Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 B 27 dollara til að leika sér með í „Ish- tar". Hvernig fá annars leikstjórar sem misstíga sig gróflega alltaf annað tækifæri? Auðvelt. Hver vill ekki vera í félagsskap dáðra kvik- myndagerðarmanna? Vera í sam- floti með snillingum? Martin Scor- sese passar hér inní. Og Francis Coppola. Og Roman Polanski. Og sá vandaði David Lean. Og sá sér- lundaði David Lynch. Allir hafa þeir fengið skell: „The King of Comedy" eftir Scorsese kostaði 19 millj. en fékk aðeins 2,5. Copp- ola tapaði gríðarlega á „One From the Heart", Polanski á „Pirates", Lean á „Ryan's Daughter", Lynch á „Dune". Allir komu þeir þó aftur með metnaðarfullar hugmyndir og peninga til að framkvæma þær. En jafnvel þessir fá ekki alltaf að gera myndirnar sem þá langar til að gera. Scorsese reyndi af og til í fjölda ára að fá peninga til aðgera „The Last Temptation of Christ" (sem loksins var tekin í Marokkó á síðasta ári og mun koma í bíóhúsin í haust). Coppola tilkynnti fyrst að hann ætlaði að gera„Tucker“ árið 1975 en hann byrjaði ekki á henni fyrr en síðasta vor. Þetta eru sumsé kvikmynda- gerðarmenn sem fá eftir allt ekki öllu ráðið. Þeir sem fá öllu ráðið eru t.d. Stanley Kubrick og Steven Spielberg — Spielberg vegna þess að hann hefur gert svo margar metsölumyndir og Kubrick vegna þess að gagnrýnendur dýrka hann og myndum hans hefur einnig vegnað vel peningalega. En (yfir)menn geta líka fengið sig fullsadda af skellum. Eftir þrjá smelli („What’s Up, Doc?" „The Last Picture Show" og „Paper Moon") gerði Peter Bogdanovich „Daisy Miller", skell sem bergmál- aði um víða veröld. Og honum tókst að gera tvo skelli í viðbót, „At Long Last Love" og „Nicke- lodeon". Nýjasta myndin hans, „II- legally Yours" með Rob Lowe, er eins árs en hefur ekki enn verið sett í dreifingu og hvað varðar næsta verkefni Bogdanovich þá er það ekkert. Svo eru það kvikmyndagerðar- mennirnir sem hafa fengið margar myndir útá einn einasta titil. „Sjáðu allar myndirnar sem Robert Altman fékk að gera eftir „M*A*S*H. Eina ástæðan fyrir því að hann fékk alla þessa kvikmyn- dasamninga var að menn héldu að æfintýrið endurtæki sig. Og það gerði það aldrei," er haft eftir Hollywoodstjóra sem vill ekki láta nafns síns getið. M*A*S*H kostaði þrjár millj. doilara en græddi 30 og vegna hennar fékk Altman „McCabe and Mrs. Miller og „Nashville". Gagn- rýnendur tóku þeim mjög vel, áhorfendur ekki. Og ekki minnkaði tapið eftir myndir eins og „Buffalo Bill and the Indians", „Health", „A Wedding" og „Quintet". Eins og þeir vita sem fylgjast með hefur Altman gerst mjög fráhverfur dýr- um myndum og stórum kvik- myndaverum en lagt áherslu á að setja leikrit í kvikmyndaform (sögu- sagnir eru þó uppi um gerð Nas- hville II). Sumir komast áfram með smá hjálp vina sinna eða verndarengla. Altman ýtti undir frama Alan Rud- olphs („Made in Heaven") og Caro- lyn nokkur Pfeiffer, stjórnarfor- maður kvikmyndafyrirtækisins Alive Films, hefur framleitt síðustu myndir Rudolphs sem engar hafa gert það gott. Og leikstjórinn Jam- es Foley („Who’s That Girl?“) hefur gert þrjár lítt vinsælar myndir á aðeins fjórum árum og hafa öflug- ir vinir eins og Sean Penn og Madonna þá komið sér vel. Það hefur einnig komið sér vel fyrir James Toback („The Pick-Up Art- ist") að eiga Warren Beatty að vini. Og hann hefur verið studdur af nokkrum áhrifamiklum gagnrýn- endum, til að mynda Pauline Kael. Hjónin Willard Huyck og Gloria Katz gerðu tvær hryllilegar myndir („Defence", „French Postcards") en fengu samt 35 millj. dollara til að gera mynd um önd utan úr geimnum. Af hverju? Svarið gæti legið í því að þau eru vinir George Lucas og skrifuðu með honum „American Graffiti" hér í eina tíð (einnig gerðu þau handritið að risasmellinum „Indiana Jones and