Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 1
56 SIÐUR B
II
STOFNAÐ 1913
191. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 24. AGUST 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Talsmaður Samstöðu:
Dregur til úrslita
á næstu dögum
Allar skipasmíðastöðvar í Gdansk
lokaðar að sögn Islendings í Gdansk
TALSMAÐUR Samstöðu, hinna bönnuðu verkalýðssamtaka í Pól-
landi, sagði á blaðamannafundi í Lundúnum í gær að stjórnvöld
yrðu að grípa til aðgerða nú þegar ef koma ætti í veg fyrir að verk-
föllin breiddust enn frekar út um landið. Stjórnvöld í Póllandi segja
að stuðningsmenn Samstöðu haldi landinu í heljargreipum verk-
fallsaðgerðanna, sem verða æ víðtækari.
Erfítt er að áætla fjölda verka-
manna sem eru í verkfalli í Pól-
landi. Stjómvöld segja að 5.000
verkamenn standi fyrir aðgerðun-
um og vegna þeirra séu 65.000
verkamenn frá vinnu. Verkföllin
hófust í bænum Jastrzebie, þar sem
sett var útgöngubann í gær. Út-
göngubann hefur einnig verið sett
í Stettin, Gdansk og iðnaðarborgum
í Slésíu, að sögn Kára Kristjánsson-
ar skipaeftirlitsmanns, sem starfar
í Gdansk. Krefjast verkamenn þess
að stjómvöld viðurkenni Samstöðu
auk þess sem þeir krefjast launa-
hækkana.
Talsmaður Samstöðu, Janusz
Onyszkiewicz, sagði á blaðamanna-
fundi í Lundúnum í gær að stjóm-
völd yrðu að bregðast skjótt við ef
koma ætti í veg fyrir að verkföllin
breiddust frekar út. „Næstu dagar
skipta sköpum,“ sagði Onyszki-
ewicz. „Stjómin verður að bregðast
við nú þegar ef henni á að takast
að hafa hemil á verkföllunum,"
bætti hann við. Talsmaðurinn taldi
ólíklegt að sett yrðu herlög í landinu
eins og gert var árið 1981. Onys-
zkiewicz taldi að herinn yrði ekki
kallaður til þar sem það myndi ekki
verða til þess að auka hróður stjóm-
valda.
Jerzy Urban, talsmaður pólsku
stjómarinnar, sagði á blaðamanna-
fundi í Varsjá í gær að viðræður
við Lech Walesa, leiðtoga Sam-
stöðu, um hvemig binda mætti enda
á verkföllin, væm útilokaðar. „Við-
ræður við menn sem ógna stjóm-
völdum með verkföllum em óhugs-
andi,“ sagði Urban. Ummæli Ur-
bans komu í kjölfar þess að þúsund-
ir verkamanna lögðu niður vinnu
og lokuðu öllum skipasmíðastöðv-
um í Gdansk í gær. Urban sagði
að stjómvöld ættu nokkra sök á
harðræðinu í Póliandi og sérstök
nefnd myndi koma saman í lok
ágúst til að endurskoða efnahags-
umbætur stjómarinnar.
Sjá viðtal við Kára Kristjáns-
son í Gdansk á síðu 4.
Stúdentar og Búddamunkar ganga um götur Rangoon í gær og
hrópa slagorð gegn stjórnvöldum.
Vesturbakkinn:
PLO trygg-
ir Jórdön-
um laun
Túnisborg. Reuter, Daily Telegraph.
Frelsissamtök Palestínu (PLO)
kváðust í gær ætla að gerast
ábyrg gagnvart þeim fjölda jórd-
anskra ríkisstarfsmanna á vest-
urbakka Jórdanár, sem misstu
vinnuna þegar Hussein Jórdaníu-
konungur skar á öll tengsl rikis
síns við Vesturbakkann í lok júli.
Hussein tilkynnti hinn 31. júlí
að hann gæfi allt tilkall til Vestur-
bakkans upp á bátinn, en viður-
kenndi um leið rétt PLO til þess
að lýsa yfír stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínuaraba þar. Nokkmm dög-
um síðar hætti hann öllum launa-
greiðslum til ríkisstarfsmanna þar.
I fyrra námu þær um 3,5 millj-
örðum ísl. kr., en Jórdaníustjórn
greiddi þó í raun lítinn hluta þeirrar
upphæðar, þar sem Saudi-Arabar
veittu þeim ríflega styrki og aðstoð
Breta og annarra vestrænna þjóða
nam næstum því jafnmiklu og
greiðslur Jórdana og Sauda. ísrael-
ar hafa ekki sýnt nein viðbrögð við
þessum ummælum PLO.
Sjá ennfremur fréttir á síðu
21: „Ólgan í ísrael ... “
Mótmælagöngur í Búrma:
Bandaríkin:
Vísitala
neyzluvöru
hækkar
Washington, London. Reuter.
VÍSITALA neyzluvöru hækk-
aði um 0,4% í júlímánuði í
Bandaríkjunum, eða meira en
næstu tvo mánuði á undan. Þá
drógust verksmiðjupantanir
saman og eldsneyti hækkaði, en
allt er þetta til marks um aukinn
verðbólguþrýsting.
