Morgunblaðið - 10.06.1988, Síða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
Bandaríkin:
Næsta kynslóð
stj örnuf er ðalanga
Þeir eru kallaðir trekkar („trekk-
ies“) í Bandaríkjunum og það er
þeim að þakka að fyrsta geim-
skutla Bandarísku geimferðastofn-
unarinnar var nefnd „Enterprise".
Þeir draga nafn sitt af frægum
sjónvarpsþáttum sem gerast úti í
geimnum. Trekkar dýrka þættina
og þær flórar bíómyndir sem gerð-
ar hafa verið eftir þeim eins og
aðrir dýrka Bítlana. Þættimir, sem
hétu „Star Trek“, gerðust á 23.
öldinni og fjölluðu um ævintýri
áhafnarinnar á geimskipinu Enter-
prise og það er staðreynd að árið
1976 fengu aðdáendur þeirra
NASA til að nefna fyrstu geim-
skutluna eftir því.
Síðan eru liðin mörg ár í sjón-
varpsmínútum talið. Framleiðslu
þáttanna var hætt löngu áður en
bíómyndimar voru gerðar (áhorf-
endur urðu aldrei margir en svona
hundtryggir) og menn héldu al-
mennt í upphafí áttunda áratugar-
ins að „Star Trek" heyrði sjón-
varpssögunni til og trekkar mann-
kynssögunni. En ekki aldeilis. Bíó-
myndimar blésu í gamlar glæður
og síðastliðið haust hófust sýningar
á nýrri og breyttri útgáfu gömlu
þáttanna - „Star Trek: The Next
Generation" eða „StarTrek: Næsta
kynslóðin" og hún hefur notið
umtalsverðra vinsælda. Gömlu
trekkamir em yfir sig hrifnir og
nýir bætast í hópinn vikulega.
Höfundur nýju þáttanna er Gene
Roddenberry, sá sami og gerði þá
gömlu, sem fyrst vom sýndir hjá
NBC-stöðinni árið 1966. Rodden-
berry var ekki viss í fyrstu hvort
hann ætti að leggja út í aðra þátta-
gerð af því hann hafði slæma
reynslu frá fyrri tíð þegar sjón-
varpsstöðin hætti við þættina þijú
sýningartímabil í röð. Það var að-
eins fyrir þrábeiðni hinna tryggu
aðdáenda sem stöðin hélt alltaf
áfram að gera þættina. „Þetta vom
erfíðir tímar fyrir mig,“ segir Rodd-
enberry. „Það var litið á mig sem
náungann er gerði þessi dým mis-
tök og ég fékk hvergi vinnu." A
áttunda áratugnum jukust vinsæld-
ir „Star Trek“ jafnt og þétt í gegn-
um endursýningar og árið 1977
stóð til að gera nýja „Star Trek“-
þætti, „Star Trek - Phase 2“ eða
Annað stigið. En horfíð var frá því
og þess í stað var ráðist í gerð
bíómyndar enda hafði Stjömustríð
þá nýlega slegið í gegn. Rodden-
berry framleiddi fyrstu „Star
Trek“-myndina en bæði gagnrýn-
endur og áhorfendur tóku henni
fálega.
Þegar hann var beðinn um að
gera þættina um næstu kynslóð
geimferðalanganna sagði hann
þvert nei í fyrstu. „Fym þættimir
tóku úr mér allan mátt. Ég sá ekki
fjölskylduna mína í tvö ár. Það var
ekki fyrr en farið var að tala um
að líklega væri það rétt að gerð
framhaldsins væri óframkvæman-
leg, að ég fór að taka við mér.“
Hvorki William Shatner í hlut-
verki hins raungóða kapteins Ja-
mes T. Kirk eða Lonard Nimoy í
hlutverki hins hálfmennska Spock
em í nýju þáttunum. Hvomgur vildi
gera nýja geimaldaþætti enda báð-
ir famir að leikstýra sjálfír (Nimoy
leikstýrði hinni feikivinsælu Þrír
menn og bam á síðasta ári og
Shatner leikstýrir nýjustu „Star
Trek“-bíómyndinni).
Önnur breyting sem trekkar
hafa tekið eftir er að vægi kven-
fólks í þáttunum hefur aukist til
muna. Nú em konumar ekki leng-
ur veigalitlir félagar í stuttpilsum
heldur snjallir yfírmenn og jafn-
ingjar.
-ai.
Þegar hraða er þörf.
Þegar tíminn er peningar.
Þegar ekki er flogið.
Fjórhjóladrifni fjölskyldubíllinn
frá SUBARU er kjörbíll manna á uppleið
í krefjandi störfum.
SUBARU kemst leiðar sinnar með öllum
þeim krafti og nútímaþægindum
sem japanskt hugvit hefur upp á að bjóða.
SUBARU á stöðugri uppleið.
jT-I I =. Ingvar
| | I jHelgason hf.
—.^££X£S‘m Rauðagerði
' ' ' Sími: 91 -3 35 60 5 |
/ fararbroddi
tæknitegra framfara
NOKKRUM
Subaru, sjálfsklptum og
station, og elnnlg sjálfskipt-
um Sedan Subaru óráðstaf-
að á eldra genglnu.