Morgunblaðið - 14.06.1988, Síða 12

Morgunblaðið - 14.06.1988, Síða 12
12 B JHoraiwfolaftifo /IÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988 CKroðn AX Sport, rennilegur og fímasprækur, bfll fyrir hressa stráka og kraftmiklar stelpur á öllum aldri. Morgunblaðiö/BAR Reynsluakstur Citroen AX Sport Umboð á Íslandi: Globus hf Verð kr 576.000 Lítil fluga AX er bfllinn sem kom Citroén aftur inn á kortið yfir bflaframleiðendur í fremsta flokki. Um miðja öldina höfðu þeir smíðað háifgerða framúr- stefnubfla. Þeir komu reyndar fyrst fram seint á fjórða áratugnum. Fram- drifnir og með afburðagóða aksturs- eiginleika. Framdrifið var að vísu ekkert nýtc í þá daga. Það hafði ver- ið reynt fyrir aldamót af ekki ómerk- ari manni en sjálfum Ferdinand Porsche. Ameríkanar smíðuðu líka framdrifna bfla, Cord líklega frægast- ur þeirra og kom á þriðja áratugnum. Citroén hafði aftur á móti bfl, sem var allnærri því að vera til alhliða nota. Útlitið var mjög sérstakt og gat allt eins hæft höfðingjum sem alm- úgamönnum. Á sjötta áratugnum kom síðan sá stóri, gekk undir nöfn- unum DS og ID. Hann var einstakur á allan hátt, útlitið þannig að hann var kallaður „skúlptúr á hjólum" og hann vartil sem þjóðhöfðingjavagn jafnt sem millistéttarbfll. Hann hafði hina frægu vökvafjöðrun og þótti ein- stakur í akstri. Og svo var auðvitað Bragginn. En á sjöunda áratugnum fór að halla undan fæti, ný módel komu og juku ekki á orðstír Citroén, nema síður væri. Bflarnir hafa þó alla tíð verið sérstæðir og enginn hefur villst á þeim og öðrum bflum. Haustið 1986 kemur síðan AX, boð- beri nýrra tíma hjá Citroén. Á eftir honum koma aðrar nýjar gerðir, næst líklega CX, endurhannaður frá grunni. AX var að öllu leyti ný hönn- un þegar hann kom á markaðinn, smábfll með f ramúrskarandi vel nýttu rými. Síðar kom hann í þessum búningi, sem við spgjum nú frá: AX Sport. Tryllitæki, lítill og kvikur, rétt eins og lítil fluga. Við höfum ekki kannað, hvort AX Sport er minnstur tryllitækja á markaðnum. Sennilega er hann það, helst að Suzuki Swift geti skákað honum að því leyti. Hann er sportlegur á að líta, vindskeiðar í bak og fyrir og plasthlífar á hlið- unum gefa honum svolítinn rallýsvip. Hann ber með sér að vera öðruvísi en fjöl- skyldubíllinn AX. Sé ein- hver í vafa um að Sport sé öðruvísi, þá hverfur sá vafi óðara sem sest er inn í hann og litast um. BÍLAR Þórhallur Jósepsson skrifar Svalurað innan Klæðningin á augljóslega ekki að vera við hæfi einhvers meðaljóns. Og sama er að segja um búnaðinn. Segja má, að við hönn- un innrýmis í AX Sport hafi verið horfið aftur til upphafsins. Þarna eru aðeins nauðsynlegustu stjómtæki og svo lítil klæðning sem komast má af með. Ekkert meira! Þetta er dirfska á tímum þegar Japanir flæða yfir markaðinn með „full- hlaðna“ bfla! Það er ekki spamaður eða níska sem veldur, að hurðarspjöldin ná aðeins um miðju hurðanna. Það er ekki heldur þess vegna sem ekki em rafdrifnar rúður. Ástæðan er einfaldlega sú, að AX Sport er bíll fyrir töffara, harðjaxla, fólk- ið sem lætur strauminn aldrei breyta stefnu sinni. Yfirbragðið að innan minnir líka á sportbíla fyrri tíma, svokallaða „ro- adstera". Þeir voru hráir og buðu ekki upp á nein þægindi, en höfðu afburða aksturs- eiginleika og sérstætt útlit. Fólk sem ók, og ekur, slíkum bílum tengist óðara ævin- týralegu lífi, hraða og spennu í huga manns. Orgar á gjöfinni Ekki mýkist hann agnarögn þegar sett er í gang. Gróft vélarhljóðið er öflugt og breytist í org á gjöfínni. AX Sport gerir út af við allar hugmyndir um að hann geti átt að vera sófí á hjólum um leið og gefið er í. Gagnstætt hinum venjulega AX, sem þó er allsprækur, er Sport harður og frekar grófur. En hann er ótrúlega snar í snúningum, hendist áfram. Hestöflin eru 95 sem er talsvert í rúmlega 700 kílóa bíl. Gangurinn er svona grófur þar sem kreist er óvenju mikið út úr