Morgunblaðið - 21.04.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍ1) 1988
53
gamla kunningja, sem fagna manni,
og vekja bjartar og hugljúfar minn-
ingar.
Margrét fluttist með foreldrum
sínum frá Vík, haustið 1926, en þá
hafði Þorsteinn rekið þar verslun á
annan áratug, en hóf síðan verslun
í Reykjavík, á Laugavegi 52 og þar
var einnig heimili fjölskyldunnar,
eftir að hún flutti suður. Þar starf-
aði Margrét við verslun föður síns
(verslunina Vík) en einnig starfaði
hún á heimili foreldra sinna og var
önnur hönd móður sinnar við heimil-
isstörfin. Öll störf léku í höndum
hennar. Hógværð, ljúflyndi og glað-
værð einkenndi alla hennar fram-
komu, samfara festu og tryggð við
æskustöðvar og foma vini.
Eftir lát foreldra sinna rak
Margrét sína eigin verslun, meðan
heilsa hennar leyfði. Hlýlegt viðmót
og heiðarleiki einkenndi öll störf
hennar og hvarvetna vakti hún
traust og virðingu.
Að eðlisfari var Margrét fremur
hlédræg, en tók þó nokkum þátt í
félagslífi, einkum í kvenfélagi
Fríkirkjusafnaðarins og Góðtempl-
arareglunni. Hún hafði mikið yndi
af ferðalögum og ferðaðist allmikið
hin síðari ár, bæði innanlands og
utan. Hún fór margar ferðir til út-
landa, og tók þar vel eftir öllu, sem
fyrir augun bar og kunni góð skil
á merkisstöðum og menningarverð-
mætum þeirra landa, er hún ferðað-
ist til og þótti jafnan hinn besti
ferðafélagi.
Eg var svo lánsamur, að fá að
búa hjá foreldrum Margrétar á
skólaárum mínum hér í Reykjavík,
og böm þeirra vom mér sem systk-
ini. Oft var glatt á hjalla á Lauga-
vegi 52, í þá daga, þó að sam-
fundum hafi fækkað hin síðari ár.
Margrét var elstu 6 systkina, en
nú er Ólafur, fyrrum sjúkrahús-
læknir í Siglufirði, einn eftir. Öll
hafa systkinin skilað farsælu dags-
verki, og þegar hugsað er um
Margréti alveg sérstaklega, þá naut
hún mikils ástríkis frændbama
sinna og virðingar allra, sem hana
þekktu, því það óx alltaf eitthvað
gott í sporum hennar.
Það fylgir því alltaf söknuður að
kveðja góða vini og samferðamenn,
en þar má enginn sköpum renna. I
helgri bók segir: „Og eins og það
liggur fyrir mönnunum eitt sinn að
deyja, en eftir það kemur dómur-
inn.“ (Hebr.9.27) Þeim dómi þarf
Margrét ekki að kvíða. Og víst mun
henni verða fagnað af foreldrum
og systkinum, sem á undan henni
em gengin.
„Þar sem góðir menn fara em
Guðs vegir," svo sagði norska
skáldið Bjömstjema Bjömsson og
þannig vil ég að lokum hugsa til
Margrétar Þorsteinsdóttur og
blessa minningu hennar.
Óskar J. Þorláksson
Á morgun, föstudag, verður til
moldar borin Margrét Þorsteins-
dóttir sem lengi var kaupkona í
verzluninni Vík á Laugavegi 52.
Margrét fæddist í Vík í Mýrdal
fyrir 84 ámm, 6. janúar 1904. Hún
var af myndar- og mannskapsfólki
komin. Faðir hennar var Þorsteinn
Þorsteinsson frá Neðradal í Mýr-
dal, verzlunarstjóri og kaupmaður
í Vík. Hann var afkomandi Þor-
steins Steingrímssonar, bróður Jóns
eldprests. Móðir Margrétar var
Helga Ólafsdóttir frá Sumarliðabæ
í Holtum, eitt kunnara systkina
þaðan, en meðal bræðra hennar
vom Gunnar Ólafsson í Vestmanna-
eyjum, Jón í Alliance og síðast
bankastjóri og Bogi menntaskóla-
kennari.
Þorsteinn, faðir Margrétar, tók
við verzluninni í Vík í Mýrdal af
Gunnar mági sínum þegar hann
flutti til Vestmannaeyja. Margrét
var elst systkina sinna, en hin vom
Ása, er síðár giftist Jóni Gunnars-
syni í Hamri, Ólafur Þ. yfirlæknir
á Siglufírði, giftur Kristine Þor-
steinsson, Baldur kaupmaður, gift-
ur Fjólu Jónsdóttur, og Hrefna
kennari, gift Þóri Jónssyni fiðluleik-
ara. Öll em þessi systkini nú látin
nema Ólafur.
