Morgunblaðið - 21.04.1988, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1988
67
fcfÍKHR
FOI_K
■ STUÐNINGSMENN Hauka
léku stórt hlutverk í sigri liðsins á
Njarðvíkingum í úrslitaleik ís-
landsmótsins í körfuknattleik og
þar með fyrsta íslandsmeistaratitli
Hauka. Áhangendur liðsins fóru til
Njarðvíkur og Keflavíkur og
keyptu upp alla þokulúðra sem
fengust í bænum. Þeir keyptu einn-
ig ijölda þokulúðra í Reylgavík.
Skyggni var þó ágætt! En áhang-
endur Hauka mættu snemma á
leikinn, með fjölda lúðra sem voru
þeyttir allan leikinn.
■ BREWABLIK hefur líklega
fagnað sigri Hauka á UMFN.
Breiðblik vann nefnilega aðeins
einn leik og það lítur óneitanlega
betur út að sá leikur var gegn sjálf-
um íslandsmeisturunum, Haukum.
■ HELGI Bentsson er nú kom-
inn hringinn í félagsskiptum. Hann
byijaði með Breiðabliki og hefur
síðan verið í herbúðum Víðis, ÍBK,
Þórs, og ÍA. Hann skipti í Víking
í vor, en nú virðist hann vera kom-
inn hringinn því hann mætti á æf-
ingu hjá gömlu félögum sínum hjá
Breiðabliki.
■ ÍSLENSKAR getraunir fara
ekki í verkfall um helgina, en marg-
ir hafa spurt að því síðustu daga.
Á skrifstofu getrauna er aðeins einn
starfsmaður úr VR og skrifstofan
verður opin. Þess má geta að pott-
urinn er tvöfaldur.
■ RÖGNVALDUR D. Ingþórs-
son frá ísafirði sigraði í tvíkeppni
á landsmótinu á skfðum á Akur-
eyri um síðustu helgi, en ekki Bald-
ur Hermannsson frá Siglufirði.
Rögnvaldur vann því þrefalt, 15
km. göngu, tvíkeppni og var í sigur-
sveit ísfirðinga, sem hlutu alls 11
gullverðlaun á mótinu.
■ PETER Withe sem lék með
enska landsliðinu og Aston Villa
fyrir nokkrum árum, hefur ákveðið
að dusta rykið af fótboltaskónum
og leika með Sheffield United í
2. deildinni á Englandi. Withe mun
leika tvo síðustu leikina með
Sheffield, en liðið er í botnbarát-
tunni.
■ PERU hefur nú mikinn áhuga
á að fá Tele Santana, fyrrum
landsliðsþjálfara Brasilíu, sem
landsliðsþjálfara. Forráðamenn
Peru vilja að Santana stjómi lands-
liði landsins í næstu heimsmeistara-
keppni. Santana, sem þjálfara
brasilíska félagsliðið Atletico Mi-
neiro, segist einnig hafa fengið til-
boð að þjálfa landslið Saudi-
Arabíu.
■ EÞÍÓPÍUMENN bafa enn
ekki ákveðið hvort þeir verði með
á Ólympíuleikunum í Seoul í sum-
ar. „Keppnismenn okkar verða til-
búnir ef að Suður-Korea og Norð-
ur-Kórea komast að samkomu-
lagi," sagði Nigussia Roba þjálfari
landsliðs Eþíópíu í ftjálsum íþrótt-
um.
KNATTSPYRNA
Víkingar í
undanúrslit
Víkingar tryggðu sér sæti í
undanúrslitum Reykjavík-
urmótsins í knattspymu með
sigri á Fylki í gær, 5:2, á gervi-
grasvellinum í Laugardal.
Víkingar höfnuðu í 2. sæti í
A-riðli og mæta efsta lið B-
riðils, Fram, á laugardaginn kl.
15, en í hinum undanúrslita-
leiknum mætast Valur og KR á
morgun kl. 20.30.
KNATTSPYRNA
Standard Liege sýnir
Halldóri Áskelssyni áhuga
Félagið vildi fá hann utan í aefingaleik á þriðjudaginn. „Njósnari" frá Standard fylgist með
Halldóri í Ólympíuleiknum gegn Hollandi í næstu viku
Halldór Áskalsson
HALLDÓR Áskelsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu úr
Þór á Akureyri, hefur fengið
enn eitt tilboðið um að koma
utan til atvinnuliðs. Nú eru
það forráðamenn belgíska 1.
deildarliðsins Standard Liege
sem sýna honum áhuga.
