Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
17
Fyrirlestur
Etsalniun
Vatnsstíg 10
Stuðningsmenn Pathfinder-
forlagsins á íslandi efna til fund-
ar í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10,
miðvikudaginn 24. ágúst kl.
20.30.
Kanadamaðurinn John Riddell
talar um alþjóðahyggju á tímum
Leníns og í dag. John Riddell rit-
stýrir útgáfu á skjölum og fundar-
gerðum tengdum Alþjóðasambandi
kommúnista á tímum Leníns. Þrjár
bækur í ritröðinni eru komnar út.
Forlagið Pathfinder gefur bækurn-
ar út. Þær verða til sölu á fundinum
ásamt ýmsum öðrum bókum.
Alþjóðasamband kommúnista
var stofnað í Moskvu í mars 1919.
Að því stóðu forystumenn rússn-
esku byltingarinnar 1917, ásamt
baráttufólki í ýmsum löndum sem
beitti sér gegn slátrun á verkafólki
í fyrri heimsstyijöldinni (1914—
1918). Það var fylgjandi sósíalískri
byltingu og myndun ríkisstjórnar
sem sækti vald sitt til vinnandi
stétta, en ekki hagsmuna ríku
eignastéttanna. Markmiðið með
stofnun Alþjóðasambandsins var að
byggja upp hreyfingu sem berðist
fyrir þjóðfrelsi og sósíalisma um
víða veröld. Á fyrstu árunum gengu
þúsundir verkafólks og stórir flokk-
ar til liðs við það. Alþjóðasamband-
ið varð ekki langlíft, en stjómmál
í dag byggja í mörgum ólíkum atrið-
um á arfleið þess.
Fundurinn er öllum opinn. Það
sem fram fer verður þýtt. Veitingar
verða á boðstólum.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
í grein eftir Jóhann Þórðarson
hæstaréttarlögmann, „Skammt er
stórra högga í milli“, sem birtist í
Morgunblaðinu þriðjudaginn 23.
ágúst, misritaðist starfsheiti höf-
undar. Hann er hæstaréttarlögmað-
ur.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
út peningamagnið í umferð, hrindir
af stað víxlhækkunum kauplags og
verðlags og magnar hallann á fjár-
lögum, neyðist ríkisstjómin til þess
að grípa til vamarráðstafaiia.
Hagfræðingurinn og Nóbelsverð-
launahafinn Dr. Milton Friedman
segir á einum stað, eitthvað á þessa
leið: „Ríkisstjómir einar hafa einka-
rétt á verðbólgu, því enginn annar
má prenta peninga."
.. .af því má leiða að af ríkis-
stjómum er verðbólga komin og af
ríkisstjómum skal hún niður kveðin.
— Hátt verðlag er ekki verð-
bólga, heldur afleiðing verðbólgu. —
Eftirmáli
Ríkisstjómir hafa kost á að velja
einhveija af eftirtöldum leiðum til
að veijast í landi verðbólgu:
1. Að halda áfram að prenta pen-
inga.
2. Að taka erlend lán og prenta svo.
3. Að taka innlend lán og prenta
seinna?
4. Að gera gengisfellingu, sem
fylgt er eftir með niðurskurði á
fjárlögum.
Ef gengisfelling á að ná tilgangi
sínum, burtséð frá óvinsældum
slíkrar aðgerðar, þurfa fyrst að
nást samningar milli aðila vinnu-
markaðarins og ríkisstjórnarinnar
um framhaldið. Annars blossar
verðbólgan upp á ný.
Ef samningar nást, má byija upp
á nýtt og setja vísitölur aftur í 100.
— Vísitala er ekki sjálfstætt
skrímsli sem ógnar fólki, heldur
viðmiðun, eins og hitamælir er á
hita og loftvog á veður.—
Víltu lengja
sumaríð?
Beint áætlunarflug til
Orlando þrisvar í viku
Dæmi: 12 daga dvöl, 14/9 — 26/9.
4 nætur á Econolodge í Orlando og 8 nætur á Coral
Reef. Meðalverð 28.920 kr. fyrir manninn (miðað við
2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára saman í herbergi eða íbúð).
Meðalverð 44.820 kr. fyrir manninn (miðað við
2 fullorðna saman í herbergi eða íbúð). Innifalið í verði:
Gisting og morgunverður á Econolodge í Orlando og
Coral Reef á St. Petersburg ströndinni við Mexíkóflóann.
Sértilboð!
Gildir í ákveðnar ferðir í september og október og er
brottför sem hér segir:
Keflavík-Orlando: 9/9, 14/9, 21/9, 23/9, 25/9, 28/9 og 12/10.
Orlando-Keflavík: 26/9, 29/9, 3/10, 6/10, 10/10, 17/10 og
27/10.
Þú færð allar nánari upplýsingar hjá umboðsmönnur
og ferðaskrifstofum og auk þess á söluskrifstofum
Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju, Kringlunni og
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Upplýsingasími 25100.
Ath. Við bókum bílaleigubíla á góðu verði.
P.S. Þú gengur að sólinni vísri en farðu ekki á mis við
DISNEY WORLD - CYPRESS GARDENS - SEA WORLD
og CAPE CANAVERAL.
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Höfundur er forstjórí'V(filfells hf.
281-9P0UM V|S/XflV