Morgunblaðið - 14.06.1988, Page 11

Morgunblaðið - 14.06.1988, Page 11
3B«rgiunMflÍiiÍ> /ÍÞRÓTTIR ÞRHXJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988 B 11 FRJÁLSAR Schmidt vill fá þijú mót WOLFGANG Schmidt, fyrrum heimsmethafi íkringlukasti, hefur ekki aðeins þegið boð Frjáisíþróttasambandsins um að keppa á Flugleiðamótinu 21. júní, heldur hefur hann óskað eftir þvíað fá að keppa hér þrisvar. Schmidt hafði samband við PRÍ og sagðist vilja vera hér á landi í að minnsta kosti viku og spurðist fyrir hvort hann gæti keppt á öðrum mótum. Bauð FRI honum að keppa sem gestur á meistaramótinu 25. júní og hefur verið ákveðið að efna til móts annað hvort í Reykjavík eða Hafnarfirði 23. júní. Schmidt er mikill vinur Bandaríkja- mannsins Mac Wilkins, Olympíu- meistara frá 1976 [þá varð Schmidt annar] og fyrrum heimsmethafa í kringlu. Schmidt hringdi í Wilkins og spurði hann um ísland eftir að hafa þegið boð FRÍ um að keppa á Flugleiðamótinu. -Þú getur ekki verið skemur en viku á Islandi, það er stórkostlegt að koma þangað, sagði Wilkins, sem kom tvívegis hingað til keppni. FLUGLEIÐAMOTIÐ Margir af- reksmenn vilja keppa MARGIR afreksmenn hafa haft samband viö Frjálsíþróttasam- bandið að undanförnu og ósk- að eftir að keppa á Flugleiða- mótinu ífrjálsum, sem fram fer á Laugardalsvelli 21. júní. að eru einkum kringlukastarar sem sett hafa sig í samband við FRÍ, en sambandið hefur sem kunnugt er boðið Wolfgang Schmidt, fyrrum heimsmethafa til mótsins, en hann á 71,16 metra. Schmidt féll í ónáð í Austur-Þýzkal- andi og var pólitískur fangi á annað ár en var síðan leyft að flytja til Vestur-Þýzkalands í fyrrahaust. Heimsmet hans var 71,16 metrar. Hann keppti ekkert frá miðju sumri 1981 þar til í vor og er kominn í fremstu röð á ný. Ásamt Schmidt kemur Vestur- Þjóðveijinn Alwin Wagner, en hann náði fimmta bezta afreki heims í fyrra, kastaði 67,80. Einnig vilja Werner Hartmann (65,82 5 fyrra og yfir 66 í ár) og Alois Hannecker (65,32) koma. Þá kom ósk frá norska frjálsíþrótta- sambandinu í síðustu viku um að kringlukastaramir Knut Hjeltnes, Svein Inge Valvik og Olaf Jensen fengju að keppa á Flugleiðamótinu og hástökkvarinn Hanne Haugland, sem stökk hæst kvenna á Norður- löndunum í fyrra, eða 1,93 metra. Valvik náði sjötta bezta afreki í heiminum í fyrra, 67,70. Hjeltnes á Norðurlandametið, 69,62 frá 1985. Hann hefur kastað yfir 67 í ár. Fyrir helgi hringdi síðan danski kringlukastarinn Ciaus Bahrc og tilkynnti komu sína á eigin kostn- að. Hann á 57,62 metra. „Við getum ekki tekið alla þessa afreksmenn á okkar kostnað, höf- um þegar boðið Schmidt, Hartmann og hástökkvaranum Burchard (2,27) frá Þýzkalandi. Við erum að reyna allt hvað getur til að fá góða spjótkastara en framboðið er minna en eftirspumin. Við munum þó ör- ugglega bjóða Hjeltnes og Haug- land hingað," sagði Ágúst Ásgeirs- son, formaður FRÍ, í gær. Knut Hjeltnes keppir á Flugleiða- mótinu. FRJALSAR IÞROTTIR / LANGSTOKK Reuter Galina Chistyakova frá Sovótríkjunum setur nýtt heimsmet um helgina, stekkur 7,52 metra. Mótið fór fram í Leníngrad í heimalandi hennar. Heimsmet Chistyakovu - stökk 7,52 metra í langstökki GALINA Chistyakova frá Sov- étríkjunum setti heimsmet í langstökki um helgina er hún stökk 7,52 metra á móti í Leningrad. Gamla metið áttu Jackie Joyner frá Banda- ríkjunum og Heike Drechsler frá Austur-Þýskalandi, en það var7,45 metrar. etið kom í sjöttu og síðustu tilraun Chistyakovu, en áður hafði hún náð mjög góðum stökkum sem voru rétt við gamla heimsmetið. „Úrslitin gefa mér von um að stökktækni mín sé á réttri leið,“ sagði Chistayakova. „Eg geri mér vonir um að vinna til gullverðlauna í Seoul, en það verður ekki auðvelt gegn