Morgunblaðið - 24.08.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
íslendinga-
sögur á
króatísku
FJÓRAR íslendingasögur
hafa veriö gefnar út á kró-
atísku í borginni Zagreb í
Jugóslaviu. Eftir því, sem næst
verður komist, er þetta í
fyrsta sinn, sem íslendinga-
sögurnar eru gefnar út á
þessu máli.
Sögumar fjórar og þrír íslend-
ingaþættir voru gefnar út í
pappírskilju. Þýðinguna gerði
Dora Macek, prófessor í enskri
tungu við háskólann í Zagreb,
en hún nam íslensku við Edin-
borgarháskóla.
í bókinni er að fínna Hrafn-
kels sögu, Gunnlaugs sögu
ormstungu, Grænlendinga sögu
og Eiríks sögu rauða, og auk
þess Þorsteins þátt stangar-
höggs, Auðunar þátt vestfírska
og Ivars þátt Ingimundarsonar.
Sögunum fylgir síðan fróðlegur
eftirmáli.
12
20
NakUidm zavod Mauce hrvatike
Dora Macek
Islandske sage
i price
antologija
Forsíða pappírskiljunnar sem
inniheldur fjórar íslendinga-
sögur á króatísku.
Bankamönnum líst illa á
að lög’leiða vaxtalækkun
BANKAMONNUM líst illa á hug-
myndir um að lögbinda lækkun
vaxta, verði farin niðurfærslu-
leið f efnahagsráðstöfunum. Þeir
benda á að með lækkun verð-
bólgu muni nafnvextir sjálfkrafa
lækka, en hins vegar sé lítið
svigrún að lækka raunvexti út-
lána meir en orðið er á meðan
kröfur sparifjáreigenda séu um
4-7% raunávöxtun á innlánum.
Brynjólfur Helgason aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, sagðist
ekki telja heppilegt að stjómvöld
gripu beint inn í feril vaxtaákvarð-
ana bankanna. Ljóst væri að eftir-
spum eftir lánsfé væri það mikil
að vextir yrðu að vera nokkuð háir
og einnig væru kröfur spariijáreig-
enda um raunávöxtun á bilinu 4-7%.
Á meðan þeirri ávöxtun væri haldið
lækkuðu ekki raunvextir útlána.
Brynjólfur sagði að mögulegt
væri fyrir stjómvöld að hafa áhrif
á vexti með óbeinum hætti, með
því t.d. að lækka vexti á spariskír-
teinum ríkissjóðs. Hættan væri þó
auðvitað sú að markaðurinn fylgdi
ekki með.
VEÐUR
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa isiands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR ÍDAG, 24. ÁGÚST1988
YFIRLIT í GÆR: Gert er róð fyrir stormi á suðausturdjúpi. Um 600
km suður af Vestmannaeyjum er 985 mb lægð sem þokast norö-
austur. Hiti breytist lítið.
SPA: Norðan- og norðaustanótt, víðast kaldi eða stinningskaldí.
Rigning á Austur- og Norðausturlandi, en smáskúrir á víð og dreif
í öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 8 til 14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR A FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðan og norðaustan-
átt og fremur svalt. Víða rigning eða súld á Norður- og Austur-
landi, en þurrt og víða bjart veður á Suður- og Vesturlandi.
TAKN:
y. Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * V Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / — Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 5 5 . Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * ~1* Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * . K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veAur Akureyri 13 skýjsð Reykjavlk 9 súld
Bergen 16 skýjaó
HeUinki 16 rigning
Kaupmannah. 13 skúr
Narssarssuaq 5 þoka i grennd
Nuuk 6 þoka
Ósló 16 skýjaA
Stokkhólmur 20 skýjað
Þórshðfn 12 alskýjað
Algsrve 25 skýjað
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 24 hálfskýjað
Chicago 21 þokumóða
Feneyjar 21 lóttskýjað
Frankfurt 19 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 16 skúr
Las Palmas 29 heiðskirt
London 18 skýjað
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 17 skýjsð
Madríd 26 lóttskýjsð
Malaga 28 skýjað
Mallorca 22 skýjað
Montreal 13 lóttskýjað
New York 18 skýjað
París 18 skýjað
Róm 25 lóttskýjað
San Diego 19 léttskýjað
Wlnnipeg 18 skýjað
Benedikt Geirsson hjá Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis sagðist
telja það mikla afturför ef lögbinda
ætti vexti. Hann benti á að ef verð-
bólgan færi niður fylgdu nafnvextir
í kjölfarið, og einnig hefðu raun-
vextir á verðtryggðum lánum lækk-
að m.a. hjá sparisjóðunum um 0,5%
á útlánum en ekki innlánum. Hins
vegar þyrfti raunávöxtun innlána
væntanlega að lækka til að hægt
mlisværi að lækka raunvexti enn
frekar vegna þess að núverandi
vaxtamunur væri nær lágmarki.
Guðmundur Hauksson banka-
stjóri Útvegsbankans vildi ekki tjá
sig um hugmyndir um lögbindingu
vaxtalækkunar þar til hann hefði
séð nánar hvað í tillögunum fælist,
en sagði það takmarkað hvað hægt
væri að lækka vexti fyrr en séð
væri fram á meiri festu varðandi
lækkun verðbólgu.
