Morgunblaðið - 29.05.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 29.05.1988, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 SAFN ÍEINKAEIGU Morgunblaðið/BAR Vélaverkstæði J. Hinrikssonar fékk verðlaun frá umhverfis- málaráði Reykjavíkur 1983. Jósafat Hinriksson f væntanlegum sýningarsal. Morgunblaðið/BA.R Sjóminja- og vélsmiðjumunasafn J. Hinrikssonar í Súðarvoginum Margir telja dugnað og framtak einstaklinga vera það sem helst skapi auð og velsæld. Mest hefur borið á einkafr amtakinu í atvinnulífi landsmanna. Einkaf ramtakið hefur einnig látið til sín taka í menningarmálum en þó fer ekki hjá þvi að margháttað menningarstarf sé háð „skilningi og velvilja ríkisvaldsins“, t.d. eru flest stærri söfn landsmanna rekin af opinberum aðilum. Nú er verið að koma á fót safni í Súðarvoginum sem verður að teljast einkaframtak. Jósafat Hinriksson vélsmiðjuiðnrekandi, vélsfjóri og fyrrum sjómaður ætlar að opna sjóminja- og vélsmiðjumunasafn síðar í sumar. Jósafat Hinriksson er fæddur í Reykjavík árið 1924. Flutt- ist á unga aldri með foreld- rum sínum til Neskaupstaðar og ólst þar upp. Vélstjórapróf tók hann 1952. Hann var vélstjóri á fiskibátum og togurunum Goðanesi og Neptúnusi til 1962, en þá stofn- setti hann eigið vélaverkstæði. Fljótlega hóf Jósafat framleiðslu á toghlerum og togblokkum þeim sem hann og fyrirtæki hans eru hvað þekktust fyrir. Bróðurparturinn af hagnaði fyrirtækisins er af sölu toghleranna til innlendra og er- lendra fiskiskipa. Morgunblaðinu barst njósn af því úr viðskiptalífínu að Jósfat hefði varið nokkru fé til að útbúa minja- safn. Þetta tiltæki verður að teljast óvanlegt í hæsta máta. Blm. Morg- unblaðsins brá sér í Súðarvoginn til að rannsaka þetta mál nánar. Hætti að henda Strax vekur Vélaverkstæði Jósa- fats Hinrikssonar eftirtekt. Hlið, byggingar og lóð fyrirtækisins eru skreytt ýmsum munum sem tengj- ast skipum, sjósókn og vélsmiðju- rekstri. Fyrirtækið fékk verðlaun frá umhverfísmálaráði árið 1983. Jósafat var krafínn sagna um safnabyggingu fyrirtækisins. Hann staðfesti að heimildarmenn Morg- unblaðsins færu með rétt mál; J. Hinriksson hf. er nú um þessar mundir að innrétta sýningarsal og hyggst opna safnið almenningi síðar á þessu sumri. Áformað er að í safninu verði m.a. til sýnis; gömul eld- og vél- smiðjuverkfæri; gamlir bátamótor- ar; gufuvélar og gufuknúin tæki; sjókortasafn og myndasafn tengt sjávarútvegi; veiðitækjasafn; líkön af skútum og skipum. Jósafat tjáði Morgunblaðinu að í gegnum tíðina hefðu margir og eigulegir gripir rekið á sínar fjörur, jámsmíðaverkfæri og ótal hlutir tengdir sjávarútvegi. í kringum 1980 varð honum ljóst, að ekki kæmi til greina að henda þessum hlutum eða „drasli" sem sumir vildu kalla. „Ég hætti alveg að henda og fór að hirða." Kollegar og vinir, skipstjórar, útgerðarmenn og véistjórar fréttu af þessum söfnunaráhuga. „Þeir voru og eru alltaf að fmna eitthvað og hafa haldið því til haga og látið mig fá margan góðan gripinn." Háleit hugsjón Gripir bættust stöðugt í safnið en hvað átti að gera við þá? Láta þá liggja á gólfinu? Þessarar spum- ingar og fleiri sóttu að Jósafati þegar hann gékk um vélaverkstæði sitt. Hugur og augu reikuðu frá því jarðbundna upp _á við. — Svarið lá í augum uppi. í vélsmiðjunni var hátt til lofts, 10 metrar. Þetta rými nýttist engan veginn. — Og vom ekki nokkur tonn af stálbitum fyrir utan sem ekki hafði tekist að koma í lóg. Málið lá ljóst fyrir; byggja nýja hæð. — Og það var gert. Nú er verið að innrétta 350 fermetra sýningarsal yfír vélsmiðjusalnum í norðurenda byggingarinnar. Jósafat hefur nú sótt um leyfi til að byggja viðbyggingu við vél- smiðju sína, 10-12 metra háan tum, áttkantaðan, til að aðgangur að sýningarsalnum verði sem greiðast- ur. í júnímánuði 1986 lét Jósafat þau boð út ganga meðal útgerðarmanna og vélsmiðjueigenda að stofnun Sjó- minja- og vélsmiðjusafnsins stseði fyrir dyrum og fór þess á leit að þau létu af af hendi þá gripi sem þeir mættu missa. Undirtektir hafa verið mjög góðar. „Menn eru alltaf að fínna eitthvað. Útgerðarmenn hugsa til mín þegar þeir fínna eitt- hvað eða ætla að henda einhveiju. Fyrirtæki hafa hringt í mig áðuren „hreingemingin" fer fram. Fyrir nokkmm vikum hringdi maður frá Vestmannaeyjum og sagðist ætla að senda mér gamlan kompáss. Hann hafði meira að segja fögur orð um að ég fengi spírann í gripnum líka.“ Jósafat fylgdi blaðamanni um fyrirtæki sitt og sýndi honum ýmsa þá gömlu gripi sem honum höfðu áskotnast, t.a.m. vélsíma (telegröf), aflmæli fyrir dísel-vélar (indíkator), sveifarássveigumæla sem gamall vélstjóri gaf, stýrisvél, þokulúður og gufudekkspil sem stillt er upp á Ióð fyrirtækisins. Jósafat var inntur eftir því hvar gufuvélinværi.„Því miður farin forgörðum. Mig langar Jósafat hefur eignast marga góða gripi. Fyrir miðju er vélsími og fyrir framan hann og Morgunbiaðia/BAR til hægri eru sveifarássveigumælar. Lengst til hægri er aflmælir fyrir díesel-vélar. Josfat hættir aldrei að safna skipalíkönum. Þetta er af norskum línubát.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.