Systkinahópur þessi ólst upp í
Vík í Mýrdal. Árið 1926 seldi Þor-
steinn kaupfélaginu verzlun sína
og fluttist til Reykjavíkur. Settist
fjölskyldan að á Laugavegi 52 og
stofnaði Þorsteinn þar vefnaðar-
vömverzlun og kallaði Vík.
Margrét giftist ekki en starfaði
við verzlun föður síns um skeið en
hóf síðan sjálfstæðan verzlunar-
rekstur. Margrét taldi sig aldrei
hafa haft ánægju af viðskiptum,
enda safnaði hún ekki veraldlegum
auði. Atvikin höguðu því einungis
svo að þetta varð hennar ævistarf,
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORBJÖRN SIGURÐSSON,
verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju laugardaginn 23. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minn-
ast hans er bent á hjúkrunarheimiliö Skjólgarð og Slysavarnafélag
íslands.
Ágústa Margrét Vignisdóttir,
Sigurbergur, Vignir, Olafur Björn,
Örn Þór, Ágúst Hilmar, Guðjón Hermann,
tengdadætur og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ERLENDUR SIGURJÓNSSON,
Vfðivöllum 2,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 23. april
kl. 11.00.
Erla Erlendsdóttir, Árni Guðmundsson,
Gfsli Erlendsson, Jónfna Hjartardóttir,
Jóhannes Erlendsson, Auðbjörg Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall sonar okkar og
bróður,
GUNNARS ÞORKELS JÓNSSONAR,
Slóttahrauni 28,
Hafnarfirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurlaug R. Guðmundsdóttir, Þórey Jónsdóttir,
Sigrún Guðjohnsen, Guðrún Guðjohnsen,
Jón Hreiðar Hansson, Kristbjörg Jónsdóttir,
Sigríður Bylgja GuðmundsdóttirGuðbjörg Guðmundsdóttir.
ásamt með umfangsmiklum heimil-
isrekstri.
Helga, móðir Margrétar, lést árið
1943. Þá tók Margrét við hússtjórn
hjá föður sínum og sá um heimili
þeirra þar til hann lést háaldraður.
Einnig voru í sambýli með Mar-
gréti systir hennar, Hrefna, ásamt
manni sínum, Þóri, og var hún þeim
stoð og stytta til dauðadags.
Fyrir um áratug síðan hætti
Margrét verzlunarrekstri og fluttist
í Sólheima 23. Þar bjó hún til ævi-
loka.
Fyrir nokkrum árum varð Mar-
grét fyrir því áfalli að lærbrotna,
greri brotið illa og bagaði hana upp
frá því. Margrét bar fötlun sína
með reisn og skapfestu.
Margrét hafði mikið yndi af
ferðalögum og gerði víðreist innan-
lands og utan. Sýndi hún háöldruð
og fötluð bæði þrautseigju og kjark
á ferðalögunum.
Nokkrar vikur undanfarin sumur
dvaldi Margrét á heimili okkar. Hún
var áhægjulegur gestur, viðræðu-
góð, stórfróð og bráðgreind.
Nú er þessi merka kona öll. Hun
varði lífí sínu öðrum til umönnunar
af fómfysi og skyldurækni, ætlaðist
enda aldrei til endurgjalds. Hún
kemur til með að lifa í endurminn-
ingu samferðafólk síns sem grand-
vör heiðurskona.
Útför hennar fer fram frá Lang-
holtskirkju klukkan 15 á morgun,
föstudag.
Páll Pétursson
t
Móðir min og tengdamóðir,
GUNNHILDUR ODDSDÓTTIR
frá Neskaupstað,
til heimilis Vallartúni 1,
Keflavík,
. verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 23. apríl
kl. 14.00.
Guðrún Ármannsdóttir, Ásgeir Sigurðsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jaröarför systur
okkar og mágkonu,
SESSEUU Gl'SLADÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á geisladeild og deild 11-B,
Landspítalanum, fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar.
Sigurlaug Gisladóttir,
Sigríður Gisladóttir,
Guðrún Gísladóttir,
Halldóra Gisladóttir,
Kristmann Jónsson,
Sveinbjörn Jóhannesson,
Þórólfur Egilsson,
Kristján Ebenezerson.
t
Þökkum innilega auðsýnda vináttu og samúð í veikindum og við
andlát og jarðarför
ÞÓRHALLS GUÐMUNDSSONAR
frá Dæli.
Guðmundur Þórhallsson, Áslaug Freysteinsdóttir,
Kristján Þórhallsson, Þórgunnur Ásgrímsdóttir,
Aðalheiður Þórhallsdóttir, Alfreð Þórsson
og barnabörn.
msi
mm
i-- _
m
wm
R.v.w*'
TOLUVERT URVAL
húsgögn
Opið laugardag
frá kl. 10-16
ÁRMÚLA 44. SÍMI 32035