Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.05.1988, Blaðsíða 17
MOR&UNÖlkÐIÐ, SUNNUDAGÚR 29. MAÍ 1988 B 17 Ítalía: Látínn maður í húsi djöfla- dýrkenda Amantea, Ítalíu. Reuter. ÍTALSKA lögreglan gerði atlögn að húsi i smábæ á Suður-Ítalíu i síðustu viku þar sem djöfladýrk- endur hafa bækistöðvar sinar. Einn maður fannst látinn í hús- inu en söfnuðurinn var saman- kominn i einu herbergi í húsinu og „baðst fyrir“. Lögreglan í Calabria-héraði á- kvað að ráðast inn í húsið eftir að maður hafði komið á sjúkrahús með skotsár sem hann sagðist hafa fengið við „svarta rnessu" hjá djöfladýrkendum. Þegar lögregla kom inn í húsið fundu þeir söfnuðinn hlekkjaðan saman við „bænastund" í einu her- bergja hússins. Gólfið var þakið peningaseðlum. í öðru herbergþ fannst látinn maður. Hafði hann látist af skotsárum. í húsinu fund- ust skotvopn, hnífar og lyfjaspraut- ur. Lögreglan handtók alla sem voru í húsinu. ísrael: Verk Chag-alls seld fyrir geipiverð Jerúsalem, Reuter. Á uppboði í Tel Aviv, þar sem málverk nítjándu og tuttugustu aldar myndlistarmanna voru til sölu, fékkst hæst verð fyrir verk rússnesk/franska málarans Marcs Chagall. Óþekktur bandariskur kaupandi greiddi 302 þúsund Bandarílqadali fyrir kyrralífsmynd af blómavasa frá 1955 og annar 264 þúsund dali fyrir stóra gvass-mynd, „Móses sýnir ísraelsmönnum töflumar", sem máluð var 1979. Verslunarráðið: Fundur um sérstöðu íslenskra smáfyrirtækja EIGENDUR og stjórnendur lítilla fyrirtækja finna iðulega fyrir sérstöðu sinni. Víða um heim hafa því verið stofnuð samtök smáfyrirtækja. Verslun- arráð íslands efnir nú til fundar með eigendum smáfyrirtækja hér á landi til þess að kanna þörfina fyrir sérstakan sam- starfsvettvang þeirra. Fundurinn verður haldinn í Leifsbúð á Hótel Loftleiðum mánudagsmorguninn 30. maí kl. 8.00—9.30. Þar munu Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðsins, Loftiy Al. Þor- steinsson, verkfræðingur og inn- flytjandi, og Haukur Alfreðsson, rekstrarverkfræðingur hjá Iðn- tæknistofnun, fjalla í stuttu máli um smáfyrirtækin. Á eftir þeirra erindum verða svo umræður. í fundarlok mun Jón Guðmundsson, forstöðumaður gjaldadeildar emb- ættis ríkisskattstjóra, ræða við fundarmenn um skattamál smá- fyrirtækjanna. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku á fundinum þurfa að skrá sig hjá Verslunarráðinu. Anna Júlíana á tón- leikum á Húsavík Húsavík. ANNA Júlíana Sveinsdóttir óperusöngkona og Lára Rafns- dóttir píanóleikari héldu tón- leika í hátíðasal Barnaskólans á Húsavík fimmtudaginn 19. maí. Efnisskrá tónleikanna var fjöl- breytt og flutningi listamannanna vel tekið enda góður, en lagavalið Lára Rafnsdóttir píanóleikari og Anna Júlíana Sveinsdóttir við lok tónleikanna á Húsavík. ekki allt við allra hæfí og sumt all sérstætt. Hátíðasalur Bamaskólans — áður íþróttasalur — telst nú besti hljómflutningssalurinn á Húsavík og með mun betri hljómburð en önnur hús í bænum, sem notuð hafa verið til slíks. - Fréttaritari Morgunblaðið/Silli m MAJORKU18. mis 1 VIKA FRÁ 27.800 kr. 2 VIKIIR FRÁ 31.300 k Engin óvissa, ekkert happdrœtti heldur' úrvals ferðir beint í sólina á Majorku - á hreint ótrúlegu, verði. Aðeins þessi eini brottfarardagur. Gist í mjög góðum íbúðum í Sa Coma á austurströnd Majorku. Beint leiguflug til Majorku, flogið heim um London þarsem hœgt er að hafa viðdvöl. * Verð á mann miðað við 4 fullorðna í íbúð. Barna- afsláttur fyrir 2-11 ára 7.000 kr. Miðað við gengi þann 27/5 '88. VIÐBÓTARGISTING Á KÝPUR OG MAJORKU! Kýpurferðirnar slógu strax í gegn. Vegna mikillar eftirspurnar höfum við bœtt við nýrri íbúðagistingu þar og aukið þannig framboðið. Einnig tókst okkur að bœta við gistirýmið í íbúðum á úrvals staðnum Sa Coma á Majorku. FERÐASKRIFSTOFAN - fólk sem kann sitt fag! Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.