Morgunblaðið - 24.08.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
Þjóðarsátt er for-
senda niðurfærslu
- segir forsætisráðherra
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra segir að niðurfærsluleið sé
þess eðlis að um hana þurfi að vera þjóðarsátt til þess að hún heppn-
ist. Verið er að afla frekari upplýsinga á vegum ríkisstjórnarinnar
um möguleika á að fara þessa leið við efnahagsaðgerðir, og hefur
forsætisráðherra haft óformlegt samráð við aðila vinnumarkaðar,
m.a við forseta Alþýðusambands íslands sem staddur er í Færeyjum.
Ráðgjafamefnd ríkisstjómarinn-
ar, sem skilaði áliti í gær, leggur
til að könnuð verði til þrautar sú
leið að færa niður laun og verðlag.
Slíkt leiði af sér hraða verðbólgu-
hjöðnun og mikla og tafarlausa
lækkun nafnvaxta. Nefndin telur
að hröð lækkun verðbólgu og vaxta
hafi verulega þýðingu fyrir fram-
leiðslufyrirtæki og launþega og
óumflýjanleg kaupmáttarskerðing
verði þrautaminnst fyrir þjóðina
með niðurfærslu.
„Leið sem þessi er þess eðlis að
um hana þarf að vera þjóðarsátt.
Það er forsendan fyrir því að hún
heppnist í framkvæmd," sagði Þor-
steinn Pálsson. Hann sagði að ríkis-
stjómin yrði að ákveða á fundi
næsta fimmtudag hvort niður-
færsluleið verður farin en þing-
flokkar stjómarinnar munu halda
fundi um málið í dag.
Ólafur ísleifsson:
Hef miklar efasemdir
um niðurfærsluleiðina
ÓLAFUR ísleifsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, segist
vera mjög vantrúaður á að niðurfærsluleiðin sé fær. Hann segist
telja að hún hefði í för með sér launamisrétti, og erfitt yrði að
koma verðlagi niður. „Þeir útreikningar sem ég hef séð, renna
stoðum undir þessa skoðun mína,“ sagði Ólafur í samtali við Morg-
unblaðið.
„Ég hef miklar efasemdir um
niðurfærsluleiðina meðal annars
vegna þess að ég held að launa-
lækkanir myndu koma afar mis-
jafnlega niður á launþegum,"
sagði Ólafur. „Hætta er á að slíkt
myndi hafa í for með sér launamis-
rétti, sem ekki yrði þolað.“
Þá sagðist Ólafur telja að að-
stæður til verðlagslækkunar væm
mjög misjafnar. „Sýnt er að inn-
flutningur gæti ekki lækkað nema
sem svaraði til lækkunar launalið-
ar í álagningu,“ sagði hann. „Þá
má taka dæmi af raforkuverði,
sem í raun fer einkum eftir kjömm
á lánum orkufyrirtækjanna og er
því erfítt að ráða við. Verslunin
stendur einnig mjög misjafnlega,
og dreifbýlisverslunin berst til
dæmis í bökkum. Ég held að hún
sé illa í stakk búin að taka á sig
verðlagslækkun.
Ein ástæðan er sú að ákvarðan-
ir um laun og verðlag em mjög
dreifðar eins og gerist eðlilega í
nútímaþjóðfélagi. Það er ekki
raunhæft að gera ráð fyrir því að
miðstýrð ákvörðun komi að gagni
nema um hana takist mjög víðtæk
samstaða," sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Margeir Pétursson tók forystu á Skákþingi íslands í gærkvöldi með því að sigra Hannes Hlífar
Stefánsson, en þeir voru efstir og jafnir þegar sest var að tafli í gær. Myndin er tekin á meðan
viðureign þeirra stóð yfir, Hannes er vinstra megin, Margeir til hægri (nafnspjöld þeirra hafa
víxlast). Fjær tefla Jón L. Árnason og Benedikt Jónasson. Jón L. vann þá skák og er annar á
mótinu, hálfum vinningi á eftir Margeiri.
