Morgunblaðið - 14.06.1988, Side 9
iHorBtmfcfaaið /ÍÞRÓTTIR ÞKSXIUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
B 9
EVRÓPUKEPPN
LANDSLIÐA
19 8 8
Glatt á hjalla hjá írska liðinu eftir sigurinn á Englandi:
Sungið og trallað
uppi á borðum!
ÞAÐ var glatt á hjalla á hótel-
inu hjá írska landsliðinu í
Stuttgart á sunnudagskvöld-
ið, eftir sigurinn á Englend-
ingum.
Bob Hennessy, fréttamaður
Morgunblaðsins í Englandi,
var þar staddur og er hann kom
í símann í matsal hótelsins er við
hringdum í hann heyrðist varla
hvað hann sagði, vegna fagnað-
arláta í salnum. Ekki var verið
að fagna sigrinum heldur þjálfara
liðsins, þeim gamalkunna enska
landsliðsref Jaek Charlton, sem
þá var nýstiginn niður af einu
borðinu ásamt Liam Brady, leik-
manninum kunna, sem ekki getur
verið vegna meiðsla. Þeir sungu
þekkt írskt lag og var vél fagnað.
Allir skyldaðir tii að syngja!
„Næstir á undan þeim upp á borð
vom Ray Houghton frá Liverpool
[sem skoraði sigurmarkið gegn
Englandi] og Chris Morris frá
Celtic. Þeir sungu skoskt lag, um
Glasgow-borg. Hér sleppur eng-
inn. Allir leikmennirnir eru skyld-
aðir til að stíga upp á borð og
syngja. Næstir em Kevin Moran
frá Manchester United og Kevin
Sheedy frá Everton," sagði Hen-
nessy.
„Stórkostlegt“ sagði Jack
Chariton þjáKari
Skyndilega hvarf Hennessy úr
símanum og þjálfarinn, Jack
Charlton, var kominn á línuna.
Var hann hrærður eftir sigurinn
og sagðist í sjöunda himni. „Þetta
var stórkostlegt," sagði hann hás-
um rómi — enda nýstiginn af
„sviðinu". Jack sagði íra ömgg-
lega fagna vel alls staðar þetta
kvöldið, en lofaði því að þeir yrðu
ekki til vandræða. „Eg er viss að
þeir þurrka upp alla bari sem'
þeir finna! En þeir eiga þó ekki
eftir að verða til vandræða," sagði
Jack Charlton.
Fyrsti sigur íra á
Englendingum í 39 ár
„Þetta var einn af þeim dög-
unu, sem maður fær þá tilfinn-
ingu að einhver þarna uppi sé
hrifinn af þér,“ sagði Jackie
Charlton, landsliðsþjálfari ír-
lands, um leið og hann horfði
upp til himins. Charlton var í
sjöunda himni eftir sigur sinna
manna á Englendingum í
Stuttgart, 1:0. Fyrsta sigur íra
yfir Englendingum síðan í sept-
ember 1949, eða í 39 ár.
Ray Houghton setti markið eftir
aðeins sex mínútur, eftir varn-
armistök Englendinga - hans
fýrsta landsliðsmark. „Eftir að
Houghton setti markið komu í kjöl-
farið lengstu áttatíu og fjórar
mínútur, sem ég hef upplifað,"
sagði Charlton, fyrmm miðvörður
landsliðs Englands.
„Heppnin ekki með Lineker“
„Englendingar em með betri leik-
menn, en Irar unnu á geysilegri
baráttu og náðu að halda fengnum
hlut. Þeir fengu blóð á tennurnar
strax í byijun og Englendingar
náðu ekki að bijóta niður baráttu
íranna. Það var sárt fyrir Englend-
inga að tapa, því að þeir fengu
mörg góð tækifæri til að koma
höggstað á íra. Heppnin var ekki
með Gary Lineker," sagði Udo Lat-
tek, fyrrum þjálfari Bayern Miinc-
hen.
Irar hafa ekki tapað ellefu
landsleikjum í röð, en Englendingar
írland - England
1 : 0
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu.
Stuttgart 12. júní 1988.
Mark írlands: Ray Houghton á 6. mín.
Dómari: Siegfried Kirschen, A-Þýska-
land.
Áhorfendur: 53.000.
England: Peter Shilton, Gary Stevens,
Tony Adams, Mark Wright, Kenny
Sansom, Chris Waddle, Neil Webb
(Glenn Hoddle 60. mín.), Bryan Rob-
son, John Barnes, Gary Lineker, Peter
Beardsley (Mark Hateley 83. mín.).
írland: Pat Bonner, Chris Morris, Mick
McCarthy, Kevin Moran, Chris Hugh-
ton, Ray Houghton, Paul McGrath,
Ronnie Whelan, Tony Galvin (Kevin
Sheedy 76. mín.), John Aldridge, Frank
Stapleton, (Niall Quinn 63. mín.).
Mike Byren, sjúkraþjálfari írska
landsliðsins, fagnar hér sigrinum.
máttu þola sitt annað tap í sautján
landsleikjum frá því í HM í Mexikó
1986. Röð varnarmistaka áttu sér
stað þegar Houghton skoraði. Kevin
Moran tók aukaspyrnu og sendi
knöttinn fyrir mark Englendinga.
