Morgunblaðið - 19.02.1988, Síða 7

Morgunblaðið - 19.02.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988 B 7 HVAÐ ER GERASTÍ AÐO ACTÍ Utivera Ferðafélag Islands Sunnudaginn21. febrúar eru tvœr dags- feröir, þ.e. skíöagönguferð á Mosfells- heiöi og velrarferð til Þingvalla. Brottför í báöar feröirnar er kl. 13. [ Þingvallaferðinni veröur gengiö um Al- mannagjá að öxarárfossi. Skíðagöngu- ferðin verður á Mosfellsheiði. Kvöldvaka F( verður miðvikudaginn 24. febrúarog þá fjallar Árni Hjartarson um Þjórsárhraun í máli og myndum. Sunnudaginn 28. febrúarverðurGullfoss skoöaður í klakaböndum. Hana nú Vikuleg laugardagsganga Frístunda- hópsins Hana Nú í Kópavogi verður laug- ardaginn 20. febrúar. Lagt verður af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Markmið göngunnár er samvera, súrefni og hreyfing. Nýlagað molakaffi. Allir eru velkomnir. Útivist Sjötta ferð í Strandgöngu í landnámi Ing- ólfs verðurfarinsunnudaginn 21. febrú- ar. Ekiö verður að Langeyri vestan Hafn- arfjarðar og gengið þaðan með strönd- inni út á Hvaleyri sunnan fjarðarins. ( leiðinni verður Sjóminjasafn Islands skoðað. í gönguna mætirfróður maður um sögu Hafnarfjarðar. Markmiöiö með „Strandgöngunni" er að ganga með allri Strandlengjunni suður um Fteykjanes og út að ölfusárósum í tuttugu og tveim feröum. Viðurkenning verður veitt fyrir góða þátttöku. Brottförerfrá BSÍ, bensin- sölu, kl. 13.00 og er tilvaliö fyrir þá sem misst hafa af fyrstu ferðunum að byrja núna. Viðeyjarferðir Hafsteinn Sveinsson er með daglegar ferðir út ÍViðey og um helgareruferðir allan daginn frá kl. eitt. Kirkjan í Viðey er opin og veitingarfást í Viöeyjarnausti. Bátsferðin kostar 200 krónur. Félagslíf Ferðakynning Ferðaskrifstofan Útsýn gengst fyrir ferða- markaði sunnudaginn 21. febrúar kl. 14-18 íveitingahúsinu Broadway. Fulltrúar frá áfangastöðum Útsýnar á Spáni, í Portúgal og á Kýpur verða á staönum og svara fyrirspurnum. Auk þess eru Flugleiðir, Arnarflug og SAS þátttakendur í feröakynningunni. Boðið er upp á veitingar og ókeypis happ- drættismiöa í ferðavinningahappdrætti. MÍR Sovéska kvikmyndin „Anna Pavlova" verður sýnd í bíósal MlR sunnudaginn 21. febrúar kl. 16. Myndin fjallar um rúss- ne.sku ballerínuna Önnu Paviovu sem var uppi 1881-1931 og kom fram á leiksviði stærstu óperuhúsa um allan heim. Sýn- ingartími myndarinnarer2 klst. og 20 mínútur. Skýringartextareru á ensku. Aðgangurað kvikmyndasýningúm MÍR, Vatnsstíg 10, er ókeypis og öllum heimill. Krístilegt félag heilbrígðis- stétta Kristilegt félag heilbrigðisstétta verður með fund i safnaðarheimili Laugarness- kirkju mánudaginn 22. febrúar kl. 20.30. Læknarnir, Ásgeir B. Ellertsson, Ás- mundur Magnússon og Lárus Jónsson sjá um efni fundarins. Kaffiveitingar. Allir eru velkomnir. Þorrablót Átthagafélagið Höfði heldurþorrablót f Félagsheimili Seltjarnarness laugardag- 1 inn 20. febrúar. Boðið verður upp á þorra- mat og norölenskt laufabrauð bakað af félagsmönnum. Tónlist Islenska óperan Tónleikar verða í (slensku óperunni mánudag, þriðjudag og fimmtudag nk. Það er baritonsöngvarinn Andreas Schmidt og píanóleikarinn Thomas Palm sem flytja Ijóðaflokka eftir Schubert. Á mánudagskvöldinu flytja þeir Die Schöne Múllerin (Malarstúlkan fagra), á þriðju- daginn Winterreise (Vetrarferöin) og á fimmtudaginn Swanengesang (Svana- söngur). Tónleikarnir hefjast allir