Morgunblaðið - 10.06.1988, Page 5

Morgunblaðið - 10.06.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988 B 5 Kjarvalsstaðir í tengslum við Listahátíö er að Kjarvals- stöðum sýningin „Maðurinn i forgrunni". Sýnd eru rúmlega 130 verk eftir 47 islenska listamenn og er tekiö fyrir mynd- efniö „Maðurinn" í mismunandi form- geröum og stil. Mörg verkanna eru í einkaeign og hafa ekki sést á sýningum frá þvi þau voru seld. Sýningin stendur til lO.júlí. Norræna húsið Fjórtán konur úr Textilfélaginu sýna verk sín í kjallara Norraena hússins. Sýningin er liður i dagskrá Listahátíðar. Á sýning- unni eru bæði stór verk og smá og eru flest þeirra til sölu. Heiðursfélagi Textílfé- lagsins, Sigriður Halldórsdóttir, sýnir vefnaö unninn eftir sömu tækni og er á tveimurspjaldofnum borðum á Þjóð- minjasafni Islands og varöveist hafa frá miðöldum. Sýningin sem stendurtil 12. júní er opin daglega kl. 14-22. Nýhöfn Guðrún Kristjánsdóttir sýnir í Nýhöfn, Hafnarstræti 18. Guðrún er fædd í Reykjavik árið 1950. Hún stundaði nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur og i Suð- ur-Frakklandi. Fyrstu einkasýningu sina hélt Guðrún á Kjarvalsstöðum 1986 en þetta erfjórða einkasýning hennar. Hún hefur tekið þátt í samsýningum. Á sýning- unni eru olíumálverk unnin á síðustu tveimurárum. Sýningin, sem ersölusýn- ing, er opin virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Henni lýkur 19. júní. í innri sal Nýhafnar eiga eftirtaldir lista- menn verk til sölu: Ágúst Petersen, Borg- hildurÓskarsdóttir, Bragi Ásgeirsson, Daði Guðbjörnsson, Edda Jónsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, Harpa Björnsdóttir, Haukur Dór, HólmfriðurÁrnadóttir, Karl Kvaran, Karólína Lárusdóttir, Magnús Kjartans- son, Valgarður Gunnarsson og Vignir Jóhannsson. Nýiistasafnið í tengslum við Listahátíö í Reykjavík sýna þrír listamenn í Nýlistasafninu. Það eru þeir Donald Judd, Richard Long og Kristján Guðmundsson. Donald Judd er fæddur 1928 í Excelsior Springs í Missouri. Þau verk sem Judd sýnir í Ný- listasafninu eru dæmigerð fyrir þá list sem hann hefurfengist við undanfarin tuttugu ár eða lengur. Richard Long er fæddur i Bristol á Englandi 1945. Hann stundaði nám við St. Martins School of Art í London. Framlag sitt til þessarar sýningar gerði hann á staðnum. Kristján Guðmundsson er fæddur á Snæfellsnesi 1941. Hann er sjálfmenntaður myndlista- maður. í Nýlistasafninu hefur hann m.a. sett upp röð örsmárra teikninga, tímalin- ur, sem eru klipptar út úr eldri teikningu og settar í nýtt samhengi undir heitinu „Tímahnútar". Menningarstofnun Bandaríkjanna Gulay Berryman sýnir myndir málaðar á Islandi undanfarið ár í salarkynnum Menningarstofnunar Bandarikjanna að Neshaga 16. Meðal myndanna eru nokkrar málaðar í Frakklandi, Tyrklandi og viðaren hún ertyrknesk að uppruna, gift bandarískum sendierindreka við bandariska sendiráðiö á íslandi. Sýning- unni lýkur sunnudagskvöldiö 12. júní kl. 20.00. Sýningin er opin daglega kl. 8.30- 20 og um helgina kl. 13.30-20.00. Listamaðurinn er sjálfurvið alla daga kl. 13.30- 20.00. Mokka Á Mokka við Skólavörðustig stendur sýn- ing á u.