Skákþing Islands:
Margeir efstur í landsliðsflokki
- vann Hannes Hlífar í snarpri baráttuskák í gær
MARGEIR Pétursson er einn efstur í landsliðsflokki á Skákþingi
íslands að loknum átta umferðum. Hann hefur sjö vinninga eftir
að hafa sigrað Hannes Hlífar Stefánsson í snarpri baráttuskák
i gærkvöldi. Þeir höfðu báðir sex vinninga þegar umferðin hófst.
Jón L. Ámason kemur næstur Margeiri með sex og hálfan vinning.
Úrslit í 8. umferð vom annars
þau, að Jón L. Ámason vann
Benedikt Jónasson, Jóhannes
Ágústsson vann Ásgeir Þ. Arna-
son, Karl Þorsteins vann Þröst
Þórhallsson, Davíð Ólafsson vann
Ágúst Karlsson og Róbert Harð-
arson vann Þráin Vigfússon. Mar-
geir er þá efstur með sjö vinn-
inga, Jón L. Ámason er annar
með sex og hálfan, Hannes Hlífar
Stefánsson í þriðja sæti með sex,
Karl Þorsteins fjórði með fimm
og hálfan vinning. Jafnir í fimmta
til sjöunda sæti em Ágúst Karls-
son, Róbert Harðarson og Þröstur
Þórhallsson með fjóra vinninga,
Jóhannes Ágústsson hefur þijá
og háifan, _Davíð Ólafsson þijá,
Asgeir Þ. Ámason tvo, Benedikt
Jónasson einn og hálfan og Þráinn
Vigfússon einn vinning.
Að sögn Gísla Ásgeirssonar
blaðafulltrúa mótsins var viður-
eign þeirra Margeirs og Hannesar
Hlífars snörp og einkenndist af
baráttuvilja, enda áttust þar við
tveir efstu menn og gat skákin
ráðið úrslitum um sigurvegara
mótsins. Ekki er þó útséð með
það ennþá hver ber sigur úr být-
um, því enn er eftir að tefla þijár
umferðir. Níunda umferð verður
tefld í dag og hefst kl. 18.00.
Teflt er í Hafnarborg í Hafnar-
firði.
ÍSAL tölvuvæðir framleiðsluna:
íslenskt tölvufyrirtæki var
tekið fram yfir bandarískt
ÍSAL HEÉUR gert samning við
Tölvumyndir hf. um tölvuvæð-
ingu fyrir framleiðsluáætlun í
steypuskála fyrirtækisins. Hið
nýja tölvukerfi á að taka í notkun
um næstu áramót en það verður
tengt við kerskála álversins og
rannsóknarstofu þess. Tölvu-
myndir voru teknar framyfir
bandariskt hugbúnaðarfyrirtæki
Félagsmálaráðuneytið:
Ferðakostnaður skor-
inn niður um fjórðung
Kemur ekki niður á erlendum samskiptum ráðuneytisins
eða stofnana þess, segir Jóhanna Sigurðardóttir
„VIÐ gerðum þetta í upphafi árs og þessu mun verða haldið áfram
á meðan ég er þarna,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra. HÚn var spurð hvort rétt væri, að ferðakostnaður hefði ver-
ið skorinn niður um fjórðung í hennar ráðuneyti og stofnunum þess.
Hún sagði þetta fyrirkomulag vera mun betra en verið hafði, vegna
þess að með hinum nýju reglum um ferðir á vegum ráðuneytisins
er tryggt, að yfirsýn er yfir allan ferðakostnaðinn á einum stað,
en svo var ekki áður.
