndgerð. í
Ásmundarsafni er ennfremur til sýnis
myndband sem fjallar um konuna í list
ÁsmundarSveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur, myndbönd og
afsteypuraf verkum listamannsins. Safn-
ið er opiö daglega frá kl. 10 til 16. Skóla-
fólk og aðrir hópar geta fengið að skoða
safnið eftir umtali.
Listasafn Einars
Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.30
til 16.00. Höggmyndagarðurinn eropinn
daglega frá kl. 1U00—17.00.
Listasafn íslands
Nú stendur i Listasafni Islands sýningin
Aldarspegill sem opnuð var í tilefni af
vígslu hinnar nýju safnbyggingar á
Fríkirkjuvegi 7.
Sýningin er kynning á íslenskri myndlist
1900— 1987 og eru öll verkin í eigu safns-
ins. Leiðsögn um sýninguna ferfram í
fylgd sérfræðings alla sunnudaga kl.
13.30—14.00, og veröur safnast saman
í anddyri safnsins. Aðgangur að sýning-
unni er ókeypis og búið er að opna kaffi-
stofu safnsins. Vegna mikillar aðsóknar
að safninu verður það opiö frá kl. 11.30
til 19.00 laugardaga og sunnudaga, en
aðra daga er safniö opið frá kl 11.30—
16.30, nema mánudaga.
Listasafnið hefur einnig tekið upp þá
nýbreytni að kynnt verðurvikulega mynd
mánaðarins. Ivlynd febrúarmánaðar er
Fantasía eftir Jóhannes S. Kjarval, sem
máluðvar 1940.
Fantasía erein gjafa-sem borist hafa
listasafninu, en þaö voru bræðumir Guð-
mundurog Friðrik Björnssynir sem gáfu
safninu myndina árið 1962 í minningu
móður þeirra Margrétar Magnúsdóttur.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" ferfram
alla föstudaga kl. i3.30—13.45 ifylgd
sérfæðings ogverður safnast saman i
anddyri safnsins.
Norræna húsið
Nú stenduryfir sýning á grafíkverkum
sænska listamannsins Lennarts Iverus i
anddyri Norræna hússins. Á sýningunni
eru teikningar og grafík, mestmegnis
koparstungur. Sýningin verðuropin dag-
lega fram til 28. febrúar.
Hið græna gull Norðurlanda nefnist sýn-
ing sem opnuð verður laugardaginn 20.
febrúar. Þetta erfarandsýning sem skóg-
minjasöfnin á Norðurlöndum standa að,
en Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélag
Islands og Þjóöminjasafniö hafa haft veg
og vanda af henni af (slands hálfu, ásamt
Norræna húsinu.
Á sýningunni má sjá hvernig brugöist
hefur verið við eyðingu skóganna og
vörn breytt í sókn. Sagan er sögð í mynd-
um og máli, en auk þess getur að líta
ýmsa muni úrtré, meðal annars gripi,
sem hafa verið fengnir að láni úr Þjóð-
minjasafni íslands.
Jón Helgason landbúnaðarráðherra opn-
arsýninguna á laugardaginn og verður
sýningin síöan opin daglega kl. 14-19 til
13. mars. Inga Wintzell þjóðháttafræð-
ingur og safnvörður við Nordiska museet
í Stokkhólmi flytur erindi um sögu prjóns
í Svíþjóð sunnudaginn 21. febrúar kl.
17.00 ífundarsal Norræna hússins. Auk
þess flytur Inga erindi í Þjóöminjasafni
(slands laugardaginn 20. febrúar og fjall-
ar það erindi um gallabuxur og galla-
buxnamenningu. Erindið erflutt í tengsl-
um við sýningu á gallabuxum sem opnar
í Þjóðminjasafninu á laugardaginn.
Menningarsamtök
Norðuriands
Menningarsamtök Norðurlands, ME-
NOR, og Alþýðubankinn kynna nú lista-
manninn Aðalstein Svan Sigfússon. Aðal-
steinn stundaði nám við Myndlistaskól-
ann á Akureyri 1982—1984.1984 fluttist
Aðalasteinn suður og settist í málara-
deild Myndlista- og handíðaskóla íslands
og lauk þaðan námi 1986. Að námi loknu
flutti Aðalsteinn aftur norður og hefur
búið að Kristnesi í Eyjafirði síðan, en um
þessar mundir er hann að vinna að list
sinni á Spáni. Aðalsteinn hefur haldið
tvær einkasýningar á Akureyri, 1985 og
1986, og hann hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum, s.s. N’ART í Reykjavík
1986,S(AÍNýlistasafninu 1987 og Gall-
erí svart á hvitu 1987. Á listkynning-
unni, sem er í útibúi Alþýðubankans á
Akureyri, eru 6 verk og lýkur sýningunni
26.febrúar.
SJÁ NÆSTU OPNU.
