Morgunblaðið - 19.02.1988, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
B 11
VEIIIIMGAHÚS
DESTÁUDANT
OPÍI2&
LÆKJARGÖTU 2, II HAÐ
Virðulegur veitingastaður.
KAFFI-ÓPERA
Lœkjargata 2
Veitingahúsið Kaffi-Ópera eropið alla
daga frá kl. 11.30 til kl. 14.30 og frá kl.
18.00 til 23.30, en þá er hætt að taka
pantanir. Yfirmatreiðslumaður er Eiríkur
Friðriksson og yfirþjónn er Marjan Zak.
Borðapantanireru íslma 29499.
SKÍÐASKÁLINN
Hvaradalir
I Skíöaskálanum í Hveradölum er i vetur
opið eingöngu á föstudagskvöldum frá
kl. 18.00 til 23.30 og á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 12.00 til 23.30.
Smáréttir eru i boði á milli matmálstíma.
Kvöldverðarhlaöborö er á sunnudags-
kvöldum og Jón Muller leikur öll kvöld
fyrirgesti. Matreiðslumeistari hússins er
Jóhann Már Gunnarsson og veitinga-
stjóri er Karl Jónas Johansen. Borðapant-
anireru ísímum 99-4414 og 672020.
»hótel
OÐINSVE
BRAUÐBÆR,
HÓTEL ÓÐINSVÉ
Óðinstorg
Veitingasalurinn á Hótel Óðinsvé er op-
inn daglega frá kl. 11.30 til kl. 23.00.
Fiskréttahlaðborö er alltaf í hádeginu á
föstudögum. Matreiðslumeistarar eru
þeir Gísli Thoroddsen og Stefán Sigurðs-
son og yfirþjónn Kjartan Ólafsson.
Meöalverð á fiskrétti er 630 kr. og á kjöt-
rétti 1000 kr. Borðapantanir eru i síma
25090.
Vcitiiiftihúsii
Viö SjóuaR8Íöuna
VIÐ SJÁVARSfÐUNA
Tryggvagata 4-6
Veitingahúsið Við sjávarsíðuna er opið á
virkum dögum frá kl. 11.30 til kl. 14.30
og frá 18.00 til kl. 23.30, en á laugardög-
um og sunnudögum er eingöngu opiö
að kvöldi. Á matseölinum er lögð sérstök
áhersla á fiskrétti. Matreiðslumeistarar
hússins eru Garðar Halldórsson og Egill
Kristjánsson og yfirþjónn er Grétar Erl-
ingsson. Meðalverð á fiskrétti er kr. 800
og á kjötrétti 1100. Boröapantanireru í
sima 15520.
TORFAN
Amtmannsstíg 1
Veitingahúsið T orfan er opið daglega frá
kl. 11.00 til kl. 23.30 og eru kaffiveiting-
ará milli matmálstíma. Matreiðslumeist-
arar eru Óli Harðarson og Friðrik
Sigurðsson og yfirþjónar Ólafur Theo-
dórsson, Skúli Jóhannesson og Hrafn
Pálsson.. Meðalverð á fiskrétti er 690
kr. og á kjötrétti 1100 kr. Boröapantanir
eru ísíma 13303.
VIÐTJÖRNINA
Kirkjuhvoll
í veitingahúsinu Við Tjörnina sérhæfa
menn sig (fisk- og grænmetisréttum.
Opiðerfrákl. 12.00 til 14.30ogfrá
18.00 til 23.00. Matargerðarmaður er
Rúnar Man/insson og veitingastjórar þær
Sigríður Auðunsdóttir og Jóna Hilmars-
dóttir. Meðalverð a'fiskréttum er kr. 900.
Borðapantanir eru í síma 18666.
ÞRÍR FRAKKAR
Baldursgata 14
Veitingahúsið Þrlr Frakkar er opið alla
daga. Á mánudögum og þriöjudögum frá
kl. 18.00 til 24.00, en aðra daga til kl.
01.00. Kvöldveröurerframreiddurtil kl.
23.30 og eru smáréttir í boði þar á eftir.
Matargerðarmaöur er Matthías Jóhanns-
son og yfirþjónn er Magnús Magússon.
Meðalverð á fiskrétti er 800 kr. og á kjöt-
rétti 1100 kr. Boröapantanir eru í sima
23939.
VEITINQAHÚS MEO
MATREIÐSLUÁ ERLENDA VÍSU
BANKOK
Síðumúli 3-5
Thailenskur matur er í boði á veitingahús-
inu Bankok, en þar er opiö alla virka
dagafrákl. 12.00 til kl. 14.00 ogfrá kl.
18.00 til kl. 21.00. Áföstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum er opið til kl.
22.00. Matreiöslumaöur er Manus Saifa
og veitingastjóri Manit Saifa. Síminn er
35708.
EL SOMBRERO
Laugavegur73
Sérréttir frá Spáni og Chile eru í boði á
El Sombrero. Þar er opið alla daga frá
kl. 11.30 til kl. 23.30. Einungis pizzur
eru á boðstólum eftir kl. 23.00. Mat-
reiðslumeistari er Rúnar Guömundsson.