„Ég ákvað það í upphafi að reynt
skyldi að spara á þessum lið sem
öðrum í ráðuneytinu. Stofnunum
sem tilheyra ráðuneytinu var falið
að senda inn yfirlit yfir þær ferðir
sem yrðu famar á þessu ári og
þegar þeir listar lágu fyrir, þá var
það skorið niður um 25%.“
Jóhanna var spurð hvort þessi
niðurskurður hefði á einhvem hátt
komið niður á samskiptum ráðu-
neytisins eða stofnana þess við er-
lenda aðila. „Nei, ég lít ekki svo
á,“ sagði hún. „Það var mat ráðu-
neytisins eftir að hafa farið yfir
þetta með forstöðumönnum þessara
stofnana, að þessar ferðir mættu
liggja á milli hluta. Þær myndu
engu breyta í samstarfi stofnana
við erlenda aðila.“
Jóhanna sagði þetta nýja fyrir-
komulag vera til mikilla bóta. „Áð-
ur var þetta sent ráðuneytinu til
staðfestingar, hvenær sem komu
upp utanlandsferðir. Það var engin
yfírsýn yfír ferðimar á hvetju ári
þannig að menn gætu metið hvað
væri nauðsynlegt fyrir stofnanimar
til að halda uppi erlendum sam-
skiptum. Það vantaði alla heildar-
yfirsýn yfir þetta fannst mér.“
Jóhanna var spurð hvort hið nýja
fyrirkomulag tryggði að þessi yfir-
sýn væri nú fyrir hendi. „Já, hún
er' alveg komin og var í upphafí
árs. Þeim lista sem þá var komið
saman um utanlandsferðir hefur
tekist að halda allt þetta ár,“ sagði
hún. Jóhanna sagðist ekki hafa orð-
ið annars vör í ráðuneytinu, en að
þessi nýja skipan utanlandsferða
mæltist vel fyrir.
sem einnig bauð i verkið.
Jónas Sigfússon yfírmaður tölvu-
deildar ÍSAL segir að tillögur Tölvu-
mynda hf. hafi uppfyllt þær kröfur
sem settar vom mun betur en þær
sem boðnar voru af sérhæfðu
bandarísku fyrirtæki sem einnig var
leitað til.
„Það er óhætt að segja að samn-
ingur sá sem við gerðum við Tölvu-
myndir sé með þeim stærri sem
gerðir hafa verið miðað við íslensk-
an mælikvarða," segir Jónas. Hann
vildi ekki gefa upp hvað verkið
kostar í heild, en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins skiptir það
nokkrum milljónum króna.
Jónas segir að hið nýja tölvu-
kerfí sé hluti af stærra verkefni á
sviði endurskipulagningar innan
ÍSAL sem sett verður í gang um
áramótin. Auk þess að tengjast
framleiðslulínunni verður það tengt
við svokallað málmbókhald fyrir-
tækisins.
Önnur álver innan Alusuisse-
samsteypunnar munu fylgjast mjög
grannt með hinu nýja tölvukerfi.
Ef það gengur vel eru líkur á að
þau muni taka það í notkun einnig.
Jónas segir að ákveðið samstarf sé
milli þessara álvera en of snemmt
sé að ræða um hvort kerfið verður
flutt út eða ekki. Fyrst verður að
fást reynsla á það.
Friðrik Sigurðsson annar eigenda
Tölvumynda hf. segir að það sé
dæmi um sterka stöðu íslenska
hugbúnaðariðnaðarins að fyrirtæki
á borð við Tölvumyndir geti keppt
við stórt bandarískt fyrirtæki á
þessu sviði og haft betur.
„Að íslenskum aðila skuli hafa
verið treyst fyrir verkinu sínir að
mínu mati að íslensk hugbúnaðar-
fyrirtæki geta haslað sér völl á al-
þjóðlegum vettvangi," segir Friðrik.
Alþjóðaskák-
mótið við Djúp:
Helgi Ólafs-
son stórmeist-
ari efstur
HELGI Ólafsson stórmeistari er
í efsta sæti á Alþjóðaskákmótinu
við Djúp í gær að loknum átta
umferðum. Helgi hefur sjö vinn-
inga, eftir að hafa sigrað Guð-
mund Gíslason i skák, sem fre-
stað hafði verið, en tefld var i
gærkvöldi.
Næstir að vinningum eru stór-
meistaramir Jan Johannsson frá
Svíþjóð og Finninn Yije Rantanen
ásamt skákmeistara Dana, Lars
Schandorff. Þeir hafa allir 6 vinn-
inga. Með fimm og hálfan vinning
er stórmeistarinn Glenn Flear frá
Englandi, bandaríski Úkraínumað-
urinn Orest Popovych er með fimm
vinninga, Andri Áss Grétarsson
með þijá og hálfan og Guðmundur
Gíslason með tvo og hálfan.
Níunda umferð mótsins verður
tefld f kvöld. Teflt er í Menntaskól-
anum á ísafírði.