Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 21

Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 21
cnTn MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 9 B 21 Ljósmynd/BS Kvöldstund með Megadeth Þungarokk hefur tekið ýmsum breytingum frá því aliir unglingar dáðu hijómsveitirnar Uriah Heep, Black Sabbath og Deep Purple meira en annað. Þó er tónlistin í eðli sínu söm, en hún hefur klofnað í ýmis afbrigði. Eitt slíkt afbrigði er „speed-metal", sem er einfald- lega hratt þungarokk. Ein fyrsta sveitin sem lék slíkt rokk var Met- allica, sem lék þungarokk á þreföldum hraða með flóknum taktskipt- um og útsetningum. Einn stofnmeðlima Metallica, Dave Mustaine, stofnaði sveitina Megadeth, er hann varð ósáttur við félaga sína í Metallica, en blaðamanni var boðið fyrir stuttu að eyða kvöldstund í Hammersmith Odeon tónleikahöllinni í Lundúnum með Megadeth. Ekki var nokkur vandi að finna rétta neðanjarðarlest á leið á staðinn, því handhægt var að elta unglinga með sítt hár í leður- eða gallajökkum sem skreyttir voru Megadethmerkjum og myndum af ýmsum ófreskjum. Þegar komið var á Hammersmith-stöðina var allt troðið af þannig klæddum ungmennum; allflestum á aldrin- um 17—20 ára, en einnig var tölu- vert af 12—13 ára unglingum og einnig mönnum og konum á þrítugsaldri. Það var ánægjuleg tilbreytni frá stórtónleikum á ís- landi að vart sá vín á nokkrum manni, þó allmikið væri um að menn væru með bjórdósir í hönd- unum. Þegar inn í Odeon var komið var þar allt troðið og vakti athygli að varla sást stúlka í salnum. Þær sem þó sáust voru í vel nærskorn- um buxum og hlírabolum og virt- ist það vera einskonar einkennis- búningur. Karlpeningurinn var einnig allur eins klæddur; allir í leður- eða gallajökkum og galla- buxum og skreyttir Megadeth- myndum og vitanlega allir með hár niður á herðar. Upphitunar- hljómsveit hafði lokið leik sínum þegar inn var komið og voru áhorfendur því farnir að tínast inn í salinn. Tjald mikið var fyrir sviðinu og þegar að því kom að hljómsveitin kæmi á svið voru Ijósin deyfð og tjaldið dregið hægt upp. Þá spratt á fætur á þriðja þúsund manns og öskraði fullum hálsi svo undir tók í húsinu og svalirnar ofan við blaðamann, þar sem meginhluti Dave Mustaine er lokkafagur f meira lagi. Ljósmynd/BS áheyrenda var, dúuðu. Miklar drunur heyrðust úr hátölurum og enn öskraði mannfjöldinn. Þó tók út yfir allan þjófabálk þegar mynd af ófresku einni, sem skreytir síðustu hljómplötu Megadeth, birtist á veggnum ofan við trommusettið. Vissulega tilkomu- mikil stund, þó ekki hafi hún snor- tið djúpt þann sem þetta ritar. Eftir þennan undirbúning gengu hljómsveitarmeðlimir rösk- lega inn á sviðið og hófu leik við gifurleg fagnaðarlæti áheyrenda. Þeir voru og vel með á nótunum og sungu með þá er tækifæri gafst til, en ekki verður nánar greint frá lagavali hér eða tónlist- arlegum tilþrifum hljómsveitarinn- ar, enda dugði úthald greinar- höfundar ekki nema í þrjú lög. Hljómsveitarmeðlimir voru búnir eins og áheyrendur, nema án jakka, og þetta eru fyrstu tónleik- ar sem greinarhöfundur man eft- ir, þar sem hver áheyrenda sem var gat eins verið uppi á sviðinu, enda allir steyptir í sama mót; áheyrendur og hljómsveitarmeð- limir. Texti: Árni Matthíasson Heiiclsötudreifing S - 91/689737 Útsölustaðir Rocky - Ólafsvík Sportbúð Óskars - Keflavík Sportbœr - Selfossi Kaupf. V/ Húnv. - Hvammstanga Versl. fél. Austurlands - Egilsst. Sport - Laugavegi R. Kaupf. Þingeyinga - Húsavík Bragasport - Suðurlandsbraut R. Músík og sport - Hafnarfirði Amaró - Akureyri Sportbúð Kópavogs - Kópavogi Sportgallerí - Hafnarfirði Borgarsport - Borgarnesi Kaupf. Höfn - Hornafirði Akrasport-Akranesi UOg Loksins aftur KRYDDRASP Fæsl í næstu matvöruverslun. Væntanlegteinnigí 500gpakkningu. Metsölublad á hverjum degi! *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.