vélinni. Til þess eru meðal annars notaðir tveir tveggja hólfa blöndungar. Lipur í akstri Búast mætti við erfiðleikum við að stjórna bfl, sem fær slíkar lýsingar sem að ofan. Það er þó öðru nær. Þrátt fyrir allan gróf- leikann í umbúnaði og vélargangi, er hann hinn Ijúfasti að aka. Það er að segja mið- að við vélaraflið. Alltaf er vissum erfiðleik- um bundið að stjórna aflmiklum bílum. Hætta er á að missa vald á þeim, sú hætta eykst í réttu hlutfalli við aflið og ekki síst í framdrifnum bílum. AX Sport er allra að aka og fer býsna vel með afl sitt. Þó er hætta á að missa hann þversum á malarvegi, ef ekki er gætt að. Það er einfaldlega vegna þess hve stutt er á milli öxla og bíllinn því tiltölulega breiður. Þar af leiðandi á hann auðvelt með að snúast. Þessa gætti í reynsluakstrinum þegar við Hæðundir Eigin þyngd.... 735 kg Heildarþyngd.. 1065kg Vél Fjögurra strokka, vatnskæld, tveggja blöndunga, þverstæð. Slagrúmmál.... 1294 rúmsm Afl“ Hemlar framan Hemlar aftan.. Hemlakerfi tvöfalt vökvakerfi Fjöðmn framan...McPherson gormar Fjöðmn aftan.. Gírkassi Drifhlutfall 4,29:1 Stýri Beygjuradíus.. Tankur Hámarkshraði. Hröðun 0-100.. Dekk 165/60 R14MXV ókum eins og ekki á að aka, sem sagt glannalega. Sportlegur Utlit bílsins ber með sér að hann er ekki venjulegur og hentar ákaflega vel þeim, sem vilja skera sig svolítið úr fjöldanum, án þess að verða um of róttækir. Að inn- an er rýmið vel nýtt, eins og í öðrum AX gerðum. Hann er þægilegur í umgengni, að undanskildum innfelldum hurðahúnum. Það er bölvað ólán að eiga við þá. Getur kostað allskonar tilfæringar með hand- leggina að opna. Að flestu leyti getur far- ið vel um hvem sem er inni í bílnum. Til- tölulega gott pláss er bæði í fram og aftur- sætum, miðað við stærð bílsins og nóg lofthæð. Það er helst að hörð fjöðrun og hávaði dragi úr. Og svo auðvitað spar- tönsk klæðningin og búnaðurinn. Allt er þetta smekksatriði og eins og við sögðum hér á undan, AX Sport er ekki ætlaður hversdagsfólki til hversdagslegra nota, hann er fyrir stráka og stelpur sem vilja hafa svolítið straumkast í kring um sig. PUIMKTAR Reynsluakstur í góðu veðri og færi um möl og bik, alls eknir rúmlega 200 kíló- metrar. Vél og kram Vél er fimasnörp, hávær og grófgeng í hægagangi. Gefur rallýtilfinningu. Gírkassi er fimmgíra, lipur, góð hlutföll. Drif er að framan og kemur vel út. Undirvagn Stýri er létt, tekur lítillega í þegar gefið er ' beygjum, nákvæmt. Fjöðrun er stinn, nánast höst. Kemur mjög vel út í akstri á slæmum vegi, lætur mjög lítið undan í beygjum. Öryggisbúnaöur Boddýbygging er styrkt utan um far- þegarými. AX hefur fengið hrós erlendra blaðamanna sem lentu í árekstri á honum. Hemlar eru nákvæmir, sýndu enga veik- leika. Belti eru í rúllum og auðveld í meðfömm. Klæðning er fúlllítil frá öryggissjónar- miði, hætt við að fá pústra af bem jámi. Útsýni er gott, speglar góðir. Ljós em öflug og góð, sérstök nærljós að framan. Þurrka er aðeins ein og skilur of stóran flöt eftir í efra homi framrúðu vinstra megin. Stjómtœki Rofar em vel staðsettir, galli að ljósarofa þarf að snúa. Mælaborð er vel sýnilegt og skýrt, allir nauðsynlegir mælar. Fótstig em rétt staðsett og létt ástigs. Skiptir er lipur, gengur vel í alla gíra. Hurðahúnar em bölvanlega leiðinlegir. Þægindi Rými er vissulega lítið í svo litlum bíl, en ekki þröngt, framúrskarandi vel nýtt. Hljóðeinangrun er bágborin, hávært vél- arhljóð og veghvinur. Miðstöð er góð, en hávær. Innstig/útstig er gott í framsæti, en er- fitt fyrir fullvaxna að komast afturí. Farangursgeymslan er lítil, en vel nýtt og mjög aðgengileg. Smámunageymslur em margar og góðar. Varadekk er á leiðinlegum stað, undir farangursgeymslunni. Helstu kostir Vélarafl, lipurð í akstri, fjöðmn þó hörð sé, vel nýtt rými. Helstu gallar Bágborin hljóðeinangmn, hurðahúnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.