kl. 20.30. Óperutónleikar Paata Burchuladze syngur með Sinfóníu- hljómsveit Islands laugardaginn 20. fe- brúar kl. 14.30 í Háskólabiói. Stjórnandi verður Páll P. Pálsson. Á efnisskrá tón- leikanna eru ariurog ýmis atriði úr rúss- neskum og ítölskum óperum, sungin og leikin. Hreyfing Keila I Keilusalnum íöskjuhliðeru 18 brautir undir keilu. Á sama staö er hægt að spila billjarö og pínu-golf. Einnig er hægt að spila golf i svokölluðum golfhermi. Sund I Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar- dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund- laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og viö Borgarholtsbraut i Kópavogi. Innisund- laugar á höfuöborgarsvæðinu eru við Barónsstíg og viö Herjólfsgötu í Hafnar- firði. Opnunartíma þeirra má sjá í dag- bókinni. Áhraðferð til heljar Myndbftnd Sæbjörn Valdimarsson drama Sid and Nancy ★ ★ ★ Leikstjóri Alex Cox. Handrit Cox og Abbe Wool. Kvikmyndatöku- stjóri Rog'er Deakins. Klipping David Martin. Tónlist Joe Strummer, Pray For Rain and the Pogues. Aðalleikendur Gary Oldman, Chloe Webb, Drew Schofield, David Hayman. Bresk. Embassy Home Entertain- ment/Zenith Prod. Ltd. — Skifan 1988. 109 mín. Það hafði lítið frumlegt gerst í popptónlistinni á annan áratug þeg- ar loks kvað við nýjan tón. Ekki var hann beinlínis heillandi frá fag- urfræðilegu sjónarmiði, né heldur flytjendur hans. Þessi nýja tónlist hefur löngum verið kennd við „pönk“, hrátt, kraftmikið rokk þar sem gömlum hefðum er gefið langt nef og flytjendumir líkt og dregnir uppúr öskustónni; rifnir og tættir, gjaman í leðurdruslum „prýddum" hverskyns króm- og stálbrydding- um. Með tónlist sinni og klæða- burði vildu þessir ungu tónlistar- menn sýna andúð sína á þjóðfélag- inu, ekki síst stöðnuðum skalla- poppurum og bágum kjörum þeirrar stéttar og umhverfisins sem þeir ólust gjaman upp í, fátækrahverf- um verkamanna í Bretlandi. En það er ekki meiningin að kryfla þessa tónlistarstefiiu hér, enda ekki í mínum verkahring. Tilefnið að þess- um formála er hinsvegar útgáfa myndbandsins Sid and Nancy, sem fjallar um einn af meðlimum fræg- ustu pönkrokksveitar allra tíma, The Sex Pistols. Myndin hefst er þessi dæmafáa hljómsveit var að ná frægð í heimalandi sínu, fyrst og fremst af endemum. Sid Vicious var e.k. ímynd hljómsveitarinnar útávið; vægast sagt hæfileikalítill tónlistarmaður, hinsvegar kjaftfor, frakkur og með eindæmum sóðaleg- ur á sviði, hrækjandi og spýtandi, ISLENSK IMATTURA Sýningar Náttúrugrípasafnið á Akureyrí Sýningarsalurinn er í Hafnarstræti 81, jarðhæð. Þar eru uppsettir allir íslenskir varpfuglar ásamt eggjum, mikið af skor- dýrum, krabbadýrum, skrápdýrum, skel- dýrum og kuðungum. Þar eru einnig til sýnis þurrkaðir sjóþörungar, fléttur, sveppir, mosar og nær allar villtar blóm- plönturog byrkningará Islandi. Einnig má sjá þar bergtegundir, kristalla og steingervinga. Á veturna er sýningarsalurinn opinn frá kl. 13.00 til 15.00, á öðrum tfmum fyrir hópa eftir samkomulagi í símum 22983 og 27395. Minja- og náttúmgrípasafnið Dalvík I Minja- og náttúrugripasafninu í Safna- húsinu eru til sýnis uppstoppuö dýr auk eggja-, plöntu- og steinasafna. Safniö er opiö á sunnudögum frá kl. 14.00 til 18.00. Upplýsingar í síma 61104. Náttúrugripasafnið í Reykjavík Náttúrugripasafnið ertil húsa á Hverfis- götu 116,3. hæð (gegnt Lögreglustöö- inni). Þar má sjá sýnishorn af íslenskum og erlendum steintegundum og íslensk- um bergtegundum. Urlífríkinu eru krabbadýr, lindýr, skrápdýr, spendýr og fuglar, þ. á m. geirfuglinn, og risaskjald- baka. Þá eru einnig þurrkuð sýni af flest- um íslenskum blómplöntum s.s. mosum, fléttum og þörungum. Sýningarsalurinn er opinn þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga frákl. 