Hækkun vísitölu neyzluvöru
það sem af er ári jafngildir 4,5%
verðbólgu en í fyrra nam hún
4,4% í Bandaríkjunum. Búizt var
við meiri hækkun í júlí vegna
þurrka, sem valdið hafa banda-
rískum kom- og hveitibændum
miklu tjóni í sumar.
Seðlabanki Bandaríkjanna
hækkaði forvexti í byijun mánað-
arins til þess að draga úr þenslu-
áhrifum í hagkerfinu. Sérfræð-
ingar segja aðra vaxtahækkun
óhjákvæmilega.
í gær tókst seðlabönkum nokk-
urra vestrænna ríkja að stemma
stigu við verðhækkun dollars með
því að losa sig við dollara í stórum
stíl: í Dondon var hann skráður
á 1,9065 vestur-þýzk mörk í gær
miðað við 1,9185 í fyrradag.
Hundruð þúsunda andófs-
manna krefjast lýðræðis
Rangoon. Reuter.
MEIRA en hálf milljón manna tók þátt í friðsamlegum mótmælum
í gær í borgum og bæjum í Búrma til að krefjast þess að stjórn
sósíalistaflokksins í landinu fari frá eftir 26 ára einræði. Hersveit-
ir, sem sendar voru út á götur í Rangoon, höfuðborg landsins, til
að halda uppi lögum og reglu, hafa verið fluttar á brott, að sögn
erlendra sendimanna. Maung Maung, nýkjörinn leiðtogi landsins,
hinn þriðji á fimm vikum, hefur sett á laggirnar nefnd sem kanna
á hug almennings í landinu til stjórnvalda.
auk stúdenta hefðu læknar, hjúkr-
unarfólk og lögfræðingar tekið þátt
í mótmælunum, sem farið hefðu
friðsamlega fram. Útvarpið sagði
að öryggissveitir hefðu skotið á
mótmælendur sem komist hefðu inn
í herbúðir í borginni Maulmein og
stolið þaðan vopnum. Vestrænir
sendimenn sögðu að sex andófs-
menn hefðu látið lífið.
Sjá ennfremur erlendan vett-
vang á miðopnu.
í Rangoon gengu að minnsta
kosti 100.000 manns syngjandi um
götur með borða og spjöld þar sem
á var letrað að þjóðin krefðist lýð-
ræðis. „Hér er svar okkar við beiðni
stjómarinnar um álit almennings,“
stóð á borða sem strengdur var
yfir götu í miðborg Rangoon.
Rúmlega 250.000 manns gengu
í gær fylktu liði um götur Mandalay
sem er norðarlega í Búrma. Erlend-
ur sendimaður í Mandalay sagði að
hvert heimili í borginni hefði átt
a.m.k. tvo fulltrúa í göngunni.
200.000 manns tóku þátt í mótmæl-
um í borginni Tavoy í suðurhluta
landsins. Sendimaðurinn sagði að í
báðum þessum borgum hafí verið
tilkynnt að borgarstjórnin væri far-
in frá og Búddamunkar hafi hrelðr-
að um sig á yfirgefnum borgarskrif-
stofum.
Mótmælin fóru friðsamlega fram
og þegar leið á daginn dreifðist
mannfjöldinn. Hermenn, sem stóðu
vörð við stjórnarbyggingar í höfuð-
borginni, voru látnir óáreittir. Fólk-
ið sýndi engin merki hræðslu þrátt
fyrir atburðina sem áttu sér stað
fyrir tveim vikum þegar herinn
skaut á mannfjöldann. Virtust
margir í hátíðarskapi. Hermenn
ræddu við göngumenn og sáust
borgarar rétta þeim brauðmeti.
Þeim fáu erlendu ferðamönnum,
sem enn eru í Búrma, var vel tekið
af fólkinu sem þyrpst hafði út á
göturnar.
Almenningur í Búrma krefst þess
að endi verði bundinn á 26 ára ein-
ræði stjómarflokksins og pólitískir
fangar verði látnir lausir. Úm helg-
ina fjarlægðu hermenn borða með
þessum kröfum sem strengdir höfðu
verið á byggingar í borginni. Borð-
unum hefur nú verið .komið fyrir
aftur.
Útvarpið í Rangoon sagði frá
mótmælunum í höfuðborginni og
einnig í borgunum Moulmein,
Mandalay, Sandoway og Meiktila í
kvöldfréttatíma sínum í gær. Ekki
var getið um fjölda þátttakenda,
en í frétt útvarpsins var sagt að
Reuter
Umferðarslys íAusturríki
Fjórtán létu lífið og tuttugu og einn slasaðist þegar austurrísk-
ur vöruflutningabíll og langferðabifreið frá Ungveijalandi rák-
ust á nærri Vín í gær. Þeir sem létust voru allir farþegar i
langferðabílnum sem höfðu verið á ferðalagi en voru á heim-
leið. Orsakir slyssins eru ókunnar.