Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 19

Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988 19 Minnisyarði afhjúp- aður á Örlygsstöðum Varmahlfð. AFHJÚPUN minnisvarða á Örlygsstöðum fór fram sl. sunnudag í tilefni af því að hinn 21. ágnst voru nákvæmlega 750 ár liðin frá því að Örlygsstaðabardagi var háður. Menntamálanefnd sýslunefndar Skagafjarðarsýslu gekkst fyrir því að þessi sögufrægi staður yrði auð- kenndur. Athöfnin á Örlygsstöðum hófst með því að oddviti sýslunefnd- ar, Halldór Þ. Jónsson, flutti ávarp. Síðan rakti séra Gunnar Gíslason aðdraganda og ástæður þess að í framkvæmdina var ráðist. Halldór Þ. Jónsson sýslumaður afhúpaði síðan minnisvarðann, sem er rúm- lega tveggja metra hár stuðlabergs- drangur, tekinn í Staðabjargavík við Hofsós og á honum er málm- skjöldur þar sem á stendur: „Fjör- brot þjóðveldisins, Örlygsstaðabar- dagi 21. ágúst 1238.“ Jón Torfason frá Torfalæk flutti erindi um Örlygsstaðabardaga, að- draganda hans og eftirköst og að síðustu söng karlakór undir stjóm Stefáns Gíslasonar. Hér verður ekki rakin atburðarás Örlygsstaðabardaga en hann er sennilega fjölmennasta orrusta sem háð hefur verið á íslandi. Þar börð- ust hátt á þriðja þúsund manna, svo sem skýrt er frá í Sturlungu. Bar- daginn sjálfur stóð fremur stutt, eða í hálftíma til klukkutíma, að því að talið var og féll á sjötta tug manna í valinn. Úrslit voru í raun ráðin áður en til bardaga kom því tvístrað og óskipulagt lið Sturlu Sighvatssonar og hans manna mátti sín lítils gegn hinu fjölmenna og harðsnúna liði sem þeir stjómuðu af öryggi Gissur Þorvaldsson og Kolbeinn ungi. Talið hefur verið að þjóðveldistímanum Ijúki þá er þeir Sighvatur á Grund og synir hans fjórir voru fallnir á Örlygsstöðum. Margt kunnra sögustaða er í Skagafjarðarhéraði sem ekki em sérstaklega merktir og almenning- ur ber ekki kennsl á. Rætt hefur verið að auðkenna einhvetja þess- ara staða á svipaðan hátt og gert hefur verið á Örlygsstöðum. - P.D. Morgunblaðið/Páll Dagbjartsson Haildór Þ. Jónsson sýslumaður afhjúpar minnisvarðann um Örlygs- staðabardaga. íslenskir hár- greiðslumeist- arar sýna í Los Angeles BANDARÍSKA fyrirtækið Mast- ey of Paris, sem er í eigu Frakk- ans Henry Mastey, hefur boðið tveimur íslenskum hárgreiðslu- meisturum, þeim Torfa Geir- mundssyni og Dórótheu Magnús- dóttur, sem reka hársnyrtistof- una Papillu, að taka þátt. í stór- sýningu i Los Angeles 28.—30. ágúst. Sýningin stendur yfir í þrjá daga og heitir Intemational Beauty Show West og er haldin í Convention Center L.A. og er hún um leið kynn- ing á því nýjasta í hársnyrtivöru og förðun. Áætlað er að milli 60 og 100 þúsund manns sæki þessa sýningu. Torfi og Dóróthea munu koma fram fjórum sinnum á dag og vinna við fjögur módel hveiju sinni. Eftir að sýningunni lýkur munu þau vinna einn dag við módel sem nota á í auglýsingar, dagatöl og plaköt næsta ár. Ástæðan fyrir boði þessu er að Torfi Geirmundsson hefur unnið að því að stofna klúbb hársnyrtifólks á Norðurlöndum, sem notar hár- snyrtivömr frá Mastey. Hugmyndin er að klúbbur þessi stuðli að sam- skiptum og samvinnu hársnyrti- fólks á sem flestum sviðum og vinni saman að sýningum bæði á Norð- urlöndum og í Bandaríkjunum og komi þá fram sem „Mastey Nordic Styling Tearn". Klúbbur þessi hefur nú þegar hafíð starfsemi sína hér á landi og munu þrír meðlimir hans taka þátt í sýningu í Englandi 17. október nk. sem haldin er til fjáröflunar til styrktar fólki með vöðvarýrnun og er fjármögnuð af Mastey-fyrirtæk- inu. Þau Jón Stefnir Hilmarsson frá Saloon Ritz, Torfi Geirmundsson og Dóróthea Magnúsdóttir munu . taka þátt í henni og er þátttaka þessa hársnyrtifólks erlendis ekki tilviljun heldur árangur af margra ára starfi og þjálfun. (Fréttatilkynning) Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! RYMIN GARSALA Á FYRSTA FLOKKS GÓLFTEPPUM 30% verðlækkun á úrvals - sérframleiddum teppum úr íslenskri ull teppi úr 80% ull + 20% nylon á hlægilegu verði. verð áður Flair pr. m2 1795,- Tweed pr. m2 1985,- Askja og Hekla pr. m2 1665,- verð nú lækkun 1249,- 546 kr. eða 30% 1389,- 596 kr. eða 30% 1165,- 1165 kr. eða 30% Hentugir litir á alla gólffleti. 5 - 30% verðlækkun á mörgum gerðum annarra teppa og gólfdúkum. Allt að 50% afcláttur af gólfteppa og gólfdúka afgöngum og bútum. 5% kynnlngarafeláttur á norsku gæðaparketi frá BOEN og úrvals - korkflísum frá Portúgal. SÉRTILBOD Nokkur sófaborð með 50% afslæti. Ný verslun á gömlu grunni með vandaða vöru á vægu verði. TEPPABÚÐIN GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.