SKEMIVmSTAÐiR
ABRACADABRA
Laugavegur116
Skemmtistaðurinn Abracadabra er op-
inn daglega frá hádegi til kl. 01.00.
Austurlenskur matur er framreiddur i
veitingasal á jarðhæðinni til kl. 22.30.
f kjallaranum er opið frá kl. 18.00 til
kl. 03.00 um helgar og er diskótek frá
kl. 22.00. Enginn aðgangseyrir er á
fimmtudögum og sunnudögum. Síminn
er 10312.
ÁRTÚN
Vagnhöfði 11
í Ártúni leikur hljómsveitin Danssporið,
ásamt þeim Grétari og ömu Þorsteins
á föstudagskvöldum, þegar gömlu
dansarnir eru og á laugardagskvöldum,
þegar bæði er um að ræða gömlu og
nýju dansana. Síminn er 685090.
BROADWAY
Álfabakki 8
Rokksýning „Allt vitlaust" verður i Bro-
adway á föstudags og laugardags-
kvöld, auk þess sem hljómsveitin Sveit-
in milli sanda, leikur fyrir gesti.
CASABLANCA
Skúlagata 30
Diskótek er í Casablanca á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00 til
kl. 03.00. Á fimmtudagskvöldum eru
oft rokktónleikar.
ITMPA
Borgartún 32
Hljómsveit hússins, Saga-Class, leikur
í Evrópu á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Síminn í Evrópu er 35355.
GLÆSIBÆR
Álfheimar 74
Hljómsveit hússins leikur í Glæsibæ á
föstudags-og laugardagskvöldum frá
kl. 23.00 til kl. 03.00. Síminn er 686220.
HOLLYWOOD
Ármúli 5
Leitinni að týndu kynslóðinni er hreint
ekki lokið í Hollywood, þar sem bæði
hljómsveit af þeirri kynslóð sem og
diskótek týndu kynslóðarinnar er í
gangi á föstudags- og laugardags-
kvöld. Borðapantanir eru í síma
641441.
Á laugardag, 6. febrúar, verður frum-
sýnd í Súlnasal söngleikurinn Næturg-
alinn - ekki dauður enn. Hann er
byggöur á tónlist Magnúsar Eiríksson-
ar í gegn um tíöina og segir söguna
af íslenskri dægurstjörnu, frægðarleit
og drauma. Og um raunveruleikann
sem tekur við af draumnum.
Aðalhlutverk Pálmi Gunnarsson, Jó-
hanna Unnet, Eyjólfur Kristjánsson og
Ellen Kristjánsdóttir.
Síminn er 20221.
HÓTEL BORG
Pósthússtræti 10
Diskótek er á Hótel Borg á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 21.00 til
kl. 03.00 og á sunnudagskvöldum eru
gömlu dansarnir á sínum stað, frá kl.
21.00 til kl. 01.00. Síminn er 11440.
HÓTEL ÍSLAND
Ármúla
Söngleikurinn „Gullárin" er sýndui
laugardagskvöld á Hótel (slandi. Dans
leikur föstudags- og laugardagskvölc
til kl. 03.00.
LÆKJARTUNGL
Lækjargötu 2
f Lækjartungli, sem áður var Nýja bíó,
verður diskótek fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld en sunnu-
dagskvöld verður Kramarhússkvöld.
Þá munu hinir ýmsu dansarar frá Kram-
húsinu koma fram með dansatriöi, s.s.
tangó og jassdansa. Húsið opnar kl.
21.00 en danssýningin hefst kl. 22.00.
LENNON
Austurvöilur
Diskótek er f skemmtistaðnum Lennon
á föstudags- og laugardagskvöldum frá
kl. 20.00 til kl. 03.00 og er þá enginn
aðgangseyrir til kl. 23.00. Aðra daga
er diskótek frá kl. 20.00 til 01.00.
Síminn er 11322.
SKÁLAFELL
Suðurlandsbraut 2
Á skemmtistaðnum Skálafelli á Hótel
Esju er leikin lifandi tónlist öll kvöld
vikunnar, nema á þriðjudagskvöldum.
Hljómsveitir leika um helgar. Skálafell
er opið alla daga vikunnar frá kl. 19.00
til kl.01.00. Síminn er 82200.
UTOPIA
Suðurlandsbraut 26
Skemmtistáðurinn Utopia er til húsa
við Suðurlandsbrautina. Þar er 20 ára
aldurstakmark.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholt 20
I Þórscafé er Þórskabarett og
skemmtidagskráin Svart og hvítt á tjá
og tundri. Staðurinn opinn fyriri matar-
gesti frá 19.00 og hljómsveitin Burgeis-
ar leika fyrir dansi. Diskótek er í gangi
á neðri hæðinni frá kl. 22.00 til kl.
03.00. Síminn er 23333.