þ.b. 30 Ijósmyndum eftir Davíð Þorsteinsson. Myndirnareru allarteknar af gestum Mokka og starfsfólki. Lang- flestar myndanna eru teknar á síðustu fimm árum og eru allar svart-hvítar. Sýn- ingin er haldin i tilefni af 30 ára afmæli Mokkakaffis og stendurfram eftir júní- mánuði. Davíð hefur áður haldið einka- sýningu á Mokka, vorið 1985 og var myndefni þeirra sýningar götulif í gamla miðbænum. Hafnarborg Hafnarfirði (Hafnarborg, Strandgötu 34 í Hafnar- firði, er sýning á oliu- og vatnslitamynd- um eftir Eirik Smith. Sýningin sem stend- urtil 19.júníeropindaglega kl. 15-22. Þrastaríundur Ragnar Lár sýnir 14 gvassmyndir og vatnslitamyndir í Þrastarlundi. Sýning Ragnars opnaði um hvítasunnuna og stendur í um það bil þrjár vikur. Ragnar hélt sína fyrstu sýningu árið 1956 í Ás- mundarsal við Freyjugötu og hefursiöan þá haldið fjölda sýninga hér á landi sem erlendis. Ferstikla Hvalfirði í Ferstiklu í Hvalfirði stendur sýning á olíumálverkum og fantasíum Magnúsar Guðnasonar frá Kirkjulækjarkoti. Sýning- in stendur til júniloka og er opið alla daga. Ustkynning Akureyrí Listkynning Menningarsamtaka Norð- lendinga (MENOR) og Alþýðubankans á Akureyri kynna myndlistarmanninn Samúel Jóhannsson. Samúel hefur hald- ið fjórar einkasýningar, þrjár á Akureyri Sjónvarpið: Allir elska Debbie ■■ Allir elska Debbie 05 nefnist danskur framhaldsþáttur í þrem hlutum sem Sjónvarpið sýnir þessa vikuna. Fyrsti þátt- urinn er í dag, annar á mánudag og síðasti á miðvikudag. Þættimir segja frá Debbie, 16 ára stúlku sem á erfitt með að ná fótfestu í lífinu. Erfíðleikar heima fyrir eiga mik- inn þátt í því hversu erfítt henni reynist að ná tökum á sjálfri sér. Debbie, 16 ára dönsk stúlka. Tónlistarkrossgátan ■■■■ Tónlistarkrossgátan er á dagskrá Rásar 2 í dag. Þetta 1 £00 er 107. krossgátan sem Jón Gröndal leggur fyrir hlustend- Atl ur. Lausnir skal senda til Ríkisútvarpsins Rás 2, Efsta- leiti 1, 108 Reykjavík, merkt: Tónlistarkrossgátan. Sjónvarpið: Píanósnillingur Sjónvarpið sýnir í kvöld heimildamynd um píanóleikarann Claudio Arrau. í myndinni er sagt frá lífí og starfí lista- mannsins. Auk þess leikur hann á píanó verk eftir Beethoven,Chopin, Debussy, Liszt og Schubert. Píanóleikarinn Claudio Arrau. Stðð 2: Á nýjum slóðum ■BIH Stöð 2 sýn- OA45 ir í kvöld "O fyrsta þáttinn í nýjum fram- haldsmyndaflokki sem nefnist Á nýjum slóðum. Mikið umrót verður í lífí Arons og fjölskyldu þegar elsti sonurinn sem var bú- inn að segja skilið við heimahagana fellur frá. Það verður til þess að fjölskyldan kveður heimili sitt og sest að á vínbúgarði í Kaliforníu þar sem eiginkona hins látna sonar býr og móðir hennar. Fylgst er með baráttu fjölskyldunnar sem er að segja skilið við lifnaðarhætti gamla tímans og aðlagast hinum nýja. Aron og fjölskylda. Rás 1: Skáld og heimsborgarí Á Rás 1 í dag er fyrri dagskrá um skáldið Guðmund "| O 30 Kamban í tilefni af aldarafmæli hans 8. júní. Seinni dag- " skráin verður 19. júní. Umsjónarmenn eru Gunnar Stefáns- son og Jón Viðar Jónsson. í þáttunum er gerð grein fyrir æviferli og verkum Kambans, lesin ljóð eftir hann og kafli úr skáldsögu. Þá verður fjallað sérstaklega um leikrit höfundarins og fluttir kaflar úr nokkrum þeirra sem til eru í safni útvarpsins, m.a. Marmara og Skálholti. Verö án fylgihluta: Stgr. kr. 6.830 (Kr. 7.190.) ROK OG RIGNING - EKKERT MÁL MECO útigrillin eru alveg einstök. Með því að loka grillinu myndast yflrhiti sem gefur matnum hið eina sanna grill-bragð. Þú sparar tíma og kol og nærð betri árangri í glóðarsteikingu með MECO útigrilli. Að lokinni steikingu er grillinu einfaldlega lokað og þú slekkur þannig á kolunum, sem hægt er síðan að nota við næstu glóðarsteikingu. Með MECO-grillunum má fá ýmsa þægi- lega fylgihluti, svo sem teina, borð hita- skúffu og snúningsmótor. ÞÚNÆRÐ GÓÐUM ÁRANGRIMEÐ MECO- ÚTIGRILLI. Heimilistæki hf SÆTÚNI8, REYKJAVÍK - SÍMI691515. HAFNARSTRÆTI 3, REYKJAVÍK - SÍMI 691525. KRINGLUNNI, REYKJAVÍK - SÍMI 691520.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.