Haft var samband við Halldór,
hann beðinn um að koma
utan strax um næstu helgi og
leika með Standard á þriðjudaginn
— æfíngaleik gegn liði úr þriðju
deild. „Eg átti svo að fara heim
strax á miðvikudeginum — með
tilboð upp á vasann, ef þeir hefðu
enn áhuga eftir þennan æfínga-
leik. En ég get þetta auðvitað
ekki þar sem ég fer með Ólympíu-
landsliðinu til Hollands á sunnu-
daginn. Við leikum þar á miðviku-
dag, og mér var sagt að „njósn-
ari“ frá Standard kæmi væntan-
lega þangað til að fylgjast með
mér í leiknum gegn Hollending-
um,“ sagði Halldór f samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Teitur Þórðarson, þjálfari norska
félagsins Brann, vildi fyrr í vetur
fá Halldór til liðsins, en hann
neitaði tilboðinu. Þegar Þórsarar
fóru í æfinga- og keppnisferð til
Belgíu á dögunum sýndu svo forr-
áðamenn Lokeren áhuga á að
næla í Halldór, en hann ákvað að
leika með Þór í sumar. Halldór
sagðist í gær enn ekkert hafa
hugleitt þennan möguleika, sem
Standard væri. Þetta væri það
nýtilkomið. Gengi Standard-liðs-
ins hefur verið upp og ofan í vet-
ur; liðið er nú um miðja deild.
Félagið keypti framheijann M’Bu-
yu frá Lokeren í vetur og vantar
ieikmann með honum í framlín-
una, vinstra megin.
Einn íslenskur leikmaður hefur
sem kunnugt er leikið með Stand-
ard Liege, Ásgeir Sigurvinsson,
sem var hjá félaginu við frábæran
orðstír á árunum 1973-1981.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNIN
Niðurlend
ingar á
uppieið!
PSV Eindhoven og Benfica leika til úrslita í
Evrópukeppni meistaraliða
NÚ virðist vera að renna upp
önnur gullöld í knattspyrnu á
Niðurlöndunum Hollandi og
Belgíu. Af sex liðum sem leika
til úrslita í Evrópumótunum eru
þrjú frá þessum löndum, Ajax
og PSV Eindhoven frá Hollandi
og Mechelen frá Belgíu. Annað
lið frá Belgíu, Club Brugge, fóll
út eftir framlengdan leik. Sann-
arlega athygliverður árangur
og allt bendir til þess að Niður-
lendingar sáu á uppleið að
nýju.
PSV Eindhoven varð í gær
fyrsta hollenska liðið í 15 ár
til að tiyggja sér sæti í úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða í knatt-
spymu. Markalaust jafntefli gegn
Real Madrid kom Eindhoven áfram;
á marki sem liðið skoraði á útivelli
í fyrri leik liðanna.
Þrátt fyrir að bæði iiðin séu þekkt
fyrir sóknarknattspymu var það
sterk vöm PSV Eindhoven sem réði
úrslitum. Eindhoven lék reyndar án
Ronald Koeman sem var dæmdur
í eins leiks bann.
Real Madrid fékk mörg góð færi.
Hans van Breukelen, markvörður
PSV varði glæsilega hjólhesta-
spymu frá Hugo Sanchez og skalla
frá Butragueno rétt fyrir leikslok.
Þá áttu Michel og Gallego góð skot
framhjá og Sanchez fór illa með
góð færi. En PSV fekk einnig góð
færi, einkum þó í síðari hálfleik.
Þá átti Sören Lerby skot í stöng
og skömmu síðar frábæra sendingu
á Gerald Vanenburg sem skaut
framhjá í dauðafæri.
Eftir því sem lengra leið á leikinn
óx örvænting leikmanna Real
Madrid, en vöm Eindhoven var föst
fyrir og markakóngamir hollensku
eru því komnir í úrslitaleik Evrópu-
keppni meistaraliða.
Aguas kom Benfica áfram
Rui Aguas var hetja Benfíca sem
tryggði sér sæti í úrslitaleik Evr-
ópukeppni meistaraliða, gegn PSV
Eindhoven, með sigri á Steua Búk-
arest, 2:0. Aguas skoraði bæði
mörk Benfica með skalla í fyrri
hálfleik. Mörkin komu eftir laglegar
sóknir Benfíca sem er nú komið í
úrslitaleik Evrópukeppninnar í
fyrsta sinn í 20 áir.
Leikurinn var hin besta skemmtun
fyrir 120.000 áhorfendur og mörk
Benfica neyddu Steua til að leggja
allt í sóknina. Leikmönnum Steua
tókst þó ekki að nýta færi sín frek-
ar en í fyrri leiknum.