Gary Stevens náði ekki að spyrna
knettinum frá. Tony Galvin sendi
knöttinn aftur fyrir mark Englands,
þar sem Kenny Sansom sendi knött-
inn upp í loftið. John Aldridge skall-
aði knöttinn þá til Houghton, sem
skallaði hann fram hjá Peter Shil-
ton.
Eftir markið léku Irar sterkan varn-
arleik og Pat Bonner, markvörður
þeirra, varði oft vel. írar fengu einn-
ig marktækifæri. Ronnie Whelan
átti t.d. skot í þverslánna á marki
Englendinga.
„Guð var með okkur“
Þegar Glen Hoddle kom inn á sem
varamaður, færðist líf í leik Eng-
lendinga. Hann var nær því búinn
að skora, en Bonner náði að veija.
„Ég er viss um að Guð hafi verið
með okkur,“ sagði Bonner.
„Ég var mjög ánægður með mína
menn - þeir léku vel þrátt fyrir að
hitinn hafi verið óþolandi og haft
lamandi áhryf. Englendingar voru
óheppnir. Draumur þeirra er ekki
Ray Houghton skoraði sitt fyrsta
mark fyrir írland.
búinn. Við getum rétt þeim hjálpar-
hönd þegar við leikum gegn Sovét-
mönnum, en þá verða Englendingar
að klára dæmið gegn Hollending-
um,“ sagði Charlton.
„Við gefumst ekki upp“
Bobby Robson, landsliðseinvaldur
Englendinga, var ekki ánægður.
„Við áttum að gera út um leikinn
í seinni hálfleiknum. Það var hreint
ótrúlegt hvernig írska markið slapp.
Það þýðir ekkert að gefast upp.
Við munum vel eftir hvernig við
byijuðum í HM í Mexikó - töpuðum
þá fyrsta leik okkar, gegn Portug-
al. Éftir það fórum við í gang,“
sagði Robson.
Staðan
A-RIÐILL
Spánn 1 1 0 0 1 0 1 0 3:2 1:1 2 1
V-Þyskaland 1 0 1 0 1:1 1
Danmörk 1 0 0 1 2:3 0
B-RIÐILL
írland 1 1 0 0 1:0 2
Sovótríkin.... 1 1 0 0 1:0 2
England 1 0 0 1 0:1 0
Holland 1 0 0 1 0:1 0
H IRSKU leikmennirnir skiptu
með sér andvirði tæplega 7 milljóna
íslenskra króna fyrir að komast í
úrslitakeppni Evrópumótsins. Nú
hefur verið tilkynnt
FráBob að þeir fái andvirði
Hennessyi 3,2 milljóna króna
V-Þýskalandi viðbótar — sem
skipt verður á milli
þeirra — fyrir leikina þijá í B-riðli.
■ GAMLA kempan Liam Brady
er með írska landsliðinu í Vestur-
Þýskalandi. Hann æfir með liðinu
og tekur þátt í öllu með hinum leik-
mönnunum — nema að því leyti að
hann leikur ekki með! Brady hefur
leikið með írska liðinu í 14 ár, en
var síðan ekki valinn í hópinn þar
sem hann meiddist illa í vetur. í
sárabætur var honum boðið með á
keppnina. Hann á 68 landsleiki að
baki fyrir írland.
■ LEIKMENN sovéska lands-
liðsins hafa það ekki eins gott í
V-Þýskalandi og leikmenn hinna
sjö landsliðanna, sem taka þátt í
EM. Þeir búa í skóla við Stuttgart
á sama tíma og leikmenn hinna
landsliðsnna búa á lúxushótelum.
Sovétmenn halda öllum kostnaði í
lágmarki og þess má geta að leik-
menn þeirra fá ekki að njóta þes,s
að Sovéska knattspyrnysam-
bandið fái 70 millj. ísl. kr. í kassa
sinn fyrir að keppa í úrslitakeppn-
inni EM.
■ ÁÐUR en írska liðið fór af
hóteli sínu í leikinn við England
fékk j)að heillaóskaskeyti frá for-
seta Irlands og meðlimum hinnar
þekktu írsku hljómsveitar U2.
■ IRSKA landsliðið söng lag inn
á hljómplötu áður en það hélt til
keppninnar í V-Þýskalandi. Lagið
nefnist „The boys in green“ eða
„Grænklæddu strákamir“, en bún-
ingvr írska liðsins er einmitt
grænn. Lagið komst í fyrsta sæti
írska vinsældalistans á laugardag-
inn. Þess má geta að það var leikið
á Neckar-vellinum í Stuttgart fyrir
leik Irlands og Englands á sunnu-
daginn og tóku írsku áhorfendum-
ir vel undir.
B RAY Houghton gerði mark
Ira gegn Englendingum. Þetta var
fyrsta mark hans fyrir Irland og
aðeins annað markið á ferlinum sem
hann skorar með skalla. Hitt gerði
hann sl. vetur, í bikarleik með Li-
verpool gegn Everton í l:0-sigri.
■ EFTIR leikinn á sunnudaginn
voru Irarnir Ray Houghton og
Tony Galvin teknir í lyfjapróf
ásamt Englendingunum Kenny
Sansom og Peter Beardsley. Tveir
leikmenn eru valdir af handahófi
úr hvoru liði eftir hvem leik.
Liam Brady.