Morgunblaðið - 24.08.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
3
Fiskmarkaðir:
Verðhækkun á
þorski og ýsu
MEÐALVERÐ fyrir þorsk og ýsu
var hærra í júlí sl. en í júní sl. á
fiskmarkaðinum í Hafnarfirði og
Fiskmarkaði Suðurnesja, þrátt
fyrir takmarkanir á sölu þorsks
og ýsu úr gámum í Bretlandi í
júlí. Seld voru 1.956,5 tonn af
þorski í júní en 1.798 tonn í júlí
og 552 tonn af ýsu í júní en 291
tonn í júli á fiskmarkaðinum í
Hafnarfirði, Fiskmarkaði Suður-
nesja og Faxamarkaði. Veidd
voru 30.624 tonn af þorski og
7.013 tonn af ýsu í júní en 28.188
tonn af þorski og 3.325 tonn af
ýsu í júlí, samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Fiskifélagi ís-
lands.
Á fiskmarkaðinum í Hafnarfirði
voru seld 602 tonn af þorski fyrir
37,06 króna meðalverð og 192 tonn
af ýsu fyrir 46,83 króna meðalverð
í júní en 574 tonn af þorski fyrir
40,20 króna meðalverð og 73 tonn
af ýsu fyrir 54,62 króna meðalverð
í júlí.
Á Fiskmarkaði Suðumesja voru
seld 495,5 tonn af þorski fyrir 38,09
króna meðalverð og 148 tonn af
ýsu fyrir 46,78 króna meðalverð í
júní en 671 tonn af þorski fyrir
41,05 króna meðalverð og 104 tonn
af ýsu fyrir 53,22 króna meðalverð
í júlí.
Á Faxamarkaði voru seld 859
tonn af þorski fyrir 39,54 króna
meðalverð og 212 tonn af ýsu fyrir
47,92 króna meðalverð íjúní en 553
tonn af þorski fyrir 38,77 króna
meðalverð og 114 tonn af ýsu fyrir
Siglufjörður:
Gámur féll á
flutninga-
skip og það-
an í höfnina
40 FETA gámur féll á ms. Esju
og þaðan i höfnina á Siglufirði
á laugardag. Ekki urðu nein slys
á mönnum en skipið iaskaðist
lítillega og gámurinn er ónýtur.
Verið var að flytja frystan fisk
frá Siglfirðingi hf. um borð í ms.
Esju, sem er í eigu Ríkisskipa, er
vír slitnaði í krananum er notaður
var. Gámurinn skall á skipshliðina
og féll þaðan í sjóinn. Kom gat á
gáminn við höggið og lenti mestur
hluti fisksins á þilfari Esjunnar en
einhver hluti fór í sjóinn. Að sögn
Þóris Sveinssonar hjá Ríkisskipum
er ekki vitað hversu mikið tjónið
er en ljóst er að það er allnokkuð.
47,21 krónu meðalverð í júlí.
Á fiskmörkuðunum í Bretlandi
voru seld 3.093 tonn af þorski fyrir
59,27 króna meðalverð og 1.682
tonn af ýsu fyrir 70,08 króna með-
alverð í júní en 2.339 tonn af þorski
fyrir 82,98 króna meðalverð og
1.128 tonn af ýsu fyrir 84,49 króna
meðalverð í júlí.
Lögreglan í Reykjavík:
Ný deild um forvarnir
Morgunblaðið/Júlíus
NÝ DEILD, forvarnadeild,
hefur verið stofnsett við emb-
ætti lögreglustjórans í
Reykjavík að tilhlutan lögreglu-
stjóra og dómsmálaráðherra.
Deildinni er einkum ætlað að
safna saman og miðla upplýsing-
um um starfsemi lögreglunnar og
vera fólki til aðstoðar og ráðuneyt-
is um ýmis efni sem lúta að störf-
um lögreglunnar.
Ómar Smári Ármannsson settur
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Ómar Smári Ármannsson aðal-
varðstjóri mun veita deildinni for-
stöðu fyrsta kastið og hefur verið
settur í stöðu aðstoðaryfirlög-
regluþjóns til eins árs.
'O
INNLENT
Fíkniefnalögr eglan:
„Rlandaður
afli“ frá
Amsterdam
FÍKNIEFNADEILD lögreglunn-
ar handtók mann við komu til
landsins frá Amsterdam á föstu-
dag. Hann hafði í fórum sínum
um 800 grömm af hassi, og lítil-
ræði af kókaíni og amfetamíni.
Maðurinn var á laugardag úr-
skurðaður í viku gæsluvarðhald fyr-
ir innflutning á þessum „blandaða
afla“ meðan málið er í rannsókn.
Reiðufé í réttri mynt
Allan sólarhringinn - árið um kring
VISA 1
■i .nMrtWmfflv
Ætlarðu utan?
Til Kaupmanna-
hafnar eða Stokkhólms,
San Francisco eða Seville.
- Hvar sem þú ert - hvert
sem þú ferð - VISA er
þar!
Vanti þig skotsilfur í
skyndi - vasapeninga í
réttri mynt - allt sem þarf er
að ýta á hnapp og VISA-
hraðbankinn leysir vandann!
j* x
"voiv,: *
t-----'
. * *
* » r % &
* «
VISA - opnar þér fleiri
dyr en nokkurt annað
greiðslukort. Á sjöundu
milljón viðtökustaða um
veröld alla5 auk 220.000
banka og 26.000
hraðbanka á helstu
ferðamanna-
stöðum landans.
Sjáirðu seðlasjálfsala
með hinu kunnuglega
VISA-merki5 stingur þú
kortinu þínu í hann, slærð
inn PIN-númerið þitt* og
sjá - seðlarnir streyma út.
Þægileg þjónusta - ekki
hvað síst á kvöldin og um
helgar.
Með VISA upp á vasann
- er þér ekki í kot vísað!
V/SA
ALHEIMS
STYRKTARAÐILI
ÓLYMPÍULEIKANNA 1988
'V
*) Hafðu samband við VISA
ÍSLAND ef þú þarft að fá
PIN-númerið (Persónulega
innsláttarnúmerið þitt)
endurútgefið.