Ajax aldrel í hættu
Ajax komst auðveldlega í úrslita-
leikinn í Evrópukeppni bikarhafa,
en liðið sigraði S keppninni í fyrra.
Ajax mætti Marseille og hafði
þriggja marka forskot úr fyrri leikn-
um og komst því auðveldlega
áfram, þrátt fyrir að hafa tapað í
gær, 1:2.
Ajax skoraði þó fyrsta markið og
það var Svíinn Peter Larsson sem
var þar að verki. Ajax sótti svo
mun meira og Boosman, Larsson
og Miihren fengu allir góð færi án
þess að skora. Það var því gegn
gangi leiksins er Jean-Pierre Papin
jafnaði fyrir Marseille og 65.
mínútu.
Síðustu mínútumar lék Marseille
með fímm framheija, en uppskar
aðeins eitt mark. Klaus Allofs skor-
aði beint úr aukaspymu af 20 metra
færi á síðutu mínútu leiksins.
Mechelen frá Belgíu sigraði Atal-
anta frá Ítalíu 1:2 og kom þannig
í veg fyrir að ítalska liðið kæmist
á spjöld sögunnar sem fyrsta liðið
úr 2. deild sem léki til úrslita í
Evrópukeppni.
Það byijaði reyndar vel hjá Atal-
anta sem skoraði fyrsta mark leiks-
ins, sem hefði nægt þeim til sigurs.
en tvö mörk frá Mechelen í síðari
hálfleik gerðu draum ítalanna að
engu.
Framlangt í Barcalona
„Litla liðið“ í Barcelöna, Espanol,
tryggði sér sæti í úrslitaleik
UEFA-bikarsins með sigri á Club
Brugge frá Belgíu, 3:0 eftir fram-
lengdan leik.
Fyrri leiknum lauk með sigri
Leikmenn Elndhoven fögnuðu f gærkvöldi. Þeir eru komnir í fyrsta skipti
í úrslit í Evrópukeppni meistaraliða.
Brugge, 2:0, en Espanol vann þann
mun upp með mörkum frá Orejuela
og Losada og það var svo Alonso
sem tryggði Espanol sæti í úrslita-
leiknum með marki í framlenging-
unni.
Efsta lið v-þýsku úrvalsdeildarinn-
ar, Werder Bremen, náði sér ekki
á strik gegn Bayer Leverkusen.
Bayer sigraði í fyiri leiknum, 1:0,
en leiknum í gær lauk með marka-
lausu jafntefli.
Leikurinn var dapur og Bremen,
sem lék án Frank Neubart, náði
aldrei að opna vöm Leverkusen.
Þetta var 14. leikur Leverkusen í
Evrópukeppni, en liðið hefur enn
ekki tapað. Fyrir þennan sigur
fengu allir leikmenn liðsins um
460.000 fsl, kr. hver.
Það verða því PSV Eindhoven og
Benfica sem leika til úrslita í Evr-
ópukeppni meistaraliða í Stuttgart,
Ajax og Mechelen í Evrópukeppni
bikarhafa í Strasbourg. Bayer Le-
verkusen og Espanol leika til úrslita
í UEFA-bikamum, heima og heim-
an.
Evrópumótin í knattspymu
Evrópukoppn! meistarallöa:
PSV Eindhoven (Hollandi) - Real Madrid (Spáni).0:0 (1:1)
Áhorfendur: 26.500.
Benfica (Portúgal) - Steua Bukarest (Rúmeníu).2:0 (2:0)
Rui Aguas (22. og 33.)
Áhorfendur: 120.000.
EvrÖDukoDDnl blkarhafa:
Atalanta (ítalfu) - Mechelen (Belgíu)........1:2 (2:4)
Oliviero Garlini (39.) - Graeme Rutjes (56), Marc Emmers (80.)
Áhorfendur: 40.000.
Ajax (Hollandi) - Marseille (Frakklandi).......1:2 (4:2)
Peter Larsson (22.) — Jean-Pierre Papin (65.), Klaus AJlofs (90.)
Áhorfendur: 42.000.
UEFA-bikarlnn:
Espanol (Spáni) - Club Brugge (Belgiu).........3:0 (3:2)
Diego Orejuele (10.), Sebastian Losada (62.), Pichi Alonso (119.)
Áhorfendur: 43.000.
W. Bremen (V-Þýskal.) - B. Leverkusen (V-Þýskal.).0:0 (0:1)
Áhorfendur: 30.000