Morgunblaðið - 19.06.1988, Side 24

Morgunblaðið - 19.06.1988, Side 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 tteim/\nn rnínÁK Þú getur komið niður aft- ur. % er búinn að laga leslampann. Gerðu það fyrir mig, slepptu þessu: okkar í milli sagt... A að gera Kjalames að sorp- haug höfuðborgarsvæðisins Til Velvakanda. Það virðist vera hugmynd for- svarsmanna Reykjavíkurborgar og sumra annarra sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu að hætta sorp- söfnun svæðisins í Gufunesi, þar sem hún hefur verið um árabil, og flytja hana að Álfsnesi á Kjalamesi. Eg sem þessar línur rita fluttist í Kjalameshrepp fyrir meira en hálfii öld. Fram að þeim tíma hafði ég einmitt átt heima í Gufunesi, þar sem ég hafði slitið bamsskónum við sundin blá. Sú jörð tilheyrði þá Mosfellssveit en var í eigu Reykjavíkurbæjar, eins og það hét þá. Þá var Gufunes ósnortin perla í umhverfíslegu tilliti og beinlínis dásamlegur staður, ekki einungis í augum drengs sem var að alast þar upp, heldur í augum allra sem þang- að komu. Þá var orðið „útivistar- svæði" víst ekki til í íslensku máli, en ég hef oft hugsað um það síðan, hvort nokkur staður á höfuðborgar- svæðinu hefði verið betur fallinn til útivistar og útiskemmtana heldur en Gufunes, ef menn hefðu borið gæfu til að sjá það og framkvæma í samræmi við það. En því var nú ekki að heilsa. Eftir að áburðarverk- smiðja hafði verið byggð á staðnum með nokkmm þrýstingi frá borgar- yfírvöldum, með öllu því umróti og mengun sem henni hlaut að fylgja, var ákveðið að kóróna eyðileggingu staðarins með því að safna þangað öllu sorpi af höfuðborgarsvæðinu um árabil, meðan pláss væri til fyr- ir það. Það liggur við að mér verði illt á sálinni þegar ég á leið .þama um og sé hvemig þessi leikvöllur bemsku minnar er útleikinn. En nú þykir mönnum víst ekki unnt að eyðileggja meira á þeim stað og þá skal færa sig um set og leika sama leikinn utan við borg- armörkin. Ég minnist þess, að fyrir rúmum aldarfjórðungi las ég grein um væntanleg þéttbýlissvæði á höfuð- borgarsvæðinu, og minnir mig að húrt væri upprunnin frá „skipulags- stofu höfuðborgarsvæðisins", þar var svokallað Álfsnessvæði, milli Kollafjarðar og Leirvogs, talið eitt- hvert álitlegasta svæði fyrir íbúðar- húsabyggð í nágrenni höfuðborgar- innar. Var þar talið nægjanlegt landrými fyrir tvö þúsund manna byggð. Þetta sýnir betur en margt annað hversu dýrmætt þetta svæði er, og hve mikið slys það yrði ef það væri eyðilagt. Sveitarstjórn sá ekki ástæðu til að fara eftir þessari ábendingu og ákvað að koma upp þéttbýliskjama á öðmm stað, en það er nú önnur saga. Einnig hafa margir bent á að þama er eini staðurinn í Kjalames- hreppi, og jafnvel þó Mosfellsbær væri tekinn með, þar sem álitleg hafnarskilyrði eru til staðar frá náttúmnnar hendi og möguleiki á stóratvinnurekstri, en það hlyti að vera stómm æskilegri kostur fyrir sveitarfélagið og íbúa þess heldur en sorphaugar. í þessu sambandi koma upp í huga mér orð sem vom höfð eftir þáverandi borgarverkfræðingi fyrir allnokkmm ámm, en hann fullyrti að það hefði lengi verið stefna Reykjavíkurborgar að ná eignar- haldi á sem mestum hluta strand- lengjunnar með sjónum á Kjalar- nesinu. Ég man að ég undraðist stórlega þessi orð og velti því fyrir mér hver tilgangurinn gæti verið hjá borginni. Nú er hann kominn í ljós, þ.e. sá að gera Kjalamesið að sorphaug fyrir höfuðborgarsvæðið. Ég vil svo ljúka þessum hugleið- ingum mínum með áskomnum til sveitarstjómar og íbúa Kjalames- hrepps um að sjá svo um að enginn staður í hreppnum hljóti sömu örlög og Gufunes hefur mátt þola. Pétur Pálmason Vak og vakmiðlar Kæri Velvakandi. þíið minnsta í þessu samhengi. Hins Reyndar er dálítið um liðið síðan við sáum auglýsingu í sjónvarpinu um ágæti þessa vakmiðils og áhrifa- mátt auglýsinga þar. Ég sendi með tvær