Síminn er 23433.
HORNIÐ
Hafnarstrætl 15
Italskur matur, ásamt pizzum og öðrum
smáréttum er í boði á Horninu. Þar er
maturframreiddurfrá kl. 11.30 til kl.
23.30, þó einungis pizzur eftir kl. 22.00.
Veitingastjóri er Jakob Magnússon og
síminn 13340.
KRÁKAN
Laugavegur22
Mexíkanskir réttir eru framreiddir á Krá-
kunnig, en sérstök áhersla er lögð á
fylltar tortillur, auk þess sem dagseðlar
eru íboði. Eldhúsiöeropiðfrá kl. 11.00
- 22.00 alla daga nema sunnudaga, en
þá er opið frá kl. 18.00 - 22.00. Mat-
reiðslumeistari hússins er Sigfríð Þóris-
dóttir. Siminn er 13628.
MANDARÍNINN
Tryggvagata 26
Austurlenskurmaturerá matseðli Mand-
arínsins, en þar er opið alla daga frá kl.
11.30- 14.30ogfrá 17.30-22.30 á
virkum dögum, en til kl. 23.30 á föstu-
dags- og laugardagskvöldum. Mat-
reiðslumeistari hússins er Ning de Jesus
og síminn 23950.
KÍNAHOFIÐ
Nýbýlavegur 20
Kínverskur matur er að sjálfsögðu í boði
i Kínahofinu. Opið er frá kl. 11.00 til til
kL 22.00 alla virka daga, en á laugardög-
um og sunnudögum frá kl. 17.00 til kl.
23.00. Matreiðslumeistarareru Feng Du
og Ngoc Lam og síminn, 45022.
SJANGHÆ
Laugarvegur 28
Kinverskur matur er í boði á Sjanghæ,
en þar er opið á virkjum dögum frá kl.
11.00 til 22.00, en á föstudags- og laug-
ardagskvöldum lokar eldhúsið kl. 23.00.
Matreiöslumeistari hússins er Gilbert Yok
Peck Khoo. Síminner 16513, en hægt
er að kaupa mat til að fara með út af
staönum.
SÆLKERINN
Austurstræti 22
italskur matur er framreiddur í Sælkeran-
um og er opið þar alla virka daga og
sömuleiðis um helgar frá kl. 11.30 -
23.30. Matreiðslumeistari hússinsersá
sami og ræður rikjum í Kvosinni,
Francoais Fons. Síminn er 11633, en
hægt er að kaupa pizzur og fara með út
af staðnum.
TAJ MAHALTANDOORI
AðalstrætHO
Indverska veitingahúsiðTaj Mahal
Tandoori er á efri hæð Fógetans og býð-
ur upp á fjölbreytta indverska rétti
matreidda í sérstökum Tandoori leirofni.
Indverska veitingastofan er opin daglega
frá kl. 18.00. Borðapantanireru í síma
16323.
KRÁROQ VEITINQAHÚS MEÐ
LENQRIOPNUNARTÍMA:
DUUS-HÚS
Fischerssund
Á Duus-húsi er opið alla daga nema
sunnudaga, frá kl. 11.30 -14.30 og frá ■
kl. 18.00-01-. OOávirkumdögum, en
kl. kl. 03.00 á föstúdags- og laugardags-
kvöldum. Maturerframreiddurtil kl.
21.00 á virkum dögum og til kl. 22.00 á
föstudags- og laugardagskvöldum, en
fram til kl. 23.30 eru framreiddar pizzur
öll kvöld. Um helgar er diskótek á neðri
hæð hússins, en á sunnudagskvöOldum
ersvokallaöur „Heiturpottur" á Duus-
húsi, lifandi jasstónlist. síminn er 14446.
FÓGETINN
Aðalstræti 10
Veitingahúsiö Fógetinn er opið alla virka
daga frá kl. 18.00-01.00 og til kl. 03.00
á föstudags- og laugardagskvöldum.
Skemmtikraftar koma fram tvö til fimm
kvöld vikunnar. Borðapantanir eru í síma
16323. Á efri hæð Fógetans er indverska
veitingastofan Taj Mahal.
GAUKURÁ STÖNG
Tryggvagötu 22
Á Gauki á Stöng er opiö alla virka daga
frákl. 11.30-14.30 ogfrákl. 18.00-
01.00 og til kl. 03.00 á föstudags- og
laugardagskvöldum. Eldhúsið er opið til
kl 23.00, en eftir það er i boði næturmat-
seðill. Lifandi tónlist er oftast á Gauki á
Stöng á sunnudgöum, mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum frá kl.
22.00. Síminn er 11556.
HAUKUR f HORNI
Hagamelur 67
Haukur í Horni er opinn alla virka daga
frá kl. 18.00 — 23.20 og á föstudags-
og laugardagskvöldum til kl. 01.00. Eld-
húsið er opiö öll kvöld til kl. 22.00, en
smáréttir eru í boði eftir það. [ hádeginu
á laugardögum og sunnudögum er opiö
frá kl. 11.30 — 14.30. Lokað I hádeginu
aðra daga. Síminn er 26070.