Joyner og Drechsler." Met hjá Aouita Said Aouita setti einnig met um helgina, þó það hafi ekki fengist staðfest. Hann hljóp tvær mílur á 8:13,09 mínútum, á móti í Casa- blanca, en vegna þess að tíma tökutækin virkuðu ekki fékkst metið ekki staðfest. Aoutia á heimsmet í 1.500, 2.000 og 5.00 metra hlaupi, en tókst ekki að bæta eigið met í tveggja mílna hlaupi því einhver gekk í gegnum endalínuna og ruglaði rafeindabúnaðinn sem tekur tímann. Aoutia var æfur af reiði eftir hlaupið og neitaði að tala við blaðamenn og mótstjórnendur. Þá náði Heike Drechsler besta tíma ársins f 200 metra hlaupi á móti í Austur-Berlín. Hún hljóp á 21,99 sekúndum, en það er aðeins 0.18 sekúndum frá heimsmetinu sem hún á. FORMULA 1 Senna vanní Kanada McLaren-liðið því með 100% ár- anguráárinu AYRTON Senna frá Brasilíu sigraði i kanadíska kappakstr- inum sem fram fór í Montreal um helgina eftir mikla keppni við félaga sinn í McLaren-lið- inu, Frakkann Alain Prost. Senna, sem einnig sigraði í San Marino kappakstrinum fyrr á árinu, fór hringina 69 á Gilles Vil- leneuve brautinni, sem er 4.39 km löng, á 1 klukkustund, 39 mín. og 46.618 sekúndum. McLaren-liðið hefur því farið með sigur af hólmi í öll fimm skiptin sem keppt hefur verið á árinu; Prost hefur sigrað þrívegis og Senna tvisvar. Prost varð annar, tæpum sex sek- úndum á eftir Senna og í þriðja sæti varð Belginn Thierry Boutsen á Benetton-bíl, tæpri mínútu á eftir sigurvegaranum. Alain Prost hefur enn forystu í keppni ökumanna um heimsmeist- aratitilinn. Hann hefur nú 39 stig og Senna er kominn í annað sætið með 24 stig. Austurríkismaðurinn Gerhard Berger á Ferrari-bíl varð að hætta keppni á sunnudaginn, og datt niður í þriðja sæti — hefur 18 stig. Senna, sem hefur byijað fremstur í rásmarkinu í hverri keppni það sem af er árinu, byijaði ekki vel á sunnudaginn og fljótlega náði Prost að skjótast fram úr honum. Prost, Senna og Bergar — í þessari röð — höfðu forystu fyrstu 13 hringina, er Boutsen náði að komast í þriðja sætið. í 19. hring sætti Senna síðan lagi, er ökumennirnir þurftu að hægja örlítið á í beygju — kitlaði pinnann hressilega og komst fram úr Prost í innanverðri beygjunni. Hélt hann forystunni það sem eftir var keppninnar. Ayrton Senna fagnar sigri um helg- ina í Montreal. FRJALSAR / FYRRI HLUTI MEISTARAMOTS ISLANDS Unnar náði góðum árangri Aron Tómas Haraldsson setti unglingamet í 1500 m halupi Unnar Vilhjálmsson, UÍA, náði 6.594 stigum í sinni fyrstu tugþraut og varð íslandsmeistari. Jón A. Magnússon úr HSK varð annar með 6.439 stig og er það hans besti árangur. Það dugði hon- um til að tryggja sér þátttökurétt á Norðurlandameistaramóti ungl- inga í fjölþraut, en Jón er 19 ára á þessu ári. Martha Ernsdóttir bætti árangur sinn í 5000 m hlaupi og fór önnur kvenna undir 17 mínútur. Met Lilju Guðmundsdóttur er 16.36,96 mín. Már Hermannsson var alveg við sitt besta í 10 km hlaupi. Kristján Skúli Ásgeirsson og Gunnlaugur Skúlason, sem er 20 ára, náðu sínum besta árangri, 32.37,1 og 32.46,2 mínútur. Ágæt þátttaka var í flestum grein- um unglingameistaramótsins sem fram fór í Reykjavlk á laugardag- inn. Aron Tómas Haraldsson setti ungl- ingamet í 1500 m hlaupi, hljóp á 4.49,6 mín. Súsanna Helgadóttir úr FH hljóp 200 m á 24,7 sek., sem er hennar langbesti árangur. Friðrik Arnar- son, UBK, náði einnig ágætum ár- angri í 200 metra hlaupi, 22,6 sek. Súsanna sigraði með nokkrum yfir- burðum í langstökki og nálgast óðum 6 metrana. Steinn Jóhannsson, FH, hljóp keppnislaust 1500 m á 4.00,5 mín og var einni sek frá sínu besta. Einar Kristjánsson, FH, stökk 2,00 metra í hástökki. ■ Úrslit/B15 Aron Tómas Haraldsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.