Kári Kristjánsson í Gdynia:
Mikil hræðsla við að
herinn grípi inn 1
„Verkfallsaðgerðimar hér em mótmæli við stefnu stjómvalda
undanfarið. Hér hafa allar vörur hækkað um 200% síðan um ára-
mót. Fólk krefst hærri launa, það vill stjórnina frá, og viðurkenn-
ingu á Samstöðu,“ sagði Kári Kristjánsson, skipaeftirlitsmaður Sigl-
ingamálastofnunar í Gdynia í Póllandi, er Morgunblaðið náði taU
af honum í gær. Kári starfar í Gdansk, þar sem allt logar nú i verk-
föUum. Kári sagði að þótt uppreisnarhugur væri í fólki væm marg-
ir efins um að mótmæli verkamanna myndu bera árangur. „Það er
mikU hræðsla við harðar aðgerðir stjórnvalda, og að herinn grípi inn
í eins og 1980,“ sagði Kári.
mótmælenda, en aðeins tveir verka-
menn hefðu meiðst. Hann sagði
verkfallsmenn hafa lokað öllum
skipasmíðastöðvum í Gdansk í gær
um klukkan hálfþrjú að staðartíma.
Þar á meðal voru tvær stöðvar, sem
gera við íslensk skip, báðar nálægt
Lenín-skipasmíðastöðinni. Kári
sagði að lögreglumenn stæðu við
hlið allra stöðvanna og gættu þess
að enginn færi inn, en ekki hefði
slegið ( brýnu.
Aðspurður sagði Kári að ekki
bæri mikið á Lech Walesa, leiðtoga
Samstöðu, í mótmælunum. „Hann
styður aðgerðimar en lætur ekki
mikið á sér bera.“ Hann sagði að
vérkamenn hefðu verið með mót-
mælaaðgerðir gegn stjómvöldum á
pijónunum síðastliðinn vetur, en
ákveðið að bíða. „Menn áttu von á
að þeim yrði synjað um kol til að
hita hús sín, en núna er heitt í veðri
og slíkt hrífur ekki,“ sagði Kári.
Kári sagði að útgöngubann hefði
gengið í gildi f Kraká í suðurhluta
Póllands á mánudag. Þá hefði hann
heyrt að útgöngubann hefði verið
fyrirskipað í Gdansk frá kl. 23 að
kvöldi fram til kl. 5 að morgni.
Ekki hefði hins vegar verið gripið
til þess í Gdynia, þar sem hann er
búsettur.
Kári hefur eftirlit með íslenskum
skipum í skipasmíðastöðvum í
Gdynia og Gdansk við Eystrasalt.
Auk hans em fjórir aðrir íslending-
ar í Gdansk að fylgjast með viðgerð-
um á togumnum Páli Pálssyni og
Ljósafelli. Kári sagðist vera í dag-
legu sambandi við hina íslending-
ana og hefðu þeir ekki haft óþæg-
indi af aðgerðum verkfallsmanna
eða lögreglu.
Kári sagði að ekki hefði komið
til beinna átaka verkfallsmanna við
lögreglu síðan um helgina. Þá hefðu
níu lögreglumenn slasast í gijóthríð
Féll ofan í
skipslest
Maður féll í lest Lagarfoss þegar
unnið var við lestun skipsins við
Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi
á þriðjudag.
Kranabóma rakst í höfuð manns-
ins sem stóð við lestaropið en hafði
öryggishjálm á höfði. Hann féll ofan
í lestina fulla af ósekkjuðum fosfór
og kom niður á fætuma. Hann var
fluttur á slysadeild.
Árekstrar:
Um 30 stinga
af mánaðarlega
í HVERJUM mánuði óska að jafnaði um 30 bíleigendur eftir aðstoð
lögreglunnar í Reykjavík vegna þess að einhver hefur ekið á bíla
þeirra en stungið af frá skömminni.
Að sögn Gylfa Jónssonar lög- gæti haft mikið að segja fyrir þá
reglufulltrúa hefur lögreglan
sjaldnast við nokkrar vísbendingar
að styðjast í þessum málum og
upplýsist því lítill hluti þeirra. Oft
eru bílamir talsvert skemmdir og
tjón eigendanna tilfínnanlegt. Þeir
sem fyrir þessu verða þurfa að
greiða viðgerð úr eigin vasa þar sem
ábyrgðartryggingar bæta aðeins
það tjón sem notkun bílsins veldur
öðram og sjálfsábyrgð kaskótrygg-
inga nemur oft tugum þúsunda.
Gylfí Jónsson sagði að helst væri
von til að upplýsa þessi mál, og
láta þann greiða tjónið sem olli
því, þegar vegfarendur, sem yrðu
vitni að atvikum af þessu tagi,
skráðu hjá sér skráningarnúmer
bíla, tegund og lit og kæmu upplýs-
ingunum til tjónþolans eða lögregl-
unnar. Það væri lítil fyrirhöfn sem
sem ella geta þurft að greiða um-
talsverðar fjárhæðir til viðgerða.
Léleg-
loðnuveiði
ÍSLENSKU loðnuskipin veiddu
enga loðnu í fyrrinótt, að sögn
Finnboga Jónssonar fram-
kvæmdastjóra Sildarvinnslunnar
hf. á Neskaupstað.
Hólmaborg SU var síðdegis í gær
einungis búin að fá 400 tonn í ann-
arri veiðiferð sinni og Börkur NK
50 tonn í sinni fyrstu en þau era
einu íslensku skipin sem nú eru á
loðnuveiðum.