the Temple of Doom"). Þá er ón- efnt að Spielberg hefur verið verndarengill fjölda leikstjóra sem gert hafa myndir í hans anda og oft eftir hans uppskrift. Má nefna Joe Dante og Chris Columbus í því sambandi. Og rétt eins og Sam Peckinpah greiddi götuna fyrir Walter Hill, hjálpaði Walter Hill Roger Spottis- woode áfram og Spottiswoode á sjálfsagt eftir að koma einhverjum á sporið. Ur American Film. Val Kilmer í „Willow". Mariel Hemingway ( Sjálfsmorðsklúbb- Lucas, hroll- vekjur og Hem- ingway-stelpa Sumarvertíð bandaríska kvikmyndaiðnaðarins er að fara í gang og má segja að hún byrji á nýjasta George Lucas-afkvæminu, „Willow". Það er æfintýra-, spennu- og brellumynd eins og búast mátti við frá Lucas, um lítið barn sem hin illa norn Bavmorda vill deyða eftir að hún sannfærist um að það muni siðar meir verða hennar bani. En góðu öflin taka í taumana og bjarga barninu. Lucas er framkvæmdastjóri myndarinnar en leikstjóri er Ron Howard. Segir i The New York Times að i myndinni megi finna áhrif frá öllum helstu æfintýrum heimsbókmenntanna og kvikmyndanna fyrr og síðar, þar með talið Stjörnustríðsmyndum Lucas sjálfs. i henni má sjá áhrif frá Mjallhvíti og dvergunum sjö, Töframanninum í Oz, Ferðum Gullivers, Mad Max, Peter Pan, Hobbit-sögunum og japönsku skrímslamyndunum frá sjötta áratugnum. Ur hryllingsmyndageiranum er það helst að frétta að Jason hefur snúið aftur. Hann hefur gert það ekki tvisvar og þrisvar eða fjórum sinnum heldur sjö sinnum. Hver er Jason? Nú auövitað hryllingurinní,,Friday the 13th“-myndunum. Mynd númer sjö var nýlega frumsýnd vestra og slæmu fréttirnar eru þær að þeir fara varla að hætta að gera þessar myndir héðan af. Önnur ný hryllingsmynd heitir „Slaugtherhouse Rock“ og er enn ein Alcatraz-myndin. Núna er ekki lengur fjallað um fangana sem gistu fangaeyna og voru alræmdustu glæpamenn Bandaríkjanna, heldur ýmislegt vont sem draugar eyjarinnar gera fólki eða hverjum öðrum eða bara áhorfendum. Mariel Hemingway hefur átt erfitt með að ná tökum á kvikmyndaleiknum í mörg ár. En hún hefur í nógu að snúast um þessar mundir. Hún leikur nú i mynd sem heitir Sjálfsmorðsklúbburinn („The Suicide Club") sem byggir á sögu eftir Robert Louis Stevenson. Þá lék hún i nýjustu mynd Blake Edwards, „Sunset", með James Garner og Bruce Willis. Og loks mun hún fljótlega sjást með Ben Cross í myndinni „Steal the Sky" sem John Hancock („Weeds") leikstýrir en hún byggir á sönnum atburðum sem ' gerðust í Israel fyrir Sex daga stríðið. Ný sjúkraþjálíunarstöð Höfum opnað sjúkraþjálfunarstöð í Héðins- húsinu, Seljavegi 2, Reykjavík. Tímapantanir í síma 62 19 16. Þorgeir Oskarsson, W lögg. sjúkraþjálfari. srswÁvicusn GesturGautiGrétarsson, lögg. sjúkraþjálfari. IÁTTU mmm RÆTAST! Hvort sem þig dreymir um að svífa í fallhlíf yfir Hollandi; þjóta á seglbrettum um Miðjarðarhaf- ið; horfa á tyrkneskar magadansmeyjar eða ferðast með Síberíuhraðlestinni höfum við réttu ferðina fyrir þig. HOLLAND Hjólað um landið þvert og endilagt; farið á nám- skeið f fallhlífarstökki eða siglingum. Helgarferðir til Amsterdam. TYRKLll Sólarlanda- og œvintýraferðir í senn. Moskur og tyrkneskir nœturklúbbar heimsóttir. MALTA Sól, sjór og seglbretti, kafað í leit að skipsflökum og neðansjávarhellum. RÚSSLAHD Ferð með hinni víðfrœgu og œvintýralegu Sfberíuhraðlest frá Helsinki til Yokohama í Japan, með viðkomu m.a. í Moskvu og Leníngrad. ÍSRREL EGYPTALAND Vikuferðir á sóguslóðir Egyptalands og ,Landsins helga'. Gist á samyrkjubúi, sögu-/\ frœgir staðir heimsóttir eða legið í sólinni. S. Ferðast frá Hong Kong. Siglt niður Li-ána, ^ tjallaborgin Chongqing og Huang Guoshu- foss skoðuð. ÓVENJULEGAR FERÐIR FYRIR VENJULEGT FÓLK! FERÐA SKRIFSTOFA STÚDENTA Hringbraut, símí 16850

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.