Morgunblaðið - 21.04.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1988
(
Gengisskráning- ráðist
af markaðsaðstæðum
Nýskipan gjaldeyrismála
eftir Vilhjálm
Egilsson
Gengi krónunnar gagnvart erlend-
um gjaldmiðlum og hömlur eða frelsi
til viðskipta með krónuna hafa afger-
andi þýðingu í efnahagslífi okkar.
Lífslq'ör okkar byggjast í svo ríkum
mæli á því að flytja út framleiðslu
eða þjónustu og kaupa í staðinn svo
margt af þvl sem okkur vanhagar
um til neyslu og fjárfestingar.
Jafnvægisverð á gjaldeyri
Það ástand er nánast náttúrulög-
mál á íslandi að vilja eyða meiri
gjaldeyri en útflutningsgreinamar
afla. Þetta ástand birtist annars veg-
ar í þvi að ekki er greitt það verð
fyrir gjaldeyrinn sem skapar jafn-
vægisástand milli innflutnings og
útflutnings og hins vegar virðast
sumir aðilar hér í þessu þjóðfélagi
ekki geta á heilum sér tekið nema
að taka erlend lán fyrir því sem þeir
eyða hér innanlands eða flytja inn.
Hér liggur eitt aðalmeinið í efna-
hagslífi okkar. Vandamálið er ekki
innflutningurinn sjálfur eða gjald-
eyrisnotkunin. Vandamálið er að það
má ekki borga fyrir gjaldeyrinn jafn-
vægisverð og útflutningsgreinamar
mega ekki nema að hluta til skaffa
þann gjaldeyri sem við viljum nota
heldur era erlendir bankar látnir sjá
um það mál að alltof miklu leyti.
Landsbyggðin veslast upp
Við horfum uppá afleiðingamar
af þessari stefnu. Útflutningsgrein-
amar beijast í bökkum og þeir stað-
ir á landinu sem stóla á þessar at-
vinnugreinar veslast smám saman
upp. A meðan koma óeðlilega miklar
tekjur inn í innflutnings- og þjón-
ustugreinar og þeir staðir blómstra
þar sem þessar atvinnugreinar hafa
mesta þýðingu. Þeir búferlaflutning-
ar sem við horfum nú fram á innan-
lands era fyrst og fremst afleiðingin
af þessu stjómstýrða misvægi í af-
komu milli atvinnuveganna.
Iðulega heyram við tillögur um
að lækna skuli viðskiptahallann og
skuldasöfnunina erlendis með því að
leggja á stóráukinn skatt á innflutn-
ing eða skammta eða jafnvel banna
innflutning á tilteknum yöram. En
reynslan af slíkum aðgerðum hefur
alltaf verið sú að þær hafa reynst
tæki til þess að halda verðinu á gjald-
eyrinum niðri og bitnað fyrst og
fremst á útflutningsgreinunum.
Höftin öllum til tjóns
Þannig varð hið viðamikla
skömmtunarkerfi haftaáranna til
þess að innflutningsverslun þreifst
hvergi nema á höfuðborgarsvæðinu
en á fyrstu áratugum aldarinnar var
blómleg innflutningsverslun víða á
landsbyggðinni. Á haftaáranum vora
útflutningsgreinamar líka eilíflega á
barmi gjaldþrots óg það er fróðlegt
að kynna sér hliðstæðumar í umræð-
um um gjaldeyrismál nú og fyrir 40
áram.
Það er ekki hagsmunamál útflutn-
ingsgroinanna að innflutningur sé
„Fyrr eða síðar verða
stjórnvöld að horfast í
augn við þá staðreynd
að þjóðarbúið stenst
ekki núverandi gengi
krónunnar. Þetta er
reyndar ekkiný saga
hvorki hér á Islandi né
annars staðar. Enginn
gjaldmiðill hefur
nokkru sinni staðist við-
varandi mismun á verð-
bólgu milli landa. Þvi
er það svo að verð á
erlendum gjaldmiðlum
mun hækka fyrr en
seinna. Undan því lög-
máli efnahagslífsins
verður ekki vikist.“
skammtaður, bannaður eða skatt-
lagður. Mesta hagsmunamál útflutn-
ingsgreinanna er að allir hafi greiðan
aðgang að innfluttum vöram og að
sá gjaldeyrir sem til þarf sé keyptur
af útflutningsgreinunum á því verði,
sem skapar jafnvægi milli útlfutn-
ings og innflutnings. Hér er ekki
eingöngu um að ræða hagsmunamál
útflutningsatvinnuveganna einna
heldur þjóðarinnar allrar og alls at-
vinnulífsins. Þegar jafnvægi er á
Villyálmur Egilsson
milli innflutnings og útflutnings er
líka eðlileg verkaskipting í efna-
hagslífinu og atvinnugreinamar hafa
eðlileg skilyrði til þess að byggja sig
upp.