13.30 til 16.00. Nánari upplýsingar ísíma 29822. Náttúrufræðistofa Kópavogs Náttúrufræðistofa Kópavogs, er á Digra- nesvegi 12,jarðhæð. Þarstenduryfir sýning á lifríki Kársnesfjöru. Á sýningunni gefur að líta margar tegundir botnlægra þörunga sem finnast í fjörum og hrygg- leysingja. I Skeljasafni Náttúrufræðistof- unnar eru flestar tegundir lindýra með skel sem finnast við (sland. Stofan er opin á laugardögum frá kl. 13.30 til 16.30. Nánari upplýsingari sfmum 20630 og 40241. Safnahús Borgarfjarðar Borgamesi Náttúrugripasafniö verður lokið um óákveðinn tíma vegna breytinga. Safnahúsið Húsavík Safnahúsið er við Stóra-Garð. I náttúru- gripasafninu eru til sýnis á annað hundr- að fuglategundir, Grímseyjarbjörninn, mjög gott skeljasafn og ýmsir aörir nátt- úrugripir. Einnig eru náttúrugripir f stofu Jóhanns Skaftasonar sýslumanns og Sigríðar Víðis, í stofu Lissýar á Halldórs- stöðum í Laxárdal og í Kapellunni. Safna- húsið er opið frá kl. 9.00 til 14.00 virka daga. Nánari upplýsingar í síma 41860. Náttúrugripasafnið í Neskaupstað Náttúrugripasafnið er að Mýrargötu 37. Þar er að sjá gott safn steina, fugla og fiska, auk lindýra og skeldýra. Safniö er opið yfir sumarmánuðina en á veturna þarf að hafa samband við forstöðumann í síma 71606 fyrir heimsókn á safnið. Dýrasafnið á Setfossi Dýrasafnið er við T ryggvagötu 23 og þar má sjá uppstoppuö mörg algeng islensk dýr og auk þess hvítabjörn, mikið af fugl- um og gott eggjasafn. Safnið er opið daglega á sumrin en á veturna á fimmtu- dögumfrákl. 14.00 til 17.00. Sími safns- ins er 2703 og 2190 hjá safnverði og eru hópar velkomnir að hafa samaband við safnvörð um sérstakan opnunartíma. Fiska- og náttúrugrípasafn Vestmannaeyja Fiska- og náttúrugripasafn Vestmanna- eyja ertil húsaað Heiðarvegi 12. Safnið er opið frá 1. maí til 1. september, alla daga frá kl. 11.00 til 17.00. Aðra mán- uði ársins er opiö laugardaga og sunnu- daga kl. 15.00 til 17.00, en hóparsem ekki geta notað ofanskráða tlma, geta haft samband við safnvörð, Kristján Egils- son, ísíma 1997 eða 2426.1 safninu eru þrír sýningarsalir. Fuglasafn, með uppstoppaðar allar tegundir islenskra varpfugla. Eins er mikill fjöldi uppsettra svokallaðra flækingsfugla. Eggjasafn, flóra Vestmannaeyja og skordýr. Fiska- safn. 112 kerjum eru til sýnis lifandi, flestallartegundir nytjafiska landsins, ásamt kröbbum, sæfíflum o.fl. sjávardýr- um. Steinasafn. I steinasafn’nu eru sýnis- horn flestallra íslenskra steina, ásamt bergtegundum frá Vestmannaeyjum. Fastakynningar Hafrannsóknastofnunin Reykjavík Hafrannsóknastofnun, Skúlagötu 4, jarð- hæð. I anddyrinu er sjóker með fjöru- lífverum s.s. nokkrum tegundum af lif- andi þörungum, skeldýrum, krossfiskum, ígulkerjum, krabbadýrum sprettfiskum o.fl. I kerinu ermarhnútursem hryngdi sunnudaginn 14. febrúar og límdi eggja- búið á fjörugrös. Til að verja eggjabúiö fyrir kröbbunum varð að setja búr utan um það. Barnaheimili og skólarsem hafa áhuga á að skoða lífverurnar