myndir af skjánum en hef bætt við orðunum vak og ísland. Sá sem hefur hugsað upp og gert þessa auglýsingu hefur haft næman skilning á vaki og sýnt útbreiðslu sendiorkunnar eins og hringi, öldur eða vaköldúr út frá miðju rétt eins og sést á lygnu vatni er fískur tek- ur flugu. Jónas Hallgrímsson segir í Gunnarshólma: Klógulir emir yfír veiði hlakka, því silungar vaka þar í öllum ám . . . Þetta bréf er eins og að ofan- sögðu má ráða kynning og áróður fyrir nýyrðinu vak sem jafngildir orðinu „radio“. Nú eru menn alls staðar að tönglast á óskapnaðinum ljósvakamiðlar þegar talað er um fjölmiðla sem senda þráðlaust, út- varp og sjónvarp. Væri ekki einfald- ara og nútímalegra að tala um vak- miðla. Ljósvaki er úrelt hugtak í vegar mætti tala um vakmótað ljós í ljósleiðurum og það gæti heitið ljósvakstækni. S.G. Tontó er týndur Tontó, sem er svartur og hvítur fressköttur, hvarf frá heimili sínu að Blómvangi 13 Hafnarfirði þriðju- daginn 9. júní. Hann var með bláa hálsól er síðast sást til hans. Þeir sem hafa orðið varir við hann eru vinsamlegast beðnir um að hafa » samband í síma 53105 á daginn eða síma 51860 á kvöldin. HÖGNI HREKKVÍSI /, s'a hefuk {?ap náðugt •' Víkverji skrifar að hefur loðað við hér á landi að framkvæmdir séu dýrar og fari langt fram úr áætlun. Þó hefur komið fyrir að þessu hefur verið snúið við, áætlun hefur staðist, bæði hvað varðar kostnað og þann tíma, sem gert var ráð fyrir að framkvæmdin tæki. Menn setja þá gjaman upp undrunarsvip og líkja því helst við kraftaverk. En þegar grannt er skoðað er þetta ekkert kraftaverk, þar hefur aðeins verið rétt að málum staðið. Oft vill brenna við að rokið er til að hefja framkvæmdir — og ef til vill skýrt frá því með lúðra- blæstri — áður en nauðsynlegri undirbúningsvinnu er Iokið og henni mjög áfátt. Sú undirbúningsvinna getur verið dýr og í það er horft, en sá kostnaður skilar sér venjulega margfalt, þegar upp er staðið. Allar breytingar, sem gerðar eru eftir að framkvæmdir eru hafnar, geta verið dýrar. Heilir veggir eru kannski brotnir niður og nýir steyptir á öðrum stað, undirstöður eru ekki nógu traustar, ijúka þarf til að styrkja þær o.s.frv. Sá hugsunarháttur, að þetta sé bara eðlilegt og ekkert við því að segja, virðist alltof algengur hér á landi. Við verðum að uppræta hann. Við eigum að nýta okkur þá verk- kunnáttu, sem við höfum yfír að ráða og standa vel að málum, þeg- ar ráðist er í dýrar framkvæmdir. Við þurfum ekki að vera eftirbátar annarra í þessum efnum, það sýna meðal annars þau verkefni, sem íslenskum fyrirtækjum hafa verið falin erlendis. Gerum jafnháar kröf- ur um framkvæmdir hér innan- lands. xxx Gamall Reykvíkingur kom að máli við Víkverja og kvartaði undan því, hve styttur hér í borg- inni væru illa merktar — eða alls ekkert merktar. Ogemingur væri í flestum tilfellum að sjá, hver hefði gert listaverkið eða hvað það héti. Þá væru alls ekki á öllum manna- styttum nöfn viðkomandi, og algjör undantekning, ef það sæist hvenær sá hinn sami var uppi. Kvaðst hann oft hafa séð menn ganga hringinn í kringum styttumar í leit að upp- lýsingum. Verst sagðist honum þó verða við, þegar hann heyrði böm spyija foreldra sína, hvað þessi eða hin styttan héti eða af hverjum hún væri — og hinir fullorðnu eyddu því tali, þegar þeir hefðu árangurslaust reynt að komast að hinu sanna. Þetta er rétt, styttumar okkar em illa merktar, en á því má ráða bót, til dæmis með því að festa á stallinn lítinn skjöld með upplýsing- um um heiti, nafn listamannsins, nafn, fæðingar- og dánardag þess, sem styttan er af sé hún af manni, og hvenær hún var sett upp. Segja má að þetta auki kannski ekki listrænt gildi styttunnar, en hún verður samt mörgum meira virði. Hún verður ekki lengur aðeins augnayndi, hún veitir einnig fróð- leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.