Höft á útf lutning
Við höfum fylgst með því undan-
farna daga að mikið offramboð hefur
verið á ferskum fiski frá íslandi á
markaði í Bretlandi og Þýskalandi.
Nú er talað alvarlega um að setja
höft á útflutning á ferskum fiski.
En þessi umræða sneiðir að því leyti
hjá kjama málsins að lítið heyrist
um ástæðu þess að framboð á fersk-
um fiski frá íslandi hefur aukist
svona mikið.
Meginástæðan er sú hversu af-
koman í fiskvinnslunni er slæm. Fisk-
vinnslan sér sér einfaldlega ekki hag
í að kaupa allan þann fisk sem flot-
inn kemur með að landi. Þá má ekki
gleyma því að sum fiskvinnslufyrir-
tæki hafa til þessa yfirborgað fisk
með því skilyrði að þau skip sem
keypt er af settu engan fisk í gáma.
Nú era fyrirtæki í vinnslunni að
reyna að losna út úr slíkum samning-
um með því að ætlast til þess að
sett verði ( gáma.
Höft á útflutning á ferskum fiski
gætu því komið ýmsum fiskvinnslu-
fyrirtælqum illa og mun skynsam-
legra væri að bregðast við þessum
vanda með því að gera rekstrarskil-
yrði fiskvinnslunnar eðlileg, veita
henni möguleika til þess að standa
á eigin fótum og keppa um hráefnið.
Skuldasöfnun samfara
of háu gengi
Of lágt verð á erlendum gjaldmiðl-
um og stöðugt innstreymi af erlendu
lánsfé era í raun tvær hliðar á sama
peningnum. Þegar verð á erlendum
gjaldmiðlum er lægra en jafnvægis-
verð er innflutningur tiltöluíega ódýr
m.v. annað og það leiðir til meiri
innflutnings en útflutnings. Þennan
umframinnflutning verður að fjár-
magna með erlendum lánum og inn-
streymi af erlendu íjármagni. Á
sama hátt getum við byijað á skulda-
söfnuninni. Innstreymi af erlendu
lánsfé skapar eyðslugetu og tekjur í
hagkerfinu sem engin innlend verð-
mætasköpun stendur fyrir. Tekju-
aukningin kemur fyrst og fremst
fram í innflutningsverslun og þjón-
ustu. En þessi tekjuaukning leiðir til
aukins innflutnings meðan að út-
flutnings- og samkeppnisgreinar
eiga í erfíðleikum með að keppa um
vinnuafl, íjármagn og þjónustu. Nið-
urstaðan er að sjálfsögðu viðskipta-
halli og taprekstur í útflutnings-
greinum vegna þess að verð á erlend-
um gjaldmiðlum verður of lágt miðað
við kostnaðarstig þessara greina.
: '
.
N A U T
1/4 naut „frampartur"
25 kg á 299.- kr./kg
kr. 7.475.-
Innifalið í verði: Úrbeining, pökkun, merking. Þú
færð úrþessu frábært hakk. bógsteikur og grillsteik-
ur, osso bucco og rifjasteikur.
Talaðu við fagmenn okkar.
S V í N
1/4 svín 15 kg á 399.- kr./kg
aðeins kr. 5.985.-
Innifalið í verði: Fullur frágangur á kjötinu, t.d. bógsteik
- lærið tekið i Bajone skinku - hryggur í kóteiettur eða
hamborgarhrygg - hnakki úrbeinaður ísneiðar, tilvaldar á
grillið, síðan í bacon. Þetta kjöt er toppurinn í dag. Napol-
on stofninn frá Akureyri - rómaður fyrir gæði
PantiÖ tfmanlega.