HRAFNINN
Skipholt 37
Veitingahúsið Hrafninn er opið alla virka
daga frá kl. 18.00 — 01.00 og á föstu-
dags- og laugardagskvöldum til kl. 03.00,
en þau kvöld er einnig i gangi diskótek.
Eldhúsinu er lokað um kl. 22.00. Slminn
er 685670.
ÖLKELDAN
Laugavegur22
í Ölkeldunni er opið alla virka daga frá
kl. 18.00 — 01.00 ogá föstudags- og
laugardagskvöldum til kl. 03.00. Eld-
húsinu er lokað kl. 22.00, en smáréttir
í boði þar á eftir. Qestum hússins er
boðið upp á að spreyta sig við taflborðið,
í pílukasti, Backgammon eða þá að taka
i Bridge-sagnaspil. Siminn er 621034.
ÖLVER
Glæsibær
(Ölveri er opið daglega frá kl. 11.30 —
14.30 ogfrákl 17.30-01.00ávirkum
dögum og til kl. 03.00 á föstudags- og
laugardagskvöldum. Eldhúsinu lokarum
kl 22.00. Lifandi tónlist er um helgar.
Ingvar og Gylfi leika fyrir gesti. Slminn
er 685660.
Takk off'
bless
Myndb&nd
Sæbjörn Valdimarsson
drama
’Night mother ★ ★ V2
Leikstjóri Tom Moore. Handrit
Marsha Norman, byggt á sam-
nefndu leikriti hennar. Tónlist
David Shire. Kvikmyndataka
Stephen M. Katz. Framleiðendur
Aaron Spelling og Alan Greis-
man. Leikendur Sissy Spacek og
Anne Bancroft. Bandarisk. Uni-
versal 1986. Laugarásbió 1988.
92 mín.
Ég ber fulla virðingu fyrir smekk
annarra, en hvað sjálfan mig snert-
ir er þetta kvikmyndaða sviðsverk
um sjálfsmorðsáætlanir konu
(Spacek) og rökræður hennar við
móður sína (Bancroft) síðustu
stundimar fyrir verknaðinn, alltof
yftrþyrmandi dapurt yrkisefni til
þess að ég geti virkilega notið þess.
Enda aðstæðumar yfirborðslegar
og leiksviðskenndar um of. Ef fólk
ætlar að binda sjálft enda á volæð-
ið í henni veröld framkvæmir það
verknaðinn á hljóðlátari hátt. Og
ef einhver vill og getur gripið f
taumana er það ekki með þeim
hætti að beija á dymar þegar allt
er um seinan. Enda fær maður
ekki næga samúð með þessum
mæðgum né þeim rökum verksins
sem hníga í átt samþykkis
sjálfsvígs. Á hinn bóginn er leikur
þeirra Spacek og Bancroft kynngi-
magnaður (þó sú síðamefnda daðri
löngum við ofleikinn) og myndin
fagmannlega unnin í alla staði.
Leikritið sem myndin er byggð á
hlaut Pulitzer-verðlaunin á sínum
tíma og ’Night Mother er einkar
gott dæmi um hina brothættu flutn-
inga á milli sviðsins og tjaldsins.
íValhöll,
Háaleitisbraut 1,
Reykjavík,
laugardaginn
20. febrúar
kl. 10.00-15.00.
Kl. 10.05 Ráðstefnan sett: Þórunn Gestsdóttir formaður
Landssambands sjálfstæðiskvenna.
Kl. 10.10 Umhverfismál: Sigurður M. Magnússon, for-
stöðumaður Geislavarna ríkisins. Fyrirspurn-
um svarað að erindi loknu.
Kl. 10.40 Landvernd: Hulda Valtýsdóttir, formaður Skóg-
ræktarfólags íslands.
Framkvæmd landgræðslu: Þór Sigfússon,
nemi. Fyrirspurnum svarað að erindum
loknum.
Kl. 11.20 Mengun á íslandi: Tryggvi Þórðarson, vatnalíf-
fraeðingur. Fyrirspurnum svarað að erindi
loknu.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Kl. 12.45 Endurvinnsla úrgangs: Sveinn Ásgeirsson,
verkstjóri. Fyrirspurnum svarað að erindi
loknu.
Kl. 13.30 Skipulagsmál: Valdís Bjarnadóttir, arkitekt.
Kl. 14.00 Pallborðsumræður.
Stjórnandi: Gestur Ólafsson, skipulagsfræð-
ingur.
Við pallborðið: Friðrik Zophusson, iönaðarráð-
herra, Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri Reykja-
víkurborgar, Elín Pálmadóttir,
varaformaður náttúruvemdarráðs, Þorvaldur S.
Þorvaldsson, forstöðumaður borgarskipu-
lags, Margrét Kristinsdóttir, umhverfismála-
nefnd Akureyrar.
Kl. 15.00 Ráðstefnuslit: Hulda Valtýsdóttir, formaður
umhverfismálanefndar Sjálfstæðisflokksins.
LANDSSAMBAND SJÁLFSTÆÐISKVENNA OG
UMHVERFISMÁLANEFND SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS framkvæmdastjóri.