í ker- inu eru beðnir að láta vita í síma 20240 með dags fyrirvara. Anddyriö er opið virka dagafrá kl. 9.00 til 16.00. Úti í náttúrunni Mesta stórstraumsfjara ársins Núna um helgina er stærsti straumur ársins. Háfjara er kl. 13.54 föstudag 19. febrúar, 20. febrúar’kl. 14.33 og 21. febrúar kl. 15.12. Rétt er að hafa í huga að veöur hefur talsverð áhrif á sjávar- stööu frá degi til dags sérstaklega loft- þrýstibreyting. Þannig hækkar sjávaryfir- borð um 0,1 meter falli loftvog og öfugt. gefandi skít í allt og alla — í orðs- ins fyllstu merkingu. The Sex Pistols og pönkið hitti beint í mark hjá þeim íjölda ung- menna í ríki Járnfrúarinnar sem sáu enga von um bjarta framtíð í skugga atvinnuleysis og menntun- arskorts, Sid og félagar urðu fræg- ir. Hvemig þessum pilti hefði reitt af ef hann hefði ekki kynnst örlaga- valdi lífs síns, eiturætunni og rokk- sfjömumellunni Nancy Spungen, er ómögulegt að segja. En hitt er víst að með óhugnanlegum lífsvenjum sínum og sjálfseyðingarhvöt flýtti hún fyrir falli sfjömunnar. " Cox lýsir hraðsiglingu þessa giftulausa pars niður breiðstræti mannlegrar eymdar, lífi í jarðnesku víti eiturlyfja, skíts og úrhraka af miskunnarlausu raunsæi. Hann hefur skapað minni háttar meist- araverk um afleiðingar sterkra eit- urlyfja á hreinskilinn, grimman hátt sem lætur engan ósnortinn. Myndin er að sjálfsögðu ljót og vægðarlaus. Ekki er verið að fegra hlutina og heildarmjmdin er sjálf- sagt eins nærri sannleikanum og unnt er, enda Cox sjóaður og ýmsu vanur. Þó svo að hlutur leikstjórans sé góður, hefði Sid and Nancy aldrei orðið nema svipur hjá sjón, sjálf- sagt kafnað í ógeðinu, ef ekki hefði komið til afburðaleikur hjá Gary Oldman og Chloe Webb í hlutverk- um Sid og Nancy. Þau gera þessar manndreggjar og stjómleysingja aumkunarverðar og athyglisverðar. Lífshlaup þeirra er öðmm víti til vamaðar. Það ætti að sýna Nancy and Sid í grunnskólunum. S1 Ö’úpi þriller The Stepfather ★ ★ lh Leikstjóri Joseph Ruben. Handrit Donald E. Westlake. Tónlist Patrick Moraz. Aðalleikendur Terry O’Quinn, Jill Schoelen og Shelley Hack sem „Susan“. Bandarísk. 1987. 98 min. Þessi prýðilegi, yfírlætislausi þriller Qallar um einkar notalegt fjölskyldulíf í upphafi sem breytist í martröð er á líður. Ekkjan Hack giftist, að því er virðist, sléttum og felldum manni, (O’Quinn). Hann gengur dótturinni Schoelen í föður- stað og allt virðist í lukkunnar vel- standi. O’Quinn leggur sig fram við að hafa allt til fyrirmyndar hvað viðvíkur fjölskyldunni, nær fullu valdi á móðurinni og vill temja dótt- urina til algerrar hlýðni. Hún gerir sitt besta en uppgötvar um leið að „fyrirmyndarfaðirinn" er ekki allur þar sem hann er séður heldur stór- hættulegur geðsjúklingur. Þessi litla, lúnkna mynd er í gróf- um Hitchcock-stfl og á aldeilis ágæt augnablik. Handrit hins kunna sakamálasagnahöfundar Donalds E. Westlake er vel skrifað, spenn- andi og laust við óþarfa vífilengjur og í handbragði leikstjórans Rubens er samfelldur stígandi sem endar með sprengingu. En það sem á drýgstan þátt í ágæti The Step- father, sem kemur óneitanlega nokkuð flatt uppá mann, er af- bragðsleikur O’Quinns í hlutverki hins geðklofna stjúpa. Tilþrif hans minna jafnvel á meistara Nicholson f sínum lúnaðasta ham (The Shin- ing, The Witches of Eastwick). Óvænt skemmtun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.