Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
5
Nýr veitingastaður
opnaður í Neskaupstað
Neskaupstað.
NÝR veitingastaður var ný-
lega opnaður hér á staðnum,
ber hann nafnið Veitingahú-
sið við höfnina og er til húsa
á sama stað og Hafnarkaffi
var áður.
Húsnæðið hefur verið
stækkað og endurbætt og tek-
ur staðurinn á milli 40 og 50
gesti í sæti. Boðið er upp á fjöl-
breytt og vandað úrval veitinga
»og auk þess hefur húsið vínveit-
ingaleyfi.
Góð aðsókn hefur verið að
staðnum síðan opnað var. Eig-
andi veitingahússins er Aðal-
björg Þorvarðardóttir mat-
sveinn.
- Ágúst
Þær matreiða fyrir gesti Veit-
ingahússins við höfnina á
Neskaupstað. Eigandinn, Að-
albjörg Þorvarðardóttir, t.v.
og Anna Jónsdóttir til hægri.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Landssamtök -
sauðfjárbænda
halda aðalfund
á Flúðum
AÐALFUNDUR Landssamtaka
sauðfjárbænda verður haldinn á
Flúðum dagana 26. og 27. ágúst
næstkomandi, og silja hann um
50 kjörnir fulltrúar frá aðildar-
félögum samtakanna, auk gesta.
Að sögn Jóhannesar Kristjáns-
sonar á Höfðabrekku, formanns
samtakanna, verður á fundinum
fyrst og fremst íjallað, um stöðu
sauðijárræktarinnar eins og hún er
í dag, og jafnframt um félagskerfi
landbúnaðarins og stöðu Landssam-
taka sauðíjárbænda innan þess
Saga Film ger-
ir myndband
fyrir hand-
knattleiks-
landsliðið
SAGA FILM hefur gert mynd-
band við lag Valgeirs Guðjóns-
sonar, „Gerum okkar besta“, en
það er stuðnings og stemmning-
arlag handknattleikslandsliðs-
ins fyrir Ólympiuleikana í Seo-
ul.
Valgeir söng lagið með leik-
mönnum liðsins og var það hljóð-
ritað síðla nætur í júní. Var at-
burðurinn myndaður af starfsfólki
Saga Film, sem gaf alla vinnu sína.
Ágúst Baldursson sem stjómaði
gerð myndbandsins gerði það
sömuleiðis endurgjaldslaust.
Myndbandið er nú tilbúið og
verður það frumsýnt innan tíðar,
samhliða útgáfu hljómplötunnar
með söng landsliðsins.
(Úr fréttatilkynningu.)
Aðalfundur
Sambands ísl-
enskraloð-
dýraræktenda
AÐALFUNDUR Sambands
íslenskra loðdýraræktenda
verður haldinn á Hvanneyri í
Borgarfirði dagana 25. og 26.
ágúst. Fundinn sitja 35 kjörnir
fulltrúar, en aðildarfélög innan
SÍL eru 13 talsins.
Á aðalfundinum verður fjallað
um stöðu loðdýraræktarinnar og
framtíðarhorfur varðandi þessa
búgrein. Þá mun stjórn SIL leggja
fram tillögu á aðalfundinum um
að stofnað verði hlutafélag er taki
við rekstri Hagfeldar, sem er sö-
lusamtök loðdýraræktenda.
Ok aftan á
einn en bakk-
aði framan
á annan
BIFREIÐ var ekið aftan á aðra
á Suðurlandsbraut við Skeiðar-
vog klukkan 15.45 í gaer. Við
svo búið bakkaði tjónvaldurinn
bifreið sinni á þá næstu fyrir
aftan og ók af vettvangi.
Tjónþolarnir náðu númeri bif-
reiðarinnar og létu lögreglu vita.
Hún fann bílinn og tók hann í sína
vörslu en ökumanninn var hvergi
að finna. Hann kemst þó ekki hjá
því að gefa sig fram og útskýra
aksturslag sitt vilji hann fá bíl sinn
aftur.
Aukið hlutafé í Amarflugi
Uyggir
nauðsynlega samkeppni!
Þú getur orðið hluthafi og nolið góðs <
Amarflug á uppleið a hverju ári í 5 ár. Hlutaféð má greiða á allt að
Amarflug á uppleið
Síðustu misserin hafa verið hagstæð Arnarflugi.
Ný rekstrarstefna hefur reynst farsæl og kom
félagið út með hagnaði á síðasta ári.
Reiknað er með að árið 1988 verði farþegar 50%
fleiri en árið á undan.
Nú gefst þér tækifæri til þess að taka beinan þátt
í áframhaldandi uppbyggingu og markaðssókn
Arnarflugs.
Þú styrkir nauðsynlega samkeppni
Með því að gerast hluthafi í Arnarflugi styrkir þú
samkeppni um flug til og frá
íslandi. Með samkeppni fá neytend-
ur meira val og betri þjónustu.
Hlutafé og hlunnindi
95% afsláttarferðir
Það geta fylgt því hlunnindi að
vera hluthafi í félaginu. Þau eru
mest hjá þeim sem gerast hluthafar
fyrir eina milljón eða meira; þeir
fá m.a. eina ferð með 95% afslætti
á hverju ári í 5 ár. Hlutaféð má greiða á allt að
10 árum.
Arnarflugsklúbburinn
Hlunnindi þeirra sem gerast hluthafar fyrir a.-m.k.
25.000 kr. felast m.a. í eins árs aðild að Arnarflugs-
klúbbnum. Félagar í honum eiga kost á meiri þjón-
ustu og afslætti á tilteknum hótelum og bílaleigum,
aðgangi að setustofum félagsins, fríum drykkjum o.fl.
Hlutafjárframlag getur lægst orðið kr. 5.000.
Heimilt er að greiða hlutaféð með raðgreiðslum, t.d.
kr. 10.000 á mánuði í 10 mánuði.
Leitaðu nánari upplýsinga um
kaup á hlutabréfum í Arnarflugi.
Hafðu samband við söluskrifstofu
Arnarflugs og KLM Austurstræti
22, sími 623060 eða Svein Guð-
mundsson á aðalskrifstofunni
í síma 29511.
Þú hefur þörf fyrir Arnarflug,
Arnarflug hefur
-ni, þörf fyrir þig.
ARNARFLUG #
- félag í samkeppni!