Morgunblaðið - 21.04.1988, Qupperneq 48
MORGHNPLAÐIÐ, HMMTUDAGUB 2J. APRÍL; 1988
48
o
Músíktilraunir Tónabæjar:
Þrjár hljómsveitir áfram
Annað kvöld Músíktilrauna
Tónabæjar og Bylgjunnar var
haldið síðasta fimmtudagskvöld,
14. aprfl, samkvæmt áætlun. Þetta
kvöld voru sveitirnar átta sem
fram komu og heltist engin úr
leik eins og fímmtudaginn þar á
undan.
Síðan skein sól var gestasveit
kvöldsins og fórst það vel úr hendi.
Þegar Helgi og félagar höfðu lokið
leik sinum sté fyrsta tilraunasveitin
á svið, Selfosssveitin Astró. Söngvari
sveitarinnar er ekki ýkja raddmikill,
en komst þó vel frá sínu og gítarleik-
arinn er vel efnilegur. Aðrir sveitar-
meðlimir stóðu sig lakar og sérstak-
lega féll hljómborðsleikarinn illa inn
í lög sveitarinnar og var sem úti á
þekju á köflum.
Pandóra úr Keflavík var næst á
svið og flutti öllu þyngri tónlist, enda
stærir sveitin sig af að hún leiki
gamaldags rokk. Það mátti og heyra
að sveitin vísar til sveita á við Deep
Purple, Led Zeppelin og Uriah Heep,
en nokkuð skorti á frumleika og flest
voru lögin stefnulaus, þrátt fyrir góð
tilþrif gftar- og trommuleikara. Text-
ar voru á ensku; dæmigerðir rokk-
bulltextar.
Á eftir Pandóru kom önnur Suður-
nesjasveit, Útúrdúr, sem státaði af
einu söngkonu tilraunanna. Sú hafði
bjarta rödd þó ekki tækist henni að
nýta hana sem skyldi, enda hljóm-
sveitin ekki nægilega þétt og ákveð-
in þó hún sé efnileg.
Þriðja Suðumesjasveitin var næst
á svið, Skóp frá Sandgerði. Skóp tók
þátt ( síðustu tilraunum, en þá skorti
nokkuð á að sveitin væri frkmbærileg
og enn má betur gera. Sveitarmeð-
limir hafa þó sýnt mikla framför
síðan síðast, en óöryggi háir Skóp
enn sem komið er.
Katla kalda kom næst á svið og
vakti fas og klæðaburður athygli,
þá sérstaklega rauður plastjakki eins
Ljósmynd/BS
Liðsmaður Mosa frænda í plast-
jakkanum góða.
gítarleikara sveitarinnar sem átti
áreiðanlega mikinn þátt í því að
hljómsveitin komst áfram. Tónlistin
var létt popp með tvíræðum textum
og vakti mikla lukku.
Túrbó úr Borgamesi var næst,
framúrskarandi þétt sveit sem keyrði
lög sín í gegn með litlum sem engum
hléum. Textar sveitarinnar vom góð-
ir íslenskir textar og tónlistin var
rokk í þyngri kantinum.
Plastgeir og Geithildur kom næst
á svið, önnur tveggja hljómsveita í
þessum tilraunum sem koma frá
Akranesi og eins og hin, Tregabland-
in lífsgleði, til komin eftir að Óþekkt
andlit, sem komst ( úrslit síðustu til-
rauna, gaf upp öndina. Pétur Þórðar-
son, sem söng og lék á gítar með
Tregablandinni lífsgleði, kom óvænt
fram sem söngvari með Plastgeir og
Geithildi og sýndi á sér áður óþekkta
hlið sem líflegur sviðsmaður. Tónlist-
in var rokk að hætti Óþekktra and-
lita, en þó heldur hrárra. Textamir
Ljósmynd/BS
Útúrdúr
voru skemmtilega hæðnir ádeilutext-
ar, en líklega full þungir fyrir þann
aldurshóp sem á hlýddi.
Jójó var síðust á svið, en sveitin
komst í úrslit síðustu tilrauna, þá
undir nafninu Rocky, en kom nú fram
að viðbættum einum gítarleikara.
Sveitin var vel þétt og hafði erindi
sem erfiði með galsapopp sitt; þar
fremst útihátíðarlag sem ætti að
ganga vel í sumar. Jójómenn voru í
einkennisbúningum og fjörugir á
sviðinu, sem allt er til þess fallið að
komast áfram.
Sigurvegari þetta tilraunakvöldið
var Jójó, með nokkrum yfirburðum,
Katla kalda náði öðru sæti en Túrbó
varð i því þriðja. Dómnefnd var ásátt
um það að Túrbó ætti fullt erindi í
úrslit og ákvað þvf að hún kæmist
áfram með hinum tveimur.
í kvöld verður lokakvöld undanúr-
slitanna og annað kvöld er svo sjálft
úrslitakvöldið.
BS/Árni Matthfasson
Ljósmynd/BS
Sólskin í Lækjartungli
Sfðan skein sól kom fram á
sjónarsviðið fyrir ári og var all
áberandi í tónleikalifi Reyk-
vfkinga fram á sumar. Þá lagð-
ist sveitin f dá og segja má að
ekkert hafi heyrst frá henni þar
tfl hún var endurreist með nýjum
trommuleikara f janúar sl.
Nú hyggur sveitin á tónleika í
Lækjartungli í kvöld með gesta-
sveit og framundan er plötugerð
meðal annars. Rokksfðuútsendari
leitaði til sveitarmanna þar sem
þeir voru við æfingar í kjallara við
Grettisgötu til að fræðast um
framtíð Síðan skein sól.
Fyrir ári ræddi ég við ykkur
og þá voru gefnar yfirlýsingar
um að framundan værí mikið
tónleikahald og strangt. Tveim-
ur mánuðum síðar hélt sveitin
sína sfðustu tónleika. Endurtek-
ur sagan sig?
Það sem gerðist á síðasta ári var
það að menn festust í hinum og
þessum störfum, enda eru íslend-
ingar því marki brenndir að geta
ekki látið sér nægja að vera bara
í einu eða tvennu. Svo komu sum-
arfrí inn í þetta og það sem þeim
tengist og við tókum því þá ákvörð-
un að láta sumarið eiga sig úr þvf
sem komið var. Við ætlum okkur
ekki að gefa neinar yfirlýsingar
um það hvað verður úr þessu
sumri, enda er allt óráðið með það.
Við viljum þó taka það fram að
það er langtífrá að tónleikamir í
kvöld verði síðustu tónleikar okkar.
Þó erum við á nokkrum krossgötum
hvað tónleikahald varðar, enda er-
um við í samningastússi um plötu-
útgáfu og framhaldið ræðst nokkuð
af því hvemig þau mál þróast.
Helst vildum við gefa út tólftommu
í júm' og fylgja henni vel á eftir
með tónleikahaldi um allt land, en
það kemst ekki á hreint fyrr en
um mánaðamótin.
Þegar sveitin var endurreist
f janúar var tónleikadagskráin
sú sama og þegar hætt var f
miðju kafí á sfðasta árí. Hefur
eitthvað bæst við?
Já, við emm alltaf að bæta við
og nú eru fjögur lög á dagskránni
frá því f fyira. Það er nóg að ger-
ast og nóg af öllu.
Hver er draumurinn?
Þetta er náttúrulega engin
bílskúrsrómantík, við emm lausir
við allt slíkt. Það er að vísu gaman
að koma héma og æfa, en þegar
maður er búinn að vera tvær til
þijár vikur að æfa án þess að gera
neitt þá fer maður yfimm. Það er
þvf draumurinn að ná til sem
flestra, að selja sem flestar plötur
og að fá sem flesta á tónleika.
Menn dreymir annars um ýmislegt
og það hafa allir rosalegan metnað
í sveitinni: Jakob vill verða heims-
frægur, Helgi vil komast til Holly-
wood, Eyjó vill slá í gegn í Japan
og Ingólfiir vill gefa út ljóðabók.
Við sættum okkur ekki við neitt
minna en að þessir draumar rætist.
Viðtal: Árni Matthíasson.
Einkennisklæddir Jójósveinar.
Ljósmynd/BS
Pandóra
Ljósmynd/BS
Skóp Ljósmynd/BS
Borgnesingar f Túrbó.
Ljósmynd/